Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 78
 29. maí 2006 MÁNUDAGUR38 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Bandaríski húðflúrarinn Tattoo Mike, sem hefur ferðast til 28 landa, er um þessar mundir stadd- ur í Keflavík. Mike hóf feril sinn í Kaliforníu árið 1982 á Laguna Beach. Nokkru síðar fékk hann starf hjá hinni virtu Sunset Tattoo-stofu og eftir tíu ára starf þar ákvað hann að ferðast um heiminn. Á þessum tíma hefur hann kannað hina ýmsu stíla í húðflúrun enda þykir hann afar fær í sínu fagi. Mike kom til Íslands í fyrsta sinn fyrir tveimur mánuðum til að hitta vini sína sem búa á herstöð- inni í Keflavík og líkar vel við land og þjóð. „Ég vil endilega vera hér lengur. Ég er ánægður með aðstöð- una sem ég hef og konan mín er einnig sátt,“ segir Mike. Hann viðurkennir að hafa húð- flúrað fræga einstaklinga en vill síður nefna einhver nöfn. „Ég vil ekki auglýsa það neitt, mér finnst það ekki við hæfi. Fólki á að líka við húðflúrin mín og ræða síðan við mig eftir það. Það á ekki að skipta máli hvort ég hafi húðflúr- að einhverjar rokkstjörnur, en það er rétt að ég hef húðflúrað tölu- vert af frægu fólki,“ segir hann. Mike er núna að vinna hjá Húð- flúri & götun í Keflavík og vill endilega hitta sem flesta og skilja eftir listaverk sín á Íslendingum. - fb Rokkstjörnur meðal viðskiptavina TATTOO MIKE Húðflúrarinn bandaríski hefur ferðast vítt og breitt um heiminn undanfarin ár. HRÓSIÐ ...fær Sverrir Tynes fyrir að halda aðdáendaklúbb Franks Zappa gangandi en klúbburinn fagnar 20 ára afmæli sínu um þessar mundir. LÁRÉTT: 2 labbaði 6 kyrrð 8 hversu 9 illæri 11 sem 12 snaralur 14 ólgu 16 í röð 17 skjön 18 stansa 20 austfirðir 21 þekkja leið. LÓÐRÉTT: 1 ármynni 3 skammstöfun 4 kvarta 5 ílát 7 óhamingja 10 flan 13 undir þaki 15 hæfileiki 16 hæfileikamikill 19 bardagi. LAUSN: LÁRÉTT: 2 gekk, 6 ró, 8 hve, 9 óár, 11 er, 12 snari, 14 æsing, 16 fg, 17 ská, 18 æja, 20 af, 21 rata. LÓÐRÉTT: 1 árós, 3 eh, 4 kveinka, 5 ker, 7 óánægja, 10 ras, 13 ris, 15 gáfa, 16 fær, 19 at. FRÉTTIR AF FÓLKI Tökur standa nú yfir á annarri seríu af Latabæ í myndveri í Garðabæ. Talsverðar mannabreytingar hafa orðið á starfsliði við gerð þáttanna en það hefur þó ekki komið að sök því Magnús Scheving Latabæjarstjóri hefur góða stjórn á málunum. Magnúsi og félögum hefur meðal annars bæst liðsauki í Sindra Páli Kjartanssyni sem tekið hefur við stöðu aðstoðarleikstjóra. Sindri Páll hefur unnið að gerð fjölmargra þátta á Skjá einum síðustu árin, til að mynda Djúpu lauginni, Johnny National og Silvíu Nótt. Fréttir af óheppilegu falli fegurðar-drottningarinnar Unnar Birnu Vil- hjálmsdóttur á Broadway í síðustu viku hafa verið á allra vörum. Unnur upplýsti það í viðtali við Fréttablaðið að hún hefði ekki slasast alvarlega en um tíma var óttast um kórónu hennar. Unnur bar við krýningu nýrrar Ungfrú Ísland sjálfa alheimsfegurðarkórónuna. Talið var að kórónan hefði laskast þegar Unnur hrasaði á hálu gólfinu á Broadway og var gripurinn þegar send- ur í skoðun hjá fulltrúa Miss World-keppninnar. Umræddur fulltrúi fylgir Unni eins og skugginn á ferðum hennar til að tryggja öryggi kór- ónunnar. Sem betur fór var kórónan í fullkomnu lagi og urðu ekki frekari eftirmál af þessu. Breytingar eru fyrir höndum hjá bókaútgáfunni Bjarti. Snæbjörn Arngrímsson Bjartsleiðtogi er nýkominn frá Ítalíu þar sem hann eyddi hluta af feðraorlofi sínu. Frekari ferðalög eru fyr- irhuguð hjá Snæbirni því hann ætlar að flytjast til Danmerkur í haust. Eiginkona Snæbjörns er dönsk og telja Bjartsmenn tilvalið að Snæbjörn fylgi eftir velgengni útgáfufélags þeirra þar í landi, Hr. Ferd- inand. Það félag hefur gert það gott í Danmörku og Noregi og ekki má telja ólíklegt að næst vilji Bjartsmenn reyna fyrir sér í Svíþjóð. Við rekstri Bjarts á Íslandi taka þær Guðrún Vilmundardóttir og Þorgerður Agla Magnúsdóttir. Fluguveiðitímabilið er í þann mund að fara í gang, aðdáendum sportsins til mikillar gleði. Fjölmiðlamaðurinn Eggert Skúla- son er mikill fluguveiðimaður og bíður spenntur eftir komandi sumri. „Stóri dagurinn er 1. júní þegar þeir opna í Norðurá. Auðvitað er maður kominn með fiðring í bak og fyrir og maður er farinn að velta því fyrir sér hvort maður geti ekki komið sér í veiði 1. eða 2. júní,“ segir Eggert. „Það var metár í fyrra í laxinum og urriðanum en bleikjan var aftur á móti döpur. Einkunnin sem ég gef flugu- veiðitímabilinu í ár er stórkostleg. Ég hef reyndar sagt það um öll sumur til þessa,“ segir hann í léttum dúr. Aðspurður segir Eggert að þrír hlutir þurfi að vera á hreinu fyrir hvern þann sem ætli að gerast fluguveiðimaður. „Það þarf fyrst og fremst þolinmæði, dugnað og gleði. Ef þú ert með þetta þrennt þá eru góður fluguveiðimaður. Ég er sjálfur með fullt af gleði, lítið af þolinmæði og telst alls ekki duglegur en að öðru leyti er ég mjög góður flugu- veiðimaður,“ segir hann. Eggert segist eyða um það bil tuttugu dögum á hverju sumri í flugu- veiði. „Ég geri alltaf svakalega góða túra í Laxá í Mývatnssveit á hverju vori þar sem urriðinn er. Ég er einmitt að fara þangað í byrjun júní.“ Eitthvað hefur verið um námskeið í fluguveiði að undanförnu en Eggert hefur hvergi komið nálægt þeim. „Ég er í þessu stóra námskeiði sem heitir lífið. Það er besta námskeiðið en það er tímafrekt og maður útskrifast aldrei í því.“ - fb SÉRFRÆÐINGURINN FLUGUVEIÐIMAÐURINN EGGERT SKÚLASON Kominn með fiðring í bak og fyrir EGGERT SKÚLASON Fjölmiðlamaðurinn Eggert Skúlason er spenntur fyrir komandi fluguveiðitímabili. Enginn ætti að þurfa að borða aðkeyptar marineraðar kótilettur og kartöflusalat úr boxi í sumar því súperkokkurinn Völundur Snær Völundarson ætlar að kenna landanum að matreiða girnilegan grillmat á Skjá einum. Þættirnir sem nefnast Borðleggjandi með Völla Snæ verða sýndir á fimmtu- dagskvöldum og þannig geta áhorfendur nælt sér í góðar hug- myndir að grillpartíum helgarinn- ar. Völli er sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnur þar sem hann kenndi landanum að elda ýmsa girnilega rétti á skjánum í fyrra. Í ár ætlar hann eingöngu að ein- beita sér að grillmat en þættirnir eru allir teknir upp á Bahamaeyj- um þar sem Völli býr og rekur veitingastaðinn Ferry House. „Þetta verða algjörir ævintýra- þættir því auk þess að kenna fólki að elda girnilega rétti þá förum við í strandferðir, á kryddmark- aði og sýnum áhorfendum stór- kostlega náttúru Bahamaeyja,“ segir Völli sem nýtur dyggrar aðstoðar frá félaga sínum Gunna Chan eins og í fyrri þáttum. Þættirnir eru mjög fjölbreyttir og hráefnið sem lendir á grillinu einnig, allt frá grænmeti og ávöxt- um upp í hamborgara og kálfa- kjöt. Í fyrsta þættinum læra áhorfendur t.d. að grilla kjúkling í bjórgufu og þegar líður á þátta- röðina læra menn að grilla fersk- an ananas með púðursykri og hun- angi, svo eitthvað sé nefnt. „Það er algjör misskilningur að fólk verði að eiga eitthvað rosalega flott og fansý gasgrill til þess að búa til góðan grillmat. Í þættinum grillum við t.d. eiginlega allt á tunnugrilli með kolum,“ segir Völli og bætir við að það séu litlu brellurnar sem geri oft svo mikið fyrir matseldina og það séu þær sem hann ætli að kenna áhorfend- um nóg af í sumar. Að hans sögn er mikil grillmenning á Bahama- eyjum og á veitingastað hans sé boðið upp á töluvert af grillmat, meðal annars tostadas, sem áhorf- endur þáttanna munu læra að gera, en það eru kryddpítsur. Það hefur annars verið nóg að gera á hjá Völla í vetur. Nýlega var tökulið og leikarar vegna kvikmyndanna Pirates of the Caribbean 2 og 3 staddir á Bahamaeyjum og voru þeir tíðir gestir á veitingastað Völla. „Ég held að allir hafi komið á staðinn til mín nema Johnny Depp,“ segir Völli sem lofar girnilegu sumri á skjánum. snaefridur@frettabladid.is VÖLUNDUR SNÆR VÖLUNDARSON: GIRNILEGAR UPPSKRIFTIR Á SKJÁNUM Kennir Íslendingum að grilla í sumar GÓÐUR GRILLARI Völli Snær ætlar að kenna fólki að grilla á girnilegan hátt á Skjá einum í sumar, meðal annars með því að búa til sínar eigin marineringar og sósur. Ofurtala 1 5 10 29 31 1 13 19 38 39 41 24 40 5 7 3 7 6 2 0 8 6 6 1 24.5.2006 Einfaldur 1. vinningur nk. laugardag Fyrsti vinningur gekk ekki út. 19 27.5.2006 Fjórfaldur 1. vinningur nk. miðvikudag Fyrsti vinningur gekk ekki út. VEISTU SVARIÐ svör við spurningum bls. 8 1 Fjallabyggð 2 Svanfríður Jónasdóttir 3 Kristján Jónasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.