Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 16
30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR16
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Skipting kynja í stjórnum Alþýðusambands Íslands
93
Fyrirhugaðar áætlanir um byggingu
allt að sjö hundruð sumarhúsa við
Úlfljótsvatn í náinni framtíð hafa vakið
talsverð viðbrögð enda einsdæmi að
skipulögð sé svo stór byggð sumarhúsa
á einum og sama staðnum. Rök Orku-
veitu Reykjavíkur, sem fékk Fasteigna-
félagið Klasa til að skipuleggja byggð-
ina, eru að þar eigi fyrirtækið stórt land
sem engum arði skili og þar sem megin-
hlutverk OR sé að skila hluthöfum
sínum sem mestum arði sé vænlegt að
skipuleggja þar frístundabyggð enda
eftirspurn mikil eftir slíkum svæðum í
nágrenni höfuðborgarinnar.
Rök mótmælenda eru að slík byggð
heilsársbústaða stefni í voða öllu því
sem gerir slíkan stað að náttúruperlu.
Náttúruverndarsjónarmið spili stórt
hlutverk enda ógni byggðin lífríki og
flóru svæðisins. Hafa nokkrir bent á
nauðsyn þess að líta lengra til fram-
tíðar hvað skipulagningu sumarhúsa-
byggða varðar. Annars verði hver ein-
asta landspilda í nágrenni borgarinnar
undirlögð bústöðum innan ekki langs
tíma. Þar með sé að eilífu glatað tæki-
færið til að varðveita óspillta náttúru
fyrir næstu kynslóðir borgarbúa án
þess að fara langar leiðir.
Máli sínu til stuðnings benda mót-
mælendur á næsta óhefta fjölgun
sumarhúsa á vinsælustu svæðunum; í
Borgarfirði og Hvalfirði, í Grímsnesi
og við Laugarvatn auk sífellt fleiri
bústaða á stöðum þar sem engir voru
áður. Ekkert lát virðist á uppbygging-
unni og eftirspurn fari vaxandi frekar
en hitt. Mál sé því til að líta til framtíðar
áður en það er um seinan.
FBL GREINING: SKIPULAG SUMARHÚSABYGGÐA
Kallað eftir framtíðarsýn
Í lagi að
hrópa húrra
Jafnréttisstofa sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær þar sem því er fagnað
að í nýafstöðnum kosningum hafi
hlutur kynjanna jafnast umtalsvert í
sveitarstjórnum landsins. Eftir sveitar-
stjórnarkosningarnar 2002 var hlutur
kvenna í sveitarstjórnum 31,5 prósent
en er nú 35,9 prósent. Hlutur kvenna
hefur aukist jafnt og þétt frá því 1978
og er nú svo komið að aðeins vantar
herslumuninn að ná 40/60 skiptingu
á landsvísu, segir Jafnréttisstofa.
Er þessi staða sem upp er gefin
þarna eitthvað til að hrópa húrra
fyrir? „Það er allt í lagi að hrópa
húrra. Hlutur kvenna í sveitarstjórnum
er að aukast jafnt og þétt. Það er
samt ekki allt sem sýnist, það vantar
mjög mikið upp á að konur sæki
fram sem leiðtogar og leiði listana í
stærstu bæjarfélögum landsins.“
Þarna má skilja að takmarkið
verði 40/60. Er jafnréttisbaráttufólk
ekki svolítið að gefa upp boltann
með að fullu jafnrétti í þessum
efnum verði aldrei náð og að menn
sætti sig við það?
„Ég held að 40/60 hlutfallið sé
fyrst og fremst hugsað sem áfanga-
sigur, varða á leiðinni að 50/50
hlutfallinu. En sjálfsagt er órökrétt að
tala um fullnaðarsigur þegar kemur
að jafnréttisbaráttunni.“
Hvað er mikilvægast í jafnréttisbar-
áttunni á þessum vettvangi? „Mikil-
vægast núna er að konur einbeiti
sér meira að leiðtogahlutverkinu í
stærstu bæjarfélögum landsins. Kona
er að hætta sem borgarstjóri og kona
er að hætta sem bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ. Þá var kona til skamms tíma
bæjarstjóri í Garðabæ og sömuleiðis
í nokkra mánuði í Kópavogi. Í öllum
stærstu bæjarfélögum landsins eru
það að stærstum hluta karlar sem
leiða listana og eru í brúnni.“
JÓN G. HAUKSSON
Ritstjóri Frjálsrar verslunar.
SPURT & SVARAÐ
JAFNRÉTTI Í STJÓRNMÁLUM
Ef sveitarstjórnarkosning-
ar eru mælikvarði fyrir
alþingiskosningar að ári þarf
Framsóknarflokkur að hugsa
sinn gang. Samfylking dalar
aðeins frá síðustu alþingis-
kosningum. Aðrir flokkar
bæta við sig, en Sjálfstæðis-
flokkur sýnu mest.
Sveitarstjórnarkosningar geta
verið mæling á hvernig flokkarnir
munu standa sig í komandi alþingis-
kosningum sem væntanlega verð-
ur boðað til á næsta ári. Að ýmsu
er þó að hyggja í slíkum saman-
burði. Bæði er það að flokkarnir
bjóða ekki fram í öllum sveitarfé-
lögum, en einnig getur kosninga-
hegðun verið mismunandi eftir
kosningum og eftir því hvaða per-
sónur leiða lista.
Það er helst hægt að bera kjör-
fylgi Sjálfstæðisflokks í sveitar-
stjórnarkosningum saman við kjör-
fylgi flokksins í alþingiskosningum,
þar sem Sjálfstæðisflokkur býður
fram í flestum sveitarstjórnum.
Aðrir flokkar bjóða fram í eigin
nafni í mun færri sveitarfélögum,
og erfitt er að skoða fylgi þeirra
flokka, sem bjóða fram saman í
stórum sveitarfélögum, á lands-
vísu. Þannig getur sameiginlegt
framboð á stærri stöðum eins og á
Ísafirði, Reykjanesbæ og í Fjarða-
byggð haft áhrif á mælingu lands-
fylgis þeirra flokka sem standa að
framboðunum. Þess verður sér-
staklega að gæta þegar fylgi flokk-
anna er skoðað nú í einstökum kjör-
dæmum.
Fylgið á landsvísu
Ef einugis er litið til gildra atkvæða
í þeim 37 sveitarfélögum þar sem
Sjálfstæðisflokkur bauð fram,
hlaut Sjálfstæðisflokkur 42,1 pró-
sent atkvæða. Það er nokkuð meira
en flokkurinn fékk í síðustu alþing-
iskosningum, þegar Sjálfstæðis-
flokkur fékk 33,7 prósent atkvæða.
Samfylkingin fær 29,9 prósent
gildra atkvæða í þeim 17 sveitar-
félögum sem flokkurinn býður
einn fram, en fékk 31,0 prósent
atkvæða á landsvísu í síðustu
alþingiskosningum. Vinstri græn
fengu 12,6 prósent gildra atkvæða
í þeim 13 sveitarfélögum sem
boðið var fram í, en fékk 8,8 pró-
sent atkvæða á landsvísu. Fram-
sóknarflokkur fékk 12,1 prósent
gildra atkvæða nú, í þeim 23 sveit-
arfélögum sem flokkurinn bauð
fram í eigin nafni, en hlaut 17,7
prósent í síðustu alþingiskosning-
um. Frjálslyndi flokkurinn hlaut
9,7 prósent gildra atkvæða í þeim
sex sveitarfélögum sem boðið var
fram í, en fékk 7,4 prósent í síð-
ustu alþingiskosningum. Ef al-
þingis- og sveitarstjórnarkosningar
væru að fullu samanburðarhæfar,
mætti segja að Sjálfstæðisflokkur
hefði bætt mestu fylgi við sig, frá
því fyrir þremur árum. Vinstri
græn og frjálslyndir hafa einnig
bætt nokkru við sig. Samfylking
missir tæpt prósentustig, en
Framsóknarflokkur missir tæp
sex prósentustig.
Bætir við sig í öllum kjördæmum
Sjálfstæðisflokkur bætir við sig
fylgi í öllum kjördæmum, ef
miðað er við síðustu alþingiskosn-
ingar. Mest bætir flokkurinn við
sig í Suðurkjördæmi, þar sem
hann hlaut 29,2 prósent atkvæða í
alþingiskosningum. Nú fær hann
49,1 prósent atkvæða í þeim sveit-
arfélögum sem boðið er fram í.
Miklu skiptir þar gott gengi
flokksins í Reykjanesbæ, Árborg
og Vestmannaeyjum, auk þess
sem Sjálfstæðisflokkur hlaut
hreinan meirihluta í Mýrdals-
hreppi og Rangárþingi ytra.
Minnsta fylgið í sveitarstjórnar-
kosningunum nú hefur flokkurinn
í þeim sveitarfélögum í Norðaust-
urkjördæmi sem flokkurinn bauð
fram í, þar sem Sjálfstæðisflokk-
ur hlaut 31,7 prósent atkvæða.
Það er þó heldur meira en flokk-
urinn hlaut í síðustu alþingiskosn-
ingum, þegar hann fékk 23,5
prósent gildra atkvæða.
Kraginn styrkist
Samfylking bætir einungis við sig
fylgi í Suðvesturkjördæmi, ef
miðað er við síðustu alþingiskosn-
ingar. Þar hlaut Samfylking 40,3
prósent atkvæða í þeim sveitar-
félögum þar sem hún bauð fram í
eigin nafni. Miklu skiptir þar gott
gengi flokksins í Hafnarfirði, en
einnig getur komið til bætt gengi í
Kópavogi frá síðustu sveitarstjórn-
arkosningum. Samfylking bauð þó
ekki fram á Álftanesi, í Garðabæ
og á Seltjarnarnesi. Mestu fylgi
tapar Samfylkingin frá síðustu
alþingiskosningum í Reykjavík.
Meðaltalsfylgi í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður og norður í alþingis-
kosningunum var 34,8 prósent, en
flokkurinn fékk nú 27,4 prósent
atkvæða í Reykjavík.
Eflast alls staðar
Vinstri græn fengu 6,2 prósent í
Suðvesturkjördæmi í síðustu
alþingiskosningum. Í þeim sveit-
arfélögum sem flokkurinn býður
fram nú í kjördæminu fá vinstri
græn hins vegar 11,5 prósent
atkvæða. Líkt og Samfylking buðu
vinstri græn ekki fram á Álfta-
nesi, í Garðabæ og á Seltjarnar-
nesi. Minnst bættu vinstri græn
við fylgi sitt í Suðurkjördæmi og
Norðausturkjördæmi, eða um tvö
prósentustig. Minnst var fylgi
flokksins nú í Suðurkjördæmi, líkt
og í síðustu alþingiskosningum.
Vinstri græn hlutu 6,6 prósent
atkvæða í þeim fjórum sveitarfé-
lögum sem boðið var fram til í
Suðurkjördæmi, en hlaut 4,7 pró-
sent atkvæða kjördæmisins í
alþingiskosningum.
Tapar mestu í Norðausturkjördæmi
Framsóknarflokkur missir fylgi
frá síðustu alþingiskosningum í
öllum kjördæmum nema í Suður-
kjördæmi. Framsóknarflokkurinn
bauð fram í næstflestum sveitar-
félögum, eða 23. Af þeim sveitar-
félögum sem hér liggja til grund-
vallar er það helst á Vesturlandi
og Vestfjörðum sem Framsóknar-
flokkur bauð ekki fram lista í eigin
nafni. Hlutfallslega missir flokk-
urinn mest fylgi frá alþingiskosn-
ingum í Norðausturkjördæmi. 32,8
prósent kusu flokkinn í síðustu
alþingiskosningum, en sveitar-
stjórnarkosningunum nú hlaut
flokkurinn 21,7 prósent atkvæða
þar sem boðið var fram. Sam-
kvæmt því dalar fylgi flokksins
um 11,1 prósentustig frá því fyrir
þremur árum. Í Suðurkjördæmi
bætir flokkurinn hins vegar við
sig tæpum sex prósentustigum
miðað við þingkosningar og fékk
29,3 prósent atkvæða í þeim sveit-
arfélögum sem hann bauð fram í.
Buðu fram í sex sveitarfélögum
Erfiðast er að mæla gengi Frjáls-
lynda flokksins með því að bera
saman sveitarstjórnarkosningar
og alþingiskosningar, þar sem
flokkurinn bauð einungis fram í
sex sveitarfélögum undir eigin
nafni. Ekkert þeirra var í
Suðvesturkjördæmi, né heldur í
Norðausturkjördæmi. Þá bauð
flokkurinn fram lista ásamt öðrum
flokkum á Ísafirði, heimabæ for-
manns flokksins, og ekkert fram-
boð Frjálslynda flokksins var á
Vestfjörðum, en í Norðvesturkjör-
dæmi var útkoma flokksins um
fimm prósentustigum verri nú en
í þingkosningum. Þá hlaut flokk-
urinn 14,2 prósent atkvæða, en
fær nú 8,7 prósent atkvæða í þeim
sveitarfélögum sem boðið var
fram til. Það er því einungis í
Reykjavík sem Frjálslyndi flokk-
urinn bætir við sig fylgi frá síð-
ustu þingkosningum. Meðalfylgið
í Reykjavíkurkjördæmunum var
6,1 prósent þá en nú hlaut flokkur-
inn 10,1 prósent atkvæða. Ítreka
verður þó að þetta byggir á mjög
fáum atkvæðum.
Hugað að þingkosningum
Kosningaúrslit 2006
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Hlutfall af gildum
atkvæðum í þeim
sveitarfélögum þar sem
stjórnmálaflokkarnir
buðu fram lista.
■ Reykjavík, meðaltal
■ Suðvesturkjördæmi
■ Suðurkjördæmi
■ Norðausturkjördæmi
■ Norðvesturkjördæmi
■ Landið, meðaltal42,1%
22
,6
%
6,
3%
21
,7
%
29
,3
%
9,
3%
B
39
,5
%42
,9
%
31
,7
%
49
,1
%
44
,1
%
D
23
,3
%27
,4
%
22
,7
%27
,9
%
40
,3
%
S
9,
1%
10
,1
% 4,
9%
F
6,
6%
11
,5
%
13
,5
%
16
,0
%
12
,5
%
V
29,9%
12
,1
%
9,
7% 12
,6
%
BENTU Á ÞANN SEM AÐ ÞÉR ÞYKIR BESTUR Þó svo að sveitarstjórnarkosningum sé lokið,
er ekki langt í að flokksmenn allra flokka fara að bítast í kosningum í prófkjörum, áður en
farið verður að rífast um fylgið fyrir næstu alþingiskosningar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FRÉTTASKÝRING
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR
svanborg@frettabladid.is550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
1975 1985 1995 2005
7
67
33 33
67
73
27
Heimild: Hagstofa Íslands
karlar
konur