Tíminn - 13.08.1977, Síða 2
2
Laugardagur 13. ágúst 1977
Hugleiðslustöð
að Kárastöðum
— þarf Moonn-flokkurinn
verzlunarleyfi til tesölu?
ÁÞ-Reykjavík. island er greini-
lega korniú i þjóúlrraut. I>að sást
m.a. af vaxandi Ijölda ýmiss
konar trúl'lokka senr fesl hafa
rætur hér á landi á siðustu
árum. Kinn umdeildasti llokk-
urinn er ef til vill IVloon fólkið
eins og það er gjarnan kallað.
I'lokkurinn hefur starfaö hér i
ein tvö ár og þegar náð i eina 10
eða 15 áhangendur. I>á eru
meölimirnir búnir að taka á
leigu hús að Kárastöðum í Þing-
vallasveit, en þará aðfara fram
hugleiðsla af ýmsu tagi.
Meðlimir hafa aflað fjár ineð
vinnu og einnig hafa þeir veriö
aðselja t.d. te i Reykjavík. Kinn
tunglmannanna, lialvard K.
Jeversen, sagði þaö vera
l'ullkomlega löglegt, cn starfs-
maður í dómsmálaráðuneytinu
var á öðru ináli. Þess má geta
að lögreglan stöðvaöi einn
meðlimannaþar sem liann var að
selja te, en sleppti honum eftir
skamma stund.
— Mér sýnist á lögunum að
það hljóti að vera nauðsynlegt
aðfá verzlunarleyfi til þessarar
iðju, sagði starfsmaðurinn. —
Það segir, að með verzlun i lög-
um þessum sé átt við heildverzl-
un, umboðsverzlun og þar með
talið tilboðasöfnun um vörusölu
og vörukaup og smásöluverzl-
un: Lögin taka þó ekki til lyfja-
verzlunar, sölu á búsafurðum og
öðru þvi, sem maður hefur aflað
sjálfur. Þannig er eggjasala
heimil. Kg myndi halda i fljótu
bragöi, að það þyrfti verzlunar-
leyfi til að gangast fyrir svona
sölumennsku.
Kn hvað er þá Moon flokk-
urinn? Viða erlendis er hann
fordæmdur af almenningi m.a.
fyrir fremur óhugnaniegan
heilaþvott á sinum meðlimum.
Má minna á, að fyrir ekki all
löngu gekk mikil mótmælaalda i
Bandarikjunum gegn ílokknum,
þar sem meölimir hans virtust
leggjast einkum á istöðulitla
unglinga, með þeim árangri að
þeiry firgáfu heimili si'n og unnu
fyrir forystumanninn, sem
raunar situr i Kóreu. Þó vinnur
hann hatrammlega gegn
kommúnistum. Að sögn Hal-
vard þá hefur Sun Myung Moon,
en það er nafniö á æðsta prestin-
um „sérleg skilaboð frá Guði,
sem eiga mjög vel við ástandið i
heiminum i dag.” Eins og áður
sagði þá hefur Moon flokkurinn
aðeins 10 eða 15 meðlimi á
íslandi, en Timinn hefur fregn-
að að a.m.k. tveir Islendingar
vinni fyrir söfnuðinn úti i
Noregi.
Þaö kom til min norskur
erindreki Moon fólksins, i krafti
þess, aö hann ætlaði að hefja hér
starfsemi, sem mér sannast
sagna leizt óhugnanlega á, sagði
séra Ólalur Skúlason i' samtali
viö Timann. —- Mér íist illa á
þessa persónudýrkun á Moon,
sem heldur þvi fram, að hann sé
Kristur endurfæddur, og raun-
verulega segist hann vera
meira en Kristur. I öðru lagi þá
er flokkurinn að sveipa sig
kristnum blæ, þar sem hann tel-
ur það heppilegra. En ég get
ómögulega séð að þarna séu á
ferðinni kristin trúarbrögð. Og
svo má bæta þvi við að þeir, sem
hafa það raunverulega á stefnu-
skrá sinni að hleypa börnum á
móti foreldrum sinum, þeir
finnst mér mjög varhugaverðir.
— Það er öllum kunnugt að
alls kyns trúhreyfingar skjóta
upp kolli hér á landi. Allar
komnar utan úr heimi, og öllum
stjórnað þaðan, og ílestar lúta
valdi einhvers, eða einhverra
einræðisherra, sagði Herra
Sigurbjörn Einarsson biskup —
Þessar hreyfingar hafa ýmist
kristið yfirskin eða indverskt,
eða eitthvað enn annað. fs-
lendingar telja það til sérstakra
dyggða sinna að vera umburð-
arlyndir og frjálslyndir, og vist
er, að þaö eru ótviræöar dyggðir
ef rétt er beitt. En i lifsskoðan-
Það má vera að teið sé gottren
eiguin við að vera að styrkja
cinlivern pótintáta i Kóreu?
Ilalvard K. JeVersen
legum efnum þá tjóar ekki að
ætla sér að gleypa hvað sem er.
Þessar hreyfingar eru að jafn-
aði mjög áleitnar og margar
þeirra stórhættulegar. Hvað
varðar Moon l'ólkið þá tel ég að
það sé hættulegt.
Prestastefna lslands vakti
athygli á þessum trúflokkum
fyrir tveimur árum, og sagði
Sigurbjörn, aðsú ábending hefði
vakið mikiö fjaðrafok á sinum
tima. Einnig vakti það mikla
gagnrýni, þegar Sigurbjörn
varaði við öfgum Vottum
Jehova. — Ég hef ekki verið
með svipaöar aðvaranir nýlega,
sagði Sigurbjörn — Ekki vegna
þess aö ég telji þess ekki þörf,
en það er orðið svo mikið af
varasömum hreyfingum, and-
legum og trúarlegum, aö það
eru varla tök á þvi að fylgjast
með þeim Tómarúmiö i
nútfmanum, það veitir svona
hreyfingum tækifæri. Þessar
hreyfingar eru komnar til ein-
mitt vegna þess, að fólk er orðið
viðskila við sina kristnu trú.
Það er ef til vill ekki nema
von, að Sun Myung Moon hati
kommúnista og framleiði vopn i
baráttu kapitalista og einræðis-
herra gegn þeim. Hann sat i
fangelsi i Norður-Kóreu i mörg
ár. Það var árið 1936 að Kristur
talaði til hans — samkvæmt
bæklingi sem Timinn fékk, — og
mun sá atburður hafa skipt
sköpum i lifi hans. Nú situr
Moon i Kóreu og lifir i vellyst-
ingum (praktuglega.)
Björn Birnir sýn-
ir í fyrsta sinn
Krá og með 13. agúst til 21. ágúst mun Björn Birnir teiknikennari sýna
á milli 40 og 50 myndir i Norræna húsinu. Myndir Björns eru gerðar á
siðasta 20 ára tímabili. Hann hefur aldrei áður sýnt opinberlega. Mynd-
irnar eru málaðar i oliu, akrfl, vatnslit, og kol. Flestar myndirnar eru
til sölu. Timamynd Gunnar.
E ndurskins
merki á bú-
fénað?
gébé Reykjavik — Vitað er, að
mörg dýr láta lifið i umferðar-
slysum á ári liverju. Bifreiðun-
um fjölgar með hverju árinu
sem liður og vegirnir verða
betri og breiðari. En einmitt
góðu vegirnir bjóða hættunni
heim. Þeir freista ökumanna að
aka liraðar og jafnvel þó á báða
vegu sé búfé á beit. i grein i nýj-
asta hefti Dýraverndarans, er
þetta mál tekið fyrir og þar
stungið upp á við bændur, að
setja endurskinsmerki t.d. á
liesta, en án efa mætti nota
þessa aðl'erð við fleira búfé.
Ekki er trúlegt að til séu öku-
menn, sem gera það að gamni
sinu að aka yfir lifandi dýr, Hitt
mun langoftast vera orsök til
slysa á dýrum i umferðinni, að
Framhald á bls. 19.
veiðihornið
Fiskmerkingar á laxi
og silungi
Veiðihorninu barst f gær
upplýsingar frá Veiðimála-
stofnuninni um fiskmerkingar á
laxi og silungi og fara þær hér á
eftir:
A vegum Veiöimálastofnunar
hefur undanfarin ár verið
merktur töluverður f jöldi lax og
silungs viðsvegar um landið.
Við merkingar þessar hafa bæði
verið notuð sérstök fiskmerki,
sem fest eru á fiskinn, eða
klipptur er af seiðunum uggi og
á það sérstaklega við um laxa-
merkingar.
Þess er sérstaklega vænzt, að
merktir laxar veiðist í sumar á
eftirtöldum vatnasvæðum
vegna merkinga á gönguseiðum
vorið 1976: Artúnsá (vinstri
kviöaruggi), vatnasvæði Hvitár
i Borgarfirði vegna merkinga á
laxaseiðum, sem sleppt var i
Norðlingafljót (hægri kviðar-
uggi) Botnsá i Súgandafiröi
(uggaklippingar), Hofsá á
Skagaströnd (veiðiuggi) og
Laxeldisstöð ríkisins I Kolla-
firði, en þar voru gönguseiöi
merkt bæði með merkjum og
veiðiuggaklippingu. Auðvitað
getur merktur fiskur faigist
viðar en i þeim ám, sem fiskur
hefur verið merktur i.
Silungsmerkingar hafa verið
framkvæmdar á eftirtöldum
stöðum siðustuár: Djúpavatni á
Reykjanesi, Elliðavatnssvæö-
inu, Lárósi, Eystra Frið-
mundarvatni á Auðkúluheiði,
Laxá i Þingeyjarsýslu (Efri
Laxá), Mývatni og Stóra-Foss-
vatni á Landmannaafrétti.
Það eru tilmæli Veiðimála-
stofnunar til veiðimanna að þeir
athugi vel, hvort aö fiskur, sem
þeir veiða i sumar, sé merktur,
og ef svo er aö láta Veiðimála-
stofnunina vita um það. Slikum
upplýsingum þarf að fylgja
vitneskja um tegund fisks, kyn,
lengd, þyngd, veiðidag og veiöi-
staö. Veitt eru verðlaun fyrir
upplýsinar um merktan fisk.
Góð veiði i Víðidalsá
Laxveiðin hefur gengið með
ágætum I Viðidalsá i allt sumar,
og á hádegi i gær höfðu alls
veiðst 907 laxar að sögn
Gunnlaugar ráðskonu i veiði-
húsinu Samkvæmt bókum
Veiðihornsins frá þvi i fyrra
höfðu þann sama dag, þ.e. 12.
ágúst, veiðzt aðeins 550 laxar.
1 gær var bjartviðri og lygnt
veður við Viðidalsa, en fremur
litið vatn í ánni. Nógur lax er i
henni þó.
f gærkvöldi var Kekkonen
Finnlandsforseti væntanlegur i
veiöihúsið við Viðidalsá og mun
hann veröa þar við veiðar i dag.
— Hann hefur oft komið hingað
áður og er mjög kærkominn
gestur, sagði Gunnlaug ráðs-
kona i gær.
Vel veitt i Hofsá
Veiðin i Hofsá hefur gengið
mjög vel i sumar og um s.l.
helgi höfðu alls veiðst þar 550
laxar.svoheildartalan er komin
eitthvaö á sjöunda hundraðið
núna. Nokkuð hvasst var við
ána i gær og skýjað, en yfir
tuttugu stiga hiti. Laxveiðin hjá
Karli prinsi gengur vel, en ekki
tókst að fá fréttir af, hve mikið
prinsinn hefur veitt.
Framhald á bls. 19.