Fréttablaðið - 29.05.2006, Síða 6

Fréttablaðið - 29.05.2006, Síða 6
6 29. maí 2006 MÁNUDAGUR KJÖRKASSINN Ætlarðu hringinn um landið í sumar? Já 27,5% Nei 72,5 SPURNING DAGSINS Í DAG Fylgdistu með talningu atkvæða fram eftir nóttu í sveitarstjórnar- kosningunum? Segðu þína skoðun á Vísir.is KJARAMÁL Samningar Landspítal- ans við dönsku starfsmannaleig- una um hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga eru ekkert frá- brugðnir þeim sem gerðir hafa verið síðustu fjögur árin. Þetta segir Anna Stefánsdóttir, hjúkr- unarforstjóri á Landspítalanum. Eini munurinn sé að skortur á starfsfólki þetta árið er meiri og því leysi fleiri af í ár. Starfkraft- arnir verði ekki dýrari en árin á undan heldur hlutfallslega ódýr- ari fyrir spítalann. Anna neitar hins vegar að ræða um kostnaðinn við sumarafleys- ingar hjúkrunarfræðinganna fyrr en gengið hafi verið frá samn- ingnum við dönsku starfsmanna- leiguna, Ethnic Care Aps. Trygg- ingamál standi meðal annars út af. Anna segir sérstakt að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetji til þess að ekki sé farið eftir þeim kjarasamningum sem nýbú- ið sé að gera við Landspítalann, en félagið hafi undirritaði stofnana- samning við Landspítalann 28. apríl: „Spítalinn hefur ekki haft tækifæri að greiða hjúkrunar- fræðingum laun samkvæmt samn- ingnum, en á sama tíma er félagið að hvetja hjúkrunarfræðinga til að gera kröfur um annað en félag- ið hefur samið um.“ Elsa B. Friðfinnsdóttir, for- maður Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga, segir ástæðu þess að félagið amist við samningunum núna að upphæðin sem spítalinn muni leggja í dönsku hjúkrunar- fræðingana sé hærri en nokkurn tímann fyrr. Allt árið 2004 hafi hún verið 50 milljónir, sem sé mun lægra en verði greitt fyrir þá dönsku í sumar. „Reyndir hjúkrunarfræðingar á spítalanum segja að veturinn sé sá erfiðasti sem þeir muna eftir. Þeir þurfa frí, en svíður að hafa haldið uppi starfseminni árið um kring án þess að hafa fengið umbun í samræmi við það sem þeir hafa lagt á sig. Þess vegna eru viðbrögðin sterk þegar hægt er að fá fólk utan að fyrir betri kjör, þó það taki ekki á sig sömu ábyrgð og skyldur og þeir sem þekkja deildirnar.“ Stjórn Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga hefur farið þess á leit að fastráðnum hjúkrunar- fræðingum verði tryggðar sömu greiðslur yfir þennan níu vikna álagstíma og þeir dönsku fá. gag@frettabladid.is Sami samningur og síðustu fjögur árin Hjúkrunarforstjóri Landspítalans segir ekkert frábrugðið við samninga hans við dönsku starfsmannaleiguna nú miðað við síðustu ár. Hjúkrunarfræðingar segja sárt að sjá fólk með minni ábyrgð á hærri launum. SKRAFAÐ Á GÖNGUM SPÍTALANS Hjúkrunarforstjóri Landspítalans segir hagkvæmt að semja við dönsku starfsmannaleiguna Ethnic Care Aps, því aðlögunin sé ekki mikil og nám þeirra viðurkennt á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR PÓLLAND, AP Benedikt XVI páfi heimsótti í gær útrýmingarbúðir nasista í Auschwitz í Póllandi. Hann gekk einn, hvítklæddur með spenntar greipar, inn í búðirnar, um hið alræmda hlið sem á stend- ur „Arbeit macht frei“ eða „Vinn- an frelsar þig“. Svartklæddir fylgdarmenn hans héldu sig í hæfilegri fjarlægð. Páfinn kastaði stuttri kveðju á biskupinn á staðnum en var að öðru leyti þögull þegar hann gekk inn. Hann bað bænir hljóðlega fyrir munni sér og staðnæmdist í eina mínútu við aftökuvegginn þar sem nasistar tóku þúsundir gyð- inga af lífi í seinni heimsstyrjöld- inni. Við vegginn biðu hans 32 eft- irlifendur úr fangabúðunum og tók Benedikt hvern þeirra tali stutta stund. Benedikt, sem er þýskur, var á táningsaldri meðlimur í Hitlers- æskunni gegn vilja sínum og varð síðar hermaður í þýska hernum. Heimsókn hans í útrýmingarbúð- irnar, þar sem nasistar tóku um eina og hálfa milljón gyðinga, Pól- verja og sígauna af lífi, er því mjög þýðingarmikil fyrir sam- skipti kaþólikka og gyðinga, en bæði Benedikt og Jóhannes Páll II hafa lagt mikið upp úr þeim. Benedikt hefur tvisvar sinnum áður heimsótt Auschwitz og Birk- enau-búðirnar sem eru skammt frá, árin 1979 og 1980. - sh Benedikt páfi XVI heimsótti útrýmingarbúðirnar í Auschwitz í gær: Páfinn tók eftirlifendur tali PÁFI Í ÁUSCHWITZ Benedikt páfi XVI gekk þögull um útrýmingarbúðirnar biðjandi bænir. KOSNINGAR Samfylkingin, Vinstri græn og L-listinn eiga nú í meiri- hlutaviðræðum á Akureyri. Þessir þrír flokkar mynduðu minnihluta í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var felldur í kosningunum. Hermann Jón Tómasson, odd- viti lista Samfylkingarinnar, segir D-lista og B-lista hafa hvorn í sínu lagi haft samband við sig á kosn- inganótt. „Menn heyrðu hljóðið hver í öðrum en niðurstaða okkar var að skoða hvort fyrrum minni- hlutaflokkar næðu saman um sam- starf.“ - sdg Meirihlutinn féll á Akureyri: Fyrrum minni- hluti fundar STJÓRNMÁL „Framsóknarflokkur- inn tapar gríðarlega miklu á höf- uðborgarsvæðinu og í stærstu bæjarfélögunum, svo sem á Akureyri og Akranesi,“ segir Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins. „Aftur á móti kemur hann einnig víða vel út, til dæmis á Suðurlandi og í Skaftafellssýsl- um. Flokkurinn vann nokkurn varnarsigur í Árborg. En þetta er grafalvarleg staða fyrir flokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn fær aftur góða kosningu víða. Við þurfum að fara yfir stöðuna og meta stöð- una út frá úrslitunum. Það er mikilvægt að forysta flokksins og þingflokkurinn meti stöðuna sem nú er komin upp og velti því fyrir sér hvernig snúa megi vörn í sókn.“ Guðni segir ljóst að Framsóknarflokkurinn hafi sætt mikilli gagnrýni af hálfu stjórn- arandstöðu og hart hafi verið sótt að honum í fjölmiðlum. „Framsóknarflokkurinn hefur iðulega sætt harkalegri gagnrýni á sama tíma og Sjálfstæðisflokk- urinn hefur varla verið nefndur á nafn í sömu andrá. En það er skylda okkar sem stýrum flokkn- um að fara yfir það sem hefur mistekist. Ég get ekkert sagt um stefnumálin eða forystu flokks- ins. Ég vil ræða þetta fyrst innan flokksins,“ segir Guðni Ágústs- son. - jh Guðni Ágústsson segir stöðu Framsóknarflokksins grafalvarlega: Sjálfstæðisflokkur fær frið GUÐNI ÁGÚSTSSON Framsóknarflokkurinn er gagnrýndur en Sjálfstæðisflokkur varla nefndur í sömu andrá segir Guðni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.