Tíminn - 22.09.1977, Side 2

Tíminn - 22.09.1977, Side 2
2 Fimmtudagur 22. september 1977 Islenzk fyrirtæki: veiðihornið Selá í Vopnafirði Heildarveiðin í Selá i sumar var 1485 laxar, en til saman- burðar má geta þess að i fyrra var hún 845, árið 1975 var hún 711 og árið þar áöur var veiðin 587. Ain var opnuð þann fyrsta júli og veiði lauk þann fimmtánda september. Stærsti laxinn sem veiddist i sumar vó 21 pund og var þaö Gústaf Þor- steinsson sem fékk hann á Eyrarbreiðu. — Þeir sem til þekkja vita, að Selá erekkert sérlega auöveidd, þannig aðþetta magn fæst ekki nema fyrir mikla laxgöngu, sagði Þorsteinn Þorgeirsson, Ytra Nýpi, i samtali við Veiði- horniö. — Ain var i upphafi dá- litið vatnsmikil, þar sem mikill snjór var í fjöllum og leysinga- vatn entist fram á sumar. En eftir mitt sumar hefur vatnið veriö jafnt og ef til vill i lág- marki, þvi ekkert hefur rignt i sumar. Meðalþyngd mun veraöllu meiri en i fyrra. Það er veiðifél.agið Sírengur Reykjavik sem hefur Selá á leigu, en það eru bændur sem sjá um að láta seiði i hana. Yfir- leitt er sleppt i ána 3.500 til 4.000 gönguseiðúm á ári. Þorsteinn sagði þau vera mjög góð en seiðin eru 14 til 15 sentimetra löng. Hrútafjarðará og Síká Síðastliðinn þriðjudag lauk veiöi á silungasvæði Hrúta- fjaröarárog Sikár, en veiöi lauk á laxasvæðinu um mánaðamót- in. Samtals komu upp úr ánum 262 laxar og 223 bleikjur. Þyngsti laxinn sem veiddist i sumar vó 19 pund. Þaö var Ottó Arason sem fékk hann i Engja- bakkahyl. 1 sumar voru ifyrsta sinn látin seiði i svokallaða sleppitjörn og alin þar i um þrjár vikur áður en þeim var sleppt. öll voru þau gönguseiði og vandlega merkt, þannig að veiðimenn geta búizt við aö fá merktan lax á færið næsta sum- ar. — Ain var ákaflega vatnslitil þar til siðustu dagana i ágúst, sagði Gunnar Sæmundsson i Hrútatungu i samtali viö Veiði- hornið. — Nokkuð hefur borið á smálaxi siðari hluta sumarsins, þannig að meðalþyngdin verður liklega ekki nema rétt um átta pund. í sumar og i fyrra voru sett i ána um 3000 gönguseiði og 6000 sumaraiin seiði. Helzta ný- breytnin i þeim málum i sumar var sú að seiðin voru sett i sleppitjarnir áður en þeim var sleppt út i ána. Veiðin i sumar var heldur skárri en i fyrra, en þá fengust '228 laxar. Laxveiðin i þessum ám var árið 1975 291 lax og þá var meðalþyngdin 8,1 pund. Laxafjöldinn virðist fara heldur vaxandi, þvi árið áður veiddust aðeins 194 laxar i þessum ám. Gunnar sagði að veiðin i sumar yrði að teljast alveg viðunandi miðað við allar aðstæður, en mikill lax sást i ánum, hins veg- ar vildi hann ekki taka. -á.þ. tslenzkur vetrarfatnaöur er vinsæll viðast hvar i Evrópu. Sameiginlega sýningardeildin i Bella Center. Dómur í bæiarbingiHafnarfiarðar: Rafveitan of bráðlát við innheimtu gj alda Líklegt, að óleyfilega há hitaveitugjöld hafi verið innheimt mánuðum saman framan af þessu ári JH-Reykjavik. — Það er grund- vallaratriði, að lög og reglugerðir og önnur ákvæði sem almenning- ur skal lúta, eru ekki gild eða bindandi nema birt hafi verið með fullnægjandi hætti. A þetta reyndi i baðmáli Björns á Löngu- mýri, og byggöist dómur hæsta- Leigan fyrir íbúðirnar hefði þurft að vera 60 til 80 þús. á mánuði áþ-Reykjavik. — A bæjar- stjórnarfundi fyrir skömmu var samþykkt að gera samanburð á leiguibúðum og verkamannabú- stöðum. Það eru tværnefndir sem eiga að sjá um verkið, en þær eru stjórn verkamannabústaða og framkvæmdanefnd um byggingu leiguibúða, sagði Magnús Reynir Guðmundsson bæjarritari á tsa- firði i samtali viö Timann. — Niðurstaða liggur eflaust fyrir innan skamms. En þess má geta að við siöustu áramót hefði leigan fyrir leiguibúðirnar þurft að vera 60 til 80 þúsund krónur á mánuði til þess að mæta kostnaði vegna lána og annars sem bæjarsjóður hefur þurft að taka á sig vegna þeirra. A fjórðungsþingi Fjórðungs- sambands Vestfiröinga sem haldið var fyrir skömmu, kom fram að lögin um verkamanna- bústaðakerfið eru þannig úr garði gerð, að til undantekninga má telja ef sveitarfélög á Vest- fjörðum treysta sér til að byggja eftir þeim lögum. Timinn hafði samband viö Magnús og innti hann eftir reynslu tsfirðinga i þessum málum. Magnús sagði að lokið hefði verið við byggingu 20 ibúða eftir þessum lögum, fyrir þremur árum, en siðan hefði ekki veriö byrjað á neinni. — Það má til sanns vegar færa, aðþetta er mjög erfitt fyrirminni sveitarfélög, sagði Magnús. — Við byggðum hér tuttugu ibúðir i fjölbýlishúsi og þurftum að leggja til byggingarsjóðs verkamanna um 1250 þúsund á hverja ibúð. Þetta er óafturkræft framlag. Fyrirminni sveitarfélög er erfitt að leggja fram slikar upphæðir úr takmörkuðum sjóðum. Framhald á bls. 19. réttar, er gekk honum I vil, á þvi, aö hlutaðeigandi yfirvöld heföu ekki gætt skyldu sinnar eins og vera bar, áður en gripið var til aðgeröa gegn Birni. Nú hefur fyr- ir skömmu gengiö dómur i bæjar- þingi Hafnarfjarðar, er byggist á rökum af þessu tagi, og hefur þaö í för með sér, að allmargar raf- veitur verða að endurskoða, hvaða gjöld þær hafa innheimt hjá notendum, svo sem fremi hann veröur staðfestur af hæsta- rétti, ef honum veröur þá áfrýjaö, og jafnframt kann hann að draga dilk á eftir sér fyrir nokkrar hita- veitur, þar á nteðal hitaveitu Reykjavikur. Málavextir eru þeir, að iðnaðarmálaráðuneytið heimilaði rafveitu Hafnarfjarðar, ásamt sex rafveitum á Suöurnesjum og rafveitunum i Borgarnesi, á Akureyri, Húsavik, Sauðárkróki, ísafirði og Patreksfirði, hækkun á smásöluverði rafmagns með aug- lýsingu i Stjórnartlðindum, dag- settri 29. júni 1976, og var hækkunin mismunandi, en allt að 11% að þvi er tók til rafveitu Hafnarfjarðaf. Tók rafveita Haf narfjaröar aö innheimta þetta álag frá og með fyrsta degi júli- mánaöar, enda tekið fram i aug- lýsingu iðnaðarráðuneytisins, að gildistimi breytingarinnar væri frá þeim degi. Aftur á móti var sérstök gjaldskrá með áorðnum breytingum ekki birt i Stjórnar- tiðindum fyrr en 26. júli. Raf tækj a v erks m ið j an i Hafnarfirði neitaði að greiða raf- magnsgjöld samkvæmt þessari gjaldskrá frá 1. júli til 26. júli, og höfðaði rafveitan þá mál á hana, og féll dómurinn, sem Már Pétursson héraðsdómari kvaö upp, á þann veg, að Raftækja- verksmiðjan skuli sýkn af kröfu rafveitunnar, sem jafnframt skal greiða allan málskostnað. Þýðir það, að heimild til hækkunar hafi fyrst verið fengin 26. júli 1976. 1 áliti réttarins segir: „Aðdragandi að auglýsingu nr. 247/1976 (29. júni) var sá, að stefnandi sendi ráðherra frum- varp að nýrri hækkaðri gjaldskrá til staðfestingar. Ráðherra synj- aði um staðfestingu, en birti i þess stað auglýsingu um, aö til- teknum þrettán rafveitum væri heimilað að „hækka smásöluverð raforku samkvæmt núgildandi gjaldskrá” um tiltekna prósentu- tölu, misháa eftir rafveitum, 11% að þvi er stefnda snerti. Ekki leit þóstefnandisvoá,að hér væri um að ræða ákvörðun um 11% hækk- un á öllum töxtum á fyrri gjald- skrá, heldur hækkaði einstaka Framhald á bls. 19. Ú tlit fyrir góða murtuveiði SJ-Reykjavik. Bændur viö Þing- vallavatn lögðu murtunet sin á þriöjudag og voru i gær farnir að vitja um. Að sögn Jóhannesar Sveinbjörnssonar, Heiðarbæ I, var ágæt veiði þennan fyrsta dag og murtan yfirleitt feit. Niðursuðuverksmiðjan Ora hefur til þessa keypt alla murtu úr Þingvallavatni og i fyrra stöðvaðist veiðin vegna þess að verksmiðjan tók ekki við meira magni af murtu. Athuganir fara nú fram á mörkuðum fyrir murtu erlendis og i fyrra fór m.a. til - raunasending frá Japan. Niöur- staða er þó enn ekki fengin af þessari markaðskönnun. Jó- hannes Sveinbjörnsson varðist allra frétta af þessum málum og taldi of snemmt um þau að tala, og er það sem hér er um þau ritað ekki eftir honum haft. Selja vel á fatnaðar sýn - ingu í Kaupmannahöfn Síldin á Höfn: Rúmar tunnur Sv. A. Höfn,- Rúmlega 2000 tunnum af sild var landað hér á þriðjudag. Rúmar 500 tunnur fóru i frystingu, ný söltunarstöð, Stemma, tók á móti 500 tunnum og söltunarstöð kaupfélagsins tók við rúmum 1000 tunnum. Þrir aflahæstu bátarnir voru Matthildur SH meö 270 tunnur, 2000 á dag Steinunn SH með 266 tunnur og Gullfaxi SH meö 231 tunnu. 1 gær fóru aflahæstu bátar ekki yfir 170 tunnur. Aflamagnið yfir daginn var þó enn um 2000 tunnur, enda 20 bátar að veiðum. Hingað eru alltaf að koma fleiri reknetabátar, og eru þeir komnir upp I 36-38. F.I. Rvik. — Sjö íslenzk fyrir- tæki tóku þátt í sýningunni Scandinavian Fashion VVeek i Kaupmannahöfn dagana 15.-18. september. islenzku fyrirtækin sem tóku þátt voru Alafoss, Al- is, Hilda, Les-Prjón, Prjóna- stola Borgarness, Röskva og Sambandið iðnaðardeild. Öll þessi fyrirtæki hafa tekið þátt i vörusýningum erlendis áöur neina Röskva. Röskva er tiltölulega nýtt útflutningsfyrir- tæki, sem selur handprjón og prjónafatnað prjónaðan á hand- prjóænveíum á islenzkum heim- ilum. Fyrirtækin sýndu öll i sam- eiginlegri tslandsdeild sem var tæpir 300 fm, og var Útflutn- ingsmiðstöðin einnig með sýn- ingarbás, þar sem gefnar voru upplýsingar um islenzka útflytj- endur, iðngrcinina, svo og al- mennar upplýsingar um tsland. Ctlit og skreytingar sýningar- svæðisins þóttu takast með ágætum. Að sögn fulltrúa þeirra fyrir- tækja sem tóku þátt i sýning- unni virðist sem sala á sýning- unnkhafi verið meiri en búizt var við.einkum þegar haft er i huga að aðalsölutimi til verzlana fyrir haust- og vetrarfatnað er á vorin, og er þvi einungis um sölu á fatnaði að ræða sem hægt er að afgreiða strax eða til af- hendingar á næsta ári. I sambandi við þessa sýningu hafa margar greinar birzt i er- lendum blöðum um Islenzka fatnaðinn og hefur náðst mjög gott samstarf milli islenzku sýnendanna og blaðadeildar Bella Center i Kaupmannahöfn, þar sem sýningin var haldin. Greinilegt er að islenzka uil ar- og skinnavaran er nú orðin mjög vel þekkt vfðast hvar I Evrópu, sem má að töluverðu leyti rekja til þess kynningar- starfs sem unnið hefur verið i sambandi við vörusýningar er- lendis á ullar- og skinnavörum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.