Fréttablaðið - 29.05.2006, Qupperneq 10
10 29. maí 2006 MÁNUDAGUR
Su›urlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 • www.falkinn.is
LEGUR í bíla og tæki
• Kúlulegur
• Keflalegur
• Keilulegur
• Nála- og línulegur
• Flans- og
búkkalegur
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
1.
29
4
INDÓNESÍA, AP Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin, WHO, telur nú fyrst
ástæðu til þess að lyfjafyrirtæki
búi sig undir að þurfa að útvega
miklar birgðir af lyfi gegn fugla-
flensu.
Tilefni þess að stofnunin gaf út
tilkynningu þess efnis er að grun-
ur hefur í fyrsta sinn vaknað um
að fuglaflensan hafi smitast á milli
manna í Indónesíu. Staðfest hefur
verið að þrjú dauðsföll í viðbót í
Indónesíu stafi af fuglaflensu.
Hugsanlegt er talið að sex þeirra
sem látist hafa í Indónesíu af völd-
um fuglaflensunnar hafi smitast
af mönnum. - gb
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin:
Nú þurfa lyfin
að vera til taks
LEIKUR SÉR VIÐ FUGLINN Þessi drengur í
Indónesíu lék sér við fuglinn sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UNGIR FLÓTTAMENN Þessi flóttamanna-
börn á Austur-Tímor fylgdust með
áströlskum hermanni, sem þar er í hópi
friðargæsluliða. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKÓLAMÁL Nýjum Íslendingum
býðst í sumar kennsla í íslensku og
fræðsla um íslenskt samfélag í sér-
stökum sumarskóla sem rekinn er
af Námsflokkum Reykjavíkur í
samvinnu við Alþjóðahús og Mími
- símenntun.
Sumarskólinn er ætlaður fólki á
öllum aldri sem hefur búið á land-
inu skemur en fjögur ár. Með nám-
inu er ætlunin að ýta undir aðlögun
og reynt að gera fólki kleift að
verða virkir þátttakendur í samfé-
laginu. Börnum er boðið upp á
námskeið hjá ÍTR með íslenskum
jafnöldrum sínum og unglingum
býðst vinna í Vinnuskólanum eins
og öðrum unglingum. - sh
Reykjavíkurborg:
Nýbúum boðið
í sumarskóla
DÓMSMÁL Saksóknarinn Helgi
Magnús Gunnarsson segir of erf-
itt að fá nálgunarbann á ofbeldis-
menn. Helgi sótti mál konunnar
frá Akranesi sem barin var í höf-
uðið með felgulykli af fyrrver-
andi sambýlismanni sínum.
„Skilyrðin fyrir nálgunarbanni
eru fullströng. Þetta úrræði
kemur því ekki almennilega að
notum,“ segir Helgi. Hann segir
að breyta þurfi lögum um nálg-
unarbann svo beita megi úrræð-
inu oftar.
Skjólstæðingur Helga hafði
farið fram á nálgunarbann á fyrr-
verandi sambýlismann sinn og
barnsföður áður en hann réðst
inn í íbúð hennar og barði hana
ítrekað með felgulykli án orða-
skipta. Hæstiréttur mildaði dóm-
inn yfir honum úr fimm og hálfs
árs fangelsi í tvö og hálft ár á
miðvikudag. Ekki þótt sannað að
hann hefði ætlað að bana henni
með höggunum.
„Þessi dómur er í samræmi
við það að dómstólar hafa farið
mjög varlega í að sakfella fyrir
tilraun til manndráps, nema fórn-
arlambið hafi hlotið lífshættu-
lega áverka. Meiri áhersla er
lögð á hættuna sem stafaði af
árásinni heldur en hvað mannin-
um gekk til með henni. Ekki þótti
sannað að vopnið væri það hættu-
legt að líkur væru á að bani
hlytist af.“
Drífa Snædal, fræðslu- og
framkvæmdastýra Samtaka um
Kvennaathvarf, segir að það slái
hana helst þegar hún skoði dóm-
inn að konan hafi óskað eftir
aðstoð; bæði hjá heilbrigðisyfir-
völdum og lögreglu. Hún hafi sóst
eftir nálgunarbanni, kært mann-
inn en dregið kæruna til baka.
„Það er mjög stór spurning
hvort konur eigi að geta gengið
aftur inn á lögreglustöð og dregið
kærur til baka undir þrýstingi
frá ofbeldismönnum.“ Hún segir
einnig að leita þurfi úrlausnar á
því hvernig kerfið eigi að bregð-
ast við þegar það veit að kona
sætir ofbeldi.
„Það á að sjálfsögðu að nota
þau úrræði sem til staðar eru,
eins og nálgunarbann, og síðan að
gefa þau skilaboð að ofbeldið líð-
ist ekki með þyngri dómum,“
segir Drífa og tekur undir þau
orð Helga að of erfitt sé að fá
nálgunarbann á ofbeldismenn.
„Kynbundið ofbeldi er dauðans
alvara. Við verðum að hvetja
konur til að taka hótanir alvar-
lega og hvetjum kerfið til að
bregðast við.“ gag@frettabladid.is
DRÍFA SNÆDAL HELGI MAGNÚS
GUNNARSSON
FELGULYKILL VARÐ AÐ VOPNI Í lögregluskýrslu um árásina kemur fram að blóðblettir hafi
verið á hurð, veggjum og gólfi baðherbergisins á heimili konunnar, svo og að felgulykill
hafi fundist þar bak við hurðina. Samkvæmt gögnum um rannsókn á felgulyklinum er
lengd hans rúmlega 31 sentimetri, þvermál 20 millimetrar og þyngd um 328 grömm.
Myndin er sviðsett. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL.
Breyta þarf lögum
um nálgunarbann
Saksóknari segir að breyta þurfi lögum um nálgunarbann. Skilyrðin séu of
ströng. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins hefur efasemdir um að konur eigi
að fá að draga kærur á hendur ofbeldismönnum til baka.
BERLÍN, AP Forseti Írans, Maham-
oud Ahmadinejad, segir að Evr-
ópulönd hætti á að missa áhrif sín
og völd í Miðausturlöndum ef þau
snúast á sveif með Bandaríkjun-
um og setji sig upp á móti kjarn-
orkuáætlun Írana. Í viðtali við
þýska tímaritið Der Spiegel full-
yrti Ahmadinejad að evrópsk
stjórnvöld vissu að Íranir hefðu
eingöngu í hyggju að nýta kjarn-
orku í friðsamlegum tilgangi. Í
viðtalinu beiddist hann stuðnings
Evrópubúa en fullyrti einnig að
þjóð sín væri sterk og ákveðin og
að andstæðingar hennar myndu
líða fyrir afstöðu sína.
Bandaríkjamenn, Bretar og
Frakkar hafa kallað eftir ályktun
frá Sameinuðu þjóðunum sem
myndi leyfa viðskiptatakmarkanir
og hernaðarleg afskipti í landinu
ef Íranir hætta ekki að auðga úran.
Stjórnvöld í Rússlandi og Kína
styðja ekki þá tillögu.
Ahmadinejad lét enn fremur í
ljós sterkar skoðanir sínar á hel-
förinni gegn gyðingum í síðari
heimsstyrjöldinni og kvaðst efast
um að tímaritið Der Spiegel myndi
nokkurn tíma segja „sannleikann“
um helförina. Forsetinn hefur
áður gefið í skyn að hann efist
almennt um þá söguskoðun og
látið í ljós vilja sinn að Ísraelsríki
verði lagt niður eða flutt til
Evrópu. - khh
Íransforseti segir þjóð sína sterka og andstæðingar muni líða fyrir afstöðu sína:
Stórorður um áhrif Evrópu
MAHAMOUD AHMADINEJAD
Beiðist stuðnings evrópskra ráðamanna við
kjarnorkuáætlun Írana.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMKEPPNI Félagssamtökin JCI
Ísland standa um þessar mundir
fyrir samkeppni um gerð við-
skiptaáætlana undir heitinu Frum-
kvöðlar í verki. Verkefnið er unnið
í samstarfi við KB Banka og Opin
kerfi.
Tilgangur verkefnisins er að
efla frumkvöðlastarfsemi ungs
fólks á landinu og samkeppnin er
opin öllum á aldrinum 18 til 40 ára
með lögheimili á Íslandi. Vegleg
verðlaun eru í boði fyrir þrjú efstu
sætin sem og þátttökuréttur í sam-
bærilegri alþjóðlegri keppni.
Skilafrestur er til 1. júní og niður-
stöður verða kynntar 9. júní. - sh
Keppt um viðskiptaáætlanir:
Frumkvöðla-
samkeppni
JERÚSALEM, AP Vopnahlé hefur verið
samið við landamæri Ísraels og
Líbanons fyrir tilstilli Sameinuðu
þjóðanna. Bardagar geisuðu þar í
gær í kjölfar þess að Ísraelar svör-
uðu árásum skæruliða í Líbanon á
Ísrael með loftárásum á þrjár
búðir Palestínumanna nálægt
Beirút.
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, sagði í gær á blaðamanna-
fundi að Ísraelar myndu ráðast af
afli gegn skæruliðum í Líbanon ef
árásum þeirra á norðurhluta Ísra-
els linnti ekki. Olmert sagðist hafa
vonað að loftárásir Ísraela á byggð-
ir Palestínumanna nálægt Beirút
myndu binda enda á árásirnar en
ofbeldið hefði haldið áfram.
Skæruliðar í Líbanon skutu eld-
flaugum að norðurhluta Ísraels
undir morgun í gær og Ísraelar
svöruðu með loftárásum. Því næst
hófust átök milli skæruliðasam-
taka Hezbollah og ísraelskra her-
manna við landamærin.
Ísraelskir embættismenn hafa
sagt að yfirvöld í Líbanon beri
ábyrgð á öllum árásum sem eigi
upptök sín innan landamæra
Líbanons.
Líklegt er að upptök átakanna
megi rekja til þess þegar háttsett-
ur lisðmaður islömsku Jihad sam-
takanna lést nýlega í sprengjuárás
í Líbanon. - sh
Átök geisuðu á landamærum Ísraels og Líbanon í gær:
Vopnahlé eftir mikil átök
Kosningaúrslit 2006
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
GRÍMSEY
Brynjólfur Árnason efstur Í
Grímsey var óbundin kosning. Íbúar
á kjörskrá voru 66 og þar af greiddu
55 atkvæði. Tveir seðlar reyndust
auðir. Kosningu hlutu Brynjólfur
Árnason, Garðar Ólafsson og Alfreð
Garðarsson.
GRÝTUBAKKAHREPPUR
Fjóla Valborg efst Í
Grýtubakkahreppi var óbundin
kosning. Íbúar á kjörskrá voru 256
og þar af greiddu 197 atkvæði. Einn
seðill reyndist auður. Kosningu
hlutu Fjóla Valborg Stefánsdóttir, Jón
Helgi Pétursson, Jóhann Ingólfsson,
Benedikt Sveinsson og Ásta Fönn
Flosadóttir.
SKORRADALSHREPPUR
Davíð Pétursson efstur Í
Skorradalshreppi var óbundin
kosning. Íbúar á kjörskrá voru 47
og þar af greiddu 29 atkvæði.
Tveir seðlar reyndust auðir.
Kosningu hlutu Davíð Pétursson,
Pétur Davíðsson, Steinunn
Fjóla Benediktsdóttir, Gísli
Baldur Henrýson og Guðrún J.
Guðmundsdóttir.
FLJÓTSDALSHREPPUR
Gunnþórunn Ingólfsdótt-
ir efst Í Fljótsdalshreppi var
óbundin kosning. Íbúar á kjörskrá
voru 69 og þar af greiddu 52
atkvæði. Tveir seðlar voru auðir
og ógildir. Kosningu hlutu
Gunnþórunn Ingólfsdóttir, Jóhann
Frímann Þórhallsson, Jóhann
Þorvarður Ingimarsson, Þórarinn
Jón Rögnvaldsson og Anna Jóna
Árnmarsdóttir.
BORGARFJARÐAR-
HREPPUR
Jakob Sigurðsson efstur Í
Borgarfjarðarhreppi var óbundin
kosning. Íbúar á kjörskrá voru 111
og greiddu 76 atkvæði. Tveir seðlar
voru auðir og ógildir. Kosningu
hlutu Jakob Sigurðsson, Jón S.
Sigmarsson, Steinn Eiríksson,
Kristjana Björnsdóttir og Ólafur A.
Hallgrímsson.
VOPNAHLÉ Forsætisráðherra Ísraels hótaði í
gær árásum gegn skæruliðum í Líbanon.