Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 10
10 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR MOSFELLSBÆR Viðræður um mynd- un meirihluta Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hófust síðdegis í gær. Jónas Sig- urðsson, oddviti Samfylkingarinn- ar, var bjartsýnn á að samkomulag tækist en menn myndu samt taka sér nokkra daga. „Ég býst ekki við neinni niður- stöðu því að við eigum eftir að fara yfir ýmsa þætti,“ sagði Jónas í gær og taldi líklegt að menn myndu afla gagna og undirbúa sig vel þannig að farið yrði yfir málefnasviðið til að byrja með. Fulltrúar flokkanna hittust fyrst á sunnudaginn og ákváðu þá að hefja umræður. Á þeim fundi kom fram að hvorki skilyrði né kröfur hefðu verið settar af hálfu flokk- anna. „Það eru allir þættir uppi á borð- inu til að semja um. Við stöndum frammi fyrir því vali að ráða ópól- itískan bæjarstjóra eða setja fram einhvern pólitískan bæjarstjóra úr þessum hópi. Það er umræða sem á eftir að taka,“ sagði hann. Marteinn Magnússon, oddviti Framsóknarflokksins, sagði að tónninn væri góður en vildi ekki gefa neitt upp um það hvort bæjar- stjórinn ætti að vera pólitískur eða ekki. „Við skorumst ekki undan neinu. Við öxlum þá ábyrgð sem þarf en það á eftir að ræða þetta. Það hefur enginn flokkur sett fram neinar kröfur,“ sagði hann. - ghs UPPÁKLÆDDUR Richard Vigil nefnist þessi maður, sem er af ættum frumbyggja Ameríku. Um helgina fögnuðu indjánar af ættbálkinum Jicarilla Apache árlegri „pow wow“ hátíð á verndarsvæði við Las Vegas. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Viðræður milli Samfylkingar, Framsóknarflokks og vinstri grænna í Mosfellsbæ: Góður tónn í mönnum MÁRITANÍA, AP Herforinginn Ely Ould Mohamed Vall hefur stigið fram fyrir skjöldu og hvatt íbúa Norður-Afríkuríksins Máritaníu til að standa saman gegn þræla- haldi. Þrælahald viðgengst enn í landinu þótt það hafi verið bann- að með lögum í tuttugu og fimm ár. Vall hvatti íbúa landsins til að nýta rétt sinn í komandi kosning- um þar sem kosið verður um stjórnarskrárbreytingar, en gaf að öðru leyti ekki upp neinar frek- ari áætlanir um hvernig hægt væri að uppræta þrælahald í landinu. -khh Þrælahald viðurkennt: Viðgengst í Máritaníu SÖFN Hjónin Kolfinna Bjarnadótt- ir og Hinrik Bjarnason í Reykja- vík hafa fært Víkinni-Sjóminja- safni í Reykjavík minjasafn sitt að gjöf. Flestir gripirnir hafa þegar verið afhentir safninu. Minjasafn Hinriks og Kol- finnu, eins og fyrrverandi eig- endur þess kalla safnið, hefur að geyma 680 gripi sem tengjast æskuheimili þeirra, ættfólki og umhverfi í Austur-Húnavatns- sýslu og Árnessýslu auk atvinnu og mannlífi í Blöndudal, Stokks- eyri og úr Flóanum í Árnessýslu. Flestir gripirnir eru frá miðri nítjándu öld og fram á fimmta áratug tuttugustu aldar en all- margir eru þó eldri. Safnið er ekki flokkað sérstaklega heldur samanstendur það af munum sem Kolfinnu og Hinriki hafa þótt áhugaverðir. Sigrún Magnúsdóttir, for- stöðumaður Víkurinnar-Sjó- minjasafns Reykjavíkur, segir að um stórkostlega gjöf sé að ræða. „Okkur finnst það mikill heiður að geta gert sumaropnun okkar veglega úr garði með því að sýna muni þessara hjóna. Sýningin heitir Úr ranni forfeðranna og er alfarið byggð á þeim munum sem þessi heiðurshjón gefa safninu nú.“ Sýningin er að sögn Sigrún- ar lýsandi fyrir samfélag liðinna tíma og þá horfnu menningu sem einkenndi Ísland áður, ekki síst verkmenningu. - shá Víkin-Sjóminjasafn Reykjavíkur bætir safnkost sinn: Safninu færð höfðingleg gjöf MOSFELLSBÆR Miklar líkur eru á meirihluta Samfylkingar, VG og Framsóknar. KOSNINGAR M-listinn Xmotor stend- ur með pálmann í höndunum í nýju sveitarfélagi Þórshafnar- og Skeggjastaða- hrepps eftir kosningar á laugardag. List- inn fékk einn mann kjörinn en K-listi og O-listi þrjá menn hvor. Þórir Jóns- son, einn þriggja bræðra á listan- um, segir nafnið þannig tilkomið að á honum séu mótoristar af ýmsu tagi. Hann segir viðræður við O- lista þegar hafnar. Skólamál og þjónusta við íbúa séu forgangsmál. Þórir býst við að Björn Ingimars- son sveitarstjóri starfi áfram. - ssal Óvissa á Þórshöfn: M-listi Xmotor í lykilaðstöðu BJÖRN INGIMARSSON FRÁ SÝNINGUNNI Hjónin Kolfinna Bjarnadóttir og Hinrik Bjarnason hafa gefið minjasafn sitt sem telur 680 gripi frá nítjándu og tuttugustu öld. Munaði fimm atkvæðum Í Grímsnes- og Grafningshreppi voru 271 á kjörskrá og þar af greiddu 223 atkvæði. Sjö seðlar voru auðir og ógildir. C-listi lýðræðissinna hlaut 109 atkvæði og tvo menn kjörna og K-listi óháðra kjósenda hlaut 114 atkvæði og þrjá menn kjörna. Meirihluti C-lista frá 2002 er þar með fallinn. GRÍMSNES OG GRAFNINGUR Meirihlutinn hélt velli Í Hrunamannahreppi voru 479 á kjörskrá og þar af greiddu 382 atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru 21. Á-listi hlaut 154 atkvæði og tvo menn kjörna og H-listi, Listi samstarfshóps um sveitarstjórnarkosningar hlaut 228 atkvæði og þrjá menn kjörna. H-listinn heldur þar með meirihlutanum frá kosningunum 2002. HRUNAMANNA- HREPPUR Helgi Steinsson efstur Í Hörgárbyggð var óbundin kosning. Íbúar á kjörskrá voru 287 og þar af greiddi 181 atkvæði. Kosningu hlutu Helgi B. Steinsson, Birna Jóhannesdóttir, Árni Arnsteinsson, Jóhanna María Oddsdóttir og Guðný Fjóla Árnmarsdóttir. HÖRGÁRBYGGÐ Vilja sameiningu Samhliða sveitar- stjórnarkosningunum á laugardag fór fram könnun meðal íbúa í Arnarnes- hreppi og Hörgárbyggð hvort þeir væru hlynntir sameiningu sveitarfélag- anna. Niðurstaða könnunarinnar var sú að 126 íbúar eru hlynntir samein- ingu og 26 eru henni andvígir. KOSNINGAR Meirihlutinn féll Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi voru 357 á kjörskrá og þar af greiddu 315 atkvæði. Sex seðlar voru auðir og ógildir. A-listi framfarasinna hlaut 117 atkvæði og tvo menn kjörna, E-listi Einingar hlaut 83 atkvæði og einn mann kjörinn og L-listi um farsæla sameiningu hlaut 115 atkvæði og tvo menn kjörna. Meirihluti L-lista frá kosningunum 2002 er þar með fallinn. SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHREPPUR VESTURBYGGÐ Meirihlutinn féll Í Vesturbyggð voru 686 á kjörskrá og þar af greiddu 597 atkvæði. Auðir og ógildir seðlar voru 29. D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut 252 atkvæði og þrjá menn kjörna og S-listi Samfylkingar hlaut 345 atkvæði og fjóra menn kjörna. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og óháðra frá 2002 féll þar með. Meirihlutinn hélt velli Á Vopnafirði voru 532 á kjörskrá og þar af greiddi 471 atkvæði. Tuttugu seðlar voru auðir og ógildir. K-listi félagshyggjufólks hlaut 257 atkvæði og fjóra menn kjörna og N-listi nýs afls hlaut 214 atkvæði og þrjá menn kjörna. K-listi heldur meirihlutanum frá kosningunum 2002. VOPNAFJÖRÐUR M-listi í lykilaðstöðu Í nýju sameinuðu sveitarfélagi Þórshafnar- og Skeggjastaðahreppa voru 376 á kjörskrá og þar af greiddu 304 atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru fjórtán. K-listi komandi framtíðar hlaut 123 atkvæði og þrjá menn kjörna, M-listi Xmotor hlaut 54 atkvæði og einn mann kjörinn og O-listi samstarfs til sóknar hlaut 127 atkvæði og þrjá menn kjörna. ÞÓRSHAFNAR- OG SKEGGJASTAÐAHREPPAR Sigurður Jens efstur Í Sval- barðshreppi var óbundin kosning. Íbúar á kjörskrá voru 82 og þar af greiddu 55 atkvæði. Kosningu hlutu Sigurður Jens Sverrisson, Ragnar Skúlason, Hreinn Geirsson, Friðrik Guðmundsson og Stefán Eggertsson. SVALBARÐSHREPPUR Kosningaúrslit 2006 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Menningarnótt verður formlega sett um leið og skemmtiskokk Reykja- víkurmaraþonsins kl. 11.00 þann 19. ágúst í Lækjargötunni. Menningar- nótt og Reykjavíkurmaraþon eru orðnir stærsti viðburður landsins og er gert ráð fyrir að allt að hundrað þúsund manns sæki þessi tvo viðburði. Það er því ljóst að sann- kölluð karnivalstemmning verður í bænum þennan dag. Allar tegundir listgreina og óheft hugmyndaauðgi borgarbúa einkennir dagskrá Menningarnætur. Fjölmörg fyrirtæki, félög og stofnanir sýna á sér nýja hlið og standa fyrir metnaðar- fullri dagskrá, auk þess sem allar listastofnanir og gallerí í miðborginni eru galopin með óteljandi viðburðum. Skráning í Reykjavíkurmaraþonið er í fullum gangi á heimasíðu maraþon- sins www.marathon.is og á glitnir.is Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að taka þátt og þeir sem ekki ætla að hlaupa geta verið í klappliðinu því ekki veitir af að styðja þá sem ætla að hlaupa. Eins og undanfarin ár verða veitt verðlaun fyrir skemmtile- gasta furðufatabúninginn. Gera má ráð fyrir einhverjum truflu- num á umferð í Vesturbæ á meðan hlauparar fara þar í gegn, sérstaklega milli 11.10 og 12.00. Reykjavíkur- maraþon biður akandi og gangandi vegfarendur að sýna hlaupurum tillitsemi. Kort af leiðinni er að finna á marathon.is. Afar gott samstarf hefur verið milli Höfuðborgarstofu og þeirra sem sinna öryggis- og umferðarmálum. Á Menningarnótt verður starfandi aðgerðamiðstöð Lögreglunnar í Reykjavík, Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins, Slysa- og bráðavaktar LSH, Reykjavíkurborgar og fleiri, sem bera ábyrgð á öryggismálum á Menningar- nótt. Aðgerðamiðstöð af þessu tagi mun án vafa efla samskipti allra þeirra sem koma að umferðar- og öryggismálum á Menningarnótt og ekki síður auka öryggi Reykvíkinga og gesta þeirra þennan dag. Auk þess mun lögregla og slökkvilið hafa aðstöðu fyrir viðbragðslið sitt í Ingólfsstræti við Sölvhólsgötu. Lögreglan í Reykjavík mun kappkosta að liðsinna ökumönnum og öðrum vegfarendum vegna þessa viðburðar og reyna eftir föngum að sjá til þess að fólk komist leiðar sinnar úr miðborginni eftir hefðbundna dagskrá. Þó er alveg ljóst að vegfaren- dur verða að undirbúa sig undir einhverjar umferðartafir. Fjöldi lögreglumanna verða við umferðarlöggæslu og samhliða umferðarstjórnuninni verða umfer- ðarljós á Sæbraut og Hringbraut/Miklubraut tekin úr sambandi þegar formlegri dagskrá lýkur. Vonast er til að þessi umfer- ðarstýring liðki vel fyrir allri umferð og bindur lögreglan miklar vonir við að ný og endurbætt Hringbraut skili auknum afköstum á umferðarflæði. Umferðardeild Lögreglunnar í Reykjavík mun sinna eftirliti með lokun gatna í tengslum við áðurnef- nda viðburði. Fjölmörgum götum verður lokað, líkt og undanfarin ár, annars vegar í tengslum við maraþonið og hins vegar varðandi Menningarnótt. Útlistun á lokun gatna verður auglýst síðar og sett á vef Lögreglunnar í Reykjavík. Dagskrá Menningarnætur og Reykja- víkurmaraþonsins er fyrir alla aldurshópa enda hefur það sýnt sig að fjölskyldur halda gjarnan hópinn þennan dag. Mannfjöldinn í miðborginni verður mikill á laugardaginn og er umtalverður viðbúnaður hafður til þess að allt geti farið vel fram. Dagskránni lýkur með stórfenglegri flugeldasýningu við Reykjavíkurhöfn. Lögreglan í Reykjavík mun kappkosta að liðsinna ökumönnum og öðrum vegfarendum vegna þessa viðburðar og reyna eftir föngum að sjá til þess að fólk komist leiðar sinnar úr miðborginni eftir hefðbundna dagskrá. Þó er alveg ljóst að vegfaren- dur verða að undirbúa sig undir einhverjar umferðartafir. Fjöldi lögreglumanna það verða við umferðarlöggæslu og samhliða umferðarstjórnuninni verða um- ferðarljós á Sæbraut og Hringbraut/Miklubraut tekin úr sambandi þegar formlegri dagskrá lýkur. Vonast er til að þessi umfer- ðarstýring liðki vel fyrir allri umferð og bindur lögreglan miklar vonir við að ný og endurbætt Hringbraut skili auknum afköstum á umferðarflæði. Umferðardeild Lögreglunnar í Reykjavík mun sinna eftirliti með lokun gatna í tengslum við áðurnef- nda viðburði. Fjölmörgum götum verður lokað, líkt og undanfarin ár, annars vegar í tengslum við maraþonið og hins vegar varðandi Menningarnótt. Útlistun á lokun gatna verður auglýst síðar og sett á vef Lögreglunnar í Reykjavík. Dagskrá Menningarnætur og Reykja- víkurmaraþonsins er fyrir alla aldurshópa enda hefur það sýnt sig að fjölskyldur halda gjarnan hópinn þennan dag. Mannfjöldinn í miðborginni verður mikill á laugardag- inn og lýkur dagskránni með stórfeng- legri flugeldasýningu við Reykja- víkurhöfn. Reykjavíkurmaraþon frábær upphitun fyrir Menningarnótt Hlaupahópur Glitnis vex og dafnar Besta leiðin til að undirbúa sig fyrir Reykjavíkurmaraþon Glitnis er að skrá sig í hlaupahóp á glitnir.is. Hlaupahópar hafa verið starfræktir í allan vetur og verða fram að maraþoninu. Hlaupahópur Glitnis hleypur frá styttunni af sjómanninum á Kirkjusandi þriðjudaga og fimmtu- daga kl. 17.30. Hlaupahópurinn er opinn öllum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir. Að þessu sinni eru þjálfararnir þrír kraftmiklir og reyndir kappar sem heita Eymundur, Stefán Ingi og Þórsteinn. Þjálfararnir senda út hlaupaáætlun á tölvupósti tvisvar í viku og ýmsa mola um gagnsemi hlaupa og hreyfingar almennt. Í upphafi er farið mjög rólega af stað til að tryggja að enginn heltist úr lestinni og mælst til þess að hlauparar gangi og hlaupi til skiptis svo að þeir ofkeyri sig ekki. Í hlaupahópnum færðu leiðsögn mjög hæfra þjálfara og æfingaáætlun fyrir hverja viku. Núna er rétti tíminn að byrja að æfa. Það verður boðið upp á tvo hópa til að byrja með: Byrjendahóp fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í götu- hlaupum eða þá sem ekki hafa verið að hlaupa lengi en langar til að geta hlaupið 10 km í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis seinna í sumar. Síðan er annar hópur fyrir þá sem hafa hlaupið áður eða hafa reynslu úr öðrum íþróttagreinum og langar að ná betri tíma í 10 km hlaupinu. Hugsanlega verður þriðji hópurinn starfræktur fyrir þá sem ætla í hálft eða heilt maraþon og verður það þá auglýst síðar. Umhverfissvið Reykjavíkur lét nýlega kanna hversu oft Reykvíkingar færu á stærstu útivistarsvæði borgarinnar og hvernig þeir notuðu svæðin. Staðirnir sem spurt var um voru Heiðmörk, Rauðavatn og Elliðaárdalurinn. Kom í ljós að tæplega 32% borgarbúa fara þrisvar eða oftar á ári í Heiðmörkina, rúmlega 11% fer þrisvar eða oftar á útvistarsvæðið við Rauðavatn og 45% borgarbúa fer þrisvar eða oftar á ári í Elliðaárdalinn. Samkvæmt þessu er greinilega að Elliðaárdalurinn er langvinsælasta útivistarsvæði Reykja- víkur. Einnig kom fram að 30% borgarbúa koma aldrei í Elliðaár- dalinn, 33% aldrei í Heiðmörk og 72% aldrei við Rauðavatn. Auk þess kom í ljós að íbúar í Árbæ og Grafarholti sækja þessi útvistarsvæði meira en íbúar í öðrum hverfum. Ætla má að 28. þúsund manns fari mánaðarlega í Heiðmörkina af Stór- Reykjavíkursvæðinu sem er gríðalega vinsælt útivistarsvæði sem fólk virðist sækja óháð búsetu í borginni og aldri. Íbúar í Grafarholti og Árbæ nota hins vegar útivistarsvæðið við Rauðavatn en íbúar í miðborginni, Hlíðum og Háaleiti minnst. Maraþonhlaupið sjálft er opið öllum 18 ára og eldri. Hálfmaraþonhlaupið er opið hlaupurum 16 ára og eldri. 10 km og skemmtiskokkið eru öllum opin þó er bent á að æskilegt sé að 12 ára og yngri hlaupi 10 km aðeins með góðum undirbúningi. Allir þátttakendur fá stuttermabol þegar þau sækja keppnisgögn í Laugardalshöllina, föstudaginn 18. ágúst kl. 12:00 - 21:00. Þátttakendum er boðið í sund í Reykjavík á hlaupadaginn og daginn eftir, sunnu- daginn 20. ágúst í boði ÍTR. Þátttak- endum er boðið til pastaveislu, í boði Barilla, föstudaginn 18. ágúst kl. 18:00-21:00 í félagsheimili Félags eldri borgarara í Reykjavík í Glæsibæ. Umferðardeild Lögreglunnar í Reykjavík mun sinna eftirliti með lokun gatna í tengslum við áðurnef- nda viðburði. Fjölmörgum götum verður lokað, líkt og undanfarin ár, annars vegar í tengslum við maraþonið og hins vegar varðandi Færanleg salerni verða nálægt 5km, 12km, 18km, 23km og 34km. Læknar og hjúkrunarlið verður til reiðu meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar er hlauparar koma í mark. Félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykja- vík veita aðstoð á hlaupaleiðinni og við markið. Aðalsamstarfsaðili Reykja- víkurmaraþonsins er Glitnir. MARAÞON REYKJAVÍKUR GLITNIS 19. ÁGÚST KYNNINGARFUNDUR Í LAUGARDALSHÖLL Meðal efnis eru fyrirlestrarar um hlaupaþjálfun og næringarfræði ásamt hlaupa- greiningu í boði ASICS. Fundurinn hefst í kvöld kl 19:30. Allir velkomnir. 19:30 Kynning á Reykjavíkurmaraþoni Glitnis – Svava Ásgeirsdóttir ÍBR 19:45 Kynning á hlaupahóp Glitnis – Stefán Ingi Stefánsson hlaupaþjálfari 20:15 Byrjunarreitur fyrir skokkara – Gunnar Páll Jóakimsson íþróttafræðingur 20:30 Næringarfræði fyrir skokkara – Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur 21:00 Kynning á hlaupaskóm og hlaupagreiningu – Þröstur Hrafnsson frá ASICS 21:15 Næringarfræði fyrir maraþonhlaupara – Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur 21:30 Kynning á Laugavegshlaupi – Pétur Helgason og Gunnar Páll Jóakimsson íþróttafræðingar Dagskrá: – um undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon Glitnis Auglýsing: Auglýsing:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.