Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 37
 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR34 menning@frettabladid.is ! Á morgun efnir Stofnun Sigurðar Nordals til árlegs vormálþings sem að þessu sinni er helgað íslenskri menningu. Úlfar Bragason, forstöðumaður stofnunar- innar, segir mikla grósku í íslensku menningarlífi og blæs á yfirlýsingar um dauða íslenskrar tungu. „Íslensk menning er í mikilli deigu,“ segir Úlfar Bragason og bendir á að staða menningarinnar almennt sé breytt vegna sífellt vaxandi erlendra áhrifa og sökum þess að hingað til lands flytjast fleiri útlendingar. „Það er fleira fólk að fást við menningu og hún er fjölbreyttari en áður.“ Í ljósi umræðunnar undanfarið um mögulegan dauða íslenskunnar eftir 100 ár segir Úlfar að við vitum ekkert hvernig ástandið muni verða þá en það sé full ástæða til bjartsýni. „Íslenskan hefur aldrei staðið betur. Það er miklu meira skrifað, miklu meira lesið og það er mikill áhugi á tungumálinu, t.d. erlendis og hér er öflugt ríkisvald sem getur stutt við bakið á íslenskri tungu,“ segir Úlfar. Hann telur fyrrgreinda umræðu vera á skjön við veruleik- ann en bendir enn fremur á að meira fé vanti til rannsókna á íslenskri tungu. Nýir staumar að utan „Það koma nýir straumar með útlendingum sem flytjast hingað til lands en það skiptir máli hvernig við tökum á móti þeim,“ segir Úlfar og áréttar að þeir hafi mikinn áhuga á að læra íslensku. Stofnun Sigurðar Nor- dals hefur m.a. umsjón með sum- arnámskeiðum í íslensku og íslenskum fræðum og forgöngu um íslenskukennslu í erlendum skólum. „Meðal erlendra stúd- enta er mikill áhugi á að læra íslensku, það sækja miklu fleiri um hjá okkur heldur en við getum tekið við,“ segir Úlfar og útskýr- ir að t.d. heimsæki yfir 300 manns íslenskukennsluvefinn Iceland online á hverjum degi. Stofnunin sinnir einnig upplýs- ingaþjónustu um kennslu og kennslugögn í íslensku fyrir útlendinga. Þó að staða menningarinnar sé góð segir Úlfar samt sem áður að allt of lítið sé fjallað um menningu hérlendis. „Ef frá eru taldir nokkr- ir þættir í Ríkisútvarpinu og ef það eru einhverjar stórstjörnur sem eiga í hlut. Hérlendis koma út blaðakálfar um viðskipti rétt eins og peningarnir séu aðalatriðið,“ segir Úlfar. Menning í víðu samhengi Yfirskrift málþingsins á morgun, „Einlyndi og marglyndi“, er fengið frá Sigurði Nordal sem flutti sam- nefnda fyrirlestra á árunum 1918- 1919 þegar hann var nýkominn heim úr námi. Á þessu ári eru 20 ár liðin síðan Stofnun Sigurðar Nor- dals var sett á laggirnar og þann 14. september nk. eru liðin 120 ár frá fæðingu þessa þekkta fræði- manns en Úlfar segir að stofnunin muni minnast tímamótanna með ýmsum hætti, m.a. með málþingi um íslenskukennslu á haustdögum. Frummælendur á málþinginu starfa á ólíkum fræðasviðum. „Oft þegar talað er um menningu í sam- bandi við Sigurð Nordal er vísað til þeirra sviða sem hann fjallaði mest um, þ.e.a.s. tungumáls, bókmennta og sögu,“ segir Úlfar og bendir á að nú sé leitast við að hafa sem mesta breidd í umfjölluninni, ætlunin sé að meta stöðu menningarinnar í heild og þess sem er að gerast t.d. á ólíkum rannsóknarsviðum. Meðal frummælenda á morgun eru Gauti Kristmannsson, lektor í þýðingar- fræði við HÍ, Haukur Ingvarsson, bókmenntafræðingur og skáld, Ása Richardsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins, og Björn Ægir Norðfjörð, aðjunkt í kvik- myndafræði við HÍ. Marglyndi menningarinnar ÚLFAR BRAGASON, FORSTÖÐUMAÐUR STOFNUNAR SIGURÐAR NORDALS Kl. 18.00 Hljómsveitin Andrúm spilar rokk í anda Pink Floyd í Gallerí Humar eða frægð, Laugavegi 59. Náttúruverndarsamtökum hefur gjarnan verið legið á hálsi að berjast á móti stóriðjustefnu án þess að benda á önnur úrræði. Náttúruvaktin, Fuglavernd, Hættu-hópurinn og Nátt- úruverndarsamtök Íslands efna til ráðstefnu í dag sem er m.a. svar við þessum ásökunum. Sumarliði R. Ísleifsson, einn af forsvars- mönnum ráðstefnunnar, segir að um sé að ræða viðbragð við ráðstefnunni Orkulindin Ísland sem Sam- tök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Samorka stóðu fyrir nýlega þar sem fjallað var um gildi ál- og orkuframleiðslu. Sumarliði segir að margir hafi þungar áhyggjur af þróun atvinnu- mála hér á landi og að á ráðstefnunni verði leitast við að horfa á málin úr annarri átt. Fyrirlesarar verða Reynir Harðarsson stofnandi CCP, Rögnvaldur Sæmundsson, forstöðumaður Rannsókna- miðstöðvar HR í nýsköp- unar- og fjölmiðlafræðum, Árni Finnson frá Náttúru- verndarsamtökum Íslands og Magnús Sigmundsson, framkvæmdastjóri Hesta- sport-Ævintýraferða. Að loknum fyrirlestrum verða pallborðsumræður með full- trúum stjórnmálaflokkanna. Ráðstefnan er haldin á Hotel Nordica og stendur frá 14-17. Auður í ýmsum myndum SUMARLIÐI R. ÍSLEIFSSON SAGNFRÆÐINGUR Nýlega var aðgangseyrir að sýn- ingum Listasafns Íslands felldur niður og nú á að auka þjónustu safnsins til muna og bjóða upp á fræðsluerindi um sýningar safn- ins. Erindi þessi kallast Þankar um myndlist – spurt og spjallað og verða á dagskrá í hádeginu á föstu- dögum og miða að því að veita safn- gestum innsýn í afmarkaða hluta sýninganna og gera almenningi kleift að taka virkari þátt í þeirri umræðu sem tengist listasýning- um safnsins, Þessa dagana stendur yfir sýning á málverkum Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugs Blöndal og í dag mun Helgi Þorgils Frið- jónsson myndlistarmaður fjalla um nokkur verk þeirra milli kl. 12.10-12.40. Á morgun mun Harpa Þórsdóttir listfræðingur síðan fjalla um myndlist Gunnlaugs Blöndal frá kl. 11-12. Listasafn Íslands er við Fríkirkjuveg 7. Aukin fræðsla í Listasafni Íslands HELGI ÞORGILS FRIÐJÓNSSON MYNLISTAR- MAÐUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MARS 7 8 9 10 11 12 13 Föstudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  18.00 Hljómsveitin Andrúm heldur tónleika í Gallerí Humar eða frægð við Laugaveg og spilar tónlist í anda Pink Floyd.  22.00 Tónleikar með El Rodeo, Gavin Portland og Blindsight frá kl 22-24. Dj Gulli í Ósóma tekur við á miðnætti.  23.00 Brain Police heldur tónleika á Gauk á Stöng. ■ ■ SKEMMTANIR  22.00 Danshljómsveit Friðjóns leikur fyrir dansi föstudag og laugar- dag í Vélsmiðjunni á Akureyri. Frítt inn til miðnættis.  Vignir Sigurþórsson úr Borgarnesi (Gammeldansk) spilar og syngur á Catalinu í Kópavogi. ■ ■ FUNDIR  20.30 Tran-Thi-Kim-Dieu heldur erindi í húsi Guðspekifélagsins við Ingólfstræti 22. Erindið ber yfirskrift- ina “Að uppgötva sitt eigið Dharma (og goðsögnin um frjálsan vilja).” ■ ■ UPPÁKOMUR  20.00 Nemendur á myndlistar- deild LHÍ fremja gjörninga á efstu hæð Nýlistasafnsins. Fyrr um daginn, kl. 18, verður gjörningur framinn við Gróttu en hann svo fluttur upp á fjórðu hæðina safnsins. Nýlistasafnið, Laugavegi 26 - gengið inn frá Grettisgötu. ■ ■ MÁLÞING  14.00 Stofnun Sigurðar Nordals efnir til málþings um menningu á Íslandi og íslensk fræði í nútíð og framtíð í samvinnu við Ritið, tímarit Hugvísindastofnunar. Málþingið stendur frá 14.00 til 17.00, allir vel- komnir. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.