Fréttablaðið - 29.05.2006, Qupperneq 72
32 29. maí 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
LA
N
DS
BA
N
K
AD
EI
LD
IN
Unglingalandslið Íslands í körfubolta skipað leikmönnum
18 ára og yngri varði í gær Norðurlandameistaratitil sinn en
mótið fór fram í Svíþjóð. Í úrslitaleik unnu strákarnir heima-
menn með þrettán stiga mun, 82-69. „Við náðum snemma
forystunni og vorum yfir lengi með fjórum til átta
stigum. Þeir voru skammt á eftir okkur eftir þriðja
leikhlutann en við áttum algjörlega síðasta leik-
hlutann,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari
U18 landsliðsins.
Brynjar Þór Björnsson úr KR var stigahæst-
ur íslensku strákanna með tuttugu stig í
úrslitaleiknum. Hörður Axel Vilhjálmsson
úr Fjölni var valinn besti leikmaður móts-
ins. Hann var einnig í fimm manna úrvals-
liði mótsins ásamt Sigurði Þorsteinssyni
úr KFÍ. „Hörður var magnaður á mótinu.
Hann meiddist reyndar í fyrsta leikhluta
í úrslitaleiknum og var nánast á annarri
löppinni eftir það en harkaði þetta af sér
og hjálpaði okkur mikið,“ sagði Benedikt.
„Sigurður sá um að binda vörnina saman og gerði það vel.
Hann tók 22 fráköst og átti sex varin skot í úrslitaleiknum,“
sagði Benedikt en hann var hæstánægður enda annað árið í
röð sem liðið vinnur þennan titil. „Liðið hefur spilað frábær-
lega á mótinu. Það var líka þægilegt að leikurinn
gegn Finnum á laugardaginn skipti okkur engu
máli og því gat ég leyft mér að hvíla lykilmenn
fyrir úrslitaleikinn. Við fengum ekki mikinn tíma til
að undirbúa okkur fyrir mótið, strákarnir voru
að koma úr prófum og svona. En strákarnir
hafa verið saman í mörg ár og náð góðum
árangri. Þeir þekkja hvor annan vel og það
þarf ekki langan tíma til að stilla saman
strengi. Þetta er rosalega flottur hópur,“
Kvennalandsliðið U18 lék einnig til úrslita
gegn Svíþjóð á mótinu í gær en stelpurnar
náðu sér ekki á strik og biðu lægri hlut í
úrslitaleiknum.
BENEDIKT GUÐMUNDSSON: U18 ÁRA LANDSLIÐIÐ VARÐI NORÐURLANDAMEISTARATITILINN
Frábær árangur hjá strákunum
Hvað gerir Óli Þórðar?
Það má búast við miklum látum í Laug-
ardalnum í kvöld þegar ÍA heimsækir
Val. ÍA hefur tapað öllum leikjum sínum
í deildinni og situr á botni deildarinnar.
Telja margir að þegar sé farið að hitna
undir Ólafi þjálfara ÍA. Í hinum leik
kvöldsins tekur Breiðablik á móti ÍA.
FORMÚLA 1 Spánverjinn Fernando
Alonso er kominn með mjög
þægilega forystu í keppninni um
heimsmeistaratitilinn í Formúlu
1-kappakstrinum eftir að hann
kom fyrstur í mark í umdeildri
keppni í Mónakó. Michael
Schumacher náði bestum tíma í
tímatökunni á laugardag en seint
um kvöldið var úrskurðað að
hann hefði viljandi drepið á bíl
sínum í lokahring og þar með
komið í veg fyrir að hægt væri
að bæta tímann hans. Refsing
Schumachers var að ræsa aft-
astur. Hann svaraði gagnrýninni
með flottum akstri og náði að
lokum fimmta sætinu.
Hann er engu að síður nú 21
stigi á eftir Alonso í heildar-
stigakeppninni en spænski
heimsmeistarinn hélt forystunni
allan tímann í gær. Juan Pablo
Montoya á McLaren varð annar,
David Coulthard á Red Bull
þriðji og Rubens Barrichello
náði fjórða sæti á Honda-bíl
sínum.
„Þetta var tilfinningaþrungin
keppni,“ sagði Alonso sem til-
einkaði Michelin-foringjanum,
Edouard Michelin, sigurinn en
hann lést á föstudag. „Kimi setti
mikla pressu á mig og það má
aldrei tapa einbeitingunni í Món-
akó. Mig langaði mikið að sigra
þessa keppni og það er mjög
ljúft að hafa náð því markmiði.“
Kimi Raikkonen keyrði lengi
vel ágætlega og tókst að setja
pressu á Spánverjann en hann
lauk síðan keppni þegar 28 hring-
ir voru eftir en þá bilaði vélin í
bíl hans. - hbg
Fernando Alonso gerði engin mistök í Mónakó-kappakstrinum umdeilda í gær:
Fyrsti sigur Fernando Alonso í Mónakó
SIGURKOSSINN Það var sjálfur Albert prins sem afhenti Alonso verðlaunin í gær og Spán-
verjinn kyssir hér bikarinn góða.FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
HANDBOLTI Þann 16. maí síðastlið-
inn sendi handknattleiksdeild
Fram frá sér yfirlýsingu þar sem
fram kom að félagið myndi ekki
framlengja samninginn við Egidi-
jus Petkevicius, markvörð félags-
ins til síðustu þriggja ára. Pet-
kevicius segir við Fréttablaðið að
honum hafi verið nokkuð brugðið
við tíðindin enda hafi hann átt von
á nýju samningstilboði. Hann seg-
ist síðan hafa orðið mjög ósáttur
þegar hann komst að því að Fram
ætlaði að krefjast greiðslu fyrir
sig og það frekar háa á íslenskan
mælikvarða.
„Það er satt að þeir eru að krefj-
ast greiðslu fyrir mig og ég er alls
ekki sáttur við það. Þeir greiddu
ekkert fyrir mig er ég kom frá KA
á sínum tíma og ég hef staðið við
allt mitt gagnvart félaginu. Svo er
samningurinn minn við félagið á
enda en þrátt fyrir það eru þeir að
biðja um peninga fyrir mig,“ sagði
Petkevicius í samtali við Frétta-
blaðið í gær frá Litháen þar sem
hann er kominn í sumarfrí. „Fram
er að biðja um hálfa milljón króna
fyrir mig. Ég frétti það ekki frá
þeim heldur sagði félag, sem ég er
nánast búinn að semja við, mér frá
því en þar sem þeir krefjast
greiðslu getum við ekki gengið frá
samningum. Þetta er fáránlegt. Ég
bað Fram í kjölfarið um að fá eitt-
hvað skriflegt sem staðfestir að
ég sé laus allra mála en þeir neit-
uðu og sögðust ætla að krefjast
greiðslu fyrir mig.“
Flestir handboltamenn lands-
ins eru með tvo samninga – leik-
mannasamning og síðan launa-
samning. Fram ákvað að
framlengja ekki launasamning
sinn við Petkevicius sem rennur
út 1. júní næstkomandi en leik-
mannasamningur hans við félagið
rennur ekki út fyrr en í júní á
næsta ári. Það fékkst staðfest á
skrifstofu handknattleikssam-
bandsins. HSÍ ætlast til að þessir
samningar hafi sama gildistíma
en vilji svo til að ekki sé sami gild-
istími á samningunum þá gilda
tímamörk launasamningsins að
því er fram kemur í lögum og regl-
um HSÍ. Verður því ekki annað
séð en að Fram sé að brjóta lög og
reglur HSÍ með því að krefjast
greiðslu fyrir Petkevicius. Mark-
vörðurinn gerir sér fulla grein
fyrir þessu og er tilbúinn að fara
alla leið með málið gerist þess
þörf.
„Ég mun fara með málið beint í
Handknattleikssamband Evrópu
ef Fram heldur þessu til streitu.
Ég er einnig til í að berjast í dóm-
sal ef á þarf að halda. Þessi fram-
koma Framara minnir mig á hvern-
ig hlutirnir fóru fram í mínu landi
sem og í nágrannalöndunum en
þar gekk oft ýmislegt á, get ég sagt
þér. Nú sé ég að sömu hlutir geta
líka gerst á Íslandi. Annars er ég
bjartsýnn maður að eðlisfari og ég
vonast til þess að málið leysist
áður en til átaka kemur. Ég bíð
núna þolinmóður til 1. júní og ef
sama staða kemur upp á teningn-
um þá þarf ég að gera eitthvað í
málinu en ég vona svo innilega að
þess komi ekki til,“ sagði Petkevic-
ius sem býst einnig við því að leita
ásjár HSÍ ef á þarf að halda.
Petkevicius segist vilja halda
áfram að spila á Íslandi en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
er hann búinn að ganga frá samn-
ingi við HK og ku sá samningur
bíða undirritunar.
Ekki náðist í Kjartan Ragnars-
son, formann handknattleiksdeild-
ar Fram, í gær frekar en síðustu
daga. henry@frettabladid.is
Fram vill fá hálfa milljón króna
fyrir samningslausan leikmann
Litháíski markvörðurinn Egidijus Petkevicius er ekki par sáttur við fyrrum vinnuveitendur sína hjá Fram.
Safamýrarliðið framlengdi ekki launasamningi við Petkevicius á dögunum en er þrátt fyrir það að rukka
hálfa milljón króna fyrir leikmanninn. Markvörðurinn er tilbúinn að fara fyrir dómstóla með málið.
SÚR OG SVEKKTUR Egidijus Petkevicius er ekki ánægður með framgöngu Framara í hans
garð og er tilbúinn að berjast gegn félaginu fyrir dómstólum láti það ekki af kröfum um
greiðslu fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> Birgir endaði vel
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson reif
sig upp á lokahringnum á Áskorenda-
mótiu í Marokkó og lék hringinn á 67
höggum eða 4 höggum undir pari. Birgir
Leifur hafnaði því í 33.-36. sæti á mót-
inu en hann lék
þrjá mjög góða
hringi á mótinu
en sá fjórði fór illa
með hann og sá til
þess að hann komst
ekki ofar en raun bar
vitni að þessu sinni.
Birgir Leifur var samtals
á 8 höggum undir pari á
mótinu en sigurvegarinn var
á 19 höggum undir pari.