Fréttablaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 20. febrúar 2006 3
Þórunn Maggý Mýrdal Guð-
mundsdóttir, setti nýlega upp
sína fyrstu myndverkasýningu.
Maggý lauk námi við The Art
Institute of Philadelphia fyrir
nokkrum árum síðan. Hún segir
að hún hafi í fyrstu ætlað sér að
gerast grafískur hönnuður en hafi
síðar endað með að útskrifast á
myndlistarbraut. ,,Áhugi minn-
beindist meira út í myndlistina
eftir að ég byrjaði í grafískri hönn-
un. Ég byrjaði því að taka fleiri
tíma í myndlist og öðru slíku.“
Síðan Maggý kom heim hefur
hún að mestu séð um rekstur kaffi-
húss í miðborg Reykjavíkur. Hún
segir hins vegar að hún hafi verið
að gera málverk allt frá barnsaldri
og að lokum hafi hún ákveðið að
halda sína fyrstu myndlistarsýn-
ingu. ,,Þetta er í raun mín fyrsta
sýning. Áður fyrr hafði ég ekki
þorað að sýna neitt.“
Maggý er hins vegar afar
ánægð með viðbrögð gesta á sýn-
ingunni það sem af er. ,,Fólk segir
að myndirnar tali til sín enda nota
ég mikið af setningum og orðum.
Myndirnar tala því á vissan hátt
við mann og gefa fólki eitthvað til
að hugsa um. Myndirnar segja sig
reyndar að mestu sjálfar. Þær eru
hráar og hefðbundnar en hafa samt
sinn boðskap, það er minn stíll.“
Í framhaldi af jákvæðum við-
brögðum við sýningunni segist
Maggý nú ætla að reyna að feta sig
áfram á myndlistarsviðinu. ,,Ég
hef verið svo feimin við að sýna
verkin mín en ég ákvað að prófa.
Í kjölfarið hef ég fengið svo góð
viðbrögð að það hvetur mig til þess
að halda áfram og vonandi getur
þetta orðið að mínu aðalstarfi.“
Maggý sýnir í kjallara veit-
ingastaðarins Galileo við Hafnar-
stræti. Maggý gerir ráð fyrir því
að sýningin standi til páska. ,,Ég
ætla síðan að reyna að komast að
á öðrum stöðum. Vonandi get ég
alltaf verið með eitthvað í gangi
og ekkert að stoppa,“ segir hin
jákvæða Maggý að lokum.
steinthor@frettabladid.is
��������������������������������
������������������������������
���������������
�����������������������
����������������������
Þó svo að það séu enn rúm-
lega tveir mánuðir í það að sól
verði nógu hátt á lofti til þess
að málarameistarar fari að
sletta málningu
á veggi er ekki of
snemmt að tryggja
sér starfskrafta
þeirra.
Margir brenna sig
á því að panta ekki
fagmenn tímanlega þegar mála á
að vori. Málarameistarar hefjast
flestir handa í byrjun maí en þeir
hafa þegar skipulagt sumarið í lok
apríl. Ingimundur Einarsson mál-
arameistari segir að það gerist allt
of oft að fólk átti sig ekki á þessu.
„Fólk þarf að panta tíma strax í
byrjun mars ef það vill vera öruggt
því líklegast verða allir málarar
komnir upp fyrir haus í vor,“ segir
Ingimundur.
Þrátt fyrir
að veðurfar hafi
batnað hefur
málningartíma-
bilið lítið breyst.
„Til að mála þurfa
bara ákveðin skil-
yrði að vera fyrir
hendi svo hægt
sé að gera vel. Það er hægt að gera
ýmislegt annað eins og að laga
steypuveggi langt fram í desem-
ber svo lengi sem það er frostlaust
en það á ekki við um málninguna,“
segir Ingimundur.
Nú á að panta málningu
Beinskeytt málverk
Þórunn Maggý Mýrdal Guðmundsdóttir við eitt af myndverkum sýnum á veitingastaðnum Galileo. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN