Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.03.2006, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 10.03.2006, Qupperneq 47
ENGAR MÁLAMIÐLANIR, NJÓTUM LÍFSINS TIL FULLS! Tónleikaferð hljómsveitanna Ampop, Dikta og Hermigervils hefst í Menntaskólanum á Egils- stöðum í kvöld. Ferðinni lýkur síðan á Nasa þann 17. mars með beinni útsend- ingu á Rás 2. Þetta er í fyrsta sinn sem Rás 2 stendur fyrir tónleika- ferð um landið, en áður hefur stöð- in aðstoðað listamenn á borð við Jón Ólafsson, Jagúar, Bubba Morthens, Hörð Torfason og núna síðast Sign við að rokka hringinn og bera fagnaðarerindið út um allt land. Auk þess mun Rás 2 bjóða einni efnilegri hljómsveit frá hverju sveitarfélagi sem verður heimsótt að stíga á stokk og hefja tónleik- ana í sínum heimabæ. „Við vonum að fólk kunni að meta þetta og láti sjá sig. Við erum að minna á okkur og ætlum að bjóða upp á frábæra tónleika fyrir lítinn pening um allt land,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson hjá Rás 2. „Þetta er gömul hugmynd sem við ætluðum að kýla á fyrir tveim- ur árum. Hugmyndin var að Mugi- son, Brain Police og Hjálmar færu í svona ferð en við viljum meina að þessi bönd sem fara núna séu á svipuðum stað í dag og þær voru þá,“ segir hann. „Við lítum á þetta sem fyrstu tilraun af vonandi mörgum. Það er mikið um að hljómsveitir séu að koma hingað til Reykjavíkur frá útlöndum en það er minna um að hljómsveitir fari út á land,“ bætir Óli Palli við og minnir á að Rás 2 sé útvarp allra landsmanna. - fb Frábærir tónleikar fyrir lítinn pening DIKTA Rokksveitin Dikta gaf fyrir síðustu jól út plötuna Hunting for Happiness, sem hefur fengið góðar viðtökur. TÓNLEIKAFERÐIN: 10. mars Menntaskólinn á Egilsstöðum (ásamt hljómsveitinni Miri). 11. mars Græni Hatturinn, Akureyri (ásamt Hvanndalsbræðrum). 12. mars Menntaskólinn á Ísafirði (ásamt Húsinu á sléttunni). 14. mars Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi (ásamt hljómsveitinni Motýl). 15. mars Ráin, Reykjanesbæ (ásamt hljómsveitinni Koju). 16. mars Bíóhöllin, Akranesi (ásamt hljómsveitinni Planc). 17. mars Nasa, Reykjavík (ásamt hljómsveitinni Vax). FRÉTTIR AF FÓLKI Pete Doherty játaði enn og einu sinni ást sína á Kate Moss þegar hann yfirgaf réttarsalinn nýlega. „Ég elska Kate að eilífu,“ skrif- aði hann með tússpenna innan á rúðuna á Jagúar- bíl sínum. Pete og Kate hættu saman í lok síðasta árs. Robbie Williams vill að besti vinur hans, Jonathan Wilkes, syngi dúett með honum á tónleika- ferðalagi hans um heiminn. „Robbie og Jonathan eru óaðskiljanlegir,“ sagði heim- ildarmaður The Sun. „Þeir eru mjög góðir vinir og gera allt saman. Jonathan er þjálfaður söngvari og hefur komið fram í söngleikjum.“ Talsmenn Britney Spears hafa neitað sögusögnum um að stúlkan sé ófrísk á ný. Orðrómurinn komst á kreik um að Britney hefði sagt vinum sínum að hún væri ófrísk eftir að sást til hennar með óvenju mikla bumbu. Kannski er Britney á móti því að losna jafn fljótt við óléttufituna og aðrar skvísur í Hollywood hafa lagt sig fram um. Óskarsverðlaunahafinn Emma Thompson þolir ekki hina hefðbundnu hugmynd um að gifta sig og eignast svo börn en Emma telur betra að hafa þetta öfugt. Hún giftist manni sínum árið 2003 og þá var fjögurra ára dóttir þeirra, Gaia, brúð- armær. „Gaia elskaði brúðkaupið. Þetta er stórkostlegt fyrir börn, því svona sjá þau að pabbi og mamma munu verða saman til æviloka. Stundum gengur það auðvitað ekki upp en mér finnst samt að fólk ætti að leyfa börnunum líka að njóta brúðkaupsdagsins.“ SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu S. S  Ó. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA RENT kl. 8 og 10.25 B.I. 14 ÁRA YOURS, MINE & OURS kl. 6 og 8 PINK PANTHER kl. 10 BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5.40 B.I. 12 ÁRA RENT kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 14 ÁRA CAPOTE kl. 5.30, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 12 ÁRA CONTANT GARDENER kl. 5.20 og 10.20 B.I. 16 ÁRA RENT kl. 8 og 10.45 B.I. 14 ÁRA YOURS MINE AND OURS kl. 4, 6 og 8 PINK PANTHER kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 NANNY MCPHEE kl. 3.40 og 5.50 UNDERWORLD kl. 10 B.I. 16 ÁRA SÍÐUSTU SÝNINGAR ZATHURA m/íslensku tali kl. 3.40 B.I. 10 ÁRA WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA SÝND Í Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 5.45 SÍÐUSTU SÝNINGAR ÓSKARSVERÐLAUNIN - Besti leikstjóri, Besta handrit og Besta tónlist TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÍÐUSTU SÝNIN GAR SÍÐUSTU SÝNIN GAR ÓSKARSVERÐLAUNIN sem besti leikari í aðalhlutverki - Philip Seymor Hoffman STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM „...listaverk, sannkölluð perla“ - DÖJ, kvikmyndir.com ÓSKARS- VERÐLAUNIN sem besta leik- kona í aðalhlut- verki - Reese Witherspoon ÓSKARSVERÐLAUNIN Besta leikkona í aukahlutverki Rachel Wisz STEVE MARTIN KEVIN KLINE JEAN RENO BEYONCÉ KNOWLES VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! - SV MBL - VJV topp5.is - MMJ Kvikmyndir.com SCREAMING QUEENS SÝND KL. 8 UPPLIFÐU MAGNAÐAN SÖNGLEIKINN!! STÚTFULL AF STÓRKOSTLEGRI TÓNLIST! 8 KRAKKAR. FORELDRARNIR. ÞAÐ GETUR ALLT FARIÐ ÚRSKEIÐIS. SKEMMTU ÞÉR VEL Á FRÁBÆRRI FJÖLSKYLDUMYND! 2 FYRIR 1 FYRIR VIÐSKIPTAVINI GULLVILDAR ÍSLANDSBANKA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.