Fréttablaðið - 20.02.2006, Page 4
4 20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
SKOÐANAKÖNNUN Mikill meirihluti
telur að fuglaflensan, sem nú finnst
í fuglum í Evrópu, berist til Íslands,
eða 82,9 prósent samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
17,1 prósent telur að fuglaflensan
muni ekki berast til landsins.
Heldur fleiri íbúar utan höfuð-
borgarsvæðisins telja að flensan
muni finnast í fuglum hér á landi,
eða 86,9 prósent, á móti 80 prósent
íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Lítill
munur er á milli kynjanna, en 82,2
prósent karla telja að fuglaflensan
muni berast hingað til lands, en
83,5 prósent kvenna.
Einnig var spurt hvort fólk væri
hrætt við að smitast af fuglaf-
lensu, en flensan hefur ekki enn
sem komið er stökkbreyst þannig
að hún berist milli manna. Þeir
sem hafa smitast af flensunni í
Evrópu og Asíu hafa hingað til
smitast af fuglum sem hafa verið
sýktir. Íslendingar virðast hafa
litlar áhyggjur af því að smitast
af flensunni og segjast aðeins
14,4 prósent óttast slíkt smit. 85,6
prósent svöruðu spurningunni
neitandi. Konur hafa aðeins meiri
áhyggjur af því að smitast og
sögðu 17,2 prósent þeirra óttast að
smitast, en 11,6 prósent karla. 82,8
prósent kvenna óttast ekki að smit-
ast af fuglaflensu og 88,4 prósent
karla hafa af því litlar áhyggjur.
Þá virðast íbúar höfuðborgar-
svæðisins hafa eilítið meiri áhyggj-
ur af smiti en íbúar utan þess, eða
15,5 prósent. 84,5 prósent höfuborg-
arbúa óttast ekki smit. 12,7 prósent
íbúa utan höfuðborgarsvæðisins
segjast óttast það að smitast af
fuglaflensunni, en 87,3 prósent
íbúa utan höfuðborgarsvæðis svör-
uðu spurningunni neitandi.
Um miðjan janúar spurði Gallup
hvort fólk óttaðist að fuglaflensan
bærist til Íslands. 62 prósent sögð-
ust þá óttast það lítið, 26 prósent
sögðust óttast það mikið og 12
prósent sögðust hvorki óttast það
mikið né lítið. Þá spurði Gallup
hvort fólk óttaðist að smitast af
fuglaflensu og sögðust 10 prósent
óttast það mikið, 81 prósent sögð-
ust óttast það lítið, en 9 prósent
sögðust óttast það hvorki mikið né
lítið. Síðan könnun Gallup var gerð
hafa borist fréttir af fuglaflensu-
smiti víðs vegar um Evrópu og
um tíma var óttast að fuglaflensa
hefði fundist í fuglum í Danmörku.
Svo reyndist þó ekki vera.
Hringt var í 800 manns 18.
febrúar, og skiptust svarendur
jafnt milli kynja og hlutfallslega
eftir kjördæmum. Annars vegar
var spurt: „Telur þú að fuglaflensa
muni berast til Íslands?“ 91,9
prósent aðspurðra tóku afstöðu
til spurningarinnar. Hins vegar
var spurt: „Óttast þú að smit-
ast af fuglaflensu?“ 94,6 prósent
aðspurðra tóku afstöðu til þeirrar
spurningar.
svanborg@frettabladid.is
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 17.2.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 63,45 63,75
Sterlingspund 110,20 110,74
Evra 75,33 75,75
Dönsk króna 10,089 10,149
Norsk króna 9,33 9,388
Sænsk króna 8,08 8,054
Japanskt jen 0,5356 0,5488
SDR 90,95 91,49
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
105,9202
Telur þú að fuglaflensa
muni berast til Íslands?
ALLS
Karlar Konur
Landsbyggð Þéttbýli
Nei
17,8%
Já
82,2%
Nei
16,5%
Já
83,5%
Nei
20,0%
Já
80,0%
Nei
13,1% Já
86,9%
Nei
17,1%
Já
82,9%
Óttast þú að smitast af
fuglaflensu?
ALLS
Karlar Konur
Landsbyggð Þéttbýli
Já
11,6%
Nei
88,4%
Já
17,2%
Nei
82,8%
Já
15,5%
Nei
85,6%
Já
12,7%
Nei
87,3%
Já
14,4%
Nei
85,6%
DANSKIR SVANIR Um tíma fyrir helgi var óttast að fuglaflensan hefði fundist í dönskum svönum. Mikill meirihluti Íslendinga telur að
fugla flensan muni koma hingað til lands samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins.FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁNS
Hafa ekki áhyggjur af smiti
Tæplega 83 prósent telja líklegt að fuglaflensan berist til Íslands, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins.
Mikill minnihluti, eða rúmlega 14 prósent, hefur áhyggjur af því að smitast af fuglaflensunni.
FILIPPSEYJAR, AP Ólíklegt er talið
að fleiri finnist á lífi í rústum
húsanna sem urðu undir aurskrið-
um á Filippseyjum á laugardag.
Björgunarsveitir hafa unnið hörð-
um höndum við að grafa upp líkin
í þorpinu Guinsaugon eftir að aur-
skriðan fór þar yfir. Meirihluti
hinna 1857 íbúa þorpsins lét lífið
en enginn hefur fundist á lífi síðan
á föstudag.
Ríkisstjórn Filippseyja mælt-
ist til þess að þrjátíu fórnarlömb
hamfaranna yrðu grafin í fjölda-
gröf, en ekki hafði tekist að bera
kennsl á líkin.
Voru þau greftruð utan við
þorpið og fór prestur með blessun-
arorð og bæn við athöfnina. -bg
Aurflóðin á Filippseyjum:
Fórnarlömbin
sett í fjöldagröf
FJÖLDAGRÖF Prestur flytur blessunarorð yfir
fórnarlömbum aurskriðunnar á Filipps eyj-
um.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Óhugnanleg morð á börnum
Kona var handtekin í Japan fyrir helgi
grunuð um að hafa stungið tvö fimm
ára gömul börn, stúlku og dreng, til
bana. Konan hefur viðurkennt verkn-
aðinn en ekki hefur komið fram hvað
henni gekk til.
JAPAN
SKIPULAGSMÁL Rúmlega helmingur
íbúa Selfoss er hlynntur skipulags-
hugmyndum fasteignafélagsins
Miðjunnar sem kynntar hafa verið
undanfarið.
Gera tillögurnar ráð fyrir lifandi
miðbæ á landi sem er að stærstum
hluta autt í dag. Þar á meðal á að
gera sérstakan fjölskyldugarð með
ýmsum afþreyingarmöguleikum,
veitinga- og kaffihúsum og leik-
svæðum eða íþróttavöllum af ýmsu
tagi. Miðjan hefur einnig kynnt
hugmyndir um tvo íbúðaturna á
sama stað. Var upphaflega áætlað
að þeir yrðu allt að sextán hæða
háir en Einar Elíasson, forsvars-
maður Miðjunnar, segir ólíklegt að
þeir verði svo háir þegar upp verð-
ur staðið. Verði hugmyndirnar að
veruleika verða tveir háir turnar
því kennileiti miðbæjar Selfoss og
einnig Kópavogs innan nokkurra
ára.
Mikill áhugi er meðal bæjarbúa
á verkefninu sé tekið mið af því að
rúm 70 prósent aðspurðra í könnun
sem fram fór nýlega höfðu kynnt
sér tillögur Miðjunnar og höfðu
flestir sterkar skoðanir á því sem
þar var kynnt. Rúmur helming-
ur vill hafa flugvöllinn á Selfossi
áfram þar sem hann er og 57 pró-
sent aðspurðra telja að hæð húsa í
miðbænum eigi að vera innan við
tólf hæðir. - aöe
EIN HUGMYND MIÐJUMANNA Einkennis-
tákn Selfoss verða þessir tveir turnar ef af
verður en að líkindum verða þeir talsvert
lægri en myndin sýnir. Allt í kring verða
kaffihús, íþrótta- og útivistarsvæði og
sérstakur fjölskyldugarður.
TEIKNING/3XN
Hugmyndir fasteignafélags um uppbyggingu miðbæjarsvæðis Selfoss:
Lagt til að tveir turnar rísi
PALESTÍNA, AP Tveir palestínskir
unglingar voru skotnir af ísra-
elskum hermönnum í flótta-
mannabúðum í Palestínu í gær,
þegar til átaka kom milli þeirra
og ísraelskra hermanna.
Að sögn sjónarvotta köstuðu
unglingarnir steinum að her-
mönnunum en talsmenn ísraelska
hersins hafa aðra sögu að segja.
Þeir halda því fram að drengirnir
hafi ætlað að koma sprengju fyrir
í búðunum.
Drengirnir voru báðir sautján
ára en jafnaldri þeirra særðist
einnig í viðureigninni við her-
mennina.
-bg
Unglingar skotnir í Gaza:
Köstuðu grjóti
að hermönnum