Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 39
 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR Loksins fá Bandaríkjamenn að heyra í Diddú og Fóst- bræðrum þegar einn vin- sælasti útvarpsþáttur þar vestra verður sendur út hér á landi á Listahátíð í maí. „Skemmtiþáttur Garrison Keill- ors er nánast forn á okkar mæli- kvarða en hann hefur haldið velli í liðlega 30 ár,“ segir Tony Judge, framleiðandi útvarpsþáttarins Praire Home Companion sem hefur verið einn vinsælasti útvarpsþáttur Bandaríkjanna um langt skeið eins og ráða má af aldrinum. Að sögn Tonys er þátturinn ævin- lega sendur út beint fyrir fullu húsi áheyrenda. „Við ætlum að senda þáttinn út beint úr Þjóð- leikhúsinu í Reykjavík um miðjan maí næstkomandi í tengslum við Listahátíðina, en þetta er í fyrsta skipti sem við sendum þáttinn út af erlendri grundu,“ segir Tony. Hann segist hafa fengið að minnsta kosti 30 tillögur og ábendingar um tónlistarmenn og aðra listamenn íslenska til að koma fram í tveggja klukku- stunda langri dagskrá. „Það er eiginlega leyndarmál ennþá hverjir verða leiddir upp á svið Þjóðleikhússins, en ég má til með að nefna karlakór Fóstbræðra og Diddú þótt ekkert sé endanlega frágengið.“ Tony Judge hefur komið áður til Íslands og hrifist af landi og þjóð. „Það eru einhver bönd sem tengja Íslendinga við landið sitt. Þeir setjast að í framandi lönd- um, læra þar og starfa og hafa það gott. En einn góðan veðurdag segja þeir: Jæja, nú er tími til kominn að fara heim.“ Tony seg- ist viss um að þetta sé séríslenskt fyrirbrigði. Garrison Keillor er mjög vel þekktur í Bandaríkjunum og þátt- ur hans nær eyrum að minnsta kosti sex milljóna Bandaríkja- manna hvert laugardagskvöld. Þátturinn byrjaði í Minnesota en er nú þekktur um öll Bandaríkin. „Það er gaman að segja frá því, að útsending okkar 14. maí næst- komandi verður að líkindum einn- ig í beinni útsendingu á Rás 2.“ Þess má geta að kvikmynda- leikstjórinn Robert Altman und- irbýr nú gerð kvikmyndar um Praire Home-þættina með þekkt- um kvikmyndastjörnum á borð við Meryl Streep. - jh Kanaútvarp á Listahátíð TONY JUDGE FRAMLEIÐANDI ÚTVARPSÞÁTTANNA PRAIRIE HOME „Við ætlum að senda þáttinn út beint úr Þjóðleikhúsinu í Reykjavík um miðjan maí næstkomandi.“ Heildsölu lagersala Listaverð Utsöluverð frá Utivistarjakki 29,990 11,900 Hlaupajakki 8,990 3,900 Flíspeysa 12,990 5,900 HiTec Golfskór 12,990 5,900 Fótboltaskór 13,990 5,900 Einnig mikið úrval af: Skíðafatnaði, Utivistarfatnaði, Golffatnaði, Iþróttafatnaði, Brettafatnaði Barna-, unglinga- og fullorðinsstærðir 50-90% afsláttur!! Við rýmum til á lagernum vegna sumarlínu okkar sem kemur fljótlega til landsins. Við seljum því eldri lager og sýnishorn á ótrúlegu verði! www.zo-on.com ZO-ON Iceland Nýbýlavegur 18 (gengið inn Dalbrekku megin) Opnunartími Fimmtud. 14-20 Föstud. 14-20 Laugard. 10-18 Sunnud. 11-17 Mánud. 14-20 9-13 mars 2006 Fyrstur kemur, fyrstur fær! Komið tímanlega því takmarkað magn er til af öllum vörum Nú fer hver að verða síðastur að berja augum árlega sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands í Gerðubergi en sýningin lokar á sunnudag. Í kjallara hússins er einnig yfirlitssýning á ljósmynd- um Gunnars V. Andréssonar ljós- myndara sem spannar 40 ára feril hans og geymir ófá ódauðleg augnablik úr sögu þjóðarinnar. Sýningin er opin frá 11-17 á föstu- daginn og frá 13-16 um helgina. Síðustu forvöð STEINGRÍMUR Í GÓÐUM HÖNDUM Á KOSNINGAVÖKU 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.