Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 6

Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 6
6 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR ���������� ���������������������� �������������������������� ������������������������������� ��������������������������� �������������������������� KJÖRKASSI Fylgdistu með talningu atkvæða fram eftir nóttu í sveitarstjórnar- kosningunum? Já 71% Nei 29% SPURNING DAGSINS Í DAG Ertu ánægð(ur) með nýja borgar- stjórann í Reykjavík? Segðu þína skoðun á visir.is KOSNINGAR Úrslit kosninganna í Hornafirði voru þau að meiri- hluti Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks hélt. Þrátt fyrir það eru framsóknarmenn nú í við- ræðum við Samfylkinguna um myndun nýs meirihluta. Reynir Arnarson, oddviti Framsóknarflokksins, segir ekk- ert út á meirihlutasamstarfið með Sjálfstæðisflokknum að setja. „En það var bara ákveðið að fara þessa leið.“ Halldóra B. Jónsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, er hissa á þess- um vinnubrögðum fyrrverandi samstarfsflokksins og segist ekk- ert hafa heyrt frá Reyni þrátt fyrir að hafa reynt að ná sam- bandi við hann. - sdg Meirihlutinn hélt á Hornafirði: Leitað út fyrir meirihlutann REYKJAVÍK Sjálfstæðismenn komu öllum á óvart og slitu skyndilega viðræðum við frjálslynda eftir hádegið í gær. Ólafur F. Magnús- son, oddviti Frjálslynda flokksins, talaði um vonbrigði og var myrkur í máli yfir skugga sem hann taldi að hefði borið á farsæl samskipti þeirra Vilhjálms í borgarstjórn í 16 ár. Atburðarásin var hröð. Þrír efstu menn Sjálfstæðisflokksins hittu efstu menn Frjálslynda flokksins í fyrrakvöld og var boð- aður fundur aftur strax eftir hádegið í gær. Frjálslyndir notuðu morguninn til að undirbúa viðræð- urnar og biðu svo eftir Vilhjálmi. Um tvö hringdi Vilhjálmur og afboðaði fundinn. Ástæðan? Ekki væri grundvöllur fyrir meirihluta- samstarfi, frjálslyndir væru of ósveigjanlegir í flugvallarmálinu. Vilhjálmur sagði á blaðamanna- fundi í gær að „alvöruviðræður“ við framsóknarmenn hefðu hafist eftir að viðræðum við frjálslynda var slitið. Þeir Björn Ingi hefðu hinsvegar verið búnir að ræða saman áður. „Þegar flokkar hljóta ekki hreinan meirihluta þá þurfa menn að tala saman. Það höfum við verið að gera,“ sagði Vilhjálm- ur. „Það fannst einfaldlega ekki nægilega mikill samhljómur með frjálslyndum. Það er mjög mikil- vægt þegar nýr meirihluti er myndaður að þar ríki gagnkvæmt traust, áhugi og vilji til þess að ráðast í framkvæmdir og vinna vel. Ég treysti Birni Inga fullkom- lega til að leiða þann vaska hóp sem tekur við stjórn borgarinnar í byrjun júní,“ sagði Vilhjálmur. „Ég held að Framsóknarflokk- urinn hafi haft einstakt tækifæri til að stíga út úr skugga Sjálfstæð- isflokksins, gríðarleg pólitísk tækifæri til að endurnýja sig og laða fólk til fylgis við sig á ný í samstarfi fjögurra flokka í staðinn fyrir að vera áfram í gamalkunnu hjólfari,“ sagði Dagur B. Eggerts- son, oddviti Samfylkingarinnar. „Ég er hissa á því að frambjóð- andinn ungi hjá B-listanum sem talaði af bjartsýni og einlægni framan í sjónvarpsmyndavélarnar sé orðinn áttundi maður Sjálfstæð- isflokksins,“ sagði Svandís Svav- arsdóttir, oddviti vinstri grænna. „Ef endurreisn flokksins felst í því að læsa sig fastar saman við Sjálf- stæðisflokkinn þá skil ég ekki þeirra pólitíska nef. Það er spurn- ing hvort það sé verið að bjarga ríkisstjórninni.“ ghs@frettabladid.is Samhljóm vantaði hjá frjálslyndum Sjálfstæðismenn komu frjálslyndum að óvörum þegar þeir afboðuðu skyndi- lega meirihlutaviðræður í gær. Oddviti frjálslyndra talaði um vonbrigði en oddviti sjálfstæðismanna taldi samhljóm hafa vantað. MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, sleit viðræðum við Ólaf F. Magnússon, oddvita frjálslyndra, skyndilega eftir hádegið í gær. Nokkrum stundum síðar var hann búinn að semja við framsóknarmenn um myndun meirihluta í borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KOSNINGAR Geir H. Haarde, for- maður Sjálfstæðisflokksins, seg- ist fagna því að búið sé að mynda meirihluta í Reykjavík. „Ég tel að Vilhjálmur verði góður borgar- stjóri og að þetta verði styrkur og samheldinn meirihluti.“ Geir segir alla möguleika hafa verið opna og ljóst að þegar við- ræður við Frjálslynda flokkinn gengu ekki upp þá hafi þetta verið það næsta í stöðunni. „Ég hef fulla trú á því að þetta verði farsælt og gott samstarf Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins í borginni.“ Halldóri Ásgrímssyni, for- manni Framsóknarflokksins, líst vel á samstarf síns flokks og Sjálf- stæðisflokks í borgarstjórn. „Ég tel að það sé sjálfsögð skylda að taka þátt í stjórn borgar- innar. Það lá fyrir að samstarf með öðrum gekk ekki upp eftir að það hafði verið prófað. Björn Ingi er mjög öflugur maður sem á eftir að reynast borgarbúum vel,“ segir Halldór. Margir framsóknarmenn hafi lengi komið að stjórn borgar- innar, þar á meðal Björn Ingi. Hann segir algjörlega út í hött að samstarfið í borgarstjórn hafi að einhverju leyti tengst afgreiðslu frumvarps Valgerðar Sverrisdótt- ur úr iðnaðarnefnd í gær eins og Katrín Júlíusdóttir gaf í skyn. „Það er fráleitt að láta sér detta það í hug að málefnum ríkisstjórn- ar og borgarinnar sé blandað saman með þessum hætti.“ - bg/sdg Formennirnir ánægðir með myndun nýs meirihluta í borginni: Eru bjartsýnir á samstarfið ALÞINGI Gunnar I. Birgisson, bæj- arstjóri í Kópavogi og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst yfir að hann muni segja af sér þing- mennsku. Sigurrós Þor- grímsdóttir, fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í suðvestur- kjördæmi, mun taka við sæti Gunnars og koma inn sem aðalmaður. Sigurrós hefur setið sem varamaður fyrir Gunnar frá því hann tók sér leyfi frá þingmennsku 1. október síðastliðinn til að sinna bæjarstjórastöðu í Kópavogi. - sdg Segir af sér þingmennsku: Sigurrós tekur við af Gunnari LÖGREGLA Þrír karlmenn voru á laugardag úrskurðaðir í gæslu- varðhald til föstudags grunaðir um hrottalegar misþyrmingar í húsi á Akureyri síðastliðinn fimmtudag, þar sem meðal ann- ars var klippt framan af fingri manns með garðklippum. Mennirnir hafa komið áður við sögu ofbeldismála, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Lögreglan á Akureyri óskaði eftir gæsluvarðhaldi yfir mönn- unum til þriðjudagsins 6. maí en Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði sem fyrr segir að þeir skyldu hafðir í varðhaldi til föstu- dags. - sh Klipptu fingur á Akureyri: Sæta varðhaldi til föstudags SIGURRÓS ÞORGRÍMSDÓTTIR KOSNINGAR Samfylkingin bíður átekta á meðan Vinstri hreyfingin - grænt framboð, Sjálfstæðisflokk- ur og Framsókn eru í viðræðum um meirihlutasamstarf á Dalvík. Svanfríður Jónasdóttir, efsti maður á lista Samfylkingarinnar sem hlaut 42 prósent atkvæða, segir ekki annað hægt en að bíða eftir niðurstöðu viðræðna flokk- anna þriggja. Vinstri grænir hafi þegar svikið stærsta kosningalof- orð sitt um að starfa ekki með hinum flokkunum tveimur. Svanfríður segir að hún vilji engu svara um hvort Samfylkingin sé tilbúin að starfa með fulltrúa vinstri grænna, Jóhanni Ólafssyni, hætti hann við samstarfið við hina: „Þegar hlutirnir æxl- ast svona strax eftir kosn- ingar og menn fara út í svona viðræður eins og þarna eru í gangi kemur upp algerlega ný staða.“ Hlutir hafi gerst sem hún, ásamt hinum tveimur full- trúum Samfylkingarinn- ar, þurfi að meta vandlega. Jóhann segir viðræðurnar á byrjunarstigi. Ekkert sé fast í hendi og engin kosningar- loforð verið svikin. „Okkar stefnuskrá miðar að því að auglýsa eftir bæjarstjóra. Við stöndum við það loforð. Svanfríður byrjaði á að leita til framsóknarmanna um meirihlutasamstarf, þannig að við vorum ekki fyrsti kostur í hennar samstarfi,“ segir Jóhann og bætir við: „Okkur buð- ust viðræðurnar og fannst sjálf- sagt að kanna þær.“ - gag Þrír flokkar reyna að koma sér saman um samstarf á Dalvík: Samfylking ein í andstöðu SVANFRÍÐUR JÓNAS- DÓTTIR FORMENNIRNIR Geir og Halldór eru ánægð- ir með samstarf sinna manna í Reykjavík.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.