Tíminn - 22.09.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.09.1977, Blaðsíða 1
ryr 11 VÖ Sturtu- grindur Sturtu dælur Sturtu- — drit Iðnkynn- ing í Laugar- dalshöll opnar á morgun — sjá bls. 4 Kás-Reykjavik. A morgun, föstu- dag, hefst viðamesti þáttur Iðn- kynningar i Reykjavík, þar sem er Iðnkynning i Laugardalshöll. Kynningin hefst kl. 16 og lýkur á sunnudaginn 2. október. Rétt er að vekja athygli á þvf, að hér er um að ræða 10 daga sýningu, en það er mun styttri tfmi en tiðkast um sambærilegar sýningar. Um 50 aðilar taka þátt i sýning- unni, en það er meiri þátttaka en á nokkurri annarri sýningu hér á landi. Þátttakendur einskorðast við fyrirtæki úr Reykjavik, og er það lika frábrugðið þvi sem áður hefur tiðkazt. Er nokkuð athyglis- vert að sjá hversu fjölbreyttur iðnaður þrifsthér i höfuðborginni, miðaö við fólksfjölda. Við undirbúning Iðnkynningar i Laugardalshöll hefur verið haft i huga, að gefa sýningargestum sem mesta innsýn f þann fjöl- breytileika iðnaðar og þá þjón- ustu sem veitt er hér i Reykjavik. Þá geta sýningargestir keypt margvislegar vörur á kynningar- verði meðan á sýningunni stend- ur, og þannig raunverulega feng- ið andvirði aðgöngumiða endur- greitt. En aðgangseyri er stillt mjög i hóf, 400 kr. fyrir fullorðna og 150 kr. fyrir börn. Albert Guðmundsson, formað- ur Iðnkynningarnefndar i Reykjavik, sagði á blaðamanna- fundi, sem haldinn var til kynn- ingar Iðnkynningu i Laugardals- höll i gær, að hann vonaðist til að þessi sýning yrði Reykvíkingum leiðarljós inn i framtiðina. Verndari sýningarinnar verður Gunnar Thoroddsen iðnaðarráð- herra. Lands- liðið tapaði fyrir írum — sjá íþróttasiöu Lítið nýtt í sáttatillög- unni og ekki almenn hrifning Sjá ennfremur baksiðu Alexei Kosygin forsætisráðherra Sovétrikjanna. KEJ-Reykjavik. —■ Samninga- nefnd BSRB tekur afstöðu til sáttatillögunnar i dag og kvöld, og niðurstöðurnar liggja vart fyr- ir fyrr en á morgun (I dag), sagði Haraldur Steinþórsson fram- kvæmdastjóri BSRB þegar Tim- inn hafði samband við hann i gær. Umræddur fundur hjá samninga- nefnd BSRB hófst um fjögurleytið i gær, og reiknað var með að gert yrði fundarhlé um kvöldmatar- leytið, en síðan yrði fundarhöld- um haldið áfram fram yfir mið- nættiog þá tekin afstaða til sátta- tillögunnar. Sagði Haraldur að ekki væri hægt að gera grein fyrir sáttatil- lögunni i stuttu máli. Hækkun á launastiganum sagði hann að væri ekki boðin að ráði umfram það sem rikið hafði áður boðið, þ.e. engin hækkun neðst né efst, en örlitil stighækkandi launa- hækkun um miðjan launastigann eða allt að 8% hækkun. Þá eru boðnar visitöluhækkanir, hlut- fallsreiknaðar og greiddar sam- kvæmt samningi sem ASI hefur gert. Gert er ráð fyrir viðbótar- hækkunum á þessa leið: 1,5% hækkun l.nóv. 1977, 3%hækkun 1. des. 1977 og 3% hækkun 1. júni 1978, 1. sept. 1978 og 1. júli 1979. Þá er i sáttatillögunni gert ráð fyrir 30. þús. kr. kauphækkun i desember hjá þeim rikisstarfs- mönnum sem starfað hafa yfir 20 ár, og sagði Haraldur að þeir væru um 20% félagsmanna. Hins Geir býður Kosy- gin til íslands ,,Á milli landa okkar eru engin óleyst deilumál. Þvi er ekki þörf á, meðan ég dvelst hér, að leysa úr ágreiningi. Um leið og ég kem til Sovétrikjanna til að þiggja vin- samlegt heimboð sovézku rikis- stjórnarinnar, vii ég staðfesta, hve mikla áherzlu islenzka rikis- stjórnin leggur á góða sambúð við Sovétrikin eins og allar aðrar 500 milljónir voru í húfi SK-Vestmannaeyjum. — Sam- komulag er nú komið á hér i Eyj- um milli sildarsaltenda og sfldar- verkunarfólks. Gekkst bæjar- stjórinn, Páll Zóphóníasson fyrir þvi, að báðir aðilar slökuðu nokk- Timinn heimsækir Selfoss Sjá bls. 10 og 11 uð. Tókst samkomulag i fyrradag um samningana sem í megin- atriðum eru eins og samningar þeir, sem gilda á Höfn i Horna- firði. Þvi er mjög fagnað að sildar- söltyn getur hafizt og hringnóta- bátar eru að byrja veiðar. Ákaflega mikið fé var i húfi, þvi að liklegt er, að verðmæti sfldar, sem hér kemur að landi, geti numið fimm hundruð milljónum króna i allt. Af þvi er liklegt að vinnulaun nemi sjötiu til hundrað milljónum. Þess vegna var mjög brýnt, að deilan um kjör við sildarverkun- ina leystist og sildarsöltun gæti hafizt eins og á Höfn. þjóðir. Fróðlegt verður að kynn- ast, að þvíleyti sem skilyrði gef- ast I aðeins fárra daga heimsókn, hvernig sovézkt þjóðfélag hefur þróazt og hvaða árangur hefur náðzt á sextiu árum frá þvi byltingin var gerð”. Þannig komst Geir Hallgrims- son forsætisráðherra að orði i kvöldverðarboði Kosygins, for- sætisráðherra Sovétrikjanna i gærkvöldi. Hann sagði enn frem- ur: „Einmitt vegna þess, að þjóðir okkar búa við mismunandi þjóð- félagskerfi, eru gagnkvæmar heimsóknir forystumanna rikj- anna gagnlegar, en þó ekki sizt kynnimillieinstaklinga,er takast mega með ferðafrelsi og upplýs- ingafrelsi, eins og gert er ráð fyr- ir i Helsinki-sáttmálanum. Kynni milli einstaklinga af óliku þjóð- erni eru að minu mati bezt til þess fallin aö draga úr tortryggni og stuðla að friði og vináttu. Með þeim hætti viljum við, að sam- skipti Sovétrikjanna og Islands þróist um langa framtið. Þvi til staðfestingar leyfi ég mér að bjóða yöur, herra for- sætisráðherra, að koma i opin- bera heimsókn til Islands við fyrsta hentugt tækifæri.” vegar er ekki i sáttatillögunni gert ráð fyrir launaflokks- hækkunum eftir ákveðinn ára- fjölda eins og i samningum bæjarfélaga og starfsmannafé- laga i Reykjanesumdæmi. Við- bótarorlof, sem nemur fjórum laugardögum, er ekki heldur i sáttatillögunni, en um það hefur einnig verið samið i Reykjanes- kjördæmi. Þá sagði Haraldur að breytingar i orlofsmálum væru óverulegar og ekki aðrar en að starfsaldur til orlofshækkunar er núbundinn við 18ár i stað 20 áður. Eins er kröfum okkar um fæði og mötuneyti mætt að óverulegu leyti, sagði hann, og sú krafa bandalagsins, sem mjög hefur verið sett á oddinn, þ.e. endur- skoðunarréttur og verkfallsheim- ildef visitöluákvæðum eðaöðrum grundvelli samningsins veröur rift á samningstimanum, hefur ekki verið tekin upp i sáttatillög- una. Ekki vildi Haraldur Steinþórs- son tjá sig nánar um sáttatillög- una á þessu stigi og kvaðst vona að menn væru ekki að dæma hana blindandi, þ.e. án þess að hafa tækifæri til aö kynna sér til- lögurnar i heild áöur. Þá sagði hann, að yrði tillagan samþykkt, giltihún i 2 ár, en að öðrum kosti kæmi til verkfalla 11. okt. ef ekki næðist þá samkomulag við rikið beint áður. Timinn hafðii gærsamband við nokkra ríkisstarfsmenn og var hljóðið i þeim yfirleitt á einn veg, sáttatillagan gengi ekki nógu langt og óliklegt að hún yrði nokk- urn tima samþykkt i atkvæða- greiðslu. Eins ogáöur hefurverið frá greint, fer atkvæðagreiðslan fram 2. og 3. okt., og þarf helmingur atkvæðisbærra rikis- starfsmanna að greiða atkvæöi, annars telst tillagan samþykkt. Þess má aö lokum geta, að samninganefnd rikisins var einn- ig á fundi f gær til að taka afstöðu til sáttatillögunnar, en ekki náði Timinn tali af Höskuldi Jónssyni formanni samninganefndarinnar. Niðurstöður af fundum nefndar- innar i gærdag munu hafa verið þær aö útgjaldaauki fyrir rikis- sjóð vegna samningatillögunnar verði 32 til 33%. Sjá bls. 15 GISTING MORGUNVERÐUR IRAUÐARÁRSTÍG 18 Itótel SIMI 2 88 66 208 tölublað — Fimmtudagur 22. september 1977 —61. árgangur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.