Tíminn - 06.08.1977, Qupperneq 7
Laugardagur 6. ágúst 1977
7
Tíma-
spurningin
Á esperantó framtið
fyrir sér?
Júliana Sigurjónsdóttir, hús-
móðir: Já, það er ég alveg sann-
færð um. Esperantó er létt að
læra og létt i framburði. Þingið
um daginn hafði mikið að segja til
upplýsingar og mer fannst gaman
að heyra menntamálaráðherrann
okkar tala þessa tungu.
WKKtm Wm
Gunnar Kagnarsson, nemi: h,kki
sem alþjóöamál. Það mun aldrei
verða eins algengt og enskan, en
mér finnst að þaö mætti gjarnan
auka kynningu á esperantó og
bjóða það sem valfag i skólum.
Gestur Gunnarsson, tæknifræð-
ingur: Já, ef til vill einhvern
tima, en ekki á næstunni. Er ekki
búið að reyna málið i ein hundrað
ár? Þá má búast við 500 árum i
viðbót, þar til það verður alþjóða-
mál. Spurningin er að komast yfir
ákveðin mörk.
Anna Garðarsdóttir, húsmóðir:
Já, tvimælalaust.
Esperantó-þingið i Reykjavik var
áhugavert, þar sem á eina tungu
mæltu menn frá ymsum löndum.
Ég veit samt ekki, hvort ég legði
á mig að læra það.
Gisli Sighvatsson, rannsóknar-
maður: Ekki i náinni framtið, þvi
að stjórnmálamenn munu aldrei
geta komið sér saman um slikt
þjóðþrifamál. Það er hver höndin
upp á móti annarri i alþjóðaviö-
skiptum.