Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 4
4 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 29.05 2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 72,43 72,77
Sterlingspund 134,91 135,57
Evra 92,40 92,92
Dönsk króna 12,392 12,464
Norsk króna 11,814 11,884
Sænsk króna 9,936 9,994
Japanskt jen 0,6448 0,6486
SDR 107.66 108,3
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
127,9537
KÓPAVOGUR Framsóknarmenn og
sjálfstæðismenn halda áfram
meirihlutasamstarfi í Kópavogi.
Gunnar I. Birgisson, oddviti Sjálf-
stæðisflokks, verður bæjarstjóri
og hættir á þingi. Ómar Stefáns-
son, oddviti Framsóknarflokks,
verður forseti bæjarráðs.
Samkomulag flokkanna náðist
seint á mánudagskvöldið og verð-
ur málefnasamningurinn lagður
fyrir fulltrúaráð flokkanna annað
kvöld. Ómar Stefánsson á von á
því að afgreiðslan verði snögg og
fundurinn frekar stuttur.
Skipting embætta og nefnda-
skipan flokkanna er svipuð og
verið hefur. Samkomulag er um
skipti á formennsku í tveimur
stórum nefndum. Framsóknar-
flokkurinn fær formennsku í
skipulagsnefnd og skólanefnd og
Sjálfstæðisflokkurinn fær í stað-
inn formennsku í félagsmálaráði
og íþrótta- og tómstundaráði.
Gunnar I. Birgisson verður
bæjarstjóri Kópavogs næstu fjög-
ur árin og er þar með hættur á
þingi og í landsmálunum, í bili að
minnsta kosti. „Það fellur betur að
mínu skapi að vera bæjarstjóri.
Ég vil sjá hlutina gerast,“ segir
hann en útilokar ekki að fara í
landsmálin síðar.
Gríðarleg óánægja er meðal
samfylkingarfólks og vinstri
grænna með framkomu framsókn-
armanna síðustu daga. Guðríður
Arnardóttir, oddviti Samfylking-
arinnar, segir meirihlutamyndun-
ina mikil vonbrigði. Vonir hafi
staðið til að hægt yrði að mynda
meirihluta Samfylkingar, Fram-
sóknarflokks og Vinstri hreyfing-
arinnar - græns framboðs.
„Við leituðum allra leiða til að
ná fundi Ómars Stefánssonar með
það að markmiði að ræða meiri-
hlutasamstarf. Hann vildi ekki
hitta okkur en óskaði eftir skrif-
legu tilboði með hugsanlegri skipt-
ingu í embætti og spurði hvort við
værum tilbúin til að gefa þeim
eftir bæjarstjórastólinn. Við höfn-
um alfarið slíkum vinnubrögð-
um,“ segir Guðríður.
Ómar segir að samstarfið við
sjálfstæðismenn hafi verið far-
sælt og framsóknarmenn séu sátt-
ir við að halda því áfram. Hann
segist aldrei hafa óskað eftir skrif-
legu tilboði frá Samfylkingunni.
„Ég er oddviti framsóknarmanna.
Ég stýri þessum viðræðum. Ég fór
aldrei fram á neitt skriflegt tilboð
frá Samfylkingunni. Samfylkingin
er bara að reyna að búa sér til
stöðu til að halda sér í fjölmiðl-
um.“ ghs@frettabladid.is
Gunnar verður
áfram bæjarstjóri
Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn halda áfram meirihlutasamstarfi í
Kópavogi og verður málefnasamningur lagður fyrir fundi flokkanna annað
kvöld. Gunnar I. Birgisson hættir á þingi og verður bæjarstjóri í Kópavogi.
GUNNAR I. BIRGISSON Bæjarstjórinn í Kópavogi næstu fjögur árin, Gunnar I. Birgisson, hættir nú alfarið á þingi en hann sat á þingi þangað
til hann settist í stól bæjarstjóra á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/XXX
KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkurinn
myndar nýjan meirihluta í Hvera-
gerði með fjóra bæjarfulltrúa. A-
listi Framsóknarflokks, Samfylk-
ingar og óflokksbundinna, sem
sátu í meirihluta, fékk þrjá bæjar-
fulltrúa.
Að sögn Aldísar Hafsteinsdótt-
ur, oddvita D-lista, hefur nýi meiri-
hlutinn ekki hist formlega. Aldís
segir að núverandi bæjarstjóri,
Orri Hlöðversson, hafi lýst yfir í
aðdraganda kosninganna að hann
yrði bæjarstjóraefni A-listans.
„Orri var kallaður til af A-lista á
sínum tíma og því eðlilegt að með
nýjum mönnum verði skipt um þá
stöðu.“ - sdg
Meirihluti D-lista í Hveragerði:
Nýr bæjarstjóri
verður ráðinn
JARÐSKJÁLFTI Jarðskjálfti, tæp þrjú
stig á Richter, mældist snemma í
gærmorgun á Hellisheiði um fjóra
kílómetra norðvestur af Hvera-
gerði. Um 40 minni skjálftar
fylgdu í kjölfarið en að sögn jarð-
skjálftafræðings á Veðurstofunni
var hrinunni lokið skömmu síðar.
Jarðskjálftar á þessu svæði
vekja upp spurningar um öryggi
Hellisheiðarvirkjunar en að sögn
Guðmundar Þóroddssonar, for-
stjóra Orkuveitunnar, mun sú
virkjun geta staðið af sér jarð-
skjálfta allt upp í 7 á Richter og
því segir hann ekkert að óttast. - sh
Skjálftahrina á Hellisheiði:
Stærsti skjálfti
tæp 3 stig
HELLISHEIÐARVIRKJUN Forstjóri
Orkuveitunnar segir virkjunina geta staðið
af sér skjálfta upp á 7 á Richter.
KOSNINGAR Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, heldur
embættinu í meirihlutasamtarfi
sjálfstæðis- og framsóknarmanna
á næsta kjörtímabili. Í-listinn
myndar minnihlutann.
Framsóknarmenn höfðu gert
kröfu um ópólitískan bæjarstjóra,
en létu undan. „Ég lít svo á að íbú-
arnir hafi viljað það, því við feng-
um átta prósenta fylgisaukningu,“
segir Halldór. Fulltrúi framsókn-
armanna, Guðni Geir Jóhannes-
son, verður formaður bæjarráðs.
Flokkarnir tveir ætla að undir-
rita meirihlutasamning á föstu-
daginn. Framsóknarflokkurinn
mun fara með nefndarformennsku
í umhverfisnefnd, atvinnumála-
nefnd, hafnarstjórn og hjúkrunar-
heimilisnefnd. Sjálfstæðisflokkur-
inn mun fara fyrir fræðslunefnd,
menningarmálanefnd, félagsmála-
nefnd, landbúnaðarnefnd, íþrótta-
og tómstundanefnd, barnavernd-
arnefnd, byggingarnefnd GÍ og
starfshópi um tölvumál. Um aðrar
nefndir verður samið hverju
sinni.
Sjálfstæðisflokknum hafði
verið spáð fylgistapi á Ísafirði í
könnunum: „Við unnum hins vegar
sleitulaust og af tvöföldum krafti
þegar við heyrðum niðurstöðu
kannananna,“ segir Guðni Geir og
bætir við að á opnum fundum hafi
sterk staða flokksins umfram Í-
listann orðið kjósendum ljós.
- gag
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn í meirihluta á Ísafirði:
Allt óbreytt hjá bæjarstjóra
HALLDÓR HALLDÓRSSON Bæjarstjórinn
segir fylgisaukningu við Sjálfstæðisflokksins
hafa tryggt honum bæjarstjórnarstólinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÍTALÍA, AP Flokkabandalag vinstri-
og miðjuflokka, sem stendur að rík-
isstjórn Romanos Prodi á Ítalíu, hélt
meirihluta í borgarstjórnum Rómar,
Tórínó, Napolí og fleiri borgum
landsins í sveitarstjórnarkosning-
um í gær, en í Mílanó, sem lengi
hefur verið eitt helsta vígi hægri-
manna, var það mjótt á mununum að
erfitt var að segja fyrir um úrslit á
grundvelli fyrstu talna.
Piero Fassino, leiðtogi stærsta
flokksins í mið- og vinstriflokka-
bandalaginu sagði úrslitin „almenn-
an sigur fyrir miðju- og vinstri-
menn, en vonir Berlusconis um
uppreisn æru brustu.“ Hægriflokka-
bandalag Berlusconis tapaði naumt
í þingkosningunum í apríl. - aa
Kosið til borgarstjórna á Ítalíu:
Vinstriflokkar
höfðu betur
ATKVÆÐI TALIN Frá talningu atkvæða í Róm
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRUSSEL, AP Kol hafa hlutverki að
gegna við að mæta framtíðarorku-
þörf Evrópu, að því gefnu að ný
tækni geri það mögulegt að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda
við brennslu þeirra. Þetta sagði
Andris Piebalgs, sem fer með orku-
mál í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins, á ráðstefnu í Gliwice
(Gleiwitz) í Póllandi.
Benti hann á að nægar birgðir
væru af kolum í jörðu í Evrópu og
nægilegt framboð því tryggt, ólíkt
olíu og jarðgasi sem að mestu er
flutt inn frá fjarlægari svæðum.
Sem stendur kemur um þriðjungur
allrar raforkuframleiðslu í ESB úr
kolaorkuverum. - aa
Orkumál í Evrópu:
Kolin gegna
sínu hlutverki
BRUSSEL, AP Milo Djukanovic, for-
sætisráðherra Svartfjallalands,
sagðist í gær vongóður um að land
sitt væri á góðri leið með að geta
hafið viðræður um aðild að Evr-
ópusambandinu, eftir að Svartfell-
ingar samþykktu í þjóðaratkvæða-
greiðslu í liðinni viku að slíta
ríkjasambandi við Serbíu.
Að svo stöddu vildi hann þó ekki
nefna hvenær hann teldi raunhæft
að ætla að af inngöngu landsins í
ESB gæti orðið. En í fyrstu utan-
landsferð sinni eftir sjálfstæðisat-
kvæðagreiðsluna, sem lá í höfuð-
stöðvar ESB í Brussel, áréttaði
hann að það væri markmið Svart-
fellinga að fá sem fyrst aðild að
sambandinu. - aa
Svartfjallaland:
Stefnan sett
á ESB-aðild