Fréttablaðið - 29.05.2006, Page 70
LOKAUPPGJÖRIÐ
VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 99 KR/SKEYTIÐ.
HEIMSFRUMSÝND 26×05×06
SMS LEIKUR
SENDU SMS SKEYTIÐJA XFM Á NÚMERIÐ1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐMIÐA FYRIR TVO!
9. HVER VINNUR!
VINNINGAR ERU:BÍÓMIÐAR FYRIR TVODVD MYNDIR
TÖLVULEIKIR
X_MEN VARNINGUROG MARGT FLEIRA!
SJÁÐU MYN
DINA!
SPILAÐU LEI
KINN!
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
�������
����������������
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Tæknilúðinn og innipúkinn
Richard D. James (Aphex Twin,
AFX, Analord eða hvað sem hann
kýs að kalla sig!) virðist kæra sig
afskaplega lítið um sviðsljósið.
Hann hóf feril sinn á því að gera
yndisfagra ambíent tónlist í upp-
hafi síðasta áratugar fyrir draum-
óramenn og sveimhuga. Varð svo
óvænt að poppstjörnu eftir að
smáskífurnar Come to Daddy og
Windowlicker fóru beint í A-spil-
un á MTV. Enda náði kunnátta
leikstjórans Chris Cunningham
að fanga hljóðheim hans stór-
kostlega á filmu með frábærum
myndböndum. Síðan þá hefur
Richard gert allt sem í sínu valdi
stendur til að láta eins lítið á sér
bera og mögulegt er, án þess að
hætta gera tónlist.
Þessi nýjasta plata hans er
þannig fyrsta formlega Aphex
Twin útgáfan í fimm ár. Reyndar
er misjafnt hvort fólk flokkar
þetta sem AFX eða Aphex Twin,
því bæði nöfnin standa á plöt-
unni. Þetta er þó ekki í fyrsta
skipti sem lögin á plötunni koma
út, því þetta eru valin lög af smá-
skífuröð sem hann gaf út í fyrra
undir nafninu Analord. Lög sem
hann segist hafa búið til með
gömlum tækjabúnaði sem styðst
við analog tæknina. Þar á hann
við hljóðfæri (trommuheila,
hljómborð og sequensera) sem
voru sérstaklega búin til fyrir
þessa gerð raftónlistar. Þetta
þykir einhverjum merkilegt
vegna þess að í dag er hægt að fá
forrit á ferðatölvuna sem apa
eftir öllum þessum tækjum. Flest
raftónlist í dag er því búin til með
forritum sem herma eftir raun-
verulega tækjabúnaðinum. Í
mínum huga skiptir það litlu máli
hvaða verkfæri menn nota, eins
lengi og lokaniðurstaðan hreyfir
við mér. Því raftónlist er eins og
öll tónlist, búin til af mönnum.
Það sem er öllu merkilegra við
þessa nýju plötu Aphex Twin er
að hann aftur farinn að leyfa sér
að búa til grípandi og upplífgandi
tónlist. Rafprinsinn hljómar sér-
staklega hamingjusamur og
greinilegt að hann hefur skemmt
sér konunglega við gerð plötunn-
ar. Þetta eru flest lög sem vel
væri hægt að dansa við á góðum
klúbbi, og nánast hin fullkomna
plata til þess að hafa í spilaranum
á bílnum eða í lest á meðan lands-
lagið þeytist framhjá. Að mínu
mati hans bestu lög síðan hann
gerði Windowlicker smáskífuna,
og hans besta plata frá því að Sel-
ected ambientworks 85-92 kom
út.
Við erum ótrúlega heppin að
svona menn séu til í heiminum.
Ég efast um að það sé hægt að
teygja tónlist lengra inn í fram-
tíðina en þessi piltur hefur þegar
gert á ferli sínum. Ég held líka að
hann átti sig vel á því sjálfur, því
hér leyfir hann sér bara að gera
tónlist laganna vegna, í sínum
einkennandi stíl. Richard D.
James er án efa mesta gersemi
raftónlistar síðan Kraftwerk
ruddist inn á sjónarsviðið.
Birgir Örn Steinarsson
Sáttur í sínu
vélmennaskinni
APHEX TWIN:
CHOSEN LORDS
Niðurstaða: Richard D. James gefur loksins út
plötu aftur undir nafninu Aphex Twin, eftir 5
ára flótta frá sviðsljósinu þar sem hann studd-
ist við hin ýmsu nöfn. Biðin var vel þess virði
og platan er ein hans besta frá upphafi.
Brad Pitt og unnusta hans, Angel-
ina Jolie, eignuðust stúlku á laug-
ardaginn í Namibíu þar sem parið
dvelst um þessar mundir. Stúlk-
unni hefur þegar verið gefið nafnið
Shiloh Nouvel Jolie-Pitt en hún á
tvö ættleidd systkini, þau Maddox
og Zahara. Parið hefur verið eitt
vinsælasta umfjöllunarefni slúður-
blaðanna síðan þau tóku saman
eftir kvikmyndina Mr. & Mrs.
Smith og hefur fæðingarinnar
verið beðið með mikilli eftirvænt-
ingu. Íbúar smábæjarins Walvis
Bay voru himinlifandi með barns-
burðinn enda hafa ljósmyndarar
setið um bæinn síðan stjörnuparið
settist þar að. „Þetta hefur komið
okkur á kortið,“ sagði Della van
Noorten, einn íbúi bæjarins.
Fjölmiðlar hafa hins vegar ekki
getað komist nálægt smábænum
enda hefur öryggisgæslan þar
verið gríðarlega mikil. Þetta hefur
gert það að verkum að fréttir af
fæðingunni og öllu sem hana snert-
ir hafa verið ansi skrautlegar og
var því meðal annars haldið fram
að ættbálkahöfðingi myndi skíra
barnið að fornum sið. Á laugardeg-
inum var öryggisgæslan aukin til
muna til að koma í veg fyrir að svo-
kallaðir paparazzi-ljósmyndarar
næðu ekki mynd af þeirri nýfæddu
og það var síðan á sunnudeginum
sem talsmaður þeirra Jolie og Pitt
gaf út yfirlýsingu að stúlkan væri
komin í heiminn.
Stjarna er fædd
BRAD PITT OG ANGELINA JOLIE Eignuðust stúlkubarn á laugardaginn í smábænum Walvis
Bay í Namibíu.FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
Breski leikstjórinn Ken Loach hlaut
hinn eftirsótta Gullpálma í Cannes í
gær fyrir mynd sína The Wind That
Shakes the Barley. Myndin fjallar
um sjálfstæðisbaráttu Íra og tilurð
írska lýðveldishersins á fyrri hluta
síðustu aldar.
Loach hefur verið tilnefndur til
Gullpálmans sjö sinnum áður en
þetta er í fyrsta sinn sem honum
hlotnast þessi heiður. Í ár hafði hann
betur en spænski leikstjórinn Pedro
Almodovar sem keppti um pálmann
með mynd sinni Volver og mexíkóski
leikstjórinn Alejandro Gonzalez
Inarritu með Babel. Volver og Babel
fengu langbesta dóma gagnrýnenda
í Cannes og þóttu fyrirfram líkleg-
astar til þess að hreppa hnossið.
Hvorugur leikstjóranna fór þó
tómhentur heim þar sem Almodovar
fékk verðlaun fyrir besta handritið
og Inarritu var verðlaunaður fyrir
bestu leikstjórn. Þar fyrir utan fengu
allar leikkonurnar í aðalhlutverkum
í Volver sameiginlega verðlaun sem
besta leikkonan. Penelope Cruz hafði
verið hlaðin lofi fyrir frammistöðu
sína í Volver og það kom því engum
á óvart að hún skyldi hampa leik-
konuverðlaununum.
Loach hreppti Gullpálmann
KEN LOACH Sagði niðurstöðu dómnefnd-
arinnar í Cannes mikilvæga fyrir breska
kvikmyndagerð og hann vonast til þess
að verðlaunin verði til þess að breskir
kvikmyndagerðarmenn horfi ekki aðeins
til Bandaríkjanna þegar þeir velji sér
viðfangsefni.
���� ��� ��������
������ ��������
NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ!
LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI.
NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS.
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MAGNAÐUR SUMARSMELLUR SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
HEIMSFRUMSÝNING
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
X-MEN 3 kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
X-MEN 3 kl. 6, 8.30 og 10.50 B.I. 12 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 6 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 6
PRIME kl. 8 og 10.15
CRY WOLF kl. 8 B.I. 16 ÁRA
X-MEN 3 kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
CRY WOLF kl. 10 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 6 og 8
RAUÐHETTA M/ÍSL. TALI kl. 3.50
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 4
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA MYND ÁRSINS
VINSÆLASTA MYND Í HEIMI
MAGNAÐUR SPENNUTYLLIR
SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA!
- SV MBL - VVV TOPP5.IS
50.000
MANNS
LEITIÐ SANNLEIKANS HVERJU TRÚIR ÞÚ?