Fréttablaðið - 10.03.2006, Page 50
Kauptu miða á netinu eða á næsta sölustað fyrir kl. 14 á laugardag
– aðeins10 krónur röðin og mundu að geyma miðann!
Nafn vinningshafa eða raðnúmer á sölukvittun verður birt á 1x2.is
*Innifalið er flug og gisting í Barcelona 3 nætur og að sjálfsögðu miðar á leikinn.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Tippaðu á enska boltann um helgina og þú gætir unnið
ferð fyrir tvo á leik Barcelona og Real Madrid 2. apríl nk.
FÓTBOLTI Stórt viðtal við Pétur
Marteinsson birtist í sænska dag-
blaðinu Aftonbladet í gær í tilefni
af endurkomu hans í lið Hammarby
eftir rúmlega hálfs árs legu á hlið-
arlínunni vegna meiðsla sem hann
hlaut í landsleik gegn Ungverjum í
sumar. Pétri er hrósað í hástert í
viðtalinu og uppnefndur „Pétur
hinn stóri“ af blaðamanninum.
„Keisarinn í vörn Hammarby er
loksins snúinn aftur,“ segir meðal
annars í upphafsorðum viðtalsins.
Í viðtalinu segir Pétur meðal
annars frá því hvernig Hammar-
by sé það félag sem hann beri
sterkustu tilfinngarnar til af öllum
þeim sem hann hefur leikið með á
ferlinum. Hann kveðst hafa verið
staðráðinn því að koma sterkari til
baka eftir ökklabrotið sem hann
varð fyrir síðasta sumar og ýmsir
sögðu að myndu hugsanlega binda
enda á feril hans.
„Ég byrjaði strax í endurhæf-
ingu og náði að jafna mig á mett-
íma. Ég hef aldrei æft jafnmikið
og á síðustu mánuðum,“ segir
Pétur, sem kom fyrst til Hammar-
by frá Fram árið 1996. Þaðan fór
hann til Stabæk í Noregi og síðar
Stoke í Englandi áður en hann
snéri aftur til Hammarby fyrir
tveimur árum. „Félagið hefur allt-
af skipað sérstakan sess í hjarta
mínu,“ segir Pétur í viðtalinu.
„Áður en ég kom fyrst til félagsins
vissi ég lítið um það og hringdi því
til Arnórs Guðjohnsen og Rúnar
Kristinssonar sem höfðu spilað í
Svíþjóð. Þeir sögðu mér að Hamm-
arby væri gott félag og ég sló til.
Og ég sé ekki eftir því,“ segir
hann.
Pétur hefur um árabil verið tal-
inn í hópi bestu varnarmanna
sænsku úrvalsdeildarinnar og
sýnir viðtalið í Aftonbladet
glögglega í hversu miklum metum
hann er í Svíþjóð.
- vig
Varnarmaðurinn Pétur Marteinsson í ítarlegu viðtali við Aftonbladet í Svíþjóð:
„Pétur hinn stóri“ er snúinn aftur
PÉTUR MARTEINSSON Hefur vakið
mikla athygli í Svíþjóð þar sem
hann hefur leikið við góðan orðstýr.
Pétur kom til Hammarby frá Stoke
sumarið 2003.