Tíminn - 02.11.1977, Qupperneq 15
Mi&vikudagur 2. nóvember 1977
15
lesendur segja
, ,Músarrindlarnir
9 }
Um nokkurt skeið hefur þaö
verið mörgu lítilmenninu af-
þreying aö rita niö um alþingis-
menn og störf þeirra á þingi og
utan. Þessi skemmdarverka-
starfsemi hefur beinzt aö Al-
þingi, alþingismönnum og
stjórnmálaflokkunum.
I staö þess aö starfa innan
þess stjórnmálaflokks, sem
skástur þykir, og vinna þar aö
þvi aö bæta hann, þá velja þess-
ir skemmdarverkamenn sér
þaö hlutskipti, að standa utan
flokka og hrópa niöur alltog alla
sem aö stjórnmálum vinna.
Þetta fölk er skaölegt þjóöinni
og hefur þegar haft of mikil
áhrif. NU gerist það I viötals-
þætti i dagblaöinu Vísi, aö
Matthias Johannessen, ritstjöri
Morgunblaösins, tekur undir
orð skemmdarverkamanna
meö þvi aö láta hafa eftir sér
eftirfarandi: „Þegar ég mæti
Islenzkum þingmanni á götu
hugsa ég nú ekki hærra en til
músarrindils, og þykirþað verst
þegar músarrindlarnir reyna aö
telja sjálfum sér og öörum trú
um aö þeir séu komnir úr arnar-
hreiöri.”
Matthias Johannessen hefur
vegna stöðu sinnar sérstaklega
persónuleg kynni af alþingis-
mönnum Sjálfstæöisflokksins og
jafnframt veruleg kynni af öör-
um alþingismönnum.
Orð Matthiasar um þing-
mennina er enn eitt lóðiö á þá
vogarskál, sem skemmdar-
verkamenn nota við iöju sina,
þetta lóð vegur mikið þar sem
Matthias er af mörgum virtur
vel og þvi eru þessi hvatvislegu
orð hryggileg.
SæmstværiMatthiasi aö biöja
alþingismenn opinberlega af-
sökunar á þessum orðum, en
hins vegar gæti hann bjargað
sér aö nokkru meö þvi aö birta I
Mbl. kvæði Guöm. Inga
Kristjánssonar „Músarrindill”,
en þaö lýsir nokkuð þeim kost-
um, sem flestir alþingismenn
okkar eru gæddir.
Músarrindill
Þegar aörir fara og flýja,
finna veröld bjarta og hlýja,
kyrr I sínum heimahögum
harður músarrindill býr.
Hann er öllum öðrum smærri,
eltir þó ei hina stærri.
Undan myrkri og isalögum
aldrei hann úr dalnum flýr.
Hinir fara og heiminn kanna,
hylla dýröir stórveldanna,
fyrir páfa og soldán syngja
sólarljóð frá heimskautsbaug,
öðlast frægö af flugi og ljóö-
um,
frama sig með heldri þjóöum,
lifa vel og efla og yngja
anda sinn I timans laug.
Vist er gott þar syðra aö sitja
sönglist háa kórar flytja,
þar má njóta náms hjá snjöll-
um
næturgölum suöurheims.
ís og fannir þar ei þreyta,
þar er sifelld hitaveita.
Ljóma þar i litum öllum
leikhústjöld hins viða geims.
Rindill situr heima hægur,
hirðir ekki aö veröa frægur.
Hræöum þeim, sem eftir eru,
yrkir hann sin kotungsljóö.
Sé þar litla list að heyra,
láta þau samt vel i eyra.
Rikust er i raun og veru
röddin hans á bernskuslóð.
Aörirbera fötin fegri, frakka-
stélin merkilegri,
Hann ergráum kufli klæddur,
kvartar ekki um rýran
skammt.
Þótt viö hret og hörku byggi,
hann er alla stund sá tryggi.
Illa búinn, illa fæddur
unir hann i dalnum samt.
Suöur flugu sumargestir,
svo sem lóur, erlur, þrestir.
Þeirra vegna aö vetrarlagi
væri byggöin auð og tóm.
Músarrindill ver og varöar
vonir sinnar fósturjarðar,
leggur yfir lund og bæi
lifstrú sina og gleðihljóm.
(G.I.K.)
Þaö erfróölegtað bera saman
hugsunarhátt skáldanna Guö-
mundar Inga og Matthiasar.
Annar yrkir lofsöng um
músarrindilinn, en hinn notar
heiti þessa litla fugls í niöur-
lægingarskyni gagnvart þeim
mönnum, sem þjóöin hefur valiö
sem sína beztu og hæfustu sér til
stjórnar.
Ef Matthias ekki vill sitja á
bekk meö niöurrifsöf lum
þjdðarinnar, gömlum nasistum,
pólitiskum framagosum og
sliku hyski veröur hann að biöja
þingmenn fsökunar.
Kristinn Snæland
Sinfóníuhljómsveit Islands:
Aukatónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 3. nóvember
kl. 20.30.
Stjórnandi Páii P. Pálsson
Einleikari Detlef Kraus
Söngsveitin Filharmonia,
Einsöngvarar: Elisabet Erlingsdóttir,
Sigriður E. Magnúsdóttir, Ruth Magnús-
son, Guðmundur Jónsson, Kristinn Halls-
son, Sigurður Björnsson.
Flutt verður Svita nr. 3 eftir Bach, Pianó-
sónata op. 1 nr. 1 eftir Brahms og Kór-
fantasia eftir Beethoven.
Áskriftarskirteini gilda ekki að þessum
tónleikum en aðgöngumiðasala er i Bóka-
búð Lárusar Blöndal og Bókav. Sigfúsar
Eymundssonar og við innganginn.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
31. október 1977.
Starf hjúkrunar- /
fræðings
við Heilsugæslustöðina á Selfossi er
laust til umsóknar nú þegar. Hálft starf
kemur til greina.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist heilbrigöis- og tryggingamálará&uneyt-
Heiibrigðis og
tryggingamálaráðuneytið
27. október 1977.
Staða skólastjóra
Lyfjatæknaskóla íslands skv. 4. gr.
reglugerðar um nám og starfsréttindi
lyfjatækna nr. 183/1973 er laus til um-
sóknar.
Gert er ráö fyrir að staðan sé hlutastarf lyfjafræðings i
lyfjabúð eöa lyfjagerð.
Stöðunni er raðað til launa i launaflokk A-22 sam-
kvæmt gildandi kjarasamningum starfsmanna rikis-
ins.
Umsóknir sendist skólastjórn Lyfjatæknaskólans, Heil-
brigöis- og tryggingamálaráðuneytinu. Upplýsingar
veitir skólastjóri skólans i sima 82939, fimmtudaga kl.
10-12 og skólastjórn i sima 28455.
Umsóknarfrestur er til 28. nóvember 1977.
Góðir hestar
^ Walter Heldmann, eldri, óskar eftir að
kaupa tamda hesta til útflutnings.
Þeir sem hafa hesta til sölu vinsamlegast
hafi samband við
Sigurður Hannesson & Co. h.f.
Ármúla 5 Reykjavik, simi 8-55-13.
Skátar
Skátar
Munið kvöldvökuna í íþróttahúsi Hagaskólans við Neshaga
í kvöld kl. 20. Söngur, gleði, gaman.
Aðgangur kr. 300.— B.Í.S.
Lucos CAV
Ljósastillum
alla bíla
BLOSSI
SKIPHOLTI 35 v"‘,un so
R F Y K I AV/1K tVAl
Rafmagnsviðgerðir
fyrir Lucas og CAV
BLOSSX
SKIPHOLTI 35