Fréttablaðið - 19.02.2006, Page 78

Fréttablaðið - 19.02.2006, Page 78
 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR38 HRÓSIÐ ...fær Jón Hallur Stefánsson rit- höfundur fyrir að skrifa skemmti- lega smásögu um morðið á Silvíu Nótt en sagan er birt á vef bókaútgáfunnar Bjarts. Hvað er að frétta? Það er loksins verið að flísaleggja heima hjá mér og síðan er Hafið bláa hafið að byrja í Austurbæ. Augnlitur? Aðalbláberjablár. Starf? Ég starfa sem rithöfundur og fram- leiðandi. Fjölskylduhagir? Ég er gift og á tvö dás- amleg börn, einn hund og þýskan au-pair sem sér um heimilishaldið því ég er aldrei heima. Ertu hjátrúarfull/ur? Mjög. Ég tek þetta allt saman; svarta köttinn, föstudaginn 13. og trúi á drauga og tröll. Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Scrapheat Challenge á Discovery Channel. Þar mæta tvö lið í rusláskorun og búa til vélar eða tæki úr ruslinu. Uppáhaldsútvarpsþáttur? Fréttirnar og Víðsjá. Uppáhaldsmatur? Það er eldsteikt tinda- bikkja á beitingastaðnum Við tjörnina. Það er það besta sem ég fæ. Fallegasti staður? Bótin á Akureyri. Hvað er skemmtilegast? Að liggja fyrir framan sjónvarpið með krakkana hvorn undir sínum arminum og maðurinn er að færa mér kaffi. Hvað er leiðinlegast? Að bíða. Helsti veikleiki? Ég er algjör nautnaseggur. Helsti kostur? Ég er voða jákvæð. Helsta afrek? Börnin mín og líka að ná iðnaðarmönnunum inn í hús og halda þeim þar. Mestu vonbrigði? Að hafa ekki lært á hljóðfæri. Hver er fyndnastur/fyndnust? Helga Braga er ógeðslega fyndin. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Óstundvísi. Uppáhaldskvikmynd? Mary Poppins. Uppáhaldsbók? Aulabandalagið eftir John Kennedy Tool. Hvað er mikilvægast? Að vakna á morgnana. HIN HLIÐIN - KRISTLAUG MARÍA SIGURÐARDÓTTIR Þýskur au-pair sér um heimilishaldið Blátt Áfram er forvarnarverkefni Ungmennafélags Íslands. Það felst í að efla forvarnir gegn kynferð- islegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Um helgina fór ný auglýsingaher- ferð í gang sem stuðlar að því að vekja foreldra til umhugsunar og fá þá til að uppfræða börnin sín. „Foreldrar bera ábyrgð. Það er ekki hægt að ætlast til þess að skólarnir sjái um að fræða börn- in um hvað má og hvað má ekki. Börn hafa líka rétt á að setja mörk. Við höfum verið að fara í lífsleiknitíma í grunnskólunum og uppfræða krakkana. Þar höfum við orðið vitni að því að það vant- ar töluvert upp á samskipti milli fólks. Ég held að börn hafi ekki hugmynd um að þau megi segja nei,“ segir Sigríður Björnsdóttir sem stýrir forvarnarverkefninu Blátt áfram. Aðspurðar um nýju auglýsinga- herferðina segir Sigríður að hug- myndin hafi kviknað fyrir hálfu ári síðan. „Anna Margrét Sigurð- ardóttir kom að máli við okkur. Hún starfar á auglýsingastofunni Hvíta húsinu og hafði fengið við- urkenningu fyrir auglýsingarnar Þögnin rofin. Hún vildi endilega að hugmyndin að auglýsingunum yrðu notaðar í okkar þágu og var tilbúin til að gefa vinnuna sína. Okkur leist rosalega vel á efnið enda hefur þetta ekki verið gert áður og við vissum að auglýsing- arnar myndu hreyfa við fólki,“ segir Sigríður. Þegar hugmynd- in var hins vegar komin á skrið kom babb í bátinn. Þær höfðu ekki reiknað með því að erfitt yrði að fá börn í auglýsingarnar en það reyndist þrautinni þyngra. „Við leituðum lengi að börnum til að taka þátt. Yfirleitt stoppaði þátttakan á feðrum barnanna sem vildu ekki að þeirra börn tækju þátt. Að lokum leituðum við til vina og ættinga. Eftir að hafa rætt vandlega við foreldrana og útskýrt málið fyrir þeim voru börnin spurð hvort þau vildu vera með. Við gerð- um þeim líka grein fyrir því að þau hefðu neitunar- vald og þyrftu ekki að taka þátt frekar en þau vildu,“ segir hún og er ánægð með árangurinn. Auglýs- ingarnar eru þrjár talsins og mismunandi langar og eru bæði í sjónvarpi og í dagblöðum. Spurð hvort það sé ekki dýrt að koma slíkri herferð á koppinn segir hún að svo sé. „Við fengum styrki frá Alcan og frá Actavis en hvort fyrirtækið gaf milljón krónur sem er mjög rausnarlegt. Einn- ig hefur Body Shop lagt okkur lið.“ martamaria@frettabladid.is BLÁTT ÁFRAM: NÝ AUGLÝSINGAHERFERÐ Í GANG Börn hafa rétt á því að segja nei Bretarnir Peter, Paul og Jonathan eru staddir hér á landi til að fylgj- ast með lokakeppni Eurovision sem var haldin í gærkvöldi. Þeir félagar eru þekktir í Eur- ovision-heiminum fyrir áhuga sinn á keppninni og eru jafnframt miklir Íslandsvinir. Eru þeir m.a. góðvinir Selmu Björnsdóttir og voru gestir í brúðkaupi hennar fyrir nokkru síðan. Þeir vinna fyrir breska útvarpsstöð og hafa flakkað á milli landa undanfarin ár, bæði til að fylgjast með und- ankeppnunum og lokaúrslitunum, sem í þetta sinn verða í Grikk- landi. Á þessu ári hafa þeir farið til Slóveníu, Póllands og Noregs og segir Peter lögin frá Póllandi verri en öll þau íslensku sem tóku þátt í ár. Hann segir að undankeppnirn- ar hér á landi séu þær skemmti- legust af öllum sem þeir fara á. „Okkur finnst fólkið héðan vingjarnlegt og afslappað og við höfum hist á hverju ári með vinum okkar og skemmt okkur til sex um morguninn,“ segir Peter. Hann segir að þeir félagar hafi ætlað að sjá Idol-keppnina á föstudagskvöldið, m.a. til að sjá vin sinn Pál Óskar, en ekkert hafi orðið úr því. Þess í stað mættu þeir eldhressir til leiks á Eurov- ision-keppnina. Í gær spáði Peter lagi Silvíu Nætur sigri, þótt hann taldi það ekki besta lagið, en ótt- aðist viðtökurnar í Grikklandi ef hún myndi komast áfram. „Ég veit ekki hvort einhverjir skilji lagið og þetta yrði í fyrsta sinn sem Ísland gerði eitthvað á sérvitr- an hátt. Flestir eiga reyndar von á einhverju sérvitru frá Íslandi, eins og Björk og Páll Óskar bera vitni um.“ Aðspurður um besta Eurovi- son-lag allra tíma segir Peter að valið sé auðvelt; All Out of Luck með Selmu. ■ All Out of Luck besta Eurovisionlagið 28.03 1964 PETER, PAUL OG JONATHAN ÁSAMT VINI SÍNUM Þeir félagar létu sig ekki vanta á úrslitin í Eurovision í gær- kvöld. Hið hressilega útgáfubatterí Nýhil hefur blásið til sérstæðr- ar ljóðasamkeppni en markmið hennar er að finna ömurlegasta ljóð Íslandssögunnar. Keppnin er runnin undan rifjum skáldsins Eiríks Arnar Norðdal en segja má að ljóðið vonda hafi birst honum í draumi sem hann lýsir svona: „Á Íslandi var haldin merk og vegleg ljóðasamkeppni og áhugi skáldaþjóðarinnar var brennandi. Úrslitin voru þau að ungur maður í Reykjavík bar sigur úr býtum,“ segir Eiríkur. Viðbrögð þjóðarinn- ar voru þó fram úr hófi neikvæð og skáldið komst á forsíðu DV undir fyrirsögninni „Ömurlegt ljóð- skáld verðlaunað“. Ljóðið vonda leystist upp fyrir augum Eiríks í draumnum áðru en hann gat lesið það og því varð úr að Nýhil efndi til samkeppninnar til þess að hafa uppi á þessu vonda ljóði. Ljóðum skal skilað á kolbrun- arskald@simnet.is, undir fullu nafni. Ljóðið á þó helst að vera að formi til eins og ljóðið í draumn- um; þrjú erindi, fjórar línur hvert, og um það bil fimmtán atkvæði í hverri línu. Eiríkur segir að tekið verði tillit „til asnalegra mynd- líkinga, klaufalegs orðalags og ósmekklegs umfjöllunarefnis, auk annarra stílbragða ömurðarinnar sem dómnefnd þykir rétt að hafa til viðmiðunar. Skilafrestur er til 8. mars og til- kynnt verður um sigurvegara viku síðar, þann 15. mars. Verði þátttaka næg, og berist nóg af nógu ömurlegum ljóðum, kemur til greina að gefa ljóðin út á einn veg eða annan. ■ Leit að vondu ljóði EIRÍKUR ÖRN NORÐDAL Leitar ásamt öðrum Nýhilistum að ömurlegasta ljóði sem ort hefur verið á íslenska tungu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.