Fréttablaðið - 29.05.2006, Síða 8
8 29. maí 2006 MÁNUDAGUR
Kosningaúrslit 2006
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
VEISTU SVARIÐ
1 Hvaða nafngift varð hlutskörpust á sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar?
2 Hver er oddviti J-listans á Dalvík?
3 Hver er nýkjörinn formaður Félags íslenskra bókaútgefenda?
SVÖR Á BLS. 38
VOGAR
Meirihlutinn fellur Íbúar á kjörskrá
voru 692. Samtals greidd atkvæði voru
577. Tólf seðlar voru auðir og ógildir. E-
listi Stranda og Voga hlaut 326 atkvæði
og 4 fulltrúa. H-listi óháðra borgara
hlaut 239 atkvæði og þrjá fulltrúa. H-
listi missir meirihlutann frá 2002.
HÚNAVATNSHREPPUR
Fengu fimm fulltrúa Listi framtíðar
vann í Húnavatns- og Áshreppi. Alls
voru 317 á kjörskrá, 270 atkvæði voru
gild og auðir seðlar og ógildir sex. Úrslit
fóru þannig að A-listi framtíðar hlaut
171 atkvæði og fimm fulltrúa, E-listinn
Nýtt afl hlaut 99 atkvæði og tvo fulltrúa.
AÐALDÆLAHREPPUR
Aðaldalslistinn vann Í Aðal-
dælahreppi voru 197 á kjörskrá,
samtals greiddu 164 atkvæði en þrír
seðlar reyndust auðir eða ógildir.
Kosningin fór þannig að Aðaldals-
listinn hlaut 195 atkvæði og þrjár
fulltrúa en Lýðræðislistinn fékk 56
atkvæði og tvo fullrúa. Sjálfkjörið var
árið 2002.
SIÐANEFND DV braut siðareglur
Blaðamannafélags Íslands á
ámælisverðan hátt með óná-
kvæmri og villandi framsetningu
þegar blaðið birti frétt þess efnis
að forstöðumaður Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja hefði beðið
bréfbera að njósna um íbúa í
Keflavík.
Segir í úrskurðinum að siða-
nefnd fallist ekki á útskýringar
blaðamanns DV að tölvubréf for-
stöðumannsins til yfirmanns
Íslandspósts hafi gefið tilefni til
fyrirsagna þeirra er blaðið notaði
í kjölfarið. Blaðamaður hafi ekki
vandað upplýsingaöflun sína né
úrvinnslu. - aöe
Siðanefnd blaðamanna:
Ámælisvert
brot DV
FERÐAMÁL Breskum ferðamönnum
hingað til lands fækkar um rúmlega
300 frá áramótum til aprílloka milli
ára þrátt fyrir að breska flugfélagið
British Airways hafi hafið áætlun-
arflug hingað til lands í mars.
Jókst framboð í kjölfarið og
samkeppni harðnaði auk þess sem
British Airways kynntu Íslands-
ferðir sínar sérstaklega í Bret-
landi en miðað við tölur hefur það
ekki skilað sér í fjölgun breskra
ferðalanga. Flugrekendur sem
leitað var álits hjá höfðu litlar
skýringar á reiðum höndum aðrar
en að gengi krónunnar hefði verið
ákveðinn þrándur í götu það sem
af er árs. - aöe
FYRSTA FLUGIÐ Þrátt fyrir tilkomu áætlunar-
ferða BA hingað til lands fækkar þeim
Bretum sem hingað koma milli ára.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
Hert samkeppni í flugi:
Ferðamönnum
fjölgar ekki
LÖGREGLA Lögreglan á Hvolsvelli
hafði á ný afskipti af mönnum sem
voru handteknir um síðustu helgi
eftir slagsmál og ólæti fyrir utan
skemmtistaðinn Kristján X á
Hellu.
Tilkynning um slagsmál barst
lögreglu um fjögurleytið í fyrri-
nótt og voru menn blóðugir eftir
minni háttar átök og stympingar.
Að sögn lögreglu var ástandið ekki
jafn alvarlegt og um síðustu helgi
þegar kalla þurfti eftir neyðarað-
stoð frá lögreglunni á Selfossi
vegna mannanna sem þá réðust að
lögreglumönnum eftir að einn
þeirra var handtekinn.
- khh
Handalögmál á Hellu:
Sömu óláta-
belgir á ferð
ARNARNESHREPPUR
Meirihlutinn fellur Á kjörskrá voru
126 en samtals greiddu 113 atkvæði.
Tveir seðlar voru auðir og ógildir.
K-listi Kraftlistans hlaut 61 atkvæði
og þrjá fulltrúa. M-listi Málefnalistans
hlaut 52 atkvæði og tvo fulltrúa og
tapar meirihlutanum frá 2002.
BÆJARHREPPUR
Lýðræðislistinn vann Íbúar á
kjörskrá voru 69 en samtals greiddu
64 atkvæði. Einn kjósandi skilaði
auðu. H-listi Hreppslistans hlaut
23 atkvæði og tvo fulltrúa og L-listi
Lýðræðislistans hlaut 41 atkvæði og
þrjá fulltrúa. Óbundin kosning var í
sveitarfélaginu 2002.
FLÓINN
Þ-listinn vann Íbúar á kjörskrá
voru 374 en samtals greiddu 309
atkvæði. Þrír seðlar voru auðir og
ógildir. E–listinn Flóalistinn hlaut 143
atkvæði og þrjá fulltrúa. Þ-listi fyrir,
þor, þrautsegju og þinn hag hlaut
163 atkvæði og fjóra fulltrúa. Kosið
var í nýju sameinuðu sveitarfélagi.
EYJAFJARÐARSVEIT
Meirihlutinn fellur Íbúar á
kjörskrá voru 680 en greidd atkvæði
voru 536. Fjórir seðlar voru auðir og
ógildir. F-listi hlaut 212 atkvæði og
þrjá fulltrúa, H-listi hlaut 260 atkvæði
og fjóra fulltrúa, S-listi hlaut 60
atkvæði og engan fulltrúa. F-listi missir
meirihlutann frá kosningunum 2002.
INDÓNESÍA, AP Hjálparsveitir leita
nú í húsarústum á eynni Jövu í
Indlandshafi en öflugur jarð-
skjálfti reið yfir eynna í fyrri-
nótt. Nú er talið að minnsta kosti
4.600 mann hafi látist og tugþús-
undir manna slasast í kjölfar
skjálftans sem mældist 6,2 á
Richters-skalanum.
Eyjan Java er eitt af þéttbýl-
ustu landsvæðum í heimi og þar
búa um 124 milljónir manna.
Ástandið er verulega slæmt í
mörgum landshlutum og er ráð-
gert að tala látinna eigi eftir að
hækka enn frekar þegar fréttir
taka að berast frá afskekktari
svæðum.
Alger eyðilegging blasir við
fjölmörgum íbúum sem flúðu
heimili sín og svaf fjöldi fólks
undir berum himni af ótta við
eftirskjálfta.
Jarðfræðingar segja að
skjálftinn í fyrrinótt hafi aukið
virkni eldfjallsins Merapi sem
er í nágrenni borgarinnar
Yogayakarta og hafa öflugir
skjálftar einnig mælst skammt
undan Kyrrahafseynni Tonga og
á Papúa Nýju-Gíneu.
Hjálpargögn eru farin að ber-
ast til Yogyakarta sem er á eynni
miðri og hafa Sameinuðu þjóð-
irnar þegar sent lyf og aðrar
nauðsynjar en einnig er von á
stuðningi frá ríkisstjórnum og
fleiri hjálparsamtökum. - khh
Hjálparsveitir leita að fólki í húsarústum á eyjunni Jövu:
Á fimmta þúsund látnir
SJÓSLYS Skipverjar á Akureyrinni
EA 110 frá Akureyri unnu þrekvirki
við erfiðustu hugsanlegu aðstæður
þegar þeir náðu að ráða niðurlögum
eldsins sem kom upp í íbúðum skips-
ins á laugardag. Skipið var þá við
veiðar 75 sjómílur vestur af Látra-
bjargi. Tveir menn létu lífið í slys-
inu en aðrir skipverjar héldu norður
á Akureyri í gærmorgun og eru
komnir til fjölskyldna sinna.
Höskuldur Einarsson hjá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins segir
ljóst að gríðarlegur eldur hafi geisað
í skipinu og hann hafi breiðst út á
stuttum tíma. „Áhöfnin var búin að
slökkva allan meiriháttar eld þegar
okkar menn komu um borð.
Skemmdirnar eru alveg gríðarlegar
og ég verð að segja að skipsverjar
hafa gert algjört kraftaverk í að
slökkva þennan eld. Þeir hafa gert
hluti sem enginn gæti ætlast til af
nokkrum manni við þessar aðstæð-
ur. Það er ljóst að menn hafi gengið
mjög hart fram.“ Höskuldur segir
að margar íbúðir og eldhús sé stór-
skemmt eftir eldinn og það sem ekki
brann sé verulega mikið sótskemmt
þar sem sót hafi farið um allt skip.
Akureyrin sigldi fyrir eigin vélar-
afli til lands og kom til hafnar í
Hafnarfirði í gærmorgun þar sem
skipið liggur nú. Lögreglan í Hafn-
arfirði, sem fer með rannsókn máls-
ins, segir eldsupptök ekki ennþá
kunn.
Mikill viðbúnaður var hafður
strax eftir að hjálparbeiðni barst
frá Akureyrinni um klukkan tvö á
laugardag. Björgunarþyrlan TF-LÍF
fór með fjóra reykkafara frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
sem fóru um borð og aðstoðuðu við
slökkvistarfið. Slökkvistarfið gekk
vel og ekki þurfti frekari aðstoðar
við. Þyrla af danska varðskipinu
Triton fór með þrjá menn en var
snúið til baka þegar þyrlan var að
taka eldsneyti á Rifi. Varnarliðs-
þyrla var einnig kölluð til en var
aðstoð hennar var afturkölluð um
það leyti sem hún var að fara í loftið
en tíu slökkviliðsmenn voru þá
komnir um borð í hana.
Séra Arnaldur Bárðarson, sókn-
arprestur í Glerárkirkju, segir að
allt samfélagið á Akureyri sé mjög
slegið yfir þessum atburði. Arnald-
ur segir að áhöfnin hafi fengið
fyrstu áfallahjálp á Landspítalanum
í Fossvogi en kirkjan nyrðra og
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
muni fylgja því starfi eftir með því
að veita áhöfninni og þeirra nánustu
áfallahjálp á næstu dögum. Ekki er
unnt að greina frá nöfnum hinna
látnu að svo stöddu.
svavar@frettabladid.is
Unnu þrekvirki við
erfiðustu aðstæður
Áhöfn Akureyrarinnar EA 110 náði sjálf að slökkva eldinn sem kom upp í skip-
inu á laugardag. Mat slökkviliðsmanna er að þeir hafi gert meira en hægt sé að
ætlast til því aðstæður hafi verið mjög erfiðar.
JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, fyrr-
verandi forsætisráðherra Ísraels,
var í gær fluttur á
sjúkraheimili til
langtímavistunar.
Sharon hefur verið í
dái í næstum fimm
mánuði eftir alvar-
legt heilablóðfall og
hefur þegar gengist
undir fjölmargar
aðgerðir án árangurs.
Litlar líkur eru taldar á því að
Sharon nái nokkrum bata en sér-
fræðingar á sjúkrahúsinu Sheba í
Tel Aviv þar sem hann dvelst um
þessar mundir vona hið besta og
segjast munu veita honum alla þá
þjónustu sem í boði sé. Hins vegar
muni þeir senda hann heim ef
hann sýnir engin batamerki innan
næstu mánaða. - khh
Sharon í framhaldsmeðferð:
Batahorfurnar
taldar litlar
ARIEL SHARON
TF LÍF VIÐ LANDSPÍTALANN Sex skipverjar voru fluttir af slysstað með þyrlunni. Höskuldur
Einarsson hjá slökkviliðinu segir skipverja hafa staðið sig gríðarlega vel. FRÉTTABLAÐIÐ/XXX
ÍBÚI JÖVU Þúsundir manna meiddust illa
í hamförunum. Hjálpargögn eru farin að
berast til sumra staða.
AKUREYRIN EA 110 Skipið kom til hafnar í Hafnarfirði í gærmorgun. Ljóst er að
skipverjar unnu björgunarafrek þegar þeir slökktu eldinn sem upp kom.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL