Fréttablaðið - 30.05.2006, Side 2

Fréttablaðið - 30.05.2006, Side 2
2 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ����������������������� ����������������������������������������������������������������� ���� ����� ����� � ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� KOSNINGAR Eyþór Arnalds, fyrsti maður á lista sjálfstæðismanna í Árborg, mun stýra starfi flokksins sem efsti maður á lista þótt hann taki ekki sæti í bæjarstjórn fyrr en hann hefur tekið út refsingu fyrir ölvunarakstur. Lögregla handtók Eyþór fyrir ölvunarakstur og fyrir að yfirgefa slysstað aðfaranótt 14. maí og hann hefur nú verið sviptur ökuleyfi í 12 mánuði og gert að greiða 150 þúsund krónur í sekt. Lengd ökuleyfissviptingarinnar gefur til kynna að áfengismagn í blóði Eyþórs hafi mælst á bilinu 1,2 til 1,5 prómill, en það varðar við fjársektir og ökuleyfissviptingu að aka með yfir 0,5 prómill í blóði. Eyþór ætlar ekki að taka sæti í bæjarstjórn fyrr en hann hefur endurheimt ökuleyfið að ári liðnu en segist þó munu stýra flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins. „Ég stend að fullu við yfirlýsinguna sem ég gaf út fyrir tveimur vikum um að ég taki mér frí frá bæjarstjórn á meðan ég tek út refsinguna. Það breytir því ekki að ég er rétt- kjörinn efsti maður og vinn sem slíkur með mínu fólki. Ég er örugglega fyrsti stjórnmála- maðurinn sem þarf ökuleyfi til að sitja í bæjarstjórn á Íslandi.“ Þórunn Jóna Hauksdóttir, sem skipar annað sætið á lista Sjálfstæðismanna, segist munu gegna oddvitastöðu flokksins á bæjarstjórnarfundum þar til Eyþór kemur þar inn. Samkvæmt formanni kjör- stjórnar í Árborg var talsvert um það að Eyþór hafi verið strikaður út af lista sjálfstæðismanna þótt það hafi verið langt frá því að breyta uppröðun list- ans. Til þess hefðu 51 prósent kjósenda flokks- ins þurft að strika nafn Eyþórs út. Aðspurður segir Eyþór útstrik- anirnar ekki hafa áhrif á framhald- ið. Hann hafi hvatt fólk til að strika sig út en haldi sæti sínu þrátt fyrir það. Eyþór mun fara í áfengismeð- ferð í júní eins og hann hafði lofað í yfirlýsingu sinni. Samfylking, Vinstri hreyfingin - grænt framboð og Framsókn fund- uðu um myndun meirihlutasam- starfs í gær og því bendir allt til þess að Eyþór og félagar hans í Sjálfstæðisflokknum muni sitja í minnihluta bæjarstjórnar á næsta kjörtímabili. stigur@frettabladid.is Eyþór stýrir starfi Sjálfstæðisflokksins Eyþór Arnalds mun stýra starfi Sjálfstæðisflokksins í Árborg næstu tólf mánuði þrátt fyrir að hann taki sér frí frá setu í bæjarstjórn þar til hann endurheimtir ökuleyfi sitt. Hann segist með þessu standa fyllilega við fyrri yfirlýsingu sína. fiJÓ‹VAKI ODDVITAR Eyþór Arnalds segist stýra starfi sjálfstæðismanna í Árborg en Þórunn Jóna Hauksdóttir segist verða oddviti á bæjarstjórnarfundum. SPURNING DAGSINS Ragnheiður, voru þetta gúmmítékkar sem þú sendir út? „Nei alls ekki, þeir flögruðu upp.“ Fasteignaeigendur í Mosfellsbæ fengu glaðning í formi endurgreiðsluávísunar frá bænum undirritaða af bæjarstjóranum rétt fyrir kosningar. Ragnheiður Ríkharðsdóttir er ennþá bæjarstjóri Mosfellsbæjar. HLUTABRÉF Úrvalsvísitalan hækk- aði um 1,83 prósent í gær og stend- ur í 5.649 stigum. Vísitalan hefur ekki verið hærri í tæpar tvær vikur. Hlutabréf Alfesca og Straums hækkuðu mest eða um 4,2 prósent, Landsbankinn hækk- aði um 3,7 prósent og Dagsbrún um 3,6 prósent. Mikil velta var á markaði, um 13,8 milljarðar króna, en þar af voru ein viðskipti í TM upp á 10,4 milljarða króna. Á föstudaginn var tilkynnt um kaup Blátjarnar, félags í eigu Björgólfsfegða og Sunds, á þriðjungshlut í TM og fóru þau í gegnum viðskiptakerfið í gær. - eþa Kauphöll Íslands: Hlutabréf hækka á ný Annar mannanna sem létust í eldsvoðanum um borð í Akureyr- inni EA-110 á laugardag hét Birg- ir Bertelsen og bjó í Skessugili 9 á Akureyri. Birgir var 27 ára gam- all, ókvæntur og barnlaus. Ekki er unnt að greina frá nafni hins mannsins að svo stöddu. - sh Akureyrin EA-110: Lést í eldsvoða LÖGREGLUMÁL Ung stúlka kærði rúmlega þrítugan karlmann fyrir nauðgun í heimahúsi í Vestmanna- eyjum um helgina en rannsókn málsins stendur enn yfir hjá lög- reglu. Var stúlkan við gleðskap ásamt manninum aðfaranótt laugardags þegar atvikið átti sér stað að sögn stúlkunnar. Var maðurinn yfir- heyrður strax í kjölfar þess að kæra barst en látinn laus að þeim loknum. Neitaði maðurinn sök og stendur rannsókn enn yfir. - aöe Vestmannaeyjar: Nauðgun kærð STJÓRNMÁL „Iðnaðarnefnd var gerð ómyndug í gær þegar breyt- ingar á frumvarpi iðnaðarráð- herra um byggðaþróun, tækni- rannsóknir og nýsköpun voru afgreiddar frá nefndinni,“ segir Helgi Hjörvar, Samfylkingunni, en hann á sæti í nefndinni. Alþingi kemur saman í dag en störfum þess var frestað vegna sveitar- stjórnarkosninganna. Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki og varaformað- ur nefndarinnar, kaus að sitja ekki fundinn, en hann er andvíg- ur frumvarpinu. „Á þingflokks- fundi Sjálfstæðisflokksins (í gær) var það mat ráðherra að afgreiða yrði frumvarpið úr nefnd til þess að stöðva ekki afgreiðslu annarra mála í þinginu,“ segir Einar Oddur. „Ég vék af þeim sökum út á hliðarlínuna.“ Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokknum, segir að breytingar iðnaðarráðherra á frumvarpinu séu til bóta. „Gert er ráð fyrir skýrari stjórnsýslu- legri aðgreiningu byggðamála og tæknirannsókna, en auk þess verða málefni byggðasjóðs end- urskoðuð í nefnd sem skilar nið- urstöðum árið 2008,“ segir Sig- urður Kári. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er andstaðan síst minni en áður við frumvarpið og óvíst hvort það verður afgreitt sem lög frá sumarþinginu, sem kemur saman í dag. Þingið hefst á umræðum um frumvarp mennta- málaráðherra um breytingar á rekstri Ríkisútvarpsins, en Sjálf- stæðisflokkurinn leggur kapp á að það verði afgreitt. - jh Frumvarp um nýsköpun afgreitt í skyndingu í gær: Sumarþing hefst í dag SJÓSLYS Eldurinn í Akureyrinni EA-110 sem varð tveimur mönn- um að bana á laugardag kviknaði út frá rafmagni í ljósabekk í frí- stundarými skipsins. Svo virðist sem bilun hafi orðið í stjórnbún- aði bekkjarins sem olli því að eldur kviknaði. Bekkurinn bráðn- aði í eldinum og við það mynduð- ust eiturgufur sem líklega hafi dregið mennina til dauða. Rann- sókn á eldsupptökunum er lokið að því er lögreglan í Hafnarfirði hermir. Samkvæmt upplýsingum frá Samherja munu sjópróf fara fram í Héraðsdómi Reykjaness á næstu dögum. - sh Eldurinn í Akureyrinni: Kviknaði í út frá ljósabekk KOSNINGAR Hlutur kvenna í sveit- arstjórnum landsins jókst í nýaf- stöðnum kosningum um tæp fjög- ur prósent frá kosningunum árið 2002. Í dag er hlutfall kvenna í sveitarstjórnum komið í 35,9 pró- sent. Þetta hlutfall hefur farið hækkandi jafnt og þétt síðustu áratugi. Silja Bára Ómarsdóttir, sviðsstjóri Jafnréttisstofu, segir að áberandi mikil fjölgun hafi verið árið 1978, í fyrstu kosning- unum eftir Kvennafrídaginn, og svo aftur árið 1982, eftir að Vigdís Finnbogadóttir varð forseti. Jafnréttisstofa fagnar þessari þróun og telur nauðsynlegt að sambærileg kynjahlutföll verði í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum sveitarfélaganna. „Þó hlut- ur kvenna sé að aukast í sveitar- stjórnum er það ekki að skila sér jafn vel í nefndarhlutföllum. Það á sérstaklega við málaflokka á borð við skipulagsmál og fjármál. Þarna viljum við sjá breytingu,“ segir Silja. Jafnréttisstofa minnir á að öllum sveitarstjórnum ber skylda til að fela nefnd á vegum sveitar- félagsins umsjón með jafnréttis- málum á kjörtímabilinu. Sveitar- félög eiga samkvæmt lögum að vera komin með jafnréttisáætlun innan árs frá kosningum. Jafnréttisstofa mun í haust halda námskeið um jafnréttisstarf á þeim vettvangi fyrir nefndar- menn. - sdg Jafnréttisstofa fagnar auknum hlut kvenna í sveitarstjórnarkosningum: Konum fjölgar um 4 prósent SILJA BÁRA ÓMARSDÓTTIR, SVIÐSSTJÓRI JAFNRÉTTISSTOFU Nokkuð vantar upp á að sveitarfélög framfylgi lögum um að koma sér upp jafnréttisáætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/KK KOSNINGAR Í gær sleit Samfylk- ingin meirihlutaviðræðum við vinstri græna og L-lista en þessir þrír flokkar sátu saman í minni- hluta á seinasta kjörtímabili. „Þegar leið á viðræðurnar varð okkur ljóst að þessi meirihluti þriggja flokka yrði of veikur til að geta gengið til þeirra verka í bænum sem til þarf,“ sagði Her- mann Jón Tómasson, oddviti Sam- fylkingarinnar. Eftir að slitnaði upp úr viðræð- unum hafði Samfylkingin sam- band við Sjálfstæðisflokkinn og munu viðræður þeirra á milli hefjast í dag. - sdg Þreifingar á Akureyri: S-listi og D-listi hefja viðræður FINNLAND Lögregla í finnska bænum Borgå, um 50 km austur af Helsinki, sagði í gær að grunur léki á að íkveikja hafi valdið elds- voða, sem í fyrrinótt olli alvarleg- um skemmdum á dómkirkjunni sem þar hefur staðið frá miðöld- um. Talsmenn lögreglunnar tjáðu Hufvudstadsbladet að eldurinn hefði kviknað utan við kirkjuna. Rannsókn stendur enn yfir. Kirkjan er ein elsta bygging Finnlands, að hluta frá 13. öld. Hún er einnig söguleg fyrir þær sakir að árið 1809 hýsti hún þing þar sem Rússakeisari féllst á að Finnland héldi undir hans stjórn trú og stjórnskipan þeirri sem hefð hafði skapast fyrir í þau 700 ár sem landið heyrði undir Svía- konung. Kirkjan er fjölsótt af ferðamönnum og vinsæl til gift- inga. - aa Eldsvoði í fornri finnskri kirkju: Grunur leikur á íkveikju DÓMKIRKJAN Í BORGÅ Þakið brann af einni elstu kirkju Finnlands í fyrrinótt. Meirihlutaviðræður Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og vinstri grænir eiga í viðræðum um meirihlutasamstarf í Árborg. Tveir fyrrnefndu flokkarnir sátu saman í meirihluta á seinasta kjörtíma- bili. Vinstri grænir voru ekki með mann inni seinast en fengu einn fulltrúa nú. ÁRBORG

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.