Fréttablaðið - 10.03.2006, Page 49

Fréttablaðið - 10.03.2006, Page 49
46 10. mars 2006 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JANÚAR 2 3 4 5 6 7 8 Fimmtudagur ■ ■ LEIKIR  19.15 Valur og LC Brühl mætast í 8-liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu.  20.00 HK og ÍR mætast DHL-deild karla í handbolta í Digranesi. ■ ■ SJÓNVARP  12.50 HM í frjálsum á Rúv. Bein útsending frá Moskvu.  19.30 Meistaradeildin á Sýn. Fréttaþáttur.  20.00 Motorworld á Sýn.  20.30 Súperkross á Sýn.  21.30 HM í póker á Sýn. > Gunnar Þór hrífur Berg Hennig Berg, þjálfari Lyn í Noregi og fyrrverandi leikmaður Manchester United, er ánægður með Gunnar Þór Gunnarsson sem er á reynslu hjá félag- inu. „Gunnar er ungur og efnilegur leik- maður. Hann hefur sýnt góða takta en við höfum ekki enn tekið ákvörðun um það hvort við semjum við hann,“ sagði Berg við Fréttablaðið í gær. Gunnar Þór er samnings- bundinn Fram en hann hefur verið við æfingar hjá Lyn í þessari viku. Valsstúlkur mæta um helgina svissneska liðinu LC Brühl í átta liða úrslitum Áskor- endakeppni Evrópu. Fyrri leikurinn fer fram í kvöld klukkan 19.15 en hinn á morgun klukkan 14.00. Báðir fara þeir fram í Laugardalshöll. „Ég er búinn að skoða spólu með liðinu og það virðist vera mjög sterkt, þær spila fram- liggjandi vörn og leggja mikið upp úr hraðaupp- hlaupum. Það er ljóst að við erum að fara í mjög erfitt verkefni,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálf- ari Vals, í gær. „Við verðum að spila okkar besta leik, ná upp toppvörn og fá þannig markvörsluna í gang. Sóknarleikurinn verður að smella og tæknifeilana verð- um við að halda í lágmarki,“ sagði Ágúst en svissneska liðið er fullt af lands- liðsmönnum og er í toppbaráttunni í heimalandi sínu. Valsliðið er á toppi DHL-deildar kvenna og Ágúst er bjartsýnn fyrir einvígið. „Við eigum góða möguleika á að komast áfram í fjögurra liða úrslitin. Það væri stórkostlegur árangur og liðið er fullt af sjálfstrausti og í góðu standi. Við ætlum okkur áfram en það er mjög mikilvægt að fá stuðning áhorfenda og við vonumst til þess að fylla Höllina í báðum leikjunum,“ sagði Ágúst sem telur að heimavöllurinn muni vega þungt. „Það er sterkt að hafa náð að kaupa heimaleikinn þeirra og reyndar finnst mér það mjög skrítið þegar komið er svona langt í keppnina. Kannski eru þær of sigurvissar, ég veit það ekki en það kemur í ljós,“ sagði Ágúst sem býst við tveimur skemmtilegum og spennandi leikjum. „Þetta verður gott og skemmtilegt einvígi og ég skora á fólk að koma og sjá úrvalshandbolta um helgina,“ sagði Ágúst að lokum. EVRÓPUKEPPNIN Í HANDBOLTA: VALUR MÆTIR SVISSNESKA LIÐINU LC BRÜHL Mjög erfitt verkefni framundan Erlingur snýr heim Erlingur Þór Guðmundsson er mjög óvænt kominn aftur í Þrótt eftir skamma viðdvöl í ÍR. Heyrst hefur að ástæðan sé sú að ÍR gat ekki staðið við samninginn. Það er einnig að frétta af Þrótti að von er á tveim Króötum til reynslu. Annar er varnarmaður og hinn er miðjumaður. Stólpakjafturinn Robbie Savage hefur nú rofið þögnina og gagnrýnt John Toschak, þjálfara velska landsliðsins, á ný. Savage, sem lýsti því yfir í september að hann myndi ekki spila aftur fyrir þjóð sína á meðan hún væri undir stjórn Tos- chak, segir að frammistaða hans með Blackburn sanni að hann verðskuldi sæti í landsliðinu. „Það er mjög einfalt. Sumir hafa kallað mig svikara en ég hætti vegna þess að Toschak sagði að ég væri ekki nógu góður.“ Bruce Buck, stjórnarmaður Chelsea, segir að Jose Mourinho sé yndisleg persóna og segir að sú ímynd sem hann hafi náð að skapa sér upp á síðkastið með vægðarlausum ummælum lýsi alls ekki hans innri manni. Almenningsálitið á Mourinho hefur farið hrakandi upp á síðkastið og vilja margir meina að hrokafyllri stjóri sé ekki til. En Buck segir Mourinho einfaldlega hafa sinn stíl. Eigendur, stjórnarmenn og leikmenn liða í NFL-deildinni í Bandaríkjunum hafa komist að samkomulagi um að hækka launaþak deildarinnar. Sam- eiginlega launaþakið mun fara úr 94,5 milljónum dollara í 102 milljónir fyrir næsta tímabil og síðan í 109 milljónir dollara fyrir tímabilið 2007. ÚR SPORTINU FÓTBOLTI Í hádeginu í dag verður dregið í átta liða úrslit Meistara- deildarinnar en níu lið frá sex löndum verða í pottinum. Í næstu viku ræðst það hvort Inter Milan eða Ajax fylgja í fótspor hinna sjö liðanna sem tryggðu sér þátttöku- rétt í átta liða úrslitunum. Nýir Evrópumeistarar verða krýndir þann 17. maí eftir að Ben- fica sló Liverpool úr keppninni á miðvikudaginn en á morgun verð- ur einnig kynntur nýr bikar sem verður verðlaunagripur Meistara- deildarinnar næstu árin. Liver- pool varð Evrópumeistari í fimmta sinn í fyrra og fékk bikarinn því til eignar. „Það skiptir engu máli hvaða liði við mætum. Það getur allt gerst í Meistaradeildinni og öll liðin sem eru eftir eru sterk. Ég vil kannski helst forðast Inter Milan. Það er skemmtilegra að mæta erlendum liðum,“ sagði Carlo Ancelotti þjálfari AC Milan. LIÐIN Í POTTINUM: AC MILAN (ÍTALÍA) AJAX/INTER (HOLLAND/ÍTALÍA) ARSENAL (ENGLAND) BARCELONA (SPÁNN) BENFICA (PORTÚGAL) JUVENTUS (ÍTALÍA) LYON (FRAKKLAND) VILLAREAL (SPÁNN) Meistaradeild Evrópu: Dregið í átta liða úrslit í dag NÝR BIKAR Nýr bikar verður kynntur til sögunnar í dag. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Hefur sé› DV í dag? flú JÓNÍNA MEÐ 16 IP-TÖLUR Morðrannsókn frestað vegna þingkosninga MORÐIÐ Á JÓNI ÞÓR ÓLAFSSYNI Í EL SALVADOR 2x10 - lesið 9.3.2006 20:32 Page 1 Iceland-Express deild karla: KEFLAVÍK-NJARÐVÍK 89-73 Stig Keflavíkur: AJ Moye 37, Magnús Gunnarsson 18, Arnar Jónsson 8, Vlad Boer 7, Jón Nordal 6, Gunnar Einarsson 5, Halldór Halldórsson 3, Þröst- ur Jóhannsson 2, Sverrir Þór Sverrisson 2, Elent- ínus Margeirsson 1. Stig Njarðvíkur: Friðrik Stefánsson 18, Jeb Ivey 15, Brenton Birmingham 14, Jóhann Ólafsson 8, Hall- dór Karlsson 7, Ragnar Ragnarsson 6, Guðmundur Jónsson 3, Egill Jónasson 2. FJÖLNIR-SKALLAGRÍMUR 75-84 GRINDAVÍK-KR 74-71 Stig Grindavíkur: Jeremiah Johnson 24, Páll Axel Vilbergsson 15, Helgi Jónas Guðfinnsson 14, Nedsad Biberovic 8, Þorleifur Ólafsson 8, Guð- laugur Eyjólfsson 3, Björn Brynjólfsson 2. Stig KR: Níels Dungal 20, Ljubodrag Bogovac 14, Brynjar Þór Björnsson 12, Melvin Scott 10, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6, Darri Hilmarsson 5, Steinar Kaldal 4. SNÆFELL-ÞÓR 101-85 Stig Snæfells: Nate Brown 26, Magni Hafsteinsson 22, Igor Beljanski 15, Jón Jónsson 11, Slobodan Subasic 10, Helgi Guðmundsson 7, Sveinn Davíðs- son 3, Gunnlaugur Smárason 2, Atli Hreinsson 1. Stig Þórs: Hrafn Jóhannesson 30, Mario Myles 24, Helgi Margeirsson 13, Þorsteinn Húnfjörð 11, Jón Kristjánsson 4, Guðmundur Oddson 3. ÍR-HAMAR/SELFOSS 95-87 Stig ÍR: Theo Dixon 26, Sveinbjörn Claessen 21, Fannar Helgason 12, Ásgeir Bachmann 11, Ómar Sævarsson 9, Elvar Guðmundsson 7, Ólafur Sig- urðsson 7, Davíð Fritzson 2. Stig Hamar/Selfoss: Clifton Cook 28, Svavar Páls- son 18, Friðrik Hreinsson 16, Hallgrímur Brynj- ólfsson 9, Friðrik Hreinsson 8, Bragi Bjarnason 6, Magnús Sigurðsson 2. HÖTTUR-HAUKAR 61-98 LOKASTAÐAN: KEFLAVÍK 22 18 4 2019:1815 36 UMFN 22 17 5 1968:1650 34 KR 22 15 7 1843:1696 30 SKALLAGR. 22 15 7 1956:1762 30 GRINDAVÍK 22 14 8 2118:1908 28 SNÆFELL 22 14 8 1842:1745 28 ÍR 22 11 11 1870:1910 22 FJÖLNIR 22 8 14 1975:2036 16 HAMAR/SEL. 22 7 15 1737:1987 14 HAUKAR 22 5 17 1810:1906 10 ÞÓR A. 22 5 17 1753:1936 10 HÖTTUR 22 3 19 1654:2194 6 LEIKIR GÆRDAGSINS KÖRFUBOLTI Það blés ekki byrlega fyrir Íslandsmeisturunum í byrj- un því Njarðvíkingar komu vel stemmdir til leiks og komust í 9-0. Gestirnir höfðu svo undirtökin í fyrsta leikhluta og höfðu yfir 19- 15 eftir hann en hvað gerðist áður en annar leikhluti hófst veit lík- lega enginn. Keflvíkingar fóru í allt annan ham og röðuðu niður körfunum á meðan mótlætið fór í skapið á gestunum sem skoruðu aðeins tíu stig í leikhlutanum. Keflvíkingar, með Moye fremstan í flokki, náðu góðu forskoti sem þeir voru aldrei líklegir til að láta af hendi. Njarð- víkingar slökuðu alltof mikið á og lykilmenn á borð við Jeb Ivey og Friðrik Stefánsson fundu sig engan veginn í leiknum sem leit út fyrir að vera búinn í hálfleik. Keflvíkingar héldu uppi sömu stemningu í þriðja leikhluta og juku jafnt og þétt forskot sitt. Stemningin í húsinu var mögnuð, bæði innan sem utan vallar. Kefl- víkingar voru kátir en það lýsir leiknum vel að Halldór Karlsson, fyrirliði Njarðvíkinga, var rekinn út úr húsi fyrir kjaftbrúk við litla hrifningu gestanna sem voru æfir yfir dómnum. Staðan að loknum þriðja leik- hluta var 74-38 Keflvíkingum í vil en frábær endasprettur Njarð- víkinga bjargaði andliti þeirra svo um munaði en ljóst er að liðið þarf að bæta sig verulega fyrir úrslitakeppnina. Trommusveit Keflvíkinga var í essinu sínu og stóð dyggilega við bakið á sínum mönnum. Heima- menn þrifust áfram á stuðningn- um en Njarðvíkingar fjölmenntu einnig og studdu við sitt lið. Kefl- víkingar höfðu þó greinilega betur í baráttu stuðningsmann- anna og voru sjötti maður heima- manna í gær. „Maður verður aldrei leiður á þessu. Það gekk hreinlega allt upp hjá okkur, við spiluðum frá- bæra vörn og liðsheildin skóp þennan sigur,“ sagði kampakátur Gunnar Einarsson, fyrirliði Kefla- víkur, eftir leikinn en hann skor- aði fimm stig í leiknum. „Þetta var alveg skelfilegt. Við komum ákveðnir til leiks en svo hrynur leikur okkar bara eins og spilaborg og þetta fjaraði á end- anum bara út. Úrslitin sýna það og sanna að við vorum yfirspilað- ir í þessum leik. Við þurfum að taka okkur verulega á og einbeita okkur bara að næsta verkefni,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir leik- inn en hann var mjög ósáttur við leik sinna manna. „Þegar stemningin í húsinu er svona, þá töpum við ekkert,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, eftir leik- inn. „Það var talað um í vetur að við værum ekki jafn sterkir og á síðasta tímabili og að Njarðvík væri með besta liðið en við vild- um leiðrétta það. Rétt skal vera rétt,“ sagði Sigurður brosmildur að lokum. hjalti@frettabladid.is Ótrúlegir yfirburðir Keflvíkingar eru deildarmeistarar í körfubolta eftir öruggan sigur á Njarðvík, 89-73, í hreinum úrslitaleik um titilinn. AJ Moye var maðurinn á bak við sigur Keflavíkur í leiknum en hann fór hreint á kostum. FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætti því enska í Nor- wich í gær. Íslenska kvennaliðinu hafði aldrei tekist að leggja það enska og engin breyting varð þar á í kvöld. England vann 1-0, en þetta var í þriðja sinn í röð sem liðið vinn- ur með þessari markatölu. Byrjunarlið Íslands: Þóra B. Helgadóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Dóra Stefánsdóttir, Ólína Guðrún Viðars- dóttir, Katrín Jónsdóttir, Edda Garð- arsdóttir, Olga Færseth, Dóra María Lárusdóttir, Hólmfríður Magnús- dóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir. - hbg Vináttulandsleikur kvenna: England sigraði Ísland OLGA FÆRSETH Náði ekki að setja mark sitt á leikinn. SJÓÐHEITUR Í SLÁTURHÚSINU AJ Moye fór á kostum í gær og leikur hér Friðrik Stefánsson grátt einu sinni sem oftar í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.