Fréttablaðið - 29.05.2006, Side 22
[ ]
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
�����
��������������������
��������������������
�����������������������������������
��
��������������
��������������������
���������������������������
���������������������
�
�
�
��
��
��
���
�
�����������������������������������Annar hfRekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is
a Eignaskiptay rlýsingar
atvinnu- og íbúðahúsnæði
fyrir
Með hjálp safnkassa getur
þú framleitt þinn eigin jarð-
vegsbæti með afgöngum úr
eldhúsinu.
Margar aðferðir eru notaðar við
heimajarðgerð. Aðalmunurinn á
aðferðunum felst í því hvort um
er að ræða einangraða kassa eða
ekki. Af því ræðst hversu hratt
jarðgerðin gengur og þar með
hversu mikið pláss kassinn tekur.
Jarðgerð í óeinangruðum, þrí-
skiptum safnkössum er einfaldari
í framkvæmd, en tekur mun
lengri tíma og meira rými. Text-
inn sem hér fer á eftir á við jarð-
gerð í einangruðum safnkassa,
nema annað sé tekið fram.
Safnkassinn á að vera þar sem
auðvelt er að komast að honum.
Gott er að hafa safnkassann á
skjólsælum og hlýjum stað á möl
eða grasi, þannig að vatn sem
lekur úr honum geti sigið niður í
jarðveginn. Hann þarf að standa
örlítið frá jörðu, þannig að loft
geti leikið um botninn, til dæmis á
hellum eða tréklossum.
Í safnkassann má fara allur
matarúrgangur, svo sem ávextir,
grænmeti, brauð, eggjaskurn,
kjöt, fiskur, tepokar og kaffi-
korgur. Auk þess má setja í hann
pappírsþurrkur, visnuð blóm, sag,
niðurklipptar runnagreinar og
margt fleira.
Meðal þess sem má ekki fara í
kassann eru efni sem eru skaðleg
umhverfinu og brotna ekki niður.
Til dæmis ryksugupokar, drykkjar-
fernur, sígarettuaska, plast, gler,
aska af grillkolum og hunda- og
kattasandur.
Í flestum tilvikum er safnkass-
inn tæmdur um það bil tvisvar á
ári. Það sem kemur úr safnkass-
anum er nefnt jarðvegsbætir.
Hann er notaður sem jarðvegur
fyrir plöntur og sáningu, í trjá- og
runnabeð, á grasflatir og til að
planta í hann grænmeti.
Þegar jarðvegsbætirinn er tek-
inn úr safnkassanum þarf að setja
hann í „eftirþroskun“. Efsta lagið,
sem minnst hefur brotnað niður, á
þó að nota til að byrja á nýrri jarð-
gerð. Leggja á jarðvegsbætinn úr
kassanum til eftirþroskunar á lag
af smágreinum og breiða plast-
dúk yfir hauginn. Eftirþroskunin
tekur um það bil hálft ár.
Þegar safnkassi er notaður í
fyrsta sinn er byrjað á því að
leggja 10-15 cm lag af smáum
greinum í botninn. Nota á ríku-
lega gróf og þurr stoðefni eða
garðaúrgang í fyrstu lögin.
Gjarnan má byrja jarðgerð með
fersku grasi eða illgresi á vorin
og sumrin til að losna við flugu-
lirfur. Halda á síðan áfram með
matarúrgang og stoðefni.
Þegar niðurbrotið er komið vel
af stað skal nota einn hluta af
stoðefni á móti 2-4 hlutum af
venjulegum matarúrgangi. Þegar
um er að ræða afganga af fiski
eða kjöti þurfa hlutföll úrgangs
og stoðefnis að vera jöfn, eða einn
hluti fisks eða kjöts á móti einum
stoðefnis.
Nánari leiðbeiningar eru í
bæklingi sem heitir Endurvinnsla
í garðinum, leiðbeiningar um
heimajarðgerð. Hann fæst hjá
umhverfisráðuneytinu og kostar
100 krónur.
(Stuðst við efni af www.eftirlit.is)
Heimajarðgerð fyrir byrjendur
Það fellur ýmislegt til í garðinum og á heimilinu. Með safnkassa er hægt að nýta stóran hluta þess til garðyrkju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Veggjalús er leiðinleg plága og
er erfitt að eitra fyrir henni.
Hér á árum áður var veggjalús
vel þekkt á Íslandi en þá náðist að
útrýma henni. Í dag er hún aftur
farin að finnast út um allan heim
og þar með talið hér á klakanum.
Veggjalúsin er blóðsuga sem
getur verið ansi skæð. Oftast
sýgur hún blóð úr fólki að nóttu til
og er yfirleitt á ferðinni á milli
klukkan fjögur og sjö, enda er
fólk þá vanalega í fastasvefni.
Helst heldur veggjalúsin til á
hótelum og skiptir litlu hver
gæðastuðullinn er á hótelinu, hún
hreiðrar um sig þar sem henni
sýnist.
Mjög erfitt er að eitra fyrir
þessum kvikindum og í raun er
eina ráðið að kalla til sérfræðinga
á því sviði þar sem góða þekkingu
á eiturefnum og mikla þolinmæði
þarf til þess. Hér á Íslandi hafa
meindýraeyðar Varna og eftirlits
sérhæft sig í útýmingu veggja-
lúsa og eru þeir í samstarfi við
meindýraeyða í Svíþjóð, Noregi,
Þýskalandi, Bandaríkjunum og
Bretlandi. Meiri upplýsingar um
veggjalús og starfsemi Varna og
eftirlits er að finna á heimasíðu
þeirra, www.ve.is.
Leiðindaplága á heimilum
Veggjalýs eru blóðsugur og sjúga blóð úr
fólki á næturnar.
Segðu það með silkiblómum Gott getur verið að lífga upp á
heimilið með silkiblómum. Þau eru falleg og þurfa engrar umönnunar við
sem er kostur fyrir þá sem lítið eru heima.
... sem flig vantar til
a› hefja n‡tt líf
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
F
í
t
o
n
/
S
Í
A