Tíminn - 13.08.1977, Qupperneq 5
Laugardagur 13. ágúst 1977
5
á víðavangi
138 mismun-
andi styrkir
Fyrir nokkru birtist hér í
blaðinu fróðlegt viðtal við
Agnar Guðnason .blaðafull-
trúa bændasamtakanna, þar
sem m.a. var rætt um styrki
til landbúnaðarins. 1 þvi sam-
bandi sagði Agnar:
,,Ef við tökum Noreg sem
dæmi. Eru þar i landi um
hundrað þrjátiu og átta mis-
munandi styrkir til bænda.
Þessir styrkir eru mjög mis-
munandi og af margvislegum
toga eftir þvi hvar i landinu
bóndinn býr, hvað hann fram-
leiðir o.s.frv. Þvi erfiðari sem
búskaparskilyrðin eru, þeim
mun í.ieiri fyrirgreiðslu fær
bóndinn. Hann getur til dæmis
fengið greiddan niður
flutningskostnað og sums
staðar getur hann fengið
greiddar að fullu allar
ræktunarframkvæmdir. Og
hann fær að mestum hluta
greiddan byggingarkostnað.
— Það er ákaflega erfitt að
umreikna þetta i isienzkar
krónur og dreifa þvi siðan á
hvern mjólkulitra eða kjötkiló
sem framleitt er i hvoru landi
um sig.
i Bretlandi hefur það tiðkazt
lengi að bændum séu borgaðir
beint ákveðnir framleiðslu-
styrkir.
Það er þvi fáránlegt að láta
sér blöskra þær bætur sem
greiddar eru vegna út-
flutnings islenzkra land-
búnaðarafurða. Það getur vel
verið að þær verði tvö þúsund
og fjögur hundruð milljónir i
ár, en þótt svo yrði.þá væri
það ekki nema smámunir
miðað við sem gerist annars
staðar.”
Minni fram-
leiðslukostnaður
Þegar blaðafulltrúinn var
spurður hvort dýrara væri að
framleiða búvörur hér á landi
en í nágrannalöndunum, sagði
hann:
,,Ætla mætti.að það væri
dýrara. En vegna þess, hve
búin eru yfirleitt stór hér á
landi og bændur vinna mjög
mikið þá má slá þvi föstu að
framleiðslukostnaður sé alls
ekki hærri hér en gerist i ná-
grannalöndum okkar. Að visu
er einstakar vörur dýrari hér
en annars staðar, eins og til
dæmis kjúklingar og egg. En
kindakjöt er mun ódýrara hér
en annars staðar enda fá is-
lenzkir bændur miklu minna
fyrir kindakjöt sitt, en stéttar-
bræður þcirra i Noregi, Svi-
þjóð og Danmörku svo aðeins
sé horft til Norðurlandaanna.
Mjólkurverð til bænda er likt
hér og annars staðar en er þó
að visu lægra i Danmörku
En þar kemur annað til:
Bóndi i Danmörku sem er að
byggja fjós greiðir ekki nema
fimmaf hundraði i vexti af þvi
fé sem byggingin kostar. 1
Danmörku eru vextir nefni-
lega greiddir niður og myndi
mörgum bóndanum hér á
landi ekki þykja það ónýtt. i
Noregi er þessum málum
þannig háttað að byggingalán
bænda eru vaxta- og af-
borgunarlaus fyrstu fimm ár-
in. — Ef þannig allt er tint til
myndi koma í ljós, að islenzkir
bændur framleiða sinar vörur
fyrir minna verð en stéttar-
bræður þeirra i nágrannalönd-
um okkar, — nema i einstök-
um tilvikum, eins og ég nefndi
áðan, þegar ég minntist á egg
og kjúklinga.
Afleysinga-
styrkur
Þegar rætt var um hvort is-
lenzkir bændur framleiddu
mikið á mann sagði Agnar:
t Noregi hefur verið metið,
hvað sé eðlilegt ársverk á
hvern framleiðanda land-
búnaðarafurða. 1 Norður-
Noregi hefur þannig verið tal-
ið hæfilegt ársverk fyrir einn
mann að sjá um sjö mjólkur-
kýr. Hér á landi mun hins veg-
ar vera talið hæfilegt einum
tnanni að sjá um þrjátiu kýr.
Fyrir tveimur árum eða
svo, var Noregi skipt i ákveðin
framleiðslusvæði. Þá kom
þetta verkmat til sögunnar og
þá var eins og ég sagði áðan,
talið hæfilegt einum manni að
sjá um sjö kýr í Norður-Nor-
egi, en sunnar i landinu var
ársverkið talið vera tiu til tólf
kýr. Þetta var lagt til grund-
vallar, þegar ákveðinn var af-
leysingastyrkurinn til norskra
bænda.
Bóndi sem býr i Norður-
Noregi og á sjö kýr, fær sem
svarar tvö hundruð og tiu þús-
und islenzkum krónunt á ári til
að greiða afleysingafólki, þeg-
ar hann vill taka sér fri um
helgarog i Noregi erlitið svo á
að þetta sé hliðstætt þvi, þegar
almennir launþegar eru und-
anþegnir þvi að vinna á
laugar- og sunnudögum. Það
er með öðrum orðum búið að
viðurkenna það i verki, að
maður, sem afkastar fullu
starfi eigi rétt á hvild um helg-
ar, hvort sem h'ann vinnur aö
framleiðslu landbúnaðar-
afurða eða hefur einhver önn-
ur störf með höndum.”
Þ.Þ.
Prinsessan og kóng-
urinn á sjóskiðum
Bandarikjamenn fara gjarnan
i sumarleyfi til Suður- eða
Austurlanda og Austurlanda-
búar halda hins vegar til
Bandarikjanna. Maðurinn,
sem þið sjáið hér á myndinni,
er enginn annar en Hussein
konungur i Jórdaniu, sem brá
sér i vetrarfri til Orlando i
Flórida. Hann hefur mikið
gaman af að leika listir sinar á
sjóskiðum,og mun nokkuð fær
i þessari iþrótt. Dóttir hans
litla er ekki eins hrifin af sjó-
skiðunum, en konungurinn
hefur ákveðið að hún skuli þó
læra að standa'á skiðum, þótt
ekki gangi það vel. Hann held-
ur hér á henni i fanginu til þess
að reyna á þann hátt að venja
hana við.
Litla prinsessan og bróðir
hennar Ali misstu móður sina i
febrúar i vetur. Drottningin
móðir þeirra lét lífið i þyrlu-
flugslysi. Þyrlan sem hún var
i fórst vegna þess að i hana
höfðu verið notaðir gallaðir
varahlutir. Eftir slysið var
hafin herferð gegn þessum
gölluðu hlutum, sem seldir
höfðu verið i flugvélar um all-
an heim, og þóttust menn þá
sjá hinar raunverulegu orsak-
ir margra flugslysa, sem orðið
höfðu siðustu árin
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN.
KENNARI við skóladagheimili
spitalans óskast.
STARFSMAÐUR á dagheimili
fyrir börn starfsfólks, óskast.
IIJÚKRUNARFRÆÐINGAR ósk-
ast á hinar ýmsu deildir spitalans.
Nánari upplýsingar um stöður
þessar veitir hjúkrunarforstjóri
Kleppsspitalans, simi: 38160.
LANDSPÍTALINN.
SÉRFRÆÐINGUR i meinefna-
fræði óskast við rannsóknadeild
Landspitalans. Umsóknarfrestur
til 15. september n.k. Staðan veitist
frá 1. oktober n.k. eða skv. sam-
komulagi.
Upplýsingar veitir yfirlæknir
rannsóknadeildar Landspitalans.
f\ÐSTOÐARLÆKNISSTAÐA frá 1.
janúar 1978. Staðan veitist til 1 árs
með möguleika á framlengingu um
1 ár til viðbótar. Staðan er ætluð til
sérnáms i barnasjúkdómafræði.
Tvær
AÐSTOÐARLÆKNISSTÖÐUR frá
1. nóvember n.k. önnur staðan
veitist til 4 mánaða og hin til 6
mánaða.
Eins AÐSTOÐARLÆKNISSTAÐA
frá 1. desember n.k. Veitist til 6
mánaða.
Upplýsingar veitir yfirlæknir
Barnaspitala Hringsins, s: 29000 .
FÓSTRA óskast til starfa frá 1.
október n.k. Upplýsingar veitir
hjúkrunardeildarstjóri Barna-
spitala Hringsins s: 29000.
SENDILL óskast á upplýsinga-
deild spitalans frá 1. september
n.k.
Nánari upplýsingar á Skrifstofu
rikisspitalanna, simi: 29000.
Reykjavik, 12. ágúst 1977.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPlTALANNA
Firíksgötu 5 - Sími 29000
SNOGH0J
Nordisk folkehojskole
ved Lillel)æltsbroen
ogsa elever fra de andre
nordiske lande,
6 mdr. fra nov.
4 nidr. fra jan.
DK-7000 Fredericia
tlf. 05 94 22 1 9
Jacob Krogholt.
Leiðrétting
Meinleg villa slæddist inni frétt,
sem höfð var eftir Þórði Gislasyni
bónda i ölkeldu i Staðarsveit,
siðastliðinn fimmtudag. Þar átti
að standa: „Fyrsta vætan eftir
samfelldan þurrk, sem hafði
staðið i vikutima, kom i fyrri-
nótt.” Biður Timinn velvirðingar
á villunni.
Auglýsið í Tímanum