Tíminn - 03.07.1977, Blaðsíða 33

Tíminn - 03.07.1977, Blaðsíða 33
Sunnudagur 3. júli 1977 Berit ekki að láta leika á sig. Nú ætlaði hún að sjá Árna áður en göngu- mennirnir legðu upp. í fyrstu skimu stóð Berit við útgöngudyrnar. All- lengi mátti hún biða. Fyrst varð að telja fang- ana og raða þeim, áður en þeir fengu útgöngu- leyfi. Árni var með þeim siðustu. Berit sýndist hann enn fölari og þreytulegri en þegar hún sá hann siðast i Tomsk. Berit varð þung fyrir brjósti, er hún sá Árna svona hart leikinn, en þó reyndi hún að brosa til hans. ,, Já, Árni. Ég gat ekki annað. Ég sagði þér það i Tomsk, að þú skyldir ekki fara einsamall til Werchojansk”. Árni greip andann á lofti og kom engu orði upp og þegar Berit sá, hve hon- um brá, þá bætti hún við. „Vertu ekki hrædd- ur. Það eru þrjár konur auk min, með þessum leiðangri, sem fara af frjálsum vilja. Okkur liður ágætlega. Þetta fer allt vel. Misstu ekki kjarkinn”. Berit hefði gjarnan viljað segja fleira en einn vörðurinn sem sá, að Árni var á tali við unga stúlku, hratt hon- um og rak hann aftur i röðina. Nú vissi Árni þó, að hann var ekki einmana. Berit sá hve glaður hann varð. Það var henni allt. an verkfræðing frá Kiew sem nefndist Ilja Ostankin. Hann var gift- ur einni konunni sem fór af frjálsum vilja i út- legðina. Hún hét Tat- anja. Hann var aðeins 25 ára og yngsti maður i þessum hópi, fyrir utan Árna. Það var þvi eðli- legt að kynning þeirra yrði náin. Vinátta þeirra varð lika ennþá emöinnilegri er þeir komust að þvi, að Berit og Tatanja kona Ilja Ostankin væru lika góð- ar vinkonur. Eins og margir aðrir i þessum hópi hafði Ilja Ostankin dregizt innn i þessi málaferli af hreinni hendingu, og var þvi dæmdur alsaklaus i fjögra ára útlegð eins og Árni. Þessi sameigin- legu örlög hnýttu þá enn trurri vináttuböndum. Árni undraðist það mest, hve Ilja Ostankin sætti sig vel við örlög sin og barmaði sér litið yfir hinum rangláta dómi. Hvorki þungir hlekkir eða helsærðir fætur gátu lamað kjark hans og lifsfjör. Þótt allir væru að örmagnast af þreytu, gat hann alltaf hresst þá upp með gamanyrðum, eða hnyttilegri stöku. Þegar Árni var alveg að þrotum komin og kjark- ur hans að bila, þá var það lifsfjör og gaman- yrði Ilja Ostankin sem bjargaði honum frá ör- vilnun. Nikolaj Iwanow var honum ólikur. Hann var 36 ára að aldri, átti heima i Irkutsk, var háttsettur i rússneksa hernum og málaði landslagsmyndir. Hann var af ágætum ættum, og höfðu forfeður hans verið með fyrstu land- nemum i héraðinu, þar sem borgin Irkutsk reis siðar. Nikolaj var alvarlegur i fasi og frekar þung- lyndur, en mannkosta- maður sem allir gátu treyst, hverju sem á gekk. Hann reyndi aldrei að dylja skoðanir sinar og viðurkenndi að hann hefði átt sinn þátt i uppþotum, en af þvi að hann hafði ekki tekið beinan þátt iofbeldis- verkinu, þá slapp hann með „aðeins” tiuára út- legðardóm, eins og tekið var fram i dóminum. Vegna stöðu sinnar i hernum og ferðalaga sem málari, var Nikolaj þaulkunnugur viða i Siberiu einkum i hérðuð- unum meðfram stór- fljótunum Jenessej, vörubifreióastjórar 4. I þrjátiu og f imm daga voru þau að fara þessa 720 kilómetra löngu leið frá Irkutsk til Ust Kutsk. Ef við drögum frá fimm sunnudaga, sem þeir voru úm kyrrt, þá hafa þeir farið um 24 km á dag að jafnaði. Þessi vegalengd var lika full erfið fyrir þessa þraut- pindu og hlekkjuðu menn, enda gáfust sum- ir upp og hnigu ör- magna. Voru þeir þá teknir upp i vagnana og óku á eftir með konun- um.. Árni sá Berit varla alla þessa leið, en hann kynntist aftur á móti mörgum föngunum, þvi að með þeim var hann bæði nætur og daga. Margir þeirra voru i raun og veru ágætis- menn, sérstaklega þeir, sem dæmdir voru með honum i Tomsk. í þess- um hópi voru hugsjóna- menn og margir þeirra vel menntaðir. Ahuga- málþeirra voru allt önn- ur en þeirra, sem bætt- ust við á leiðinni. Bezt féll Árna við ung- 4.2M7 verólækkun á 15awim hjólbörðum - ótrúlegt tilboð, sem enginn ætti aó hafna - pantió strax Framhjólamynstur ll 00 x 20/16 - 56.300 1000 x 20/14 - 52.600 900 x 20/14 - 47. 700 825 x 20/12 -36.600 JÖFUR HF Afturhjólamynstur 1100 x 20/16 - 57 800 1000 x 20/14 - 54.500 900 x 20/14 - 49.200 825 x 20/14 - 39.600 AUDBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SÍMI 42600

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.