Fréttablaðið - 10.03.2006, Qupperneq 45
10. mars 2006 FÖSTUDAGUR42
Big Band-kvöldin hafa vakið mikla
lukku undanfarin tvö ár enda hafa
þátttakendurnir blómstrað á svið-
inu. Snorri, Ragnheiður Sara, Ingó,
Ína, Alexander og Bríet Sunna
hafa öll valið sér þekkta standarda
sem flestir geta raulað með og
eiga eflaust eftir að vekja upp
gamlar minningar hjá eldri kyn-
slóðinni.
Nítján meðlimir úr Stórsveit
Reykjavíkur undir styrkri stjórn
Samúels J. Samúelssonar „swing-
ar“ á sviðinu en hér eftir notast
keppendur eingöngu við „lifandi“
undirleik því hljómsveitin Ísafold
hefur verið ráðin til að leggja
keppendunum lið.
Sem fyrr eru Einar Bárðarson,
Páll Óskar Hjálmtýsson, Sigríður
Beinteinsdóttir og Bubbi Morthens
í dóm- arasætunum en
„skoðun
þeirra
þarf á
engan
hátt
að endurspegla mat þjóðarinnar,“
eins og margoft kemur fram í
útsendingu. Simmi og Jói sjá um að
kynna en töluvert stór hluti þáttar-
ins fer í sýningu á ferðasögu
frá París þar sem sex-
menningarnir dvöldust
um síðustu helgi í
góðu yfirlæti. - fgg
Sveiflubragur á Idol - stjörnuleitinni
Big Band, Frank Sinatra og París er meðal þess sem bryddað verður upp á í Vetrargarðinum þegar Idol
- stjörnuleitin heldur áfram. Spennan magnast með hverju kvöldinu enda einungis sex keppendur sem
geta orðið næsta Idol-stjarna Íslands.
BRÍET SUNNA 900 9006 EÐA SMS Í 1918
IDOL 6 John Davenport og Eddie Cooley
settust niður og skrifuðu lagið Fever. Lagið
kom fyrst út árið 1956 og var hugsað inn í
þá rokk & ról bylgju sem reið yfir Bandarík-
in. Little Willie John flutti það fyrst en Fever
varð ekki frægt fyrir en Peggy Lee setti það
í „swing“-búning og gaf út árið 1958.
ALEXANDER 900 9005 EÐA SMS Í 1918 IDOL 5 Cole Porter samdi I‘ve Got You Under My
Skin en Frank Sinatra gerði það að sínu og kom því á topp tíu listann í Bandaríkjunum.
Snemma á tíunda áratugnum tók írski söngvarinn Bono miklu ástfóstri við Sinatra og
sungu þeir þetta lag saman. Dúettinn sló eftirminnilega í gegn
en það merkilega er að þeir hittust aldrei meðan á upptök-
unum stóð.
ÍNA 900 9004 EÐA SMS Í 1918 IDOL 4 Orange Colored Sky er þekkast í flutningi Nat King
Cole sem heillaði heimsbyggðina upp úr skónum með sinni hljómþýðri röddu. Slátrara-
sonurinn lærði á píanó hjá móður sinni en hún var kirkjuorganisti eftir að faðir Cole tók við
prestsstarfi í Chicago.
INGÓ 900 9003 EÐA SMS Í 1918 IDOL 3
Sway var upphaflega samið á spænsku og
hét þá „Quien Sera“ en Pablo Beltran Ruiz
á heiðurinn af því. Norman Gimbel snaraði
því síðan yfir á ensku og tók stórstjarnan
Dean Martin við því þar og gerði
ódauðlegt. Martin afrekaði það
seinna að vera með söluhærri
plötu heldur en Bítlarnir
sem þótti miklum tíðind-
um sæta.
RAGNHEIÐUR SARA 900 9002 EÐA SMS Í 1918 IDOL 2 Georgia (On My Mind) er einkennis-
lag Georgiu-fylkis í Bandaríkjunum. Stuart Gorrell og Hoagy Carmichael eiga heiðurinn af
laginu en það var samið handa dularfullum kvenkynsvini Gorrell sem gekk undir nafninu
Georgia. Ray Charles tók lagið upp á sína arma og er flutningur hans hvað þekktastur.
SNORRI 900 9001 EÐA SMS Í 1918 IDOL 1 Lagið Fly Me to the Moon var samið árið 1954
af lagahöfundinum Bart Howard. Upphaflegur titill lagsins var reyndar „In Other Words“
en varð fljótlega þekkt af upphafslínum sínum. Felicia Sanders flutti lagið fyrst en bláskjár
sjálfur, Frank Sinatra, kom því á toppinn.
„Við í Sigtinu erum allir að fara út að
borða í kvöld í tilefni þess að þáttur-
inn var frumsýndur í gær. Við ætlum
að fá okkur einhvern góðan rétt og
halda upp á tímamótin. Erum ein-
mitt nýkomnir frá London þar sem við
vorum að klára tökur en við höfum
alls tekið upp átta þætti. Það kemur
svo í ljós hvernig þetta gengur. Von-
andi fer þetta vel í landann og þá
gerum við fleiri þætti. Það kemur bara
í ljós hvort fólk hefur sama húmor
og við. Um helgina er ég svo að fara
að leika í Ronju ræningjadóttur báða
dagana. Ég leik þarna einn af Matthí-
asar-ræningjunum. Þetta er ofsalega
falleg sýning og góður hópur, mér
þykir það sérstaklega mikill heiður að
fá að leika með Ladda sem ég hef litið
upp til frá æsku. Ég er reyndar að fara
að æfa nýtt leikrit með honum, Eggert
Þorleifs og Helgu Brögu á morgun og
það verður örugglega skemmtilegt. Ég
ætla svo að njóta þess á kvöldin um
helgina að vera í fríi og hafa það gott
með kærustunni minni og börnunum
mínum.
Gunnar Hansson leikari og þrír ómissandi
hlutir fartölva golfsett og bíll
FULLKOMIN HELGI GUNNAR HANSSON LEIKARI
Einn af ræningjum
Matthíasar