Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 10
10 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
MOSFELLSBÆR Viðræður um mynd-
un meirihluta Samfylkingarinnar,
Framsóknarflokks og Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs
hófust síðdegis í gær. Jónas Sig-
urðsson, oddviti Samfylkingarinn-
ar, var bjartsýnn á að samkomulag
tækist en menn myndu samt taka
sér nokkra daga.
„Ég býst ekki við neinni niður-
stöðu því að við eigum eftir að fara
yfir ýmsa þætti,“ sagði Jónas í gær
og taldi líklegt að menn myndu afla
gagna og undirbúa sig vel þannig
að farið yrði yfir málefnasviðið til
að byrja með.
Fulltrúar flokkanna hittust fyrst
á sunnudaginn og ákváðu þá að
hefja umræður. Á þeim fundi kom
fram að hvorki skilyrði né kröfur
hefðu verið settar af hálfu flokk-
anna.
„Það eru allir þættir uppi á borð-
inu til að semja um. Við stöndum
frammi fyrir því vali að ráða ópól-
itískan bæjarstjóra eða setja fram
einhvern pólitískan bæjarstjóra úr
þessum hópi. Það er umræða sem á
eftir að taka,“ sagði hann.
Marteinn Magnússon, oddviti
Framsóknarflokksins, sagði að
tónninn væri góður en vildi ekki
gefa neitt upp um það hvort bæjar-
stjórinn ætti að vera pólitískur eða
ekki.
„Við skorumst ekki undan neinu.
Við öxlum þá ábyrgð sem þarf en
það á eftir að ræða þetta. Það hefur
enginn flokkur sett fram neinar
kröfur,“ sagði hann. - ghs
UPPÁKLÆDDUR Richard Vigil nefnist þessi
maður, sem er af ættum frumbyggja
Ameríku. Um helgina fögnuðu indjánar af
ættbálkinum Jicarilla Apache árlegri „pow
wow“ hátíð á verndarsvæði við Las Vegas.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Viðræður milli Samfylkingar, Framsóknarflokks og vinstri grænna í Mosfellsbæ:
Góður tónn í mönnum
MÁRITANÍA, AP Herforinginn Ely
Ould Mohamed Vall hefur stigið
fram fyrir skjöldu og hvatt íbúa
Norður-Afríkuríksins Máritaníu
til að standa saman gegn þræla-
haldi.
Þrælahald viðgengst enn í
landinu þótt það hafi verið bann-
að með lögum í tuttugu og fimm
ár.
Vall hvatti íbúa landsins til að
nýta rétt sinn í komandi kosning-
um þar sem kosið verður um
stjórnarskrárbreytingar, en gaf
að öðru leyti ekki upp neinar frek-
ari áætlanir um hvernig hægt
væri að uppræta þrælahald í
landinu. -khh
Þrælahald viðurkennt:
Viðgengst í
Máritaníu
SÖFN Hjónin Kolfinna Bjarnadótt-
ir og Hinrik Bjarnason í Reykja-
vík hafa fært Víkinni-Sjóminja-
safni í Reykjavík minjasafn sitt
að gjöf. Flestir gripirnir hafa
þegar verið afhentir safninu.
Minjasafn Hinriks og Kol-
finnu, eins og fyrrverandi eig-
endur þess kalla safnið, hefur að
geyma 680 gripi sem tengjast
æskuheimili þeirra, ættfólki og
umhverfi í Austur-Húnavatns-
sýslu og Árnessýslu auk atvinnu
og mannlífi í Blöndudal, Stokks-
eyri og úr Flóanum í Árnessýslu.
Flestir gripirnir eru frá miðri
nítjándu öld og fram á fimmta
áratug tuttugustu aldar en all-
margir eru þó eldri. Safnið er
ekki flokkað sérstaklega heldur
samanstendur það af munum
sem Kolfinnu og Hinriki hafa
þótt áhugaverðir.
Sigrún Magnúsdóttir, for-
stöðumaður Víkurinnar-Sjó-
minjasafns Reykjavíkur, segir að
um stórkostlega gjöf sé að ræða.
„Okkur finnst það mikill heiður
að geta gert sumaropnun okkar
veglega úr garði með því að sýna
muni þessara hjóna. Sýningin
heitir Úr ranni forfeðranna og er
alfarið byggð á þeim munum sem
þessi heiðurshjón gefa safninu
nú.“ Sýningin er að sögn Sigrún-
ar lýsandi fyrir samfélag liðinna
tíma og þá horfnu menningu sem
einkenndi Ísland áður, ekki síst
verkmenningu. - shá
Víkin-Sjóminjasafn Reykjavíkur bætir safnkost sinn:
Safninu færð
höfðingleg gjöf
MOSFELLSBÆR Miklar líkur eru á meirihluta
Samfylkingar, VG og Framsóknar.
KOSNINGAR M-listinn Xmotor stend-
ur með pálmann í höndunum í nýju
sveitarfélagi Þórshafnar- og
Skeggjastaða-
hrepps eftir
kosningar á
laugardag. List-
inn fékk einn
mann kjörinn en
K-listi og O-listi
þrjá menn hvor.
Þórir Jóns-
son, einn þriggja
bræðra á listan-
um, segir nafnið
þannig tilkomið
að á honum séu mótoristar af ýmsu
tagi. Hann segir viðræður við O-
lista þegar hafnar. Skólamál og
þjónusta við íbúa séu forgangsmál.
Þórir býst við að Björn Ingimars-
son sveitarstjóri starfi áfram.
- ssal
Óvissa á Þórshöfn:
M-listi Xmotor
í lykilaðstöðu
BJÖRN
INGIMARSSON
FRÁ SÝNINGUNNI Hjónin Kolfinna Bjarnadóttir og Hinrik Bjarnason hafa gefið minjasafn
sitt sem telur 680 gripi frá nítjándu og tuttugustu öld.
Munaði fimm atkvæðum Í
Grímsnes- og Grafningshreppi voru
271 á kjörskrá og þar af greiddu 223
atkvæði. Sjö seðlar voru auðir og
ógildir. C-listi lýðræðissinna hlaut 109
atkvæði og tvo menn kjörna og K-listi
óháðra kjósenda hlaut 114 atkvæði
og þrjá menn kjörna. Meirihluti C-lista
frá 2002 er þar með fallinn.
GRÍMSNES OG
GRAFNINGUR
Meirihlutinn hélt velli Í
Hrunamannahreppi voru 479
á kjörskrá og þar af greiddu
382 atkvæði. Auðir seðlar og
ógildir voru 21. Á-listi hlaut 154
atkvæði og tvo menn kjörna og
H-listi, Listi samstarfshóps um
sveitarstjórnarkosningar hlaut
228 atkvæði og þrjá menn
kjörna. H-listinn heldur þar með
meirihlutanum frá kosningunum
2002.
HRUNAMANNA-
HREPPUR
Helgi Steinsson efstur Í
Hörgárbyggð var óbundin kosning.
Íbúar á kjörskrá voru 287 og þar
af greiddi 181 atkvæði. Kosningu
hlutu Helgi B. Steinsson, Birna
Jóhannesdóttir, Árni Arnsteinsson,
Jóhanna María Oddsdóttir og Guðný
Fjóla Árnmarsdóttir.
HÖRGÁRBYGGÐ
Vilja sameiningu Samhliða sveitar-
stjórnarkosningunum á laugardag fór
fram könnun meðal íbúa í Arnarnes-
hreppi og Hörgárbyggð hvort þeir
væru hlynntir sameiningu sveitarfélag-
anna. Niðurstaða könnunarinnar var
sú að 126 íbúar eru hlynntir samein-
ingu og 26 eru henni andvígir.
KOSNINGAR
Meirihlutinn féll Í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi voru 357 á kjörskrá
og þar af greiddu 315 atkvæði.
Sex seðlar voru auðir og ógildir.
A-listi framfarasinna hlaut 117
atkvæði og tvo menn kjörna, E-listi
Einingar hlaut 83 atkvæði og einn
mann kjörinn og L-listi um farsæla
sameiningu hlaut 115 atkvæði og
tvo menn kjörna. Meirihluti L-lista
frá kosningunum 2002 er þar með
fallinn.
SKEIÐA- OG
GNÚPVERJAHREPPUR
VESTURBYGGÐ
Meirihlutinn féll Í Vesturbyggð
voru 686 á kjörskrá og þar af
greiddu 597 atkvæði. Auðir og
ógildir seðlar voru 29. D-listi
Sjálfstæðisflokks hlaut 252 atkvæði
og þrjá menn kjörna og S-listi
Samfylkingar hlaut 345 atkvæði
og fjóra menn kjörna. Meirihluti
Sjálfstæðisflokks og óháðra frá 2002
féll þar með.
Meirihlutinn hélt velli Á
Vopnafirði voru 532 á kjörskrá og
þar af greiddi 471 atkvæði. Tuttugu
seðlar voru auðir og ógildir. K-listi
félagshyggjufólks hlaut 257 atkvæði
og fjóra menn kjörna og N-listi nýs
afls hlaut 214 atkvæði og þrjá menn
kjörna. K-listi heldur meirihlutanum
frá kosningunum 2002.
VOPNAFJÖRÐUR
M-listi í lykilaðstöðu Í nýju
sameinuðu sveitarfélagi Þórshafnar-
og Skeggjastaðahreppa voru 376
á kjörskrá og þar af greiddu 304
atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru
fjórtán. K-listi komandi framtíðar hlaut
123 atkvæði og þrjá menn kjörna,
M-listi Xmotor hlaut 54 atkvæði og
einn mann kjörinn og O-listi samstarfs
til sóknar hlaut 127 atkvæði og þrjá
menn kjörna.
ÞÓRSHAFNAR- OG
SKEGGJASTAÐAHREPPAR
Sigurður Jens efstur Í Sval-
barðshreppi var óbundin kosning.
Íbúar á kjörskrá voru 82 og þar af
greiddu 55 atkvæði. Kosningu hlutu
Sigurður Jens Sverrisson, Ragnar
Skúlason, Hreinn Geirsson, Friðrik
Guðmundsson og Stefán Eggertsson.
SVALBARÐSHREPPUR
Kosningaúrslit 2006
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Menningarnótt verður formlega sett
um leið og skemmtiskokk Reykja-
víkurmaraþonsins kl. 11.00 þann 19.
ágúst í Lækjargötunni. Menningar-
nótt og Reykjavíkurmaraþon eru
orðnir stærsti viðburður landsins og
er gert ráð fyrir að allt að hundrað
þúsund manns sæki þessi tvo
viðburði. Það er því ljóst að sann-
kölluð karnivalstemmning verður í
bænum þennan dag.
Allar tegundir listgreina og óheft
hugmyndaauðgi borgarbúa einkennir
dagskrá Menningarnætur. Fjölmörg
fyrirtæki, félög og stofnanir sýna á sér
nýja hlið og standa fyrir metnaðar-
fullri dagskrá, auk þess sem allar
listastofnanir og gallerí í miðborginni
eru galopin með óteljandi viðburðum.
Skráning í Reykjavíkurmaraþonið er í
fullum gangi á heimasíðu maraþon-
sins www.marathon.is og á glitnir.is
Við hvetjum alla sem vettlingi geta
valdið að taka þátt og þeir sem ekki
ætla að hlaupa geta verið í klappliðinu
því ekki veitir af að styðja þá sem ætla
að hlaupa. Eins og undanfarin ár
verða veitt verðlaun fyrir skemmtile-
gasta furðufatabúninginn.
Gera má ráð fyrir einhverjum truflu-
num á umferð í Vesturbæ á meðan
hlauparar fara þar í gegn, sérstaklega
milli 11.10 og 12.00. Reykjavíkur-
maraþon biður akandi og gangandi
vegfarendur að sýna hlaupurum
tillitsemi. Kort af leiðinni er að finna á
marathon.is.
Afar gott samstarf hefur verið milli
Höfuðborgarstofu og þeirra sem
sinna öryggis- og umferðarmálum. Á
Menningarnótt verður starfandi
aðgerðamiðstöð Lögreglunnar í
Reykjavík, Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, Slysa- og bráðavaktar LSH,
Reykjavíkurborgar og fleiri, sem bera
ábyrgð á öryggismálum á Menningar-
nótt. Aðgerðamiðstöð af þessu tagi
mun án vafa efla samskipti allra þeirra
sem koma að umferðar- og
öryggismálum á Menningarnótt og
ekki síður auka öryggi Reykvíkinga og
gesta þeirra þennan dag. Auk þess
mun lögregla og slökkvilið hafa
aðstöðu fyrir viðbragðslið sitt í
Ingólfsstræti við Sölvhólsgötu.
Lögreglan í Reykjavík mun kappkosta
að liðsinna ökumönnum og öðrum
vegfarendum vegna þessa viðburðar
og reyna eftir föngum að sjá til þess að
fólk komist leiðar sinnar úr
miðborginni eftir hefðbundna
dagskrá. Þó er alveg ljóst að vegfaren-
dur verða að undirbúa sig undir
einhverjar umferðartafir.
Fjöldi lögreglumanna verða við
umferðarlöggæslu og samhliða
umferðarstjórnuninni verða umfer-
ðarljós á Sæbraut og
Hringbraut/Miklubraut tekin úr
sambandi þegar formlegri dagskrá
lýkur. Vonast er til að þessi umfer-
ðarstýring liðki vel fyrir allri umferð
og bindur lögreglan miklar vonir við
að ný og endurbætt Hringbraut skili
auknum afköstum á umferðarflæði.
Umferðardeild Lögreglunnar í
Reykjavík mun sinna eftirliti með
lokun gatna í tengslum við áðurnef-
nda viðburði. Fjölmörgum götum
verður lokað, líkt og undanfarin ár,
annars vegar í tengslum við
maraþonið og hins vegar varðandi
Menningarnótt. Útlistun á lokun
gatna verður auglýst síðar og sett á vef
Lögreglunnar í Reykjavík.
Dagskrá Menningarnætur og Reykja-
víkurmaraþonsins er fyrir alla
aldurshópa enda hefur það sýnt sig að
fjölskyldur halda gjarnan hópinn
þennan dag. Mannfjöldinn í
miðborginni verður mikill á
laugardaginn og er umtalverður
viðbúnaður hafður til þess að allt geti
farið vel fram. Dagskránni lýkur með
stórfenglegri flugeldasýningu við
Reykjavíkurhöfn.
Lögreglan í Reykjavík mun kappkosta
að liðsinna ökumönnum og öðrum
vegfarendum vegna þessa viðburðar
og reyna eftir föngum að sjá til þess að
fólk komist leiðar sinnar úr
miðborginni eftir hefðbundna
dagskrá. Þó er alveg ljóst að vegfaren-
dur verða að undirbúa sig undir
einhverjar umferðartafir.
Fjöldi lögreglumanna það verða við
umferðarlöggæslu og samhliða
umferðarstjórnuninni verða um-
ferðarljós á Sæbraut og
Hringbraut/Miklubraut tekin úr
sambandi þegar formlegri dagskrá
lýkur. Vonast er til að þessi umfer-
ðarstýring liðki vel fyrir allri umferð
og bindur lögreglan miklar vonir við
að ný og endurbætt Hringbraut skili
auknum afköstum á umferðarflæði.
Umferðardeild Lögreglunnar í
Reykjavík mun sinna eftirliti með
lokun gatna í tengslum við áðurnef-
nda viðburði. Fjölmörgum götum
verður lokað, líkt og undanfarin ár,
annars vegar í tengslum við
maraþonið og hins vegar varðandi
Menningarnótt. Útlistun á lokun
gatna verður auglýst síðar og sett á vef
Lögreglunnar í Reykjavík.
Dagskrá Menningarnætur og Reykja-
víkurmaraþonsins er fyrir alla
aldurshópa enda hefur það sýnt sig að
fjölskyldur halda gjarnan hópinn
þennan dag. Mannfjöldinn í
miðborginni verður mikill á laugardag-
inn og lýkur dagskránni með stórfeng-
legri flugeldasýningu við Reykja-
víkurhöfn.
Reykjavíkurmaraþon
frábær upphitun fyrir
Menningarnótt
Hlaupahópur
Glitnis vex
og dafnar
Besta leiðin til að undirbúa sig fyrir
Reykjavíkurmaraþon Glitnis er að
skrá sig í hlaupahóp á glitnir.is.
Hlaupahópar hafa verið starfræktir í
allan vetur og verða fram að
maraþoninu. Hlaupahópur Glitnis
hleypur frá styttunni af sjómanninum
á Kirkjusandi þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 17.30. Hlaupahópurinn er
opinn öllum að kostnaðarlausu og eru
allir velkomnir. Að þessu sinni eru
þjálfararnir þrír kraftmiklir og
reyndir kappar sem heita Eymundur,
Stefán Ingi og Þórsteinn. Þjálfararnir
senda út hlaupaáætlun á tölvupósti
tvisvar í viku og ýmsa mola um
gagnsemi hlaupa og hreyfingar
almennt. Í upphafi er farið mjög
rólega af stað til að tryggja að enginn
heltist úr lestinni og mælst til þess að
hlauparar gangi og hlaupi til skiptis
svo að þeir ofkeyri sig ekki. Í
hlaupahópnum færðu leiðsögn mjög
hæfra þjálfara og æfingaáætlun fyrir
hverja viku. Núna er rétti tíminn að
byrja að æfa.
Það verður boðið upp á tvo hópa til að
byrja með: Byrjendahóp fyrir þá sem
eru að stíga sín fyrstu skref í götu-
hlaupum eða þá sem ekki hafa verið
að hlaupa lengi en langar til að geta
hlaupið 10 km í Reykjavíkurmaraþoni
Glitnis seinna í sumar.
Síðan er annar hópur fyrir þá sem
hafa hlaupið áður eða hafa reynslu úr
öðrum íþróttagreinum og langar að
ná betri tíma í 10 km hlaupinu.
Hugsanlega verður þriðji hópurinn
starfræktur fyrir þá sem ætla í hálft
eða heilt maraþon og verður það þá
auglýst síðar.
Umhverfissvið Reykjavíkur lét nýlega
kanna hversu oft Reykvíkingar færu á
stærstu útivistarsvæði borgarinnar og
hvernig þeir notuðu svæðin. Staðirnir
sem spurt var um voru Heiðmörk,
Rauðavatn og Elliðaárdalurinn. Kom í
ljós að tæplega 32% borgarbúa fara
þrisvar eða oftar á ári í Heiðmörkina,
rúmlega 11% fer þrisvar eða oftar á
útvistarsvæðið við Rauðavatn og 45%
borgarbúa fer þrisvar eða oftar á ári í
Elliðaárdalinn. Samkvæmt þessu er
greinilega að Elliðaárdalurinn er
langvinsælasta útivistarsvæði Reykja-
víkur. Einnig kom fram að 30%
borgarbúa koma aldrei í Elliðaár-
dalinn, 33% aldrei í Heiðmörk og 72%
aldrei við Rauðavatn. Auk þess kom í
ljós að íbúar í Árbæ og Grafarholti
sækja þessi útvistarsvæði meira en
íbúar í öðrum hverfum.
Ætla má að 28. þúsund manns fari
mánaðarlega í Heiðmörkina af Stór-
Reykjavíkursvæðinu sem er gríðalega
vinsælt útivistarsvæði sem fólk virðist
sækja óháð búsetu í borginni og aldri.
Íbúar í Grafarholti og Árbæ nota hins
vegar útivistarsvæðið við Rauðavatn
en íbúar í miðborginni, Hlíðum og
Háaleiti minnst.
Maraþonhlaupið sjálft er opið öllum
18 ára og eldri. Hálfmaraþonhlaupið
er opið hlaupurum 16 ára og eldri. 10
km og skemmtiskokkið eru öllum
opin þó er bent á að æskilegt sé að 12
ára og yngri hlaupi 10 km aðeins með
góðum undirbúningi.
Allir þátttakendur fá stuttermabol
þegar þau sækja keppnisgögn í
Laugardalshöllina, föstudaginn 18.
ágúst kl. 12:00 - 21:00. Þátttakendum
er boðið í sund í Reykjavík á
hlaupadaginn og daginn eftir, sunnu-
daginn 20. ágúst í boði ÍTR. Þátttak-
endum er boðið til pastaveislu, í boði
Barilla, föstudaginn 18. ágúst kl.
18:00-21:00 í félagsheimili Félags eldri
borgarara í Reykjavík í Glæsibæ.
Umferðardeild Lögreglunnar í
Reykjavík mun sinna eftirliti með
lokun gatna í tengslum við áðurnef-
nda viðburði. Fjölmörgum götum
verður lokað, líkt og undanfarin ár,
annars vegar í tengslum við
maraþonið og hins vegar varðandi
Færanleg salerni verða nálægt 5km,
12km, 18km, 23km og 34km. Læknar
og hjúkrunarlið verður til reiðu
meðan á hlaupinu stendur og til
aðstoðar er hlauparar koma í mark.
Félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykja-
vík veita aðstoð á hlaupaleiðinni og við
markið. Aðalsamstarfsaðili Reykja-
víkurmaraþonsins er Glitnir.
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
KYNNINGARFUNDUR
Í LAUGARDALSHÖLL
Meðal efnis eru fyrirlestrarar um hlaupaþjálfun og næringarfræði ásamt hlaupa-
greiningu í boði ASICS. Fundurinn hefst í kvöld kl 19:30. Allir velkomnir.
19:30 Kynning á Reykjavíkurmaraþoni Glitnis
– Svava Ásgeirsdóttir ÍBR
19:45 Kynning á hlaupahóp Glitnis
– Stefán Ingi Stefánsson hlaupaþjálfari
20:15 Byrjunarreitur fyrir skokkara
– Gunnar Páll Jóakimsson
íþróttafræðingur
20:30 Næringarfræði fyrir skokkara
– Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur
21:00 Kynning á hlaupaskóm og hlaupagreiningu
– Þröstur Hrafnsson frá ASICS
21:15 Næringarfræði fyrir maraþonhlaupara
– Anna Sigríður Ólafsdóttir
næringarfræðingur
21:30 Kynning á Laugavegshlaupi
– Pétur Helgason og Gunnar Páll
Jóakimsson íþróttafræðingar
Dagskrá:
– um undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon Glitnis
Auglýsing:
Auglýsing: