Tíminn - 06.08.1977, Side 5

Tíminn - 06.08.1977, Side 5
Laugardagur 6. ágúst 1977 5 á víðavangi „Fannst þeir vera að hef ja nýtt líf ” Alþýöublaöið birtir i gær at- hyglisverð viðtöl við fulltrúa vinnuveitenda og launþega um áhrif yfirvinnubannsins, sem sett var á siðastliðnu vori sem kunnugt er. Eftir Baldri Guðlaugssyni hjá Vinnuveit- endasambandinu er þetta haft: „Hann kvað fullan áhuga rikjandi innan Vinnuveitenda- sambandsins á að taka þessi mál upp til áframhaldandi umfjöllunar, og reyna að stuöla aö þvi, að sú reynsla og þær breytingar, sem menn hafi orðið varir við I þessu yfirvinnubanni, yrðu notaðar og reynt að draga lærdóm af þeim. Tii dæmis væri ekki frá- leitt aðhugsa sér að reynt yrði að koma á einhverjum endur- bótum I skipulagningu vinnu o.s.frv. Til dæmis væri það æskilegt, ef hægt væri að auka afköstin, hækka kaupið og stytta vinnutimann. Hefði kömnunin m.a. beinzt að þvi atriði hvort afköstin hefðu á þessum tima aukizt, minnkað eða staðið i stað. Stóra spurn- ingin væri m.ö.o. sú, hvort hægt væri að nýta vinnutim- ann betur og þar með greiða hærra kaup.” Loks sagði Baldur: „Slikt væri vitaskuld beggja hagur og það er fullur vilji Vinnuveitendasambandsins að þessu máli verði fylgt eftir.” Björn Jónsson forseti Alþýðusa mbandsins hafði þetta að segja m.a. um yfir- vinnubannið: „Verkafólkið kynntist þvi, hvernig það var að vinna venjulegan vinnudag. Það eru til miðaldra menn, sem höfðu hreinlega gleymt þvi, hvernig það var að hætta vinnu klukk- an fimm á daginn og geta þá farið heim til að gera eitthvað annað. Mörgum fannst þeir virkilega vera aðhefja nýtt lif. Þannig að ég tel engan vafa á þvi, að ef ekki kemur til sá þrýstingur, sem hefur verið á tekjuöfiuninni, þá forðist allur þorri manna að vinna eftir- vinnu aö nokkru marki. Ég hcf heyrt aðsíðan samningar voru gerðir hafi fólk neitað að vinna eftirvinnu. Um þetta munu vera þó nokkur dæmi, og þetta er vitanlega bein afleiðing yfirvinnubannsins. Atvinnu- rekendur munu lika farnir að hugsa um þá hlið máisins, að afköstin séu ekki endilega minni þó skemur sé unnið. Að visu kom sú rcynsla ekki að fullu fram f yfirvinnubanninu, nema þá fyrstu dagana, þvi menn sáu að þetta yrði aldrei langvinnt og fóru því að slá af. En engu að siður hefur þetta vakiö atvinnurekendur til umhugsunar um þetta mál, og mér er kunnugt um, að Vinnu- veitendasambandið hefur sent út spurningalista varðandi reynslu atvinnurekenda af yfirvinnubanninu, og svo virð- ist scm þeir séu að reyna að draga einhvern lærdóm af þvi. Þannig að ég tel engan vafa leika á þvi að þetta eigi eftir að hafa einhver varanleg áhrif, en hversu mikil er ómögulegt að fullyrða um að svo stöddu. Aöstæður geta lika valdið þvi að allt fari i sama gamla farið aftur." Lokaorð Björns eru auövitað af raunsæi og þekk- ingu mælt, þótt illt yrði undir að búa. Það væri hreinn menningarlegur, félagslegur og efnahagslegur harmleikur ef reynslan af yfirvinnubann- inu verður ekki notuö til þess að brjóta algerlega i blað hvað vinnutimann á islandi snertir. JS _ Rólegt á loðnumiðum gébé Reykjavik —Það koma allt- af lélegir veiðidagar inn i milli og á þessum sólarhring hefur litið gerzt hjá loðnuflotanum. Það er ágætt veiðiveður á miöunum, en mjög erfitt á loönunni. Þaö gæti verið meiri straumur á þessum slóðum núna, eins stendur loðnan djúpt og er dreifð. Hafdýpiö á þessum slóðum, norður af Straumnesi er um eitt þúsund metrar. — Þannig fórust Andrési Finnbogasýni hjá Loðnunefnd orð i gær. Aðeins tveir bátar höföu til- kynnt um afla um kl. 19 i gær- kvöldi, Gisli Arni meö 520 tonn, og Jón Finnsson með 430 tonn. Báöir munu þeir hafa tilkynnt að þeir myndu landa á Siglufirði. Sólarhringinn á undan, til- kynntu alls sjö bátar veiði, alls 3.060 tonn. Alls hafa tuttugu og fimm bátar hafið loðnuveiöarnar og flestir ef ekki allir fengið einhverja veiði. Þeir eru allir á loðnumiðunum fyrir vestan eins og er, nema þeir tveir sem eru að landa aflanum sem þeir fengu i gær. Aukin áfengis- neyzla Dana Læknar tveir i Arósum, Johannes Nielsen og Kurt Sörensen, hafa birt i Ugeskrift for læger grein, sem vakið hefur mikla athygli. Þeir athuga þar áfengisverð og áfengisneyzlu i Danmörku alla tið siðan 1911. Stærsta stökkið á allri þessari leið var verðhækkun sú, sem gerð bar á brenndum drykkjum 1917. Þá hækkaði ákavitisflaska úr 90 aurum i 11 krónur. Til var ætlazt, að það beindi neyzlunni frá sterkum drykkjum að öli. Það tókst og þessi skýrsla lækn- anna sýnir, að breytingar á hlutfalli verðs áfengistegunda hafa alltaf haft áhrif á það hvað drukkið er. Læknarnir benda á að siðan 1960 hefur brennivinsdrykkja Dana aukizt úr 1,5 litra af hrein- um vinanda i 4 litra. Þetta fylgir alveg verðlaginu mið* að við timakaup. í fyrra tilfell- inu dugði almennt timakaup við iðju og iðnað til að borga 15 sl. af ákaviti en nú fást 40 sl. fyrir það. Ritgerð læknanna er um áfengismálin almennt, en þeir halda þvi fram að réttast væri að hækka áfengisverð svo þaö væri i sama hlutfalli við tima- kaup og 1960. En jafnframt þvi telja þeir að verði að stórauka fræðslu, félagsstarf og rann- sóknir tii að bæta ástandið. H.Kr. Að bjarga tuggunni Kás-Reykjavik. Þetta er hann Gissur Gissur- arson, bóndi og hrepp- stjóri i Selkoti undir Eyjafjöllum, en hann er að verka dreif eftir rakstrarvéiarnar eitt af börnum nútima- tækninnar. Það er fátitt á stór- býlum að hrifa sé tekin i hönd til að raka dreif. En blessaðir gömlu mennimir þola ekki að sjá óhirt gras á teign- um heldur skunda af stað að bjarga tugg- unni. Timamynd Gunnar *'■"*..........' "'■■• ••*..— - ■■ Ludwig f er af landi brott á morgun AÞ-Reykjavik. — Það liggur ljóst fyrir, að Bandarlkjamað- urinn Henry Hackert hafði ráðgazt um það við menn, hvað hann skyldi gera i sambandi við Þjóöverjann, sagði Hallvarður Einvarðsson , rannsóknar- lögreglustjóri rikisins á blaða- mannafundinum i gær. — En hann mun ekki hafa verið fylli- lega búinn að átta sig á hvers- konar mann Ludwig Lugmeier hafði að geyma. Hann mun hafa haft þetta i huga fyrr i vetur, en af einhverjum ástæðum ekki gert neitt i þessu. Bandarikjamaðurinn, sem er búinn að dvelja hér á landi i fjölda ára, er ennþá i gæzlu- varðhalda, en Hallvarður sagði, að þar sem framburði hans og Þjóðverjans bar saman, þá byggist hann ekki við þvi, að sú gæzluvarðhaldsvist yrði öllu lengri. Eftir er að kanna hvort Henry hafði i hyggju að stela peningum en Hallvarður sagði, að það atriöi ættu dómstólar eft- ir að vega og meta. — Má vera að hann verði ákærður sam- kvæmt 244. grein hegningarlag- anna um þjófnað, sagöi Hall- varður, en málið verður sent rikissaksóknara og frekari á- kvarðanir teknar þar. Þjóðverjinn verður ekki á- kærður fyrir aö hafa komið til landsins á fölsku vegabréfi eöa fyrir það að hafa ráðizt að lög- regluþjóni. Hallvarður las upp bréf frá rikissaksóknara, en i þvi sagði m.a. að Ludwig skyldi visað úr landi og hann afhentur vestur-þýzkum yfirvöldum. 1 bréfi frá Dómsmálaráðuneytinu sagöi, að Ludwig skyldi vera kominn úr landi ekki siðar en á morgun. Hvað eignir þær snert- ir sem Ludwig hefur keypt hér á landi sagði Hallvarður að þær yröu siðar afhentar viðkomandi yfirvöldum i Þýzkalandi. Eins og komið hefur fram var Ludwig orðinn þvi afhuga að búa á tslandi. Hann mun hafa komizt að raun um þaö að óðals- bóndi gæti hann ekki orðið nema að fá sérstök leyfi hjá Dóms- málaráðuneytinu. Þá var það, aö hann hugðist hefja rekstur kaffistofu, en fannst leigan of há. En það sem var ef til vill at- hyglisverðast, og fram kom á fundinum, var að frá þvi að Ludwig slapp úr dómshúsinu i Frankfurt kom hann þrisvar til Þýzkalands. Skyldu menn ætla að Þjóöverjar hugsuðu meira um eigin afbrotamenn en svo að láta þá sleppa jafn oft inn og út fyrir landamærin en hér getur. Ludwig á yfir höföi sér 12 ára dóm, þegar hann kemur til Þýzkalands. En að öllum likind - um fær hann ein þrjú ár fyrir rán, sem hann framdi en var ekki dæmdur fyrir. Hins vega:-- fær hann ekki lengri dóm en fimmtán ár samtals þar sem það er hámarksdómur sam- kvæmt þýzkum lögum. Það verður þvi 43 ára gamall maður sem kemur frjáls út úr fangelsi árið 1992.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.