Tíminn - 13.08.1977, Side 3
Laugardagur 13. ágúst 1977
3
Tveir hinna óboönu gesta í skógreitnum i Hamrahliöinni. Timamynd: (Junnar
Girt og
gróðursett
— en vidhaldi og
umsjón ábótavant
JH-Reykjavik — jrg taldi þrjátiu
kindur i skógræktargiröingunni i
Hamrahliö i Mosfellssveit um
siöustu helgi, sagöi maður sem
leit inn til Timans. Svo til i hvert
einasta skipti, er ég hef átt þarna
leiö um, hefur þar verið fé, þótt
aldrei fvrr hafi þaö veriö svona
margt.
Þetta er ekki einsdæmi. 1
Þrastarskógi, sem Tryggvi
Gunnarsson gaf ungmennafélög-
unum á sinum tima, er einnig fé,
enda stendur þar opið hlið, þar
sem það getur gengið út og inn.
Ekki er fátitt, að kindur snöltri
kringum söluskálann.sem þar er.
— Vitaskuld er það gagnslitið
að leggja i skógrækt, sagði gestur
okkar, ef girðingarnar i kringum
reitina eru ekki f járheldar og hlið
þannig úrgarði gerð, að fé kómist
ekki i gegnum þau.
Landhelgismál:
Svíar vilja
útfærslu
MÓL-Reykjavik. Sviar hafa i
hyggju að færa út landhelgi sina
frá og með 1. janúar n.k. og
fylgja þannig fordæmi tslands
og annarra rikja, sem hafa fært
út fiskveiðilögsögu sina án þess
að biða eftir niðurstöðum haf-
réttarráðstefnunnar. Er hér um
að ræða töluverða stefnubreyt-
ingu hjá Svium, þvi að þeir
þóttu löngum tregirtilað styðja
útfærslu islenzku landhelginnar
á sinum tima.
Með þessari ákvörðun sinni
koma Sviar til með að lenda i
andstöðu við kommú
istarikin á eystri strönd Eystra-
saltsþvi Sviþjóð mun fá yfirráð
yfir 45% fiskimiðanna á Eystra-
salti —verði miðlinan miðuð við
Gotland eins og Sviar vilja. Þá
er liklegt að til mótmæla komi
afhálfu Dana, en fiskimenn á
Borgundarhólmi myndu verða
fyrirbarðinu á þessari útfærslu.
Samkór Trésmiöafélagsins í Reykjavik á hljómleikum i Noregi.
Hestamannamót
á Rangárbökkum
Norræna verkalýðs-
og alþýðutónlistar -
mótið í Noregi
AÞ-Reykjavik — Tvö tslandsmet
voru sett á hestamannamóti
sunnlenzkra hestamanna, sem
haldiö var á Rangárbökkum um
siöastliöna helgi. Þaö var i 250
metra folahlaupi aö Gjálp hljóp
vegalengdina á 18 sekúndum
sléttum, og i 1500 metra stökki
vann Rosti, en hann hljóp á 2.06.6
sekúndum.
önnur helztu úrslit voruþessi: í
Gæðingakeppni, A-flokki, vann
Þytur Sigfúsar Guðmundssonar,
en hann fékk 8.85 i einkunn. 1 B-
flokki vann Erpur Skúla Steins-
sonar Eyrarbakka, fékk Erpur
8.80 i' einkunn. Töltkeppni fullorð-
inna hésFamanna vann Sigfús
Guðmundsson Geldingaholti, á
Þyt, og i töltkeppni 16 ára
unglinga og yngri vann Einar
Magnússon, Selfossi á Móra. Eins
og fyrr sagði vann Gjálp 250
metra folahlaupið á nyju Islands-
meti, en 250 metra skeið vann
Hri'mnir Friðu Steinarsdóttur
Reykjavik,á 23,4.350 metra stökk
vann Glóa Harðar G. Albertsson-
ar Hafnarfirði, á 25,5 sekúndum,
og 800 metra stökk vann Gustur
Björns Baldurssonar Reykjavik,
á 62,3 sekúndum. 1500 metra
brokk vann Blesi, Valdimars
Guðmundssonar Reykjavik, á
3.16.6, og 1500 metra stökk vann
Rosi Baldurs Oddssonar
Reykjavik, á nýju Islandsmeti,
2.06.6. Þá fór fram kynbótasýning
á mótinu og fékk þau fimm vetra
hryssa, Leira frá Hringsdal. Eig-
andi hennar er Magnús Hákonar-
son Selfossi. Knapi var Einar
Magnússon, Leira fékk 7.91 i
einkunn.
Kás-Reykjavik — Um mán-
aðamótin júni-júlf fór fram nor-
ræna verkalýðs- og alþýðutón-
listarmótið, sem að þessu sinni
var haldið i höfuöborg Noregs,
Osló. Það er Norræna alþýðutón-
listarsambandiö sem stendur
fyrir þessari hátið á fimm ára
fresti til skiptis á Norðurlöndun-
um.
Norræna sambandið var stofn-
að árið 1947, en það var ekki fyrr
ensfðastliðinn vetur, eftir að Tón-
listarsamband alþýðu var stofn-
að, að Islendingar gerðust aðilar
að þvi og hófu þátttöku i þessu
norræna samstarfi.
tslenzku þátttakendurnir sem
þátt tóku i hátiðinni voru 45 fé-
lagar úr Samkór Trésmiðafélags
Reykjavikur og 26 blásarar úr
Lúðrasveit verkalýösins.
Hátiðin var sett á háskólahlað-
inu við Karl-Johansgötu, og ýms-
ar ræður fluttar. Milli ávarpa
sungu og léku kórar og hljóm-
sveitir frá hverju landi. Af Is-
lands hálfu lék Lúðrasveit verka-
lýðsins ,,A Sprengisandi" eftir
Sigvalda Kaldalóns.
Næstu daga héldu svo þátttak-
endur frá hverju landi eina
hljómleika, auk ýmissa sam-
eiginlegra dagskrárliða.
Þessi ferð var mjög ánægjuleg
fyrir islenzku þátttakendurna.
Þeim var ákaft fagnað á hljóm-
leikunum og bæði opinberlega og i
einkasamtölum voru lærðir og
leikir ósparir á að láta i ljós
ánægju sina með þátttöku ts-
lendinga i hátiðinni og hrifningu
sina yfir framkomu þeirra og tón-
listarflutningi.
Djúpivogur:
Bát tók niðri 200 m
frá bryggju
gébé Reykjavik — t fyrrinótt tók
Draupni HU 65 niöri um tvö
hundruö metra frá bryggjunni á
Djúpavogi. Varöskip, sem var
nærslatt náöi bátnum fljótlega út
og var báturinn ekkert skemmd-
ur.
Draupnir, sem er 40 tonna
bátur, mun hafa komiö inn á
Djúpavog, vegna brælu á miðun-
um. Talið er að það sé ókunnug-
leika skipstjórnarmanna bátsins
að kenna, að hann tók niðri. t
gærmorgun köfuðu kafarar frá
Landhelgisgæzlunni og rannsök-
.uðu botn bátsins, sem reyndist
með öllu óskemmdur.
Draupnir HU 65 er á neta-
veiðum og er gerður út frá Nes-
kaupstað.
Skjaldbökur, hláturdúfur,
dverghænur og marsvín
— á dýrasýningunni í Laugardal
MÖL-Reykjavik.— Nú er komið á
lista hjá okkur um 40 hundar, 20
kettir, páfagaukar, marsvin,
hamstrar, skjaldbökur, hvitar
dúfur, hlátursdúfur, fiskar i búri
og dverghænur, sagði Laufey
Jakobsdóttir, formaður f járöflun-
arnefndar dýraspitalans, er Tim-
inn ræddi við hana i gær um dýra-
sýningu þá sem nefndin stendur
fyrir i lþróttahöllinni i Laugardal
á sunnudagseftirmiödaginn n.k.
— Tilgangur þessarar sýningar
er reyndar tvenns konar, sagði
Laufey. — Annars vegar er þetta
fjáröflunarsýning, þvi við erum
að fara að opna spitalann, og eins
þurfum viö að koma upp skýli
fyrir læknisaðgerðir á hestum.
Hins vegar verða þarna einnig
leiðbeiningar um meðferö á dýr-
um, en þarna verða sérfróðir
menn, sem kynna fóðrun og með-
höndlun dýra.
Kynnirsýningarinnarsem mun
standa yfir frá klukkan 14 til 18
verður Gunnar Eyjólfsson. Bald-
ur Brjánsson mun skemmta á-
horfendum með töfrabrögðum
sinum og svo munu hin ýmsu dýr
verða kynnt.saga þeirra og kyn-
stofn. *