Tíminn - 13.08.1977, Blaðsíða 4

Tíminn - 13.08.1977, Blaðsíða 4
4 Laugardagur 13. ágúst 1977 lvar llannesson rannsóknarlögreglumabur Skipulag þýzku lögreglunnar fannst mér athyglisvert * — segir Ivar Hannesson, rannsóknarlögreglumaður AÞ Reykjavik. — Núer Ludwig Lugmeier farinn og eflaust verða allir búnir að gleyma þessum hægláta Þjóðverja inn- an tiðar. Óhætt er að segja, að hann hafi verið orðinn nokkuð vel þekkt persóna hér á landi, enda var ekki svo lítið fjallað um hann i fjölmiðlum. Margir hverjir voru jafnvel farnir að fá samúð með manninum og fannst það synd og skömm að is- lenzk yfirvöld skyldu framselja hann til Þýzkalands. Astæðan er ef tilvill sú, að við erum einung- is vön smáglæpamönnum en ekki jafnframtakssömum manni og Lugmeier. Honum llk- aði vist lika vel viö land og þjóö, og eftir honum er haft að islenzka lögreglan sé sérstak- lega almennileg. örfáir menn fylgdu Lugmeier þegar hann yfirgaf landið, en aftur á móti var heil herdeild sem fagnaði honum i Þýzka- landi. Einn islenzkur rannsókn- arlögreglumaður fór utan með Ludwig Lugmeier, Ivar Hann- esson, og kom hann hingað til lands í fyrrakvöld. Timamönn- um iék hugur á aö ræöa við Ivar eftir heimkomuna og veitti hann okkur góðfúslega leyfi tii þess. Við spurðum hann fyrst hvenær hann hefði endanlega skilið við Lugmeier. — Við kvöddumst á lögreglu- stöðinni i Frankfurt þegar Lug- meier var að koma úr dóms- salnum, og sagði hann, að það væri ómögulegt að vita nema að við hittumst aftur. En ég vona að það verði undir öðrum kring- umstæðum. A þessari sömu lög- reglustöð hitti Ludwig fyrrver- andi samstarfsmann sinn, Lind- en, sem rak upp stór augu þegar hann sá Ludwig. Það var ekki annað að sjá en það færi vel á með þeim og til dæmis það fyrsta sem Linden sagði er hann sá Ludwig var ,,Lúggi”, en það er nafnið sem hann gengur und- ir i Þýzkalandi. Eftir þvi sem ég komst næst, þá vonaði Ludwig að eftir játningar hans yrði Linden samstarfsfúsari. A morgun eða mánudaginn ætlaði Ludwig með lögreglumönnum til Bayern en þar földu þeir fé- lagarnir bæði vopn og verkfæri og peninga meðan leitin að þeim stóð sem hæst eftir ránið. Maöurinn gerbreyttisl eftir að hann fór að segjs sannleikann Nú er Ludwig orðinn nokk- urskonar hetja eða þjóðsagna- persóna á Islandi. Menn viröast gjarnan gleyma þvi hvað hann i raun og veru gerði. — Hvernig kom hann þér fyrir sjónir? — Mér fannst hann vera ofur venjulegur maður. Hann var alla tið mjög rólegur og strax eftir að hann fór að segja sann- leikann var hann ákaflega jákvæður og samstarfsfús gagnvart okkur. A laugarsags- kvöldið, eftir að hann kom inn i Siðumúla, vildi hann breyta sinum fram- burði og sagði hver hann væri og hvað hann hefði afrekað. Og eft- ir að allt var komið fram, þá hafði hann orð á þvi sjálfur að sér liði miklu betur. Ég held að maðurinn sé nokkuð vel gefinn, og hann virðist hafa mikinn á- huga á t.d. tungumálum. Þann- ig fannst i dóti hans mikið af orðabókum, bæði þýzkri is- lenzkri og þýzk-franskri. En hafi hann hæfileika á þessu sviði þá hefur hann litið gert til að þróa þá með sér. Þýzku lög- reglumennirnir sögðu mér að 12 ára gamall hefði hann lagzt út og sagt skilið við sitt heimili. Einhvern afbrotaferil hefur hann átt æ siðan. En hve mikla skólagöngu hann fékk á sinum tima þori ég ekki að fullyröa um en sjálfsagt hefur hún ekki verið mikil. — Játaði Ludwig eitthvað það sem getur auðveldað þýzku lög- reglunni eftirleikinn? — Já, eftir að við komum til Þýzkalands sagði Ludwig lög- reglunni frá stað, þar sem hann og Linden hentu poka með plastumbúðum utanaf pening- unum út i ána Main. í þessum poka voru lika tvennar vélklipp- ur og litil talstöð. Þeir félagarn- ir höfðu sett grjót i pokann og hent honum fram af bakkanum. Þýzka lögreglan sendi kafara á vettvang og fannst pokinn á staðnum eftir skamma leit. Lögreglan taldi fundinn mjög mikilvægan þar sem hun hefur ekki haft i höndunum nein á- þreifanleg sönnunargögn hing- að til. Peningarnir sem þeir fé- lagar náðu i ráninu voru ónúm- eraðir, en með fundinum sögðu þeir að hægara væri að sanna þátt Lindens. Eins og öllum er kunnugt þá situr hann i fangelsi með 12 ára dóm. Þar kemur þýzka skipu- lagningin i Ijós. — Þó svo að ferð þin til Þýzkalands hafi verið stutt, þá hlýtur þú að hafa fengið all- sæmilega hugmynd um starfs- aðferðir og starfsaðstöðu þýzku lögreglunnar? Það er vist óhætt að fullyrða, að þýzka lögreglan hefur mjög góða starfsaðstöðu og skipulag allt er með ágætum. Ef til vill kemur þar bara fram þjóðareðli Þjóðverja að vilja hafa allt skipulagt og i föstum skorðum Hlutirnir eru framkvæmdir eins og skot, og þeir virðast leggja mjög mikið upp úr þvi, að fyllsta öryggis sé gætt. Þannig mætti heill her manna næstum þvi, gráir fyrir járnum, út á flugvöllinn þegar við komum til Frankfurt. — Voru þeir ef til vill hræddir um að einhverjir kunningjar hans myndu gera tilraun til að frelsa hann? — Aldrei minntust Þjóöverj- arnir á það við mig að svo væri, en sjálfsagt hafa þeir lært af reynslunni, þegar hann stökk út úr dómssalnum á sinum tima. Þetta var allt fullákveðið á leið- inni til Þýzkalands, þannig höfðu þýzku lögreglumennirnir samband við sinar höfuðstöðv- ar, og gerðu þeir siðan Ludwig grein fyrir að tekið yrði vel á móti honum. — Þýzka lögreglan hefur mjög fullkomið tölvukerfi i lög- reglustöðinni, og fékk ég að fylgjast með sumu sem þar fór fram. Til dæmis var tölvan spurð um ákveðinn aðila og eft- ir örfáar sek. var hún búin að svara hvort viðkomandi hefði hreint sakavottorð og hvað hann hefði gert misjafnt af sér um ævina. Lögreglan i Frankfurt fær allar sinar upplýsingar úr tölvubanka sem er i Wiesbaden, en þar er ailt skráð sem við kemur glæpastarfsemi i Þýzka- landi. Þá hefur lögreglan sér- stakan bil þaðan sem hægt er að sjónvarpa beint frá, og i lög- reglustöðinni er svo aftur sér- stakt herbergi sem hægt er að fylgjast með atburðinum. Þar er einnig aðstaða fyrir útvarp, sjónvarp og blaðamenn, og hægt er að sjónvarpa beint úr þessum sal. Viðsvegar um borgina eru svo nokkurs konar sjónvarps- augu og getur þvi lögreglan fylgzt með þvi sem er að gerast i ákveðnum hverfum, án þess að fara sjálf á staðinn. Hvað varð- ar öryggið sem ég minntist á áð- an, þá er það á þann veg i lög- reglustööinni, að ég fór aldrei svo inn fyrir dyr, að ég þyrfti ekki að gera grein fyrir, hver ég væri og hver væru min erindi. Þeir verða nokkur hundr- uð þúsundum króna rik- ari — Nú hefur verið sagt að piltarnir sem sáu Bandarikja- manninn vera að flagga stórum upphæðum fyrir utan Glæsibæ, fái verðlaun, bæði frá trygg- ingastofnun i Þýzkalandi svo og þýzkum lögregluyfirvöldum. Hefur eitthvað nýtt komið fram i þvi máli? — Ég var að fá i morgun bréf frá Þýzkalandi frá tryggingar- fyrirtækinu. Þar kemur fram að fyrirtækið óskar eftir upplýs- ingum frá okkur um piltana eins og heimilisföng og fleira sem þeir telja nauðsynlegt fyrir sig, enda þarf fyrirtækið að gera grein fyrir upphæðinni, og hvert hún fer. Hvor um sig á að fá 13.850 þúsund mörk og áe það haft i huga að gengið á þýzka markinu er um 85 krónur , þá er þetta dálagleg upphæð. En i sambandi við 10 þúsund marka verðlaunin sem þýzk lögreglu- yfirvöld lögðu til höfuðs Ludwig, þá tekur það lengri tima að fá það i gegn. Mér var sagt að hugsanlega kynnu þiltarnir að fá þessa peninga lika, en áður en af þvi getur orðið þarf dóm- stóll að kveða upp úrskurð. Hins vegar var mér sagt af lögreglu- mönnum, að það væri næsta ör- uggt að piltarnir fengju þá upp- hæð lika, enda voru það þeir sem urðu til þess að upp komst um Ludwig. Voru ánægðir með störf islensku lögreglunnar. — Létu Þjóðvernarnir einhver orð falla um þá vinnu sem þið höfðuð innt af hendi hér heima? — Þeir sögðu okkur, og hér verðum við að taka þá trúan- lega, að þeir væru ákaflega á- nægðir með það sem hér var gert i málinu. Þetta voru eink- um skýrslur, sem teknar voru hjá Rannsóknarlögreglu rikis- ins og þýðingar af fyrirtekt Sverris Einarssonar sakadóm- ara, sem þeir áttu við. líSöeiÍTWRB ,,Ég hefði aldrei þekkt Ludwig af þessari mynd”, sagöi Ivar. A meðan á Þýzkalandsdvölinni stóö var ívari m.a. afhent lögreglu- stjarna þýzku lögreglunnar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.