Fréttablaðið - 30.05.2006, Síða 17
KÆRAR ÞAKKIR
Sjálfstæðisflokkurinn þakkar kjósendum um land allt fyrir góðan stuðning
í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Jafnframt er þúsundum flokksmanna,
sjálfboðaliðum og öðrum stuðningsmönnum sem tóku þátt í kosningastarfinu
færðar bestu þakkir.
Frí sólgleraugu
í þínum styrkleika (gler og umgjörð) ef þú
kaupir gleraugu með styrkleika hjá okkur.
Gjáin, Kópavogi • JL-húsið, Hringbraut, Reykjavík • Apótekarinn, Akureyri
Evrópusambandið hóf herferð
gegn gróðurhúsaáhrifum í gær
sem ætlað er að hvetja venjulegt
fólk til að minnka áhrif mann-
fólksins á örar loftlagsbreytingar.
Samkvæmt talsmönnum her-
ferðarinnar þarf oft ekki mikið til,
jafnvel eitthvað svo einfalt sem að
lækka hitann í húsum fólks um
eina gráðu getur skipt máli. Her-
ferðin gengur undir nafninu „Þú
stjórnar loftslagsbreytingum,“ og
gefur fólki 50 einföld ráð, sem
geta dregið úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda út í andrúmsloftið, að
sögn Jose Manuel Barroso, for-
seta framkvæmdastjórnar ESB.
„Lækkið. Slökkvið. Endurvinn-
ið. Gangið. Breytið,“ segir á vegg-
spjöldum sem sett verða upp víðs-
vegar um öll lönd ESB á næstu
dögum.
Ráðin má nálgast á vefsíðunni
www.climatechange.eu.com. Þar
er fólk hvatt til að gera einfalda
hluti svo sem að taka hleðslutæki
úr sambandi, því um 95 prósentum
af rafmagninu sem tækin nota á
meðan ekki er verið að hlaða síma
er eytt til einskis. Jafnframt er
þar að finna margs konar áhuga-
verðar upplýsingar, svo sem að
vatnið sem kemur úr lekum krana
getur mánaðarlega fyllt heilt
baðker.
Talið er að um 16 prósent allra
efna sem stuðla að gróðurhúsa-
áhrifunum í Evrópu komi frá
heimilunum.
- smk
Evrópusambandið hefur nýja herferð:
Evrópubúar gegn
gróðurhúsaáhrifum
HJÓLAÐ Í VINNU Evrópusambandið hefur hvatt Evrópubúa til að koma í veg fyrir losun
gróðurhúsalofttegunda í daglegu lífi sínu. Hjólin sem þessar ítölsku blómarósir notast við
eru til dæmis mun umhverfisvænni en bílar. NORDICPHOTOS/AFP
ÞRIÐJUDAGUR 30. maí 2006