Fréttablaðið - 20.02.2006, Side 6
6 20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
STJÓRNMÁL Framsóknarflokkur
hefur átt í erfiðleikum að undan-
förnu og þess vegna kemur það
ekki á óvart að fylgi við hann, og
ríkisstjórnina, mælist ekki hátt
í skoðanakönnunum. Þetta segir
Ólafur Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, en hann segir flokkinn
hafa átt í erfiðleikum frá því Hall-
dór Ásgrímsson tók við embætti
forsætisráðherra.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
með 44,3 prósenta fylgi á lands-
vísu sem er tæplega sex prósentu-
stiga fylgisaukning frá síðustu
könnun sem gerð var í nóvember
á síðasta ári.
Ólafur segir það athyglisvert
að formannsskipti í Sjálfstæðis-
flokknum hafi leitt af sér mikla
fylgisaukningu.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur
bætt við sig miklu fylgi frá því
Geir H. Haarde tók við af Davíð
Oddssyni sem formaður. Það er
sláandi að sjá þá breytingu. Það
sem hefur breyst á þessu kjör-
tímabili er það að stuðningurinn
við ríkisstjórnina hefur verið í
kringum 50 prósent nær allt tíma-
bilið, sem er mikil breyting frá
kjörtímabilunum á undan þegar
ríkisstjórnarflokkarnir höfðu
samanlagt mun meira fylgi.“
-mh
Þýðir meiri vinnu
„Ég hef ekki lagt mig
sérstaklega eftir að
kynna mér þetta en
eins og ég sé þetta í
dag þýðir þetta meiri
og áframhaldandi
vinnu fyrir mig sem
iðnaðarmann og er
þess vegna frekar fylgjandi,“ sagði
Gunnar Þorbergur.
„Ég fór ekki á þennan margumtalaða
fund og sannast sagna skiptir þetta mig
litlu máli hvort betri samningum hefði
mátt ná. Þetta er búið og gert.
Stór biti til sama
aðila
„Ég hef verið mótfallin
þessum samningi við
Eykt þar sem mér finnst
þetta ákaflega stór biti
og hefði mátt skipta
þessu landi meira niður
og taka minni skref í
uppbyggingunni en samningurinn við
Eykt felur í sér, en ég tek fram að ég hef
ekki kynnt mér öll gögn til hlítar.“
Ekki tímabært
„Persónulega finnst
mér þetta alls ekki
tímabært því ég sé
ekki hvaðan allt þetta
fólk á að koma sem
á að búa í þeim 900
íbúðum sem þarna á
að byggja,“ sagði Valgý
Eiríksdóttir.
„Það er mikið af lausum lóðum í
bænum ennþá sem nær væri að klára
áður en lengra er haldið. Þar að auki fer
verð á íbúðum síhækkandi og ef verðið
stígur mikið meira verður svipað dýrt
hér og í höfuðborginni og þá er farin sú
ástæða sem margir gefa fyrir að flytja
hingað.
Alfarið á móti
„Þetta er alveg út í hött að mínu mati
og ég er alfarið á móti
að landið sé nánast
gefið einu fyrirtæki,“
sagði Sigurður Björg-
vinsson.
„Þarna hefur Eykt
nælt sér í afar góðan
samning að mínu mati
og bærinn að sama
skapi misst spón úr
aski sínum. Betur hefði
verið að fara hægar í sakirnar.“
Hef skipt um
skoðun
„Fyrst þegar ég frétti af
þessu leist mér illa á
og var á móti en eftir
að hafa kynnt mér
hvað til stendur að gera
þarna og hvers konar
samningur þetta er þá
hef ég skipt um skoð-
un,“ sagði Steinunn
Þorgrímsdóttir.
„Þetta ræða margir í bænum og fólk
hefur skipst í tvær fylkingar en ég
held líka að margir séu ekki búnir að
kynna sér málið til hlítar. Mér líst alveg
bærilega á samninginn við Eykt og held
að erfitt hafi verið að fá betri samning
fyrir bæinn.“
Góður samningur
„Mér líst vel á þennan
samning því þetta þýðir
hraða uppbyggingu í
bænum og fólksfjölgun
og ég fæ ekki betur
séð en bærinn sé að
komast þokkalega frá
málum því það er dýrt
að byggja upp nýtt
svæði,“ sagði Jónína
Þrastardóttir.
„Þarna er stórt svæði sem stór verktaki
mun byggja upp í góðu samstarfi við
bæjaryfirvöld og fyrir vikið held ég að
öll uppbyggingin verði betri og hraðari
en ella.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Hvergerðing-
ar eru fjarri því á eitt sáttir um
samning sem meirihluti bæjar-
stjórnar hefur samþykkt fyrir
hönd bæjarins við verktakafyr-
irtækið Eykt um uppbyggingu
900 íbúða á næstu árum. Flestar
athugasemdir íbúa lúta að gagn-
rýni á að samningurinn var gerð-
ur án útboðs og að farið sé of
geyst. Ekki liggi á að byggja svo
margar íbúðir á síðasta bygging-
arlandi Hveragerðisbæjar.
Orri Hlöðversson bæjarstjóri
segir þetta misskilning og bend-
ir á þá hröðu uppbyggingu sem
átt hefur sér stað á höfuðborgar-
svæðinu og í nágrannasveitarfé-
lögum. „Markmið meirihlutans
hefur verið að tvöfalda íbúafjöld-
ann á tólf árum og samningurinn
við Eykt er skref á þeirri leið.
Með honum viljum við reyna að
hafa áhrif á verðmyndun eigna í
framtíðinni til að freista þess að
bærinn verði aðgengilegur þeim
sem áhuga hafa á að búa hér í
framtíðinni.“
Minnihlutinn í bæjarstjórn
hefur sem kunnugt er gagnrýnt
harðlega ákvörðun meirihlutans.
Þegar hefur verið lögð fram kæra
vegna hennar og er það í þriðja
sinn sem ákvörðun meirihlutans
er kærð. Aldís Hafsteinsdótt-
ir, oddviti minnihlutans, segir
ástæðuna einfalda. „Samningur-
inn snýst um það að Eykt fær leyfi
til að búa til allar þær tekjur sem
hægt er af landi sem bærinn átti.
Svo skila þeir okkur landinu aftur
sem við áttum og þá innheimtum
við lóðarleigu. Hvergerðingar
gefa frá sér mikil verðmæti, fá
ekkert fyrir og við verðum sjálf
að standa straum af allri uppbygg-
ingu. Á sama tíma lýsa aðrir yfir
áhuga á samningi svipuðum þeim
sem gerður var við Eykt, en það
má ekki skoða. Hver maður sér að
þetta er fásinna.“
„Áhuginn sem Aldís talar um
hefur verið óformlegur tölvupóst-
ur sem sendur hefur verið til bæj-
arfulltrúa á lokastigum viðræðna
við Eykt,“ segir Herdís Þórðar-
dóttir, formaður bæjarráðs. „Það
er nánast daglegt brauð að minni-
hlutinn kæri uppbyggingu hér og
við kippum okkur ekki upp við það.
Auðvitað stendur alltaf styrr um
allar stórar breytingar á högum
fólks og þetta er einhver stærsta
ákvörðun sem bærinn hefur tekið
lengi og með það að sjónarmiði að
íbúum fjölgi og þjónusta aukist
þegar fram líða stundir.“
albert@frettabladid.is
ÁTAKASVÆÐIÐ Byggingarlandið sem á að rúma 900 íbúðir og næstu kynslóð af Hvergerðingum er austan við Ölfusborgir sem sjást á myndinni. Þetta er síðasta stóra landsvæðið sem
bærinn átti. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
Samningur bæjarins
við Eykt veldur deilum
Íbúar Hveragerðis skiptast í tvær fylkingar um samning bæjarins við Eykt um uppbyggingu á síðasta stóra
eignarlandi Hveragerðisbæjar. Samningurinn hefur verið kærður.
JÓNÍNA ÞRAST-
ARDÓTTIR
SIGURÐUR
BJÖRGVINSSON
STEINUNN
ÞORGRÍMS-
DÓTTIR
VALGÝ
EIRÍKSDÓTTIR
ALDÍS HAFSTEINSDÓTT-
IR Segir skammsýni
einkenna samning
bæjarins og að hagur
bæjarbúa hafi alls ekki
verið tryggður með
samningnum við Eykt.
HERDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR
Átti von á deilum um
samninginn enda sé við
því að búast þegar stórar
breytingar verða á lífi
eða högum fólks.
ORRI HLÖÐVERSSON
Segir horft til framtíðar
með samningnum og
tryggt sé að Hveragerði
verði áfram vænlegur
kostur fyrir alla þá er
flytjast vilji suður eða
flytja úr höfuðborginni.
EUROVISION „Ég horfði ekki á
keppnina og veit ekki hvernig
þetta fór,“ sagði
Kristján Hreins-
son lagahöfund-
ur þegar Frétta-
blaðið leitaði
eftir viðbrögðum
hans við úrslitum
í forkeppni Eur-
ovision sem fram
fór á laugardags-
kvöld.
Kristján segir
hóp lagahöfunda, sem ekki er sátt-
ur við vinnubrögð RÚV í keppn-
inni, ætla að halda sínu striki
og fylgja málinu til enda. „Við
munum leita lögformlegra leiða í
málinu,“ segir Kristján.
Hann hefur verið talsmaður
hópsins sem mótmælt hefur því að
eitt lag hafi fengið forskot á önnur
þegar lagið lak á netið. Lagið sem
um ræðir er sigurlagið Til ham-
ingju Ísland í flutningi Silvíu
Nóttar. Kristján segist mótmæla
því að reglum hafi verið breytt í
miðri keppni óháð því hvaða lag á
þar í hlut. - jóa
Kristján Hreinsson:
Horfði ekki
á Eurovision
KRISTJÁN
HREINSSON
Voru gerð mistök með samningnum við Eykt?
GUNNAR
ÞORBERGUR
HRÖNN
VALTÝSDÓTTIR
STJÓRNMÁL Eyþór Arnalds, sem
hreppti 1. sætið í prófkjörinu,
segir kosningaþátttökuna hafa
farið fram úr sínum björtustu
vonum. Um 1100 manns kusu
í prófkjörinu af tæplega 7000
íbúum sveitarfélagsins eða tæp 16
prósent.
,,Það er greinilega skýr og
almennur vilji kjósenda að fá nýtt
fólk að,“ segir Eyþór og bætir við
að allir frambjóðendur hafi sagst
ætla að taka því sæti sem þeir
lentu í. Páll Leó Jónsson, odd-
viti flokksins, fékk einungis 89
atkvæði og lenti í 11. sæti. Ekki
náðist í Pál Leó vegna málsins.
- sdg
Eyþór Arnalds:
Skýr vilji að fá
nýtt fólk inn
EYÞÓR ARNALDS Lagði áherslu á málefna-
fundi frekar en auglýsingaherferðir og telur
kostnað við framboðið nema rúmri hálfri
milljón. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ólafur Þ. Harðarson segir stuðning við ríkisstjórnina vera lítinn þessa dagana:
Samstarfið hangir á bláþræði
McDonalds í vondum málum
McDonalds keðjan hefur fengið á sig að
minnsta kosti þrjár kærur eftir að keðjan
viðurkenndi í síðustu viku að frönsku
kartöflurnar sem seldar eru á McDon-
alds innihaldi bæði hveiti- og mjólk-
urafurðir. Kærurnar byggjast á því að
almenningur hafi verið blekktur. Meðal
kærenda er fólk sem þjáist af glúteinof-
næmi og mjólkuróþoli sem veiktist eftir
neyslu á frönskunum. McDonalds er nú
að láta ofnæmisprófa franskarnar.
BANDARÍKIN
KAFLASKIL Í ÍSLENSKUM STJÓRNMÁLUM FRÁ KOSNINGUM 2003
Skoðanakannanir Fréttablaðsins
44,3%
33,7%
15.september 2004
Halldór Ásgrímsson tekur
við forsætisráðuneytinu af
Davíð Oddssyni.
kosn.
2003
feb.
2004
jún.
2004
feb.
2005
feb.
2006
17,7%
7,1%
22.maí 2005 Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir tekur við sem
formaður Samfylkingarinnar
af Össuri Skarphéðinssyni.
16.október
2005 Geir H.
Haarde tekur
við af Davíð
sem formaður
Sjálfstæð-
isflokksins.
Davíð hættir
afskiptum af
stjórnmálum.
KJÖRKASSINN
Á Ríkisútvarpið að fara af aug-
lýsingamarkaði?
Já 43,8%
Nei 56,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að leyfa áfengisauglýsingar?
Segðu þína skoðun á Vísir.is