Fréttablaðið - 10.03.2006, Síða 8

Fréttablaðið - 10.03.2006, Síða 8
8 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR NISSAN X-TRAIL Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16 Ríkulegur staðalbúnaður 17" álfelgur, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga. E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 5 8 9 Nissan X-Trail Sport 2.690.000 kr. FULLBÚINN Á FRÁBÆRU VERÐI! VEISTU SVARIÐ 1 Í hvaða bæ hafa menn sammælst um að hætta að flagga í hálfa stöng? 2 Á hvaða íslenska fréttavef er hægt að lesa fréttir á pólsku? 3 Hvar fer fyrsta formúlu 1 keppni ársins fram um helgina? SVÖR Á BLS. 50 BANDARÍKIN, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti sætir nú mikilli gagnrýni þingmanna vegna fyrir- ætlunar stjórnvalda um að fela ríkisreknu fyrirtæki frá Samein- uðu arabísku furstadæmunum rekstur sex helstu hafna Banda- ríkjanna. Fjárlaganefnd fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings sam- þykkti seint á miðvikudag, með 62 atkvæðum gegn einungis tveimur, frumvarp sem stöðvar kaup Dubai Ports World á hafnarrekstrinum. Þetta er alvarlegasti ágreiningur- inn sem upp hefur komið milli þingmanna og Bush, og segja stjórnmálaskýrendur gjörð þing- mannanna vera nánast beina árás á forsetann. Fjárlaganefndin skaut klausu sem stöðvar yfirtöku Dubai-fyrir- tækisins inn í frumvarp um 91 milljarðs dollara fjárveitingu til stríðsreksturs í Írak og neyðarað- stoð vegna fellibyljanna heima fyrir. Andstaða við yfirtöku Dubai- fyrirtækisins á rekstrinum er mikil bæði meðal þingmanna úr báðum flokkum sem og almenn- ings, og telja margir að öryggi landsins yrði stefnt í voða fengi Dubai Ports World yfirumsjón með rekstri hafnanna. Dubai-fyrirtækið keypti rekst- urinn af bresku fyrirtæki en Bandaríkjastjórn varð að staðfesta kaupsamninginn. Bush hefur verið mikill stuðningsmaður sölunnar og hefur hótað að beita neitunar- valdi reyni þingið að stöðva sölu hafnarrekstursins, en hann hefur ekki beitt neitunarvaldi fyrr á sex ára setu sinni á forsetastóli. Jafn- framt hefur hann opinberlega lýst því yfir að öll öryggismál Dubai- fyrirtækisins hafi verið könnuð vandlega. Bandaríska strandgæsl- an sendi hins vegar nýverið frá sér skýrslu, þar sem fram kom að svo væri ekki, samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins, BBC. Telja stjórnmálaskýrendur að fylgi repúblikana við frumvarpið liggi að miklu leyti í þingkosning- unum sem haldnar verða í Banda- ríkjunum í nóvember. Þar sem skoðanakannanir benda til að meirihluti Bandaríkjamanna sé mótfallinn því að selja arabísku fyrirtæki hafnarreksturinn, þá sé það þeim í hag að stöðva söluna nú, sérstaklega þegar litið er til þess hversu mjög Bush hefur fallið í áliti kjósenda undanfarið. Gert er ráð fyrir að fulltrúa- deildin í heild sinni greiði atkvæði um frumvarpið í næstu viku. Þar sem klausan er hluti af afar mikil- vægu frumvarpi, telja stjórnmála- skýrendur það líklegt að hún verði samþykkt bæði af fulltrúadeild- inni og öldungadeildinni. smk@frettabladid.is Stríðsyfirlýsing við forsetann Fjárlaganefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur samþykkt að stöðva kaup arabísks fyrirtækis á rekstri helstu hafna Bandaríkjanna. George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur stutt kaupin. VANDRÆÐI Á HEIMAVELLI George W. Bush Bandaríkjaforseti sætir mikilli gagnrýni þing- manna bæði úr sínum eigin flokki sem og demókrata, vegna stuðnings hans við kaup ríkisrekins fyrirtækis frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum á rekstri sex helstu hafna Bandaríkjanna.FRÉTTABLAÐIÐ/AP FRAKKLAND, AP Metnaðargirni fransks föður fyrir hönd barnanna sinna hefur komið honum í koll. Christophe Fauviau, fyrrverandi herflugmaður, hefur verið ákærð- ur af frönskum yfirvöldum fyrir að eitra fyrir börnum og fullorðn- um sem léku tennis við börn hans. Fauviau eitraði fyrir mótherjum barnanna með þeim afleiðingum að einn mótherjanna lést. Fauviau er ákærður fyrir að hafa 27 sinnum gefið mótherjum barnanna róandi lyf á árunum 2000 til 2003. Maðurinn sem lést var 25 ára gamall kennari, sem lést í bílslysi eftir að hafa tapað tennisleik við son Fauviau. Lög- regla taldi að hann hefði sofnað við stýrið. Saksóknarar krefjast þess að Fauviau hljóti 10 ára fangelsis- dóm. Fauviau hefur þráfaldlega neitað sök. - smk VIÐSKIPTI Hildingur, fjárfestinga- félag í eigu Kaupfélags Eyfirð- inga, hefur keypt eignarhlut í Miðlun ehf. og mun Miðlun opna starfsstöð í húsnæði KEA á Akur- eyri með vorinu. Til að byrja með verða starfsmenn Miðlunar á Akureyri tíu til tólf talsins en stefnt er á að þeir verði 30 til 40 innan þriggja ára. Miðlun er þjónustufyrirtæki sem annast símsvörun fyrir stofn- anir og fyrirtæki, auk þess að taka að sér úthringi- og söluverkefni. Félagið er með starfsstöð í Reykja- vík og eru starfsmenn þar fimmt- án. Árni Zophoníasson, stjórnar- formaður Miðlunar, segir starf- semi félagsins í Reykjavík hafa vaxið á undanförnum árum þar sem fyrirtæki kjósi í auknum mæli að úthýsa verkefnum til sér- hæfðra aðila á borð við Miðlun. Bjarni Hafþór Helgason, fram- kvæmdastjóri Hildings, segist binda miklar vonir við starfsemi Miðlunar á Akureyri en ætlunin sé einnig að blása til frekari sóknar í starfsstöð Miðlunar á höfuðborg- arsvæðinu. - kk Dótturfélag KEA kaupir hlut í símaþjónustufyrirtækinu Miðlun: Tugir nýrra starfa verða til KAUPIN KYNNT Árni Zophoníasson, Bjarni Hafþór Helgason, Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Eimskips, og Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Miðlunar. LÖGREGLUMÁL Umtalsverð fækkun þjófnaðarmála hefur átt sér stað í Kópavogi síðustu árin samkvæmt gögnum lögreglunnar. Markmiðið fyrir síðasta ár var að fækka þeim um 10 prósent en raunin varð að þeim fækkaði um 21 prósent frá árinu 2004. Langflest þjófnaðarmálin eiga sér stað í verslunum og þá sér- staklega í verslunarmiðstöðinni Smáralind. Yfir 80 prósent til- kynntra þjófnaða í umdæminu áttu sér stað þar. - aöe Lögreglan í Kópavogi: Þjófnuðum fækkar mikið Samningar verði þýddir Verka- lýðshreyfingin vill styrk frá félagsmála- ráðuneytinu til að þýða kjarasamninga á erlend tungumál. Þetta kom fram á stórri kvennaráðstefnu sem haldin var í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna í dag. KJARAMÁL SVÍÞJÓÐ Yfirstjórn sænsku ríkis- lögreglunnar hefur nú ákveðið að leyfa lögreglumönnum að vera með túrban, kollhúfu eða annað höfuðfat tengt trúarbrögðum lög- reglumannanna. Á fréttavef Svenska Dagbladet kemur fram að ástæðan sé sú að yfirstjórnin vilji ekki útiloka neina þjóðfélags- hópa frá lögreglustarfinu. Lögreglumenn sem vilja bera túrban eða annan höfuðbúnað við lögreglubúninginn verða þó að gæta þess að það fari vel við lög- reglubúninginn, til dæmis í lit og útliti. Það kemur í hlut einstakra lögreglumanna að ákveða hvað fer vel og hvað ekki. - ghs Sænskir lögreglumenn: Kollhúfa og túrban leyfð CHRISTOPHE FAUVIAU Faðir sem hefur við- urkennt að hafa eitrað fyrir tennismótherj- um barnanna sinna, mætir í réttarsal í Frakklandi í gær.FRÉTTABLAÐIÐ/AP Metnaðargirni fransks föður kom honum í koll: Eitraði fyrir keppi- nautum barna sinna

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.