Fréttablaðið - 10.03.2006, Side 6
6 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR
KJÖRKASSINN
Hefurðu áhyggjur af viðskipta-
hallanum?
Já 77%
Nei 23%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlarðu á fjárfesta í hlutabréfum
á næstu vikum?
Segðu skoðun þína á visir.is
FJÁRMÁL Sigurður Líndal, prófess-
or í lögfræði, telur lagalegan
grundvöll fyrir hugmyndum
starfshóps stjórnvalda um hugs-
anleg áföll í íslensku fjármálalífi,
ekki vera fyrir hendi.
Í tillögum starfshópsins kemur
fram að Fjármálaeftirlitið geti
vikið bankaráðum og bankastjórn-
um frá og tekið vald hluthafa-
funda eða stofnfjáreigenda í félög-
unum. „Það er ekki lagalegur
grundvöllur fyrir þessum hug-
myndum starfshópsins. En hins
vegar, ef það yrðu sett lög þá væri
hætt við því að þau færu í bága við
stjórnarskrá. Til dæmis eignar-
réttarákvæði stjórnarskrárinn-
ar.“
Í 72. grein íslensku stjórnar-
skrárinnar segir að eignarréttur-
inn sé friðhelgur. „Engan má
skylda til að láta af hendi eign sína
nema að almenningsþörf krefji.
Þarf til þess lagafyrirmæli og
komi fullt verð fyrir,“ segir orð-
rétt í stjórnarskránni.
Aðeins neyðarréttarsjónarmið
í lögum geta heimilað stjórnvöld-
um að grípa inn í starfsemi fyrir-
tækja í einkaeigu. Slík sjónarmið
eru ekki fyrir hendi í íslenskum
lögum.
Þau ríki sem hafa neyðarrétt-
arsjónarmið innan sinna laga,
geta aðeins beitt þeim ef til alvar-
lega aðstæðna kemur, sem varða
almannaheill. Þær aðstæður, sem
oftast eru nefndar í erlendum
lögum, geta til dæmis skapast við
stríðsátök eða náttúruhamfarir.
Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja, fagnar því
að íslensk stjórnvöld skuli vera
farinn að huga viðbragðsáætlun
við hugsanlegum vanda íslenskra
fjármálafyrirtækja. „Það er fagn-
aðarefni að íslensk stjórnvöld séu
að setja upp viðbragðsáætlun við
hugsanlegum vanda í efnahagslíf-
inu. Með því feta þau í fótspor
nágrannaríkja okkar. Við teljum
hins vegar ekki að það eigi að búa
til reglur sem aðeins eru sniðnar
að íslenskum veruleika, heldur er
nauðsynlegt að stjórnvöld hér á
landi haldi sig við alþjóðlegar við-
miðanir í þessum efnum.“
Í greinargerð starfshóps á
vegum stjórnvalda, Seðlabankans
og Fjármálaeftirlitsins kemur
fram að æskilegt sé að Fjármála-
eftirlitinu verði fært vald til þess
að víkja frá stjórnum, bankastjór-
um eða framkvæmdastjórum fjár-
málafyrirtækja, og skipa í stöð-
urnar að nýju. magnush@frettabladid.is
Tillögur starfshóps
ekki studdar lögum
Sigurður Líndal, prófessor í lögfræði, segir skorta lagalegan grundvöll fyrir
hugmyndum starfhóps um hugsanleg áföll í efnahagslífinu. Guðjón Rúnarsson
fagnar gerð viðbragðsáætlunar en segir mikilvægt að hún sé alþjóðamiðuð.
FÓLK Í BANKAVIÐSKIPTUM Skýrslur erlendra fyrirtækja hafa að undanförnu valdið töluverðum óróa í íslensku efnahagslífi. Íslensk stjórn-
völd hafa þegar skipað starfshóp sem fjallar um viðbrögð við vandanum sem upp getur komið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GUÐJÓN RÚNARSSON
Telur mikilvægt að
áætlanir stjórnvalda
taki mið af svipuðum
reglum erlendis.
SIGURÐUR LÍNDAL
Telur lagalegan
grundvöll fyrir inn-
gripi stjórnvalda ekki
vera fyrir hendi.
KRÓNAN „Spurningum um það
hvort þetta sé hægt hefur ekki
verið svarað,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra,
en hún hefur lýst áhuga á að kanna
möguleika á að taka upp evruna
sem gjaldmiðil hér á landi án aðild-
ar að Evrópusambandinu.
„Af viðbrögðum að dæma telur
að minnsta kosti sendiherra Evr-
ópusambandsins hér á landi þetta
þannig mál að vert sé að skoða það
nánar innan framkvæmdastjórnar
ESB,“ segir Valgerður.
„Sú spurning hvort hagsmun-
um Íslands verði best þjónað með
því að gerast aðilar að Efnahags-
og myntbandalagi Evrópu, EMU,
verður stöðugt áleitnari,“ segir
Valgerður í pistli sínum.
Ráðherrar sjálfstæðisflokks-
ins, þau Sigríður Anna Þórðardótt-
ir umhverfisráðherra og Geir H.
Haarde utanríkisráherra lýstu því
bæði í gær að það væri óraunhæf-
ur möguleiki að Ísland gæti öðlast
aðild að myntbandalagi Evrópu-
sambandsins og tekið upp evruna
sem gjaldmiðil án þess að ganga í
Evrópusambandið.
Evrópski seðlabankinn sér um
framkvæmd peningastefnu sam-
bandsins og ákveður meðal annars
vexti. Ljóst er því að aðild að EMU
felur í sér frekara framsal á sjálfs-
ákvörðunarrétti Íslands en varð
með aðild Íslands að Evrópska
efnahagssvæðinu. - jh
Óraunhæft að skipta út krónunni að mati ráðherra Sjálfstæðisflokksins:
Ráðherrar þrátta um evruna
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR VIÐSKIPTA-
RÁÐHERRA Tveir ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins telja hugmyndir viðskiptaráð-
herra um aðild að myntbandalagi ESB
óraunhæfar.
VIÐSKIPTI Mikill áhugi Dana á
íslensku efnahagslífi kom berlega
í ljós í gær þegar þúsund manns
mættu til að hlýða á erindi fimm
frammámanna úr íslensku við-
skiptalífi í Kaupmannahöfn. Tölu-
verð umfjöllun hefur verið um
fjárfestingar íslenskra fyrirtækja
í Danmörku síðastliðið ár og einn-
ig um stöðu íslenska efnahags-
kerfisins.
Í erindum sínum lögðu þeir
Hannes Smárason, Ágúst Guð-
mundsson, Jón Ásgeir Jóhannes-
son og Bjarni Ármannsson áherslu
á að fyrirtæki þeirra væru ekki
háð gengi íslensku krónunnar.
Á forsíðu viðskiptablaðsins
Børsen í gær var fjallað um
skýrslu Merrill Lynch og hún sögð
áfellisdómur yfir íslensku bönk-
unum. Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Kauphallarinnar, sagðist
telja að áhrif skýrslunnar og
skýrslu Fitch í síðasta mánuði
væru of mikil.
Í viðtali við Fréttablaðið eftir
fundinn sögðu þeir Bjarni, Jón
Ásgeir og Hannes að töluverðs
misskilnings á íslensku viðskipta-
lífi gætti í Danmörku og kæmi það
fram í neikvæðri umfjöllun fjöl-
miðla. Sögðu þeir fundinn kær-
komið tækifæri til að upplýsa
Dani og slá á efasemdirnar. - ks
Þúsund manns hlýddu á erindi fimm frammámanna í íslensku viðskiptalífi:
Reynt að slá á efasemdir
ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON Forstjóri Kauphall-
arinnar.
VIÐSKIPTI Eigendum dönsku stór-
verslunarinnar Magasin du Nord
verður greiddur rúmlega þriggja
milljarða króna arður á næstu
misserum. Þetta kom fram í máli
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs, á fundi með dönsku
viðskiptafólki sem fram fór í
Kaupmannahöfn í gær.
Sagði hann að Baugur hefði séð
góða möguleika á að snúa rekstri
fyrirtækisins við á sínum tíma.
Með arðgreiðslunni væri fjárfest-
ing Baugs búin að borga sig.
- ks
Milljarða arður í Magasin:
Fjárfestingin
borgaði sig
Bjarni Ármannsson forstjóri Íslands-
banka segir mjög mikilvægt til sé
svipuð uppsetning að viðbrögðum
við fjármála-
krísum hér
og er í öðrum
Evrópuríkjum.
Bjarni
segist þó ekki
hafa fylgst
með vinnuferli
starfshóps
ráðuneytanna,
Seðlabankans
og Fjármálaeft-
irlitsins og því
lítið geta tjáð
sig um hvaða aðstæður það gætu
mögulega verið sem til þyrftu að
koma áður en ráð yrðu tekin af fyr-
irtæki eða fjármálastofnun. „Ég veit
því ekki hvaða hagsmunir ríkisvalds-
ins væru fólgnir í því að grípa inn í
með þeim hætti.“
- óká
Forstjóri Íslandsbanka:
Samræmið
skiptir máli
BJARNI
ÁRMANNSSON
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbankans, telur greinargerð
um viðbúnað við erfiðleikum á fjár-
málamarkaði til
marks um að
stjórnvöld átti
sig á mikilvægi
fjármálakerf-
isins.
„Almennt
held ég að
verið sé að
velta upp
hvernig væri
hægt að
bregðast við
ímynduðum
aðstæðum. Rétt eins menn hugsa
líklega um varnir gegn annarri vá, líkt
og hvernig bregðast ætti við ef sykki
kjarnorkukafbátur í landhelginni,“
segir hann og telur tilviljun hafa
ráðið því að álit starfshópsins komi
fram á sama tíma og fram fari frekar
neikvæð umræða um bankakerfið.
- óká
Bankastjóri Landsbankans:
Átta sig á mikil-
vægi bankanna
SIGURJÓN Þ.
ÁRNASON
DÓMSMÁL Maður á tvítugsaldri var í
gær dæmdur í átta mánaða fangelsi
fyrir vopnað rán sem framið var í
apríl 2005 í verslun í Kópavogi.
Maðurinn játaði að hafa ógnað
starfsstúlku í versluninni með
skrúfjárni og látið hana opna fyrir
sig sjóðsvél, og þaðan tók maðurinn
35 þúsund krónur.
Héraðsdómur hafði skilorðs-
bundið refsinguna í átta mánuði en
Hæstiréttur sá ekki ástæðu til þess
að hún yrði skilorðsbundin. Maður-
inn var að auki dæmdur til þess að
greiða allan áfrýjunarkostnað máls-
ins, tæplega 180 þúsund krónu, auk
málsvarnarlauna. Samtals nema
þau 150 þúsund krónum. -mh
Dæmdur fyrir vopnað rán:
Fékk átta mán-
aða fangelsi
JAPAN, AP Japanski utanríkisráð-
herrann, Taro Aso, olli miklu fjaðra-
foki í gær þegar hann
sagði japanska þing-
inu að Taívan væri
„löghlýtt land“.
Stjórnvöld í Peking í
Kína mótmæltu harð-
lega, enda neita þau,
sem og yfirvöld
margra vestrænna
ríkja, að viðurkenna sjálfstæði Taí-
vans og telja það hluta af Kína.
Utanríkisráðuneyti Japans sagði
Aso hafa leiðrétt orð sín síðar og
sagt Taívan vera „hérað“.
Ekki er langt síðan kínversk
yfirvöld komust í uppnám yfir
orðum Aso um að Kínverjar létu
kvennjósnara táldraga japanska
erindreka, og kúga þá svo til að gefa
upp ríkisleyndarmál. - smk
Kínverjar reiðir út í Japana:
Japani segir
Taívan „land“
TARO ASO
FRAKKLAND Kennarinn, sem tók 23
gísla í menntaskóla í vesturhluta
Frakklands í gær, gafst upp síðdeg-
is í gær. Gíslarnir voru 21 nemandi,
einn kennari og einn utanaðkom-
andi og varð þeim ekki meint af.
Kennarinn er á fertugsaldri og
starfaði við afleysingar í skólanum
fyrir tveimur árum en hefur verið
atvinnulaus upp á síðkastið. Kenn-
arinn vildi fá að ræða við fjölmiðla
um vandamál sín. Talið er að hann
þjáist af þunglyndi. - ghs
Uppnám í skóla í Frakklandi:
Gafst upp og
sleppti gíslum
Kviknaði í piparsteik Tilkynnt var
um mikinn svartan reyk og eld í blokk
við Engihjalla í Kópavogi í gærkvöld.
Þegar slökkvilið kom á staðinn kom í
ljós að íbúi í blokkinni var að grilla pip-
arsteik og hafði aðeins kviknað í steik-
inni og varð reykurinn því svo mikill.
SLÖKKVILIÐ
VIAGRA Á MARKAÐ Stinningarlyfið
Viagra er loks komið á markað í Indlandi
en að líkindum helst til seint til að
framleiðandinn hafi mikinn hagnað
af. Indversk fyrirtæki hófu fyrir löngu
framleiðslu á sambærilegum lyfjum sem
kosta margfalt minna.
INDLAND
LÖGREGLA Tollgæslan og lögreglan
í Borgarnesi lögðu í gær hald á
smyglvarning í fraktskipinu
Sunnu í Grundartangahöfn með
aðstoð Tollgæslunnar í Reykjavík.
Sex skipverjar gengust við því að
eiga varninginn, 33.800 sígarettur,
og gengust við sektargerð vegna
málsins.
Skipið, sem er í eigu Skipafé-
lagsins Ness hf., hélt frá Grundar-
tanga í gærkvöld. Skipafélagið
greiddi rúmlega 642 þúsund króna
sekt fyrir hönd skipverjanna og
hélt skipið svo frá höfn. Áhöfnin
var að mestu erlend en þó var einn
Íslendingur um borð. - ghs
Smygl á Grundartanga:
Sex gripnir
með sígarettur