Fréttablaðið - 20.02.2006, Page 42
20. febrúar 2006 MÁNUDAGUR24
TILBOÐ ÓSKAST
Afar glæsilegt 231,8 fm. einbýlishús á 2 hæðum með innbyggðum 32,3 fm. bílskúr Húsið er afar vandað í alla staði
og nánast fullfrágengið. Gólfefni er gegnheilt hnotuparket og flísar. Forstofa er með flísum og parketi, stofa, eldhús
og hol er með gegnheilu hnotuparketi. Allar innihurðir eru úr hnotu. Eldhús er með fallegri dökkri viðarinnrétt-
ingu,eldunareyju með keramikhelluborði og mjög góðu borðplássi. Útgengt er út í garð bæði úr stofu og holi.
Þvottahús er með flísum og stórri innréttingu. Útgengt út í garð og inn í bílskúr. Stigi á milli hæða er steyptur með
gegnheilli hnotu,handrið er úr burstuðu stáli. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi bæði með skápum,gott sjónvarpshol
þaðan útgengt á stórar suðursvalir með sólpalli. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtu og fal-
legri innréttingu. Gólfhiti er í öllum aðalrýmum hússins.100 fm. skrautsteyps bílastæði með hita undir að hluta. Hús-
ið er að hluta til húðað með fallegum dökkum hvarts-mulningi annarstaðar slétthúðað og málað í ljósum lit. Bílskúr
er klæddur með lituðu bárustáli. Gluggar og innihurðir eru hvítar að lit. 36 fm. rými á neðri hæð er í dag nýtt fyrir
vinnustofu,mjög auðvelt er að breyta því í íbúð allar lagnir fyrir eldhús og salerni eru fyrir hendi.
Blómvellir - 221 Hfj.