Fréttablaðið - 29.05.2006, Page 60
29. maí 2006 MÁNUDAGUR40
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
8
7
2
Skóflustunga var tekin nýlega
að nýrri reiðhöll sem rísa á í
Borgarnesi.
Stefnt er að því að reiðhöll rísi í
Borgarnesi snemma á næsta ári.
Fyrsta skóflustungan var tekin
fyrir reiðhöllina nýverið í Borgar-
nesi. Mannvirkið verður í eigu
Reiðhallarinnar Vindás ehf.
Eigendur félagsins eru Borgar-
byggð, hestamannafélögin Faxi
og Skuggi og Hrossaræktarsam-
band Vesturlands.
Áætlað er að reiðhöllin verði
27 sinnum 60 metrar að stærð auk
anddyris. Fyrirtækið Nýhönnun á
Hvanneyri í Borgarfirði hefur
tekið að sér að hanna höllina. Ekki
er langt þar til jarðvegsvinna
hefst og stefnt er að því að húsið
verði risið fyrir haustið. Vonast
er til að nýja reiðhöllin verði
tekin í notkun snemma á næsta
ári.
Frétt fengin af skessuhorn.is.
Reiðhöll í
Borgarnes
Nýlega var tekin skóflustunga að nýrri
reiðhöll sem rísa á í Borgarnesi.
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
7/4-
13/4
114
14/4-
20/4
93
21/4-
27/4
169
28/4-
4/5
157
5/5-
11/5
186
Flestir þekkja Jón Inga sem manninn sem
reyndi að gera eitthvað úr hinum misjafna
þætti um íslenska piparsveininn. Húsið
í þáttunum var draumahús margra, þótt
aðrir létu sér fátt um finnast. Hverju sem
því líður var húsið greinilega ekki efst á
óskalista Jóns því að eigin sögn er hann nú
búinn að festa kaup á draumahúsinu sínu.
Draumahúsið er í Hafnarfirðinum. Það
er lítið hvítt einbýlishús en vel ætti að
fara um Jón svo lengi sem þátttakendur í
piparsveininum banki ekki upp á og biðji
um gistingu.
Einhver sagði að hamingjan væri ekki
fógin í að ná í það sem maður gæti sætt
sig við, heldur sætta sig við það sem
maður hefur. Ef svo er ætti Jón að vera
gríðarlega hamingjusamur maður nú, sáttur
í sínu koti.
DRAUMAHÚSIÐ MITT: JÓN INGI HÁKONARSON LEIKARI
Nýbúinn að kaupa draumahúsið
Suðurhlíðarskóli var stofnaður
árið 1905 fyrir tilstuðla Sjö-
unda dags aðventista í Reykja-
vík. Hann náði ekki að festa
sig í sessi fyrr en árið 1942 en
þá var hann starfræktur óslitið
í safnaðarheimili Aðventkirkj-
unnar í Ingólfsstræti til 1967. Þá lagðist skólinn af vegna aðstöðuleysis.
Árið 1976 hóf skólinn aftur göngu sína í húsnæði safnaðarins í Bauganesi í
Skerjafirði, en það húsnæði átti einungis að vera til bráðabirgða til tveggja
ára. Reisa átti nýtt húsnæði við mót Réttarholtsvegar og Sogavegar en vegna
óánægju með staðsetningu lóðarinnar varð aldrei úr því og skólastarf hélt
áfram í Baugsnesi.
Hafist var handa við núverandi skólahúsnæði í Suðurhlíð árið 1988. Tveimur
árum síðar hóf skólinn formlega göngu sína í nýjum húsakynnum. Nú býður
skólinn upp á kennslu allra árganga grunnskólans en vegna fámennis er
samkennsla í öllum bekkjardeildum. Skólinn er einn af 5.000 kristilegum
skólum sem aðventistar starfrækja um heim allan. Skólastjóri Suðurhlíðar-
skóla er Steinunn H. Theodórsdóttir.
SUÐURHLÍÐAR-
SKÓLI
12/5-
18/5
171