Fréttablaðið - 29.05.2006, Page 22

Fréttablaðið - 29.05.2006, Page 22
[ ] ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir ����� �������������������� �������������������� ����������������������������������� �� �������������� �������������������� ��������������������������� ��������������������� � � � �� �� �� ��� � �����������������������������������Annar hfRekstrarverkfræðistofan Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is a Eignaskiptay rlýsingar atvinnu- og íbúðahúsnæði fyrir Með hjálp safnkassa getur þú framleitt þinn eigin jarð- vegsbæti með afgöngum úr eldhúsinu. Margar aðferðir eru notaðar við heimajarðgerð. Aðalmunurinn á aðferðunum felst í því hvort um er að ræða einangraða kassa eða ekki. Af því ræðst hversu hratt jarðgerðin gengur og þar með hversu mikið pláss kassinn tekur. Jarðgerð í óeinangruðum, þrí- skiptum safnkössum er einfaldari í framkvæmd, en tekur mun lengri tíma og meira rými. Text- inn sem hér fer á eftir á við jarð- gerð í einangruðum safnkassa, nema annað sé tekið fram. Safnkassinn á að vera þar sem auðvelt er að komast að honum. Gott er að hafa safnkassann á skjólsælum og hlýjum stað á möl eða grasi, þannig að vatn sem lekur úr honum geti sigið niður í jarðveginn. Hann þarf að standa örlítið frá jörðu, þannig að loft geti leikið um botninn, til dæmis á hellum eða tréklossum. Í safnkassann má fara allur matarúrgangur, svo sem ávextir, grænmeti, brauð, eggjaskurn, kjöt, fiskur, tepokar og kaffi- korgur. Auk þess má setja í hann pappírsþurrkur, visnuð blóm, sag, niðurklipptar runnagreinar og margt fleira. Meðal þess sem má ekki fara í kassann eru efni sem eru skaðleg umhverfinu og brotna ekki niður. Til dæmis ryksugupokar, drykkjar- fernur, sígarettuaska, plast, gler, aska af grillkolum og hunda- og kattasandur. Í flestum tilvikum er safnkass- inn tæmdur um það bil tvisvar á ári. Það sem kemur úr safnkass- anum er nefnt jarðvegsbætir. Hann er notaður sem jarðvegur fyrir plöntur og sáningu, í trjá- og runnabeð, á grasflatir og til að planta í hann grænmeti. Þegar jarðvegsbætirinn er tek- inn úr safnkassanum þarf að setja hann í „eftirþroskun“. Efsta lagið, sem minnst hefur brotnað niður, á þó að nota til að byrja á nýrri jarð- gerð. Leggja á jarðvegsbætinn úr kassanum til eftirþroskunar á lag af smágreinum og breiða plast- dúk yfir hauginn. Eftirþroskunin tekur um það bil hálft ár. Þegar safnkassi er notaður í fyrsta sinn er byrjað á því að leggja 10-15 cm lag af smáum greinum í botninn. Nota á ríku- lega gróf og þurr stoðefni eða garðaúrgang í fyrstu lögin. Gjarnan má byrja jarðgerð með fersku grasi eða illgresi á vorin og sumrin til að losna við flugu- lirfur. Halda á síðan áfram með matarúrgang og stoðefni. Þegar niðurbrotið er komið vel af stað skal nota einn hluta af stoðefni á móti 2-4 hlutum af venjulegum matarúrgangi. Þegar um er að ræða afganga af fiski eða kjöti þurfa hlutföll úrgangs og stoðefnis að vera jöfn, eða einn hluti fisks eða kjöts á móti einum stoðefnis. Nánari leiðbeiningar eru í bæklingi sem heitir Endurvinnsla í garðinum, leiðbeiningar um heimajarðgerð. Hann fæst hjá umhverfisráðuneytinu og kostar 100 krónur. (Stuðst við efni af www.eftirlit.is) Heimajarðgerð fyrir byrjendur Það fellur ýmislegt til í garðinum og á heimilinu. Með safnkassa er hægt að nýta stóran hluta þess til garðyrkju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Veggjalús er leiðinleg plága og er erfitt að eitra fyrir henni. Hér á árum áður var veggjalús vel þekkt á Íslandi en þá náðist að útrýma henni. Í dag er hún aftur farin að finnast út um allan heim og þar með talið hér á klakanum. Veggjalúsin er blóðsuga sem getur verið ansi skæð. Oftast sýgur hún blóð úr fólki að nóttu til og er yfirleitt á ferðinni á milli klukkan fjögur og sjö, enda er fólk þá vanalega í fastasvefni. Helst heldur veggjalúsin til á hótelum og skiptir litlu hver gæðastuðullinn er á hótelinu, hún hreiðrar um sig þar sem henni sýnist. Mjög erfitt er að eitra fyrir þessum kvikindum og í raun er eina ráðið að kalla til sérfræðinga á því sviði þar sem góða þekkingu á eiturefnum og mikla þolinmæði þarf til þess. Hér á Íslandi hafa meindýraeyðar Varna og eftirlits sérhæft sig í útýmingu veggja- lúsa og eru þeir í samstarfi við meindýraeyða í Svíþjóð, Noregi, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Meiri upplýsingar um veggjalús og starfsemi Varna og eftirlits er að finna á heimasíðu þeirra, www.ve.is. Leiðindaplága á heimilum Veggjalýs eru blóðsugur og sjúga blóð úr fólki á næturnar. Segðu það með silkiblómum Gott getur verið að lífga upp á heimilið með silkiblómum. Þau eru falleg og þurfa engrar umönnunar við sem er kostur fyrir þá sem lítið eru heima. ... sem flig vantar til a› hefja n‡tt líf N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.