Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 8
8 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
��������������������������������������������������������������������������������������� ���������������������
����������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
������������������������������
�������������������������������
���������������������������������������������������
������������� ����������������������������������������
�������������������������������������� ��������
����������������������������������������������
��������������������������������������������������
������������������������������ ��������������������
�������������������������
������������������������������ ��������������������
BRETLAND Mannréttindasamtök á
Bretlandi telja að börnum hafi verið
haldið í Guantanamo-fangabúðum
Bandaríkjahers á Kúbu. Breska
blaðið Independent on Sunday
greindi svo frá á sunnudag.
Staðhæfa samtökin að allt að
sextíu börn undir átján ára aldri
hafi verið vistuð í búðunum og vísa
því til staðfestingar á gögn banda-
ríska landvarnaráðuneytisins sem
opinberaði nöfn fanganna í síðasta
mánuði. Segir lögfræðingur sam-
takanna að ungmenni hafi sætt
löngum yfirheyrslum og jafnvel
pyntingum í fangelsinu, og til að
mynda hafi einum fanganna ungu
verið brigslað um þátttöku í
sprengjutilræðinu í Lundúnum í
fyrra þegar pilturinn var aðeins
tólf ára gamall og búsettur í for-
eldrahúsum í Sádi-Arabíu.
Stutt er síðan Goldsmith lávarð-
ur, lögfræðilegur ráðunautur
bresku stjórnarinnar, skoraði á rík-
isstjórn Bandaríkjanna að loka
fangelsinu. Á nýlegri ráðstefnu um
hryðjuverk áréttaði hann að stund-
um væri þörf á sveigjanleika og
takmörkun réttinda. Hins vegar
væru ákveðnar reglur sem ekki
þyldu neinar málamiðlanir og ein
þeirra væri réttur manna til sann-
gjarnar málsmeðferðar. - khh
Bresk samtök segja börn í haldi í Guantanamo:
Sakaðir um
að pynta börn
FANGABÚÐIR Úr bandarísku fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Stefnt er að því að
hágæsluþjónustu verði komið á á
Barnaspítala Hringsins seint í
sumar eða í haust, að sögn Ragn-
heiðar Sigurðardóttur, deildar-
stjóra á vökudeild spítalans.
Starfshópur hefur unnið að
undirbúningi og skipulagningu
hágæsluþjónustunnar. Auglýst
hefur verið eftir starfsfólki til að
taka þátt í þróun hennar og hefja
þjálfun fyrir starfið sem fyrst.
Ragnheiður segir töluverð við-
brögð hafa verið við auglýsing-
unum, bæði utan úr bæ og af spít-
alanum.
„Ég get ekki upplýst um hve
mörg stöðugildi það eru á þessari
stundu.“ segir hún. Fram hefur
komið að ráða þarf tvær vakta-
línur hjúkrunarfræðinga, sem
svarar 8-10 stöðugildum.
Hágæsla felst í nákvæmu eftir-
liti með mjög veikum sem þó eru
ekki í öndunarvél. Þurfi sjúk-
lingur í öndunarvél er hann flutt-
ur yfir á gjörgæslu, að sögn
Ragnheiðar.
Svo sem kunnugt er gáfu
Jóhannes Jónsson í Bónus, Jón
Ásgeir Jóhannesson og Kristín
Jóhannesdóttir 300 milljónir til
verkefnisins fyrir nokkru og
verður upphæðin greidd í áföng-
Auglýst eftir hjúkrunarfræðingum á Barnaspítalann:
Hágæslu verður
komið á í haust
BARNASPÍTALINN Starfshópur hefur unnið
að undirbúningi og skipulagningu hágæslu-
þjónustunnar á barnaspítala Hringsins.
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
handtók aðfaranótt laugardags
mann sem ók á 140 kílómetra hraða
í Ártúnsbrekkunni þar sem
hámarkshraði er 80 kílómetrar á
klukkustund.
Maðurinn var ekki á því að hlýða
fyrirmælum og stöðva bílinn held-
ur flúði undan lögreglu og náðist
loks eftir æsilegan eltingaleik á
Suðurlandsbraut við Langholtsveg.
Við leit á manninum fannst
nokkuð af amfetamíni og kókaíni.
Maðurinn ók fimm sinnum yfir á
rauðu ljósi á meðan á eltingaleikn-
um stóð og má eiga von á ökuleyfis-
sviptingu og háum fjársektum.
- sh
Maður flúði undan lögreglu:
Með fíkniefni
á ofsahraða
Kosningaúrslit 2006
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Meirihlutinn hélt velli Í
Rangárþingi ytra voru 1.027 á kjörskrá
og þar af greiddi 851 atkvæði.
Auðir seðlar og ógildir voru 22.
B-listi Framsóknarflokks hlaut 357
atkvæði og þrjá menn kjörna, D-listi
Sjálfstæðisflokks hlaut 428 atkvæði og
fjóra menn kjörna og K-listi almennra
íbúa hlaut 66 atkvæði og engan mann
kjörinn. Sjálfstæðisflokkur heldur
meirihluta sínum frá 2002.
RANGÁRÞING YTRA
Sjálfstæðisflokkur vann Í
Mýrdalshreppi voru 377 á kjörskrá
og þar af greiddu 323 atkvæði.
Auðir seðlar og ógildir voru 21.
B-listi Framsóknarflokks hlaut 144
atkvæði og tvo menn kjörna og
D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut 179
atkvæði og þrjá menn kjörna. D-
listi Sjálfstæðisflokks nær þar með
meirhluta en D, B, og K-listi hafa
starfað saman síðan 2002.
MÝRDALSHREPPUR
Sjálfstæðismenn unnu Í
Tálknafirði voru 194 á kjörskrá og
þar af greiddu 169 atkvæði. Átta
seðlar reyndust auðir og ógildir.
D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut 105
atkvæði og þrjá menn kjörna og T-listi
Tálknafjarðarlistans hlaut 64 atkvæði
og tvo menn kjörna. Óbundin kosning
var í sveitarfélaginu 2002.
TÁLKNAFJÖRÐUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
VON UM FRELSI Fangar halda í girðingu á
bandarísku fangabúðunum í Guantanamo
á Kúbu. Bresk mannréttindasamtök saka
Bandaríkjaher um að hafa haldið börnum í
búðunum og pyntað þau. NORDICPHOTOS/AFP
VEISTU SVARIÐ
1 Hvaða sögufræga stað heimsótti páfinn í fyrradag?
2 Hvað heitir nýr formaður bæjarráðs í Kópavogi?
3 Hver sigraði í Mónakó-kappakstr-inum?
SVÖR Á BLS. 38