Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 11
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Menningarnótt verður formlega sett
um leið og skemmtiskokk Reykja-
víkurmaraþonsins kl. 11.00 þann 19.
ágúst í Lækjargötunni. Menningar-
nótt og Reykjavíkurmaraþon eru
orðnir stærsti viðburður landsins og
er gert ráð fyrir að allt að hundrað
þúsund manns sæki þessi tvo
viðburði. Það er því ljóst að sann-
kölluð karnivalstemmning verður í
bænum þennan dag.
Allar tegundir listgreina og óheft
hugmyndaauðgi borgarbúa einkennir
dagskrá Menningarnætur. Fjölmörg
fyrirtæki, félög og stofnanir sýna á sér
nýja hlið og standa fyrir metnaðar-
fullri dagskrá, auk þess sem allar
listastofnanir og gallerí í miðborginni
eru galopin með óteljandi viðburðum.
Skráning í Reykjavíkurmaraþonið er í
fullum gangi á heimasíðu maraþon-
sins www.marathon.is og á glitnir.is
Við hvetjum alla sem vettlingi geta
valdið að taka þátt og þeir sem ekki
ætla að hlaupa geta verið í klappliðinu
því ekki veitir af að styðja þá sem ætla
að hlaupa. Eins og undanfarin ár
verða veitt verðlaun fyrir skemmtile-
gasta furðufatabúninginn.
Gera má ráð fyrir einhverjum truflu-
num á umferð í Vesturbæ á meðan
hlauparar fara þar í gegn, sérstaklega
milli 11.10 og 12.00. Reykjavíkur-
maraþon biður akandi og gangandi
vegfarendur að sýna hlaupurum
tillitsemi. Kort af leiðinni er að finna á
marathon.is.
Afar gott samstarf hefur verið milli
Höfuðborgarstofu og þeirra sem
sinna öryggis- og umferðarmálum. Á
Menningarnótt verður starfandi
aðgerðamiðstöð Lögreglunnar í
Reykjavík, Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, Slysa- og bráðavaktar LSH,
Reykjavíkurborgar og fleiri, sem bera
ábyrgð á öryggismálum á Menningar-
nótt. Aðgerðamiðstöð af þessu tagi
mun án vafa efla samskipti allra þeirra
sem koma að umferðar- og
öryggismálum á Menningarnótt og
ekki síður auka öryggi Reykvíkinga og
gesta þeirra þennan dag. Auk þess
mun lögregla og slökkvilið hafa
aðstöðu fyrir viðbragðslið sitt í
Ingólfsstræti við Sölvhólsgötu.
Lögreglan í Reykjavík mun kappkosta
að liðsinna ökumönnum og öðrum
vegfarendum vegna þessa viðburðar
og reyna eftir föngum að sjá til þess að
fólk komist leiðar sinnar úr
miðborginni eftir hefðbundna
dagskrá. Þó er alveg ljóst að vegfaren-
dur verða að undirbúa sig undir
einhverjar umferðartafir.
Fjöldi lögreglumanna verða við
umferðarlöggæslu og samhliða
umferðarstjórnuninni verða umfer-
ðarljós á Sæbraut og
Hringbraut/Miklubraut tekin úr
sambandi þegar formlegri dagskrá
lýkur. Vonast er til að þessi umfer-
ðarstýring liðki vel fyrir allri umferð
og bindur lögreglan miklar vonir við
að ný og endurbætt Hringbraut skili
auknum afköstum á umferðarflæði.
Umferðardeild Lögreglunnar í
Reykjavík mun sinna eftirliti með
lokun gatna í tengslum við áðurnef-
nda viðburði. Fjölmörgum götum
verður lokað, líkt og undanfarin ár,
annars vegar í tengslum við
maraþonið og hins vegar varðandi
Menningarnótt. Útlistun á lokun
gatna verður auglýst síðar og sett á vef
Lögreglunnar í Reykjavík.
Dagskrá Menningarnætur og Reykja-
víkurmaraþonsins er fyrir alla
aldurshópa enda hefur það sýnt sig að
fjölskyldur halda gjarnan hópinn
þennan dag. Mannfjöldinn í
miðborginni verður mikill á
laugardaginn og er umtalverður
viðbúnaður hafður til þess að allt geti
farið vel fram. Dagskránni lýkur með
stórfenglegri flugeldasýningu við
Reykjavíkurhöfn.
Lögreglan í Reykjavík mun kappkosta
að liðsinna ökumönnum og öðrum
vegfarendum vegna þessa viðburðar
og reyna eftir föngum að sjá til þess að
fólk komist leiðar sinnar úr
miðborginni eftir hefðbundna
dagskrá. Þó er alveg ljóst að vegfaren-
dur verða að undirbúa sig undir
einhverjar umferðartafir.
Fjöldi lögreglumanna það verða við
umferðarlöggæslu og samhliða
umferðarstjórnuninni verða um-
ferðarljós á Sæbraut og
Hringbraut/Miklubraut tekin úr
sambandi þegar formlegri dagskrá
lýkur. Vonast er til að þessi umfer-
ðarstýring liðki vel fyrir allri umferð
og bindur lögreglan miklar vonir við
að ný og endurbætt Hringbraut skili
auknum afköstum á umferðarflæði.
Umferðardeild Lögreglunnar í
Reykjavík mun sinna eftirliti með
lokun gatna í tengslum við áðurnef-
nda viðburði. Fjölmörgum götum
verður lokað, líkt og undanfarin ár,
annars vegar í tengslum við
maraþonið og hins vegar varðandi
Menningarnótt. Útlistun á lokun
gatna verður auglýst síðar og sett á vef
Lögreglunnar í Reykjavík.
Dagskrá Menningarnætur og Reykja-
víkurmaraþonsins er fyrir alla
aldurshópa enda hefur það sýnt sig að
fjölskyldur halda gjarnan hópinn
þennan dag. Mannfjöldinn í
miðborginni verður mikill á laugardag-
inn og lýkur dagskránni með stórfeng-
legri flugeldasýningu við Reykja-
víkurhöfn.
Reykjavíkurmaraþon
frábær upphitun fyrir
Menningarnótt
Hlaupahópur
Glitnis vex
og dafnar
Besta leiðin til að undirbúa sig fyrir
Reykjavíkurmaraþon Glitnis er að
skrá sig í hlaupahóp á glitnir.is.
Hlaupahópar hafa verið starfræktir í
allan vetur og verða fram að
maraþoninu. Hlaupahópur Glitnis
hleypur frá styttunni af sjómanninum
á Kirkjusandi þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 17.30. Hlaupahópurinn er
opinn öllum að kostnaðarlausu og eru
allir velkomnir. Að þessu sinni eru
þjálfararnir þrír kraftmiklir og
reyndir kappar sem heita Eymundur,
Stefán Ingi og Þórsteinn. Þjálfararnir
senda út hlaupaáætlun á tölvupósti
tvisvar í viku og ýmsa mola um
gagnsemi hlaupa og hreyfingar
almennt. Í upphafi er farið mjög
rólega af stað til að tryggja að enginn
heltist úr lestinni og mælst til þess að
hlauparar gangi og hlaupi til skiptis
svo að þeir ofkeyri sig ekki. Í
hlaupahópnum færðu leiðsögn mjög
hæfra þjálfara og æfingaáætlun fyrir
hverja viku. Núna er rétti tíminn að
byrja að æfa.
Það verður boðið upp á tvo hópa til að
byrja með: Byrjendahóp fyrir þá sem
eru að stíga sín fyrstu skref í götu-
hlaupum eða þá sem ekki hafa verið
að hlaupa lengi en langar til að geta
hlaupið 10 km í Reykjavíkurmaraþoni
Glitnis seinna í sumar.
Síðan er annar hópur fyrir þá sem
hafa hlaupið áður eða hafa reynslu úr
öðrum íþróttagreinum og langar að
ná betri tíma í 10 km hlaupinu.
Hugsanlega verður þriðji hópurinn
starfræktur fyrir þá sem ætla í hálft
eða heilt maraþon og verður það þá
auglýst síðar.
Umhverfissvið Reykjavíkur lét nýlega
kanna hversu oft Reykvíkingar færu á
stærstu útivistarsvæði borgarinnar og
hvernig þeir notuðu svæðin. Staðirnir
sem spurt var um voru Heiðmörk,
Rauðavatn og Elliðaárdalurinn. Kom í
ljós að tæplega 32% borgarbúa fara
þrisvar eða oftar á ári í Heiðmörkina,
rúmlega 11% fer þrisvar eða oftar á
útvistarsvæðið við Rauðavatn og 45%
borgarbúa fer þrisvar eða oftar á ári í
Elliðaárdalinn. Samkvæmt þessu er
greinilega að Elliðaárdalurinn er
langvinsælasta útivistarsvæði Reykja-
víkur. Einnig kom fram að 30%
borgarbúa koma aldrei í Elliðaár-
dalinn, 33% aldrei í Heiðmörk og 72%
aldrei við Rauðavatn. Auk þess kom í
ljós að íbúar í Árbæ og Grafarholti
sækja þessi útvistarsvæði meira en
íbúar í öðrum hverfum.
Ætla má að 28. þúsund manns fari
mánaðarlega í Heiðmörkina af Stór-
Reykjavíkursvæðinu sem er gríðalega
vinsælt útivistarsvæði sem fólk virðist
sækja óháð búsetu í borginni og aldri.
Íbúar í Grafarholti og Árbæ nota hins
vegar útivistarsvæðið við Rauðavatn
en íbúar í miðborginni, Hlíðum og
Háaleiti minnst.
Maraþonhlaupið sjálft er opið öllum
18 ára og eldri. Hálfmaraþonhlaupið
er opið hlaupurum 16 ára og eldri. 10
km og skemmtiskokkið eru öllum
opin þó er bent á að æskilegt sé að 12
ára og yngri hlaupi 10 km aðeins með
góðum undirbúningi.
Allir þátttakendur fá stuttermabol
þegar þau sækja keppnisgögn í
Laugardalshöllina, föstudaginn 18.
ágúst kl. 12:00 - 21:00. Þátttakendum
er boðið í sund í Reykjavík á
hlaupadaginn og daginn eftir, sunnu-
daginn 20. ágúst í boði ÍTR. Þátttak-
endum er boðið til pastaveislu, í boði
Barilla, föstudaginn 18. ágúst kl.
18:00-21:00 í félagsheimili Félags eldri
borgarara í Reykjavík í Glæsibæ.
Umferðardeild Lögreglunnar í
Reykjavík mun sinna eftirliti með
lokun gatna í tengslum við áðurnef-
nda viðburði. Fjölmörgum götum
verður lokað, líkt og undanfarin ár,
annars vegar í tengslum við
maraþonið og hins vegar varðandi
Færanleg salerni verða nálægt 5km,
12km, 18km, 23km og 34km. Læknar
og hjúkrunarlið verður til reiðu
meðan á hlaupinu stendur og til
aðstoðar er hlauparar koma í mark.
Félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykja-
vík veita aðstoð á hlaupaleiðinni og við
markið. Aðalsamstarfsaðili Reykja-
víkurmaraþonsins er Glitnir.
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
KYNNINGARFUNDUR
Í LAUGARDALSHÖLL
Meðal efnis eru fyrirlestrarar um hlaupaþjálfun og næringarfræði ásamt hlaupa-
greiningu í boði ASICS. Fundurinn hefst í kvöld kl 19:30. Allir velkomnir.
19:30 Kynning á Reykjavíkurmaraþoni Glitnis
– Svava Ásgeirsdóttir ÍBR
19:45 Kynning á hlaupahóp Glitnis
– Stefán Ingi Stefánsson hlaupaþjálfari
20:15 Byrjunarreitur fyrir skokkara
– Gunnar Páll Jóakimsson
íþróttafræðingur
20:30 Næringarfræði fyrir skokkara
– Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur
21:00 Kynning á hlaupaskóm og hlaupagreiningu
– Þröstur Hrafnsson frá ASICS
21:15 Næringarfræði fyrir maraþonhlaupara
– Anna Sigríður Ólafsdóttir
næringarfræðingur
21:30 Kynning á Laugavegshlaupi
– Pétur Helgason og Gunnar Páll
Jóakimsson íþróttafræðingar
Dagskrá:
– um undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon Glitnis
Auglýsing:
Auglýsing: