Tíminn - 30.12.1977, Síða 1

Tíminn - 30.12.1977, Síða 1
Fyrir vörubilá^ Sturtu- grindur Sturtu dælur Sturtu-— d Landssmiðj an á fullan rétt a ser segir í athugasemdum Samstarfsnefndar JS —Landssmiðjan hefur skilað góðum hagnaði ájmdan förnum árum og tekur þar af leiðandi ekki við neinum fjárframlögum lir rikissjóði, segir i athugasemd- um Samstarfsnefndar Lands- smiðjunnar vegna þeirra ráða- gerða að hætta rekstri Lands- smiðjunnar á vegum rikisins. 1 athugasemdum Samstarfs- nefndarinnar kemur og fram, að Landssmiðjan hefur veriö rekin á undan förnum árum likt og hvert annað hlutafélag. Við fyrirtækið starfa aðeins sjö opinberir starfs- menn, en heildarfjöldi starfs- manna þess er hins vegar nær 100. Enn fremur er lögð þung áherzla á mikilvægi Landssmiðj- unnar fyrir atvinnuvegina og á þá þjónustu sem hún hefur veitt, og segir i athugasemdunum að vélaframleiðsla verksmiðjunnar hafi reynzt algerlega sam- keppnisfær við erlenda fram- leiðslu á sama sviði. t athugasemdunum er að lokum harðlega mótmælt öllum fyrirætl- unum um að leggja rekstur Landssmiðjunnar niður. Sá athugasemdir Samstarfs- nefndar Landssmiðjunnar á bls. Sikiley/Reuter — Stærst virkra eldstöðva i Evrópu, fjallið Etna á Sikiley, gaus i gær. Það er gigur i norðausturhlið fjallsins sem tók sig til og gaus ösku og eimyrju ásamt með þvi að senda hnull- unga mörg hundruð metra i loít upp, auk þess sem jörðin titrar i nálægum bæjum. Aðalgigurinn lét þó ekki á sér bæra i gær nema hvað upp frá honum lagði þykkan og hvitan reykmökk. Nú skal verða gaman! — Nú skal verða gaman sögðu þessir hressilegu krakkar við Ægissiðuna í Reykjavik þegar Ijósmyndari Tímans, Róbert, spurði þá í gær hvernig gengi að hlaða bálköstinn. Kösturinn er þegar orðinn einn hinn hæsti og myndarlegasti i höf uðborginni, og verður vafalaust glæsilegt bál þegar gamla árinu verður þar brennt útog látiðfuðra uppeins og víðarum landallt. En öllu gamni fylgir alvara og þessu líka því að mikil hætta getur stafað af eldinum. Þess vegna er fyrir miklu að allir fylgi þeim reglum sem settar hafa verið um gamláársbrennur vegna slysahættunnar sem af þeim getur staðið. ( gær og undanfarna daga hef ur staðið yf ir mikil efnisöf lun og söfnun í bál- kestina víða um landið, og er nú brátt hver síðastur að ganga svo f rá sínum kesti að vel brenni þegar þar að kemur annað kvöld. TUGMILLJÓNA TJÓN í BRUNA Á ÞÓRSHÖFN GV — Tugmilljónatjón varð á Þórshöfn i fyrrinótt er Bifreiða- og vélaverkstæði Kaupfélags Langnesinga brann, og er húsið og það sem i því var nú gjörónýtt. Húsið var um 400 fm stálgrinda- hús og þar önnuðu átta menn allri bfla- og bátaviðgerð á staðnum. Elds varð vart um þrjú-leytið um nóttina og vann brunalið staðar- ins að þvi að ráða niðurlögum hans, sem tókst loks um kl. 7 um morguninn. Mikið norövestan roK var pa um nóttina og tafði það töluvert fyrir slökkvistarfinu, einnig varð fvrst að flytja fólk úr nærliggjandi hús- um vegna, sprengihættu. Timinn hafði tal af Þorkatli Guðfinnssyni, gjaldkera kaup- félagsins, og sagði hann, að I verkstæðinu hefðu eyðilagzt i brunanum, snjóbill, vörubill, fólksbill og tveir snjósleðar. Auk þessa voru i verkstæðinu vara- hlutir, ýms tæki og vélar upp á tugmilljónir. Þorkell gizkaði á að heildartjónið væri á milli 40-50 milljónir króna. Oll verkfæri til bátaviðgerða brunnu inni og hefur það i för með sér mjög slæmar afleiðingar fyrir bátaflotann á Þórshöfn. Mikið tjón varð af þvi fyrir byggðarlagið að nú nýtur ekki lengur snjóbilsins, sem þjónaði geysimiklu hlutverki á vetrum. — Yfir vetrartimann er það snjó- þungt hjá okkur að það er ókeyr- andi á bilum, sagði Þorkell, og billinn hefur flutt sjúklinga og séð um að fara með lækninn á Raufarhöfn og einnig i næriiggj- andi sveitir. Rafmagnið hefur verið stopult hjá okkur undan- farna vetur og billinn hefur gengt þvi hlutverki að leita að bilunum. Þetta var þvi alveg geysilega þýðingarmikið tæki og nær ómissandi, sem við nú erum búin að missa. Billinn hefur verið I okkar þjónustu i um átta ár, sagði Þorkell. f Húsið og það sem inni i þvi var er tryggt á 45 milljónir króna. Ekki er talið að það dugi langt til þess að borga upp tjónið. Elds- upptök eru ókunn. Grunur leikur á að eldurinn hafi komið upp I kyndiklefa hússins, þar sem eldur var mestur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.