Fréttablaðið - 29.05.2006, Page 74
29. maí 2006 MÁNUDAGUR34
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í handbolta tapaði 23-28 fyrir
Makedóníu í fyrri leik liðanna í
umspili um laust sæti á Evrópu-
mótinu sem fram fer í desember.
Íslensku stelpurnar byrjuðu leik-
inn illa og vörnin var alls ekki nægi-
lega góð í upphafi leiks. Staðan var
fljótlega orðin 3-7 en þá skoraði
Ísland átta mörk gegn tveimur hjá
Makedóníu og komst í fyrsta sinn
yfir í leiknum 10-9 og hafði síðan
13-11 yfir í hálfleik.
Ísland var á þessum kafla að
spila mjög flottan handbolta og allt
leit mjög vel út. Í seinni hálfleik
datt síðan botninn úr leik íslenska
liðsins. Sóknarleikurinn var fyrir-
sjáanlegur og gestirnir refsuðu
fyrir ónákvæmar sendingar.
Hræðilegur seinni hálfleikur og
erfitt verkefni sem bíður í Make-
dóníu.
„Ég er viðbjóðslega svekkt. Við
vorum að spila frábæran handbolta
í 35 mínútur þar sem við vorum að
keyra á fullu og vissum hvað við
áttum að gera. Svo veit ég eiginlega
ekki hvað gerðist, ég skil þetta
ekki. Það sást samt alveg að við
eigum að geta unnið þetta lið ef við
bara hlaupum í sextíu mínútur. Það
verðum við að gera í seinni leikn-
um,“ sagði Hrafnhildur Skúladóttir
sem var markahæst í íslenska lið-
inu með níu mörk.
Makedónía náði því góðum fimm
marka útisigri og það verður á
brattann að sækja fyrir íslenska
liðið en seinni leikurinn verður í
Makedóníu eftir viku. „Þetta fór
ansi illa. Við hættum að sækja á
markið í seinni hálfleik og áttum
margar misheppnaðar sendingar.
Við sáum að við eigum heilmikið
inni á móti þessu liði og stefnum á
sigur í seinni hálfleik,“ sagði Stefán
Arnarson, þjálfari íslenska liðsins.
Frítt var inn á leikinn í boði VR
en þrátt fyrir góðan stuðning náðu
stelpurnar ekki að sýna sínar bestu
hliðar. Ágústa Edda Björnsdóttir
var næstmarkahæst í íslenska lið-
inu með fimm mörk og þá var
Berglind Hansdóttir í markinu
allan leikinn og varði hún tuttugu
skot. - egm
Íslenska kvennalandsliðið tapaði með fimm mörkum gegn Makedóníu í gær:
Botninn úr í seinni hálfleik
HRAFNHILDUR STERK Hrafnhildur Skúladóttir átti bestan leik íslensku stúlknanna og
skoraði níu góð mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Djibril Cisse, sóknarmað-
ur Liverpool, segir að þrjú frönsk
lið hafi áhuga á að fá sig, það er
Lyon, Marseille og Paris Saint
Germain. Framtíð Cisse á Anfield
er í óvissu en hann hefur ekki náð
að vinna sér fast sæti í liðinu. Rafa
Benítez ætlar að fá nýtt blóð í sókn-
ina og hefur þegar selt Fernando
Morientes til Valencia.
Cisse var næstum því farinn frá
Liverpool í janúar en ákvað að vera
áfram á Merseyside. Þessi fyrr-
verandi leikmaður Auxerre vill
ekki annað tímabil á bekknum og
vonar að hans framtíð verði orðin
ljós fyrir HM svo að hann geti hætt
að hugsa um þessi mál. - egm
Djibril Cisse, Liverpool:
Þrjú frönsk lið
á eftir Cisse
AFTUR HEIM? Svo gæti farið að Cisse spili
heima í Frakklandi næsta vetur.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Terry Venables segist
ekki ætla að taka að sér knatt-
spyrnustjórastöðuna hjá Middles-
brough í ensku úrvalsdeildinni.
„Ég held að tími minn sem knatt-
spyrnustjóri í fullu starfi sé að
baki,“ sagði Venables sem er 63
ára. Middlesbrough er að leita að
stjóra í stað Steve McClaren sem
mun taka við enska landsliðinu í
sumar.
Síðasta stjórastaða Venables
var hjá Leeds United en þar var
hann við stjórnvölinn í átta mán-
uði en hætti í mars 2003. „Ástæð-
an fyrir því að ég var svona lengi
að gera upp hug minn er sú að ég
hef sterkar tilfinningar til Midd-
lesbrough,“ sagði Venables. Sagan
segir að McLaren vilji fá Venables
sem ráðgjafa þegar hann tekur við
Englandi. - egm
Þjálfaramál Middlesbrough:
Venables tekur
ekki við Boro
NEI TAKK Venables ætlar ekki að taka við
Middlesbrough. NORDICPHOTOS/AFP
GOLF Fyrsta mót sumarsins á KB-
bankamótaröðinni, Ostamótið, fór
fram á Akranesi um helgina. Mikið
gekk á fyrri daginn þegar vallar-
metið féll meðal annars tvisvar.
Mikil spenna var síðan í gær þegar
seinni dagurinn fór fram. Eftir
mikla baráttu fór svo að lokum að
Magnús Lárusson úr GKJ hrósaði
sigri en hann setti vallarmet á
laugardag.
Magnús lék seinni hringinn
ekki jafn vel og þann fyrri en hann
kom í hús í gær á 75 höggum eða
þrem yfir pari. Lokaskor hans var
því 3 undir pari. Stutt var í næstu
menn sem voru Sigurpáll Geir
Sveinsson úr GKJ og Sigmundur
Einar Másson úr GKG en þeir luku
báðir keppni á einu höggi undir
pari.
Það var Tinna Jóhannsdóttir úr
GK sem sigraði í kvennaflokki en
hún lauk keppni á 7 höggum yfir
pari. Nína Björk Geirsdóttir úr
GKJ varð önnur en hún lauk
keppni á 9 höggum yfir pari. Þær
léku báðar á 78 höggum í gær.
Anna Lísa Jóhannsdóttir varð
þriðja, ásamt Þórdísi Geirsdóttur,
en Anna Lísa lék best allra
stúlknanna í gær á 71 höggi. Anna
var því aðeins einu höggi frá því
að jafna vallarmetið á Garðavelli
sem Ragnhildur Sigurðardóttir
setti þar fyrir ári. - hbg
Ostamótið á Akranesi:
Tinna og Magn-
ús sigruðu
ANNA LÍSA Lék mjög vel í gær og var
aðeins einu höggi frá því að jafna vallar-
metið. Hún varð þrátt fyrir það að sætta sig
við þriðja sætið í mótinu.
FÓTBOLTI „Við vorum slakir, í fyrri
hálfleik vorum við alveg hund-
lélegir og við urðum okkur til
skammar þá,“ sagði Guðlaugur
Baldursson, þjálfari ÍBV, sem
varð að sætta sig við annan
tapleikinn í röð á heimavelli. Lið
ÍBV hefur verið sterkt á Hásteins-
velli í gegnum tíðina en völlurinn
virðist ekki ætla að verða það vígi
þetta árið. Víkingar mættu
ákveðnari til leiks og Viktor
Bjarki, sem var sjóðheitur í fram-
línunni, kom þeim yfir strax á
þriðju mínútu leiksins, hans
þriðja mark á fjórum dögum.
Víkingar voru nær því að bæta
við marki í fyrri hálfleik en Eyja-
menn að skora enda var framlín-
an ansi bitlaus án Bo Henriksson
sem meiddist í síðasta leik liðsins
og verður frá í að minnsta kosti
átta vikur.
Guðlaugur, þjálfari ÍBV, náði
hins vegar aðeins að vekja sína
menn í hálfleik og Eyjapeyjar
léku betur en náðu samt ekki að
skapa sér nein góð marktæki-
færi. Atli Jóhannsson komst
næst því að skora en skot hans
fór rétt fram hjá markinu. Þegar
upp var staðið varð niðurstaðan
1-0 og verða það að teljast nokk-
uð sanngjörn úrslit. „Ég ætla rétt
að vona það að við séum komnir í
gang núna. Við spiluðum ágæt-
lega framan af þessum leik en
duttum svo í það að halda þessu í
lokin. Ég er hins vegar mjög sátt-
ur við mína menn sem lögðu sig
alla fram í dag,“ sagði Magnús
Gylfason, þjálfari Víkings, en
kom eitthvað honum á óvart í leik
Eyjaliðsins? „Í sjálfu sér ekki,
þeir eru enn að rótera mikið og
breyta liðinu. Það gerist þegar
það gengur illa. Þeir eru með fína
stráka en mér finnst þeir bara
ekki vera að ná nógu vel saman.
Þeir börðust samt eins og ljón og
hefðu alveg getað jafnað þetta.“
„Við vorum eins og höfuðlaus
her. Leikmenn mínir voru úti um
allan völl og það vantaði allan
þéttleika. Við héldum boltanum
lítið og sköpuðum okkur ekki
neitt. Mér fannst við líka slakir
varnarlega og fyrri hálfleikurinn
var bara hreint út sagt arfa-
slakur. Það voru ákveðnir ljósir
punktar í seinni hálfleiknum en
samt alls ekki nógu gott,“ sagði
Guðlaugur.
- jiá
Víkingar gerðu góða ferð til Eyja þar sem þeir lögðu slakt lið ÍBV á Hásteinsvelli:
Leikur okkar í fyrri hálfleik var til skammar
FÓTBOLTI „Þegar við spilum svona
vinnur ekkert lið okkur.“ Þetta
fullyrti Jónas Guðni Sævarsson,
leikmaður Keflavíkinga, við
Fréttablaðið eftir 3-0 sigurleik
þeirra gegn KR í gær. Einhverjir
kynnu að lesa hroka úr þessum
orðum Jónasar en sannleikurinn
er sá að hann hefur ýmislegt fyrir
sér. Keflvíkingar spiluðu sinn
besta leik í langan tíma og gjör-
samlega völtuðu yfir heillum
horfna KR-inga frá fyrstu mínútu,
og er undirrituðum til efs að jafn-
vel Íslandsmeistarar FH hefðu
komist langt gegn heimamönnum
í slíkum ham.
Keflvíkingar byrjuðu með
miklum látum og komust yfir
strax á 2. mínútu. Markið skoraði
Magnús Sverrir Þorsteinsson með
góðu skoti úr teignum en arkitekt-
inn var hinn færeyski Simun
Samuelsen sem átti eftir að fara
illa með varnarmenn KR í leikn-
um.
Markið gaf forsmekkinn að því
sem koma skyldi því heimamenn
stjórnuðu leiknum algjörlega.
Flest færi Keflavíkur komu eftir
að liðið hafði spilað sig glæsilega í
gegnum vörn KR, en gestirnir
voru alls ekki að spila vel, vörnin
virkaði þung og sóknarleikurinn
var alls ekki markviss.
Annað var uppi á teningnum
hinum megin á vellinum því fjór-
menningarnir sem sóknarleikur
Keflavíkur snýst allur um eru
hver öðrum skemmtilegri. Magn-
ús og Simun eru gríðarlega ógn-
andi með hraða sínum og Guð-
mundur Steinarsson, í nokkuð
frjálsri stöðu framarlega á miðj-
unni, sem og Daniel Servino á
hægri vængnum, eru mjög útsjón-
arsamir og með næmt auga fyrir
spili. Vörn KR réð ekkert við þá
félaga í gær.
„Það er algjör draumur að hafa
þessa menn í kringum sig. Hver
hefur sinn eiginleika og þeir bæta
hvor annan vel upp,“ sagði Jónas
Guðni, einstaklega glaður í leiks-
lok. „Þegar við látum boltann
ganga svona standast fá lið okkur
snúning. Það var yndislegt að spila
þennan leik,“ bætti hann við.
Servino bætti við öðru marki
eftir 50 sekúndna leik í síðari hálf-
leik og drap um leið allan neista í
leik KR, þótt lítill hefði hann verið
fyrir. Við tók algjör einstefna
heimamanna sem hreinlega léku
sér að KR-ingum á köflum. Samu-
elsen kórónaði mjög góðan leik
sinn með þriðja markinu á 82.
mínútu og tryggði Keflvíkingum
fyllilega verðskuldaðan og sann-
gjarnan sigur.
Það er í raun furðulegt að fylgj-
ast með KR-liðinu. Eins og síðustu
ár ríkir einhver ládeyða yfir liðinu
sem ekki einu sinni Teitur Þórðar-
son virðist finna lausn á en í gær
virtist sem enginn hefði hreinlega
áhuga á að vinna leikinn. 2-0 undir
hefði maður haldið að liðið myndi
sækja í síðari hálfleik, en svo var
ekki. Þess í stað var hugmynda-
leysið algjört.
„Markmið KR fyrir þetta tíma-
bil er að ná stöðugleika. Við byrj-
uðum illa gegn FH en spilum vel á
Skaganum skömmu síðar. Og nú
steinliggjum við hér eftir ömur-
legan leik. Við erum ekki að ná
okkar markmiðum, það er ljóst,“
sagði fyrirliðinn Gunnlaugur Jóns-
son, öskuvondur í leikslok. „Lið
sem fær á sig mörk eftir mínútu í
hvorum hálfleik er ekki tilbúið í
leikinn. Það er einfaldlega málið -
við vorum ekki tilbúnir.“
Stemningsleysi er hins vegar
eitthvað sem Keflvíkinga skortir
alls ekki. Liðið var gríðarlega þétt,
greinilega í mjög góðu formi og
með sömu spilamennsku í næstum
leikjum bíður liðsins aðeins eitt –
bullandi toppbarátta.
vignir@frettabladid.is
KR átti aldrei möguleika
Keflvíkingar bókstaflega rúlluðu yfir KR-inga í Keflavík í gær og unnu stór-
sigur, 3-0. Leikmenn Keflavíkur áttu frábæran dag en gestirnir að sama skapi
skelfilegan og því þurfti ekki að spyrja að leikslokum.
FRÁBÆR FÆREYINGUR Simun Samuelsen átti stórleik fyrir Keflavík i gær og fór oft illa með
Kristinn Magnússon sem reynir hér að stöðva hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR