Tíminn - 06.08.1977, Síða 19
Laugardagur 6. ágúst 1977
19
LUíiLUU
flokksstarfið
i
Þúr. Stefán.
upp Reykjaveg að Efri-Reykjum og farið
þar yfir Brúará, og siðan út Laugardal, en
þar er sérstaklega fagurt umhverfi og
skemmtilegt að aka i góðu veðri. Siðan
verður farið út Laugarvatnsvelli, og yfir
Gjábakkahraun til Þingvalla. Um kvöldið
verður ekið eins og leið liggur yfir Mos-
fellsheiði til Reykjavikur. Áætlað að koma
til Reykjavikur kl. 20.30.
Áningarstaðir verða ákveðnir nánar á
leiðinni, og fara þeir eftir þvi, hvernig
veður verður og aðrar aðstæður. Á allri
þessari leið, er margt að sjá og skoða, um-
hverfi allt hið fegursta og margir sögu-
frægir staðir. í bílunum verða kunnugir og
reyndir leiðsögumenn, sem lýsa leiðinni.
Miðar seldir á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, frá kl. 9.00 til 19.00.
Rauðarárstig 18. Simi 24480.
Leiðarlýsing
Ekið úr Reykjavik kl. 8.00 stundvislega,
austur Hellisheiði, Ölfus, Flóa og Skeið.
Síðan upp Eystri-Hrepp upp Þjórsárdal
hjá Haga, Gaukshöfða og Bringum. Siðan
inn Þjórsárdalinn, inn Sandártungur,
framhjá Hjálparfossi og Skeljabrekku inn
að Sögualdarbænum og hann skoðaður,
undir leiðsögn Þórs Magnússonar þjóð-
minjavarðar. Siðan verður farið inn að
Búrfellsstöðinni undir Sámstaðamúlan-
um, inn að Stöng og Gjánni. Einnig verður
farið, verði veður gott, inn að Reykholti og
stanzað við sundlaugina þar um stund.
Heim verður ekið sömu leið og beygt út
af þjóðveginum hjá Reykjum á Skeiðum
og ekið út að Skálholti og þar mun Þór
Magnússon lýsa staðnum og sögu hans.
Þaðan verður ekið upp hjá Torfastöðum
Agúst.
Magnús.
Páll.
Sumarferð Framsóknarfélaganna
í Reykjavík 7. ógúst
Aöalfararstjóri ferðarinnar verður Þórar-
inn Þórarinsson alþm.
Leiðsögumenn verða:
Ágúst Þorvaldsson, fyrrverandi alþingis-
maður
Jón Gislason, póstfulltrúi
Jón R. Hjálmarsson, fræðslustjóri
Magnús Sveinsson, kennari
Páll Lýðsson, bóndi
Þór Magnússon, þjóðminjavörður
Stefán Jasonarson, bóndi.
Jón.
Þórarinn
Matreiðslumenn
Óskum að ráða tvo matreiðslumenn i
september. Nánari upplýsingar hjá hótel-
stjóra.
Bændur - Athugið
Kýr til sölu. Upplýsingar á Króki i ölfusi.
Simi um Hveragerði.
Jarðýta óskast
Jarðýta óskast til kaups, Caterpillar eða
International. Má þarfnast viðgerða.
Skipti á traktorsgröfu kemur til greina.
Upplýsingar i sima 32101.
Athuga-
semd
vegna
spreng-
inga í
Fnjóská
1 Timanum 27. júli s.l. er getiö
sprenginga jarðvisindamanna i
Fnjóská og Djúpá, og ummæla
Stefáns Sigurmundssonar hjá
Orkustofnun vegna þeirra. Seg-
ir Stefán að þeir hjá Orkustofn-
un visi á bug öllum kvörtunum
vegna þessara sprenginga, —
,,þar sem þær eru mjög litlar,
og þar að auki höfum við heim-
ildir allra aðila, bæði landeig-
enda og veiðifélaga.”
Um þetta hefur undirritaður
eftirfarandi að segja:
■Stjórn Veiðifélags Fnjóskár
var ekki beðin um heimild til
umræddra sprenginga i ánni og
ekki heldur tilkynnt um að þær
yrðu framkvæmdar.
Sprengikrafturinn var ekki
minni en það, að húsveggir
fundust titra i allt að 5 km fjar-
lægð og vatnssúlan úr ánni stóð
tugi metra i loft upp. Allstórt
grjót hafði kastast um 100 m út
frá sprengistaðnum, og i gjótu
millisteina i árgrjótinu, nokkra
metra frá honum, fann undirrit-
aður tætlur af nýlega dauöri
bleikju.
Sprengingar þessar eru fram-
kvæmdar á þeim tima sem lax
og silungur er að ganga upp eft-
ir ánni en gönguseiði niöur til
sjávar, og uppeldisskilyrði fyrir
seiði eru i ánni á sprengistaðn-
um.
Væri til of mikils mælzt að
nefndur Stefán Sigurmundsson
skýrði betur ummæli sin i Tim-
anum 27. júli s.l., og þá um leið
hvenær ber að virða eignarrétt-
inn og hvenær ekki.
Olgeir Lútersson
(form. Veiðifél. Fnjóskár)
O Sá eini
staklega ef rétt reynist að hún
sé sú eina sinnar tegundar, sem
er i sædýrasafni i heiminum.
Bandarikjamaðurinn, sem var
starfsmönnum Sædýrasafnsins
til aðstoðar, þykist nokkuð viss i
sinni sök um að sú sé raunin.
Þvi má svo bæta hér viö, aö
Sædýrasafnið i Hafnarfirði er að
riða á vaöið með nýja útflutn-
ingsvöru. Mikil eftirspurn er
eftir dýrum, sem þessum i er-
lend sædýrasöfn og ef vel tekst
til aö veiöa þessi dýr, fyrir opnu
hafi eins og gert var, og láta þau
lifa i ákveðinn tima, eða þann
tima, sem sker úr um það, að
dýrið hafi ekki orðiö fyrir
hnjaski við veiðina, er nægur
markaður fyrir heilbrigð dýr.
Gjaldeyristekjur af þessum út-
flutningi gætu orðiö miklar, eins
og gef jr að skilja, þar sem dýr-
in eru mjög sjaldgæf og verð-
mæt.
O Háðstefna
stjóri, fjalla um norræna menn-
ingarmálastefnu. Ragnar
Lassinantti, landshöföingi, um
samvinnu Noröurhéraðanna, Sig-
urður Lindal, prófessor og ólafur
Daviðsson, hagfræðingur, munu
fjalla um sögu Islendinga, menn-
ingu og atvinnulif, áætlanafræö-
ingarnir Lars Backlund og Sig-
urður Guðmundsson um vanda-
mál dreifbýlis, Asko Oinas,
landshöfðingi skýrir frá Lapp-
landsáætluninni og Odd Melö, á-
ætlanastjóri, frá Norður-Noregs-
áætluninni, Marku Mannerkoski,
prófessor, ræöir um samvinnu
æöri menntastofnana. Bengt
Andersson, menntunarráðunaut-
ur, um samstarf á sviði menn-
ingarmála og Gunnar Wenn-
ström, deildarstjóri, um rann-
sóknir i velferðarmálum á Norð-
urlöndum.
A undan og eftir ráðstefnuna
mun verða farið I kynnisferðir til
ýmissa staða i nágrenni Reykja-
vikur og út á land.
Allt áhugafólk er velkomið til
þátttöku i ráöstefnunni.