Fréttablaðið - 29.05.2006, Side 4
4 29. maí 2006 MÁNUDAGUR
Kosningaúrslit 2006
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
GOTT VEÐUR
TIL AÐ BYRJA
AÐ ÆFA!
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 26.05 2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 72,41 72,75
Sterlingspund 135,47 136,13
Evra 92,71 93,23
Dönsk króna 12,429 12,501
Norsk króna 11,855 11,925
Sænsk króna 9,952 10,01
Japanskt jen 0,6463 0,6501
SDR 107.86 108,5
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
128,2582
Benedikt Benediktsson efstur
Í Helgafellssveit var óbundin kosning.
Íbúar á kjörskrá voru 45 og þar af
greiddu 38 atkvæði. Kosningu hlutu
Benedikt Benediktsson, Sævar Ingi
Benediktsson, Brynjar Hildibrandsson,
Jóhannes Eyberg Ragnarsson og
Margrét Guðmundsdóttir.
HELGAFELLSSVEIT
Guðbrandur Sverrisson efstur
Í Kaldrananeshreppi var óbundin
kosning. Íbúar á kjörskrá voru 85 og
þar af greiddu 64 atkvæði. Þrír seðlar
voru auðir og ógildir. Kosningu hlutu
Guðbrandur Sverrisson, Sunna J.
Einarsdóttir, Jenný Jensdóttir, Óskar A.
Torfason og Haraldur V. Ingólfsson.
KALDRANANESHREPPUR
Gústaf Jökull efstur Í
Reykhólahreppi var óbundin kosning.
Íbúar á kjörskrá voru 190 og þar
af greiddu 116 atkvæði. Kosningu
hlutu Gústaf Jökull Ólafsson, Egill
Sigurgeirsson, Sigurbjörg Daníelsdóttir,
Karl Kristjánsson og Rebekka
Eiríksdóttir.
REYKHÓLAHREPPUR
Rafn Sigurbjörnsson efstur Í
Skagabyggð var óbundin kosning. Íbúar
á kjörskrá voru 66 og þar af greiddu
43 atkvæði. Kosningu hlutu Rafn
Sigurbjörnsson, Baldvin Sveinsson,
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, Magnús
Guðmannsson og Valgeir Karlsson.
SKAGABYGGÐ
Guðlaugur Benediktsson
efstur Í Árneshreppi var óbundin
kosning. Íbúar á kjörskrá voru 43
og þar af greiddu 36 atkvæði. Einn
seðill reyndist auður. Kosningu hlutu
Guðlaugur I. Benediktsson, Guðlaugur
A. Ágústsson, Oddný S. Þórðardóttir,
Gunnar Helgi D. Guðjónsson og Eva
Sigurbjörnsdóttir.
ÁRNESHREPPUR
Eydís Indriðadóttir efst Í
Ásahreppi var óbundin kosning. Íbúar
á kjörskrá voru 130 og þar af greiddu
100 atkvæði. Einn seðill reyndist auður.
Kosningu hlutu Eydís Indriðadóttir,
Egill Sigurðsson, Renate Hannemann,
Þórarinn B. Þórarinsson og Ísleifur
Jónasson.
ÁSAHREPPUR
KOSNINGAR Oddvitar Samfylkingar,
Framsóknar og Vinstri grænna í
Mosfellsbæ hittust á fundi í gær og
ákváðu að taka upp formlegar við-
ræður um myndun meirihluta. Þeir
hittast aftur í dag.
Jónas Sigurðs-
son, oddviti Sam-
fylkingarinnar,
segir að almennur
vilji hafi verið
fyrir því meðal
oddvitanna
þriggja að taka
upp samstarf og
engin ágreinings-
mál hefðu komið upp sem gætu
stefnt viðræðum um það í hættu.
Enn fremur hafi enginn flokkanna
sett fram nein skilyrði fyrir slíku
samstarfi. - sh
Viðræður í Mosfellsbæ:
Samstarf allt
að því öruggt
JÓNAS
SIGURÐSSON
LÖGREGLA Yfir þrjú hundruð öku-
menn mótorkrosshjóla tóku þátt í
móti í nágrenni Kirkjubæjar-
klausturs um helgina og fór það
að mestu vel fram að sögn lög-
reglunnar í Vík sem bætti við
mannafla sinn vegna mótsins.
Sex ökumenn voru teknir
fyrir of hraðan akstur, þar á
meðal mældist einn á 144 km
hraða þar sem hámarkshraði er
90 km. Á dansleik sem haldinn
var í tengslum við mótið kom til
stympinga milli manna og var
mikil ölvun var á svæðinu. Þá
voru tveir menn handteknir með
fíkniefni í fórum sínum. Það mál
telst upplýst. - khh
Erill hjá lögreglunni á Vík:
Tveir teknir
með fíkniefni
ÁRBORG Fulltrúar Framsóknar-
flokks, Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna skrifuðu í fyrri-
nótt undir viljayfirlýsingu um að
hefja þá þegar viðræður um
meirihlutasamstarf að loknum
sveitarstjórnarkosningunum. Í
yfirlýsingunni er kveðið á um að
flokkarnir taki ekki upp viðræður
við aðra flokka meðan á viðræð-
unum stendur.
Meirihluti Samfylkingarinnar
og Framsóknarflokksins féll, en
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut góða
kosningu í Árborg eða liðlega
fjörutíu og eitt prósent atkvæða.
Vinstri græn komu í fyrsta sinn
manni að í bæjarstjórn Árborgar.
Ragnheiður Hergeirsdóttir,
oddviti Samfylkingarinnar, segir
að fundur um meirihlutasamstarf
flokkanna þriggja verði haldinn í
dag. „Þetta eru ekki mjög flóknar
viðræður um málefni og skýrast
ætti fljótt hvort af samstarfi
verður,“ segir Ragnheiður.
Eyþór Arnalds hefur gefið til
kynna að hann sé á ný oddviti D-
listans þrátt fyrir fyrri yfirlýs-
ingar um að taka ekki við þeirri
stöðu fyrr hann hefði sætt viður-
lögum fyrir ölvunarakstur á dög-
unum. Eftir því sem næst verður
komist skiptu útstrikanir á nafni
hans hundruðum, en til þess að
nafn hans falli af framboðslista
þurfa að minnsta kosti 51 pró-
sent kjósenda að strika tiltekið
nafn út. - jh
Vinstri græn, Framsóknarflokkur og Samfylkingin ræða samstarf í Árborg:
Samningafundi fram haldið
ÁRBORG Vel er hugsanlegt að myndaður
verði meirihluti án þátttöku Sjálfstæðis-
flokks í dag eða næstu daga.
KOSNINGAR Endurtalning á Álfta-
nesi í gær staðfesti sigur Álfta-
neslistans í kosningum á laugar-
dag. Sjálfstæðismenn fóru fram á
endurtalningu eftir að fyrsta taln-
ing benti til sigurs Álftaneslistans
með þremur atkvæðum.
Sjálfstæðismenn gerðu enga
athugasemd við talninguna en ósk-
uðu eftir ítarlegri talningu til að
tryggt yrði að úrslitin væru rétt.
Sjálfstæðismenn hafa því misst
meirihluta sinn á Álftanesi í fyrsta
sinn síðan listakosning var tekin
upp þar fyrir tuttugu árum. - sh
Endurtalning á Álftanesi:
Þrjú atkvæði
skildu að
Sóleyjarbyggð tekin fyrir Mál Sam-
iðnar vegna fjögurra til átta Litháa sem
eru að byggja tvær blokkir fyrir verktak-
afyrirtækið Sóleyjarbyggð í Grafarholti
verður tekið fyrir í byrjun júní. Mennirnir
eru með 20 þúsund krónur í laun á
mánuði og 3.500 krónur í dagpeninga á
dag og hefur Samiðn því höfðað mál.
FÉLAGSDÓMUR
KOSNINGAR Óformlegar viðræður
um myndun meirihluta í bæjar-
stjórn Kópavogs stóðu í allan gær-
dag og fram á kvöld. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er lík-
legast að bæjarstjórnarsamstarf
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks verði endurnýjað. Oddvitar
flokkanna voru ekki tilbúnir að
gefa upplýsingar um þá mögu-
leika sem ræddir hafa verið.
Ómar Stefánsson, oddviti
Framsóknarflokksins í Kópavogi,
vildi ekkert tjá sig um það í gær
hvort líklegt væri að meirihluta-
samstarf flokksins við Sjálfstæð-
isflokkinn í bæjarstjórn yrði end-
urnýjað. Ómar sagði að
samningsstaða flokksins væri
ekki sterk. „Ég er í þeirri stöðu
núna að ég vil tala við mína flokks-
menn eftir gærdaginn sem var
ekki góður fyrir okkur. Við erum
einfaldlega að skoða okkar innri
mál núna því það er mikil óánægja
með þetta mikla fylgistap í gær,“
segir Ómar. Framsóknarflokkur-
inn tapaði tæpum sextán prósent-
um í kosningunum á laugardaginn
og missti tvo menn úr bæjarstjórn.
Ómar segir að þrátt fyrir niður-
stöðu kosninganna hafi síminn
logað allan daginn í gær. „Það eru
allir að þreifa á öllum, ég get lofað
því. En ég er ekki í aðstöðu til að
segja frá því í smáatriðum.“
Guðríður Arnardóttir, oddviti
Samfylkingarinnar, segir að málið
sé mjög einfalt í hennar herbúð-
um. „Ég get bara sagt að engar
viðræður hafa verið í gangi sem
ég veit af en væntanlega verður
meira að frétta á morgun.“ Sigríð-
ur sagði á kosninganótt að fýsi-
legri kostur sé samstarf til vinstri
en með sjálfstæðismönnum.
Ólafur Þór Gunnarsson, oddviti
Vinstri grænna, segir að allir séu
að þreifa fyrir sér. „Þeir sem
mynduðu meirihluta geta gert það
áfram en við höfum sagt það að
Framsóknarflokkurinn hljóti að
hugsa sig um áður en hann velur
að mynda meirihluta með Sjálf-
stæðisflokknum sem er á góðri
leið með að drepa þá af sér.“ Ólaf-
ur segist ekki hafa verið í neinum
formlegum viðræðum en hafi
talað við marga bæjarfulltrúa í
gær. Ólafur hefur sagt að Vinstri
græn útiloki ekki samstarf við
neinn flokk en fyrst yrði að sjálf-
sögðu leitað samstarfs við aðra en
Sjálfstæðisflokkinn.
Ekki náðist í Gunnar I. Birgis-
son, oddvita Sjálfstæðisflokksins,
í gærkvöldi né aðra bæjarfulltrúa
flokksins.
svavar@frettabladid.is
Stefnt er á óbreytt
meirihlutasamstarf
Oddvitar allra flokka í Kópavogi vilja ekki tjá sig um meirihlutaviðræður.
Samfylkingin segist ekki hafa átt viðræður við neinn flokk en Vinstri græn og
Framsóknarflokkurinn segja að miklar þreifingar séu í gangi.
FYRSTU TÖLUR VÆNTANLEGAR Frá vinstri eru Ómar Stefánsson Framsóknarflokki, Guðríður Arnardóttir Samfylkingu, Ólafur Þór Gunnarsson
Vinstri grænum og Gunnar I. Birgisson Sjálfstæðisflokki. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL