Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 18

Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 18
 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson og Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj öl m ið la kö nn un G al lu p ok tó be r 20 05 . Við fórum úr vinnufötunum og fundum okkur frambærilegri klæðnað, bóndinn setti upp snot- urt bindi, sonurinn fór í sómasam- lega skyrtu og frúin lappaði upp á andlitið á sér. Síðan lögðum við í hann með bros á vör enda hátíð í bæ. Þetta var að sjálfsögðu á laug- ardaginn, kjördag í sveitarstjórn- arkosningum. Kjördagur er hátíðisdagur og ætti jafnvel að vera almennur fánadagur. Fátt er hátíðlegra en að nýta sér þennan grundvallar- rétt til að hafa áhrif á stjórn sveit- arfélaga og ríkis og uppfylla jafn- framt þessa sömu samfélagslegu skyldu. Það er nefnilega bæði rétt- ur okkar og skylda að kjósa. Það er gaman að fara á kjörstað og finna stemninguna sem þar ríkir, hitta glaðbeitta, spariklædda frambjóðendur sem heilsa óvenju hlýlega, finna eftirvæntinguna sem liggur í loftinu og fara svo inn í kjörklefa með atkvæðaseðilinn, treina sér örlítið að setja x-ið á réttan stað og ganga að því loknu út, hnarreistur og ánægður með sitt framlag. Svo þarf að fylgjast grannt með framvindu mála í fréttum, bíða spenntur eftir fyrstu tölum um tíu að kvöldi og vaka fram á miðja nótt til að hlusta, vega og meta. Þetta er skemmti- legt. Það getur svo hver haft sína skoðun á því hvort aðdragandi kosninganna var skemmtilegur og enn frekar hvort niðurstöður voru góðar. Sitt sýnist hverjum í því máli. Hér í Kópavogi voru fram- bjóðendur sýnilegir en ekki ágeng- ir fyrir þessar kosningar, stefnu- mál þeirra nokkuð ljós og kosningabarátta virtist málefna- leg. Frambjóðendur í Reykjavík voru líka vel sýnilegir, sumir svo mjög að mér þóttu þeir næstum ágengir og bý þó í öðru sveitarfé- lagi. Sem kennari saknaði ég reyndar meiri umræðu um skóla- mál, jafnt í höfuðborginni sem mínu heimasveitarfélagi, en þau geta kennarar rætt í það óendan- lega svo sjálfsagt er erfitt að koma til móts við okkur að því leyti. Fleiri mál brenna líka á kjósend- um og þarf engan að undra að skipulagsmál höfuðborgarinnar skyldu vega svo þungt í umræð- unni, í slíkum ólestri sem þau virð- ast vera. Vísari menn en ég spá í niðurstöður. Sveitarstjórnarkosningar eru að mörgu leyti miklu skemmti- legri en alþingiskosningar enda birtist þar mun fjölbreyttari speg- ill. Til dæmis er ekki boðið fram eftir flokkum í öllum sveitarfélög- um. Sums staðar skiptast menn í tvær fylkingar sem geta heitið T- listi eða S-listi eða eitthvað allt annað og aðeins heimamenn vita hvað býr þar að baki. Mér finnst afar áhugavert að fylgjast með niðurstöðum í sveitarfélögum um allt land enda sat ég með kosn- ingavöku Fréttastofu útvarps í eyrunum langt fram á nótt og hlustaði á Valgerði Jóhannsdóttur og Brodda Broddason fréttamenn flytja tíðindi og viðtöl ásamt félög- um sínum, sem voru á spretti langt fram eftir nóttu. Kosningavaka Fréttastofu útvarps hefur mér alltaf fundist áhugaverðust ljósvakamiðla í sveitarstjórnarkosningum enda yfirleitt fljótust með upplýsing- arnar og kemur þeim öllum á framfæri meðan sjónvarpsstöðv- arnar láta lítil sveitarfélög liggja milli hluta. Þessa nótt saknaði ég hins vegar Vestfirðinga og Aust- firðinga í útsendingunni. Karl Eskil Pálsson, fréttamaður á Akur- eyri, stóð sig mjög vel og tók mörg viðtöl við nýkjörna og endur- kjörna sveitarstjórnarmenn í sveitarfélögum um allt Norður- land en lítið sem ekkert heyrðist að austan eða vestan. Ég veit ekki hverju er um að kenna en á svæð- isstöðvunum á Ísafirði og Egils- stöðum, eins og á Akureyri, starfa heimamenn með mikla reynslu og gríðarlega þekkingu á sveitarfé- lögunum í sínum landshluta. Mér þótti því nokkur synd að þessir góðu kraftar skyldu ekki nýtast betur en raun bar vitni. Sveitar- stjórnarkosningar eru einmitt tækifæri til að virkja þá miklu þekkingu sem er fyrir hendi á svæðisstöðvunum og var gert með ágætum frá Akureyri en miður frá hinum. Ég gat heldur ekki séð að svæðisstöðvarnar væru með dagskrá á sunnudegi eftir kjördag eins og væri einmitt upplagt í sveitarstjórnarkosningum. Þetta gengur vonandi betur næst. En þessa kosninganótt stóðu fjölmiðlar sig vel eins og þeirra var von og vísa. Fréttafíklar njóta þess að hlusta á útvarpið og horfa á a.m.k. tvær sjónvarpsstöðvar á milli þess sem hlaupið er í tölvuna og staðan tekin þar. Þegar þessi orð eru slegin í tölvu á sunnudags- kvöldi standa meirihlutaviðræður yfir víða, einhverjir kunna að hafa náð saman nú þegar og flestar sveitarstjórnir væntanlega tilbún- ar til starfa þegar þetta blað kemur í hendur lesenda sinna. Til hamingju með nýju sveitarstjórn- irnar. Vakað eftir úrslitum Í DAG KOSNINGAVAKA INGA RÓSA ÞÓRÐ- ARDÓTTIR Þessa nótt saknaði ég hins veg- ar Vestfirðinga og Austfirðinga í útsendingunni. Hugsa stórt Björn Ingi Hrafnson, oddviti Framsóknar- manna í höfuðborginni, var með slagorð nýs meirihluta á vörunum þegar hann og Vilhjálmur Þ., oddviti Sjálfstæðisflokksins, kynntu í gær samkomulag um nýjan borgarstjórnarmeirihluta. „Hugsa stórt“ gat verið fólgið í því að Alfreð Þorsteinsson og Vilhjálmur Þ. kom- ust að því að heppilegt væri að mynda meirihluta um málefni knattspyrnufé- lagsins Fram á síðasta borgarráðsfundi fráfarandi borgarstjórnar. Foringjar Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks í borginni hafa stýrt því félagi lengst af, Alfreð sjálfur á fyrri hluta síðasta áratugar. Þeir úthlutuðu félaginu 25 milljónir árið 2009. Gamla helmingaskiptaregla stjórnarflokk- anna nær inn í borgarmál- in og fótboltann. Horfa langt „Horfa langt“ vísar til þess að Björn Ingi og Vilhjálmur Þ. höfðu ákveðið þegar úrslit lágu fyrir í kosningunum að starfa saman ef sú staða kæmi upp, sem líklegt var, að Sjálfstæðisflokkurinn næði ekki hreinum meirihluta. Heppilegt væri að hefja gerviviðræður við frjálslynda, enda liti það betur út. Auk þess væri ágætt að rugla forystumenn annarra flokka og fjölmiðla í ríminu. „Flokkar sem hafa bara hagsmuni en ekki hugsjónir tryggja sig áður en þeir slíta viðræðum,“ sagði Ólafur frjálslyndi heldur ókátur eftir að Vilhjálmur sleit viðræðum við hann í gær. Sennilega hafði Vil- hjálmur gert óraunhæfar kröfur um að hann og aðrir frjálslyndir gengju aftur í Sjálfstæðis- flokkinn. Flugvallarmálið var alltaf fyrirsláttur. Byrja starx „Byrja strax“ átti við Björn Inga sjálfan og það uppbyggingarstarf sem hann hefur tekist á hendur og felst í að byggja upp fylgi Framsóknarflokksins í þéttbýlinu. Núverandi skipstjóri hans í brúnni hefur lítið fiskað á þeim miðum. Þótt svo að sá skipstjóri hafi borið Björn Inga á höndum sér er þess skammt að bíða að hann biðji skipstjórann um að taka sér frí því nú sé ekkert undanfæri að fá annan til verka sem fiski meira. Sjálfstæðisflokkurinn ætli að hjálpa til við uppbygging- una með því að gera fram- sóknarmanninn að formanni borgarráðs, fá honum valdið yfir Orkuveitunni og hafa hann bærilega sýnilegan þegar Fram- sóknarflokkurinn lendir í stjórnarandstöðu eftir þingkosningarnar. johannh@frettabladid.isFyrir íbúa Reykjavíkur er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn langskásti kosturinn í stöðunni og því fagnaðarefni út af fyrir sig. Það var mikið ofmat hjá Samfylkingunni í Reykjavík að meta stöðu sína svo sterka að útiloka fyrir kosningar, eitt framboða, samstarf við Sjálfstæðisflokk um stjórn höfuð- borgarinnar. Mikill samhljómur er um margt í áherslum þess- ara flokka í borgarmálunum og ólíkt hefði meirihluti þeirra haft sterkara umboð til verka, með ríflega 70 prósent atkvæða að baki sér, en nýskipaður meirihluti. Athugið í því sambandi að meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks byggir á minnihluta atkvæða þeirra sem kusu til borgarstjórnar; 51 prósent þeirra sem tóku afstöðu vildu aðra flokka við stjórn- völinn en þessa tvo. Óþarfi er hins vegar að velkjast í vafa um að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verður sterkari og samstilltari en ef Frjálslyndi flokkurinn eða Vinstri hreyfing- in - grænt framboð hefði skaffað þann fulltrúa sem upp á vantar hjá Sjálfstæðisflokknum. Himin og haf ber til dæmis í milli sjálfstæðismanna og vinstri grænna í málefnum grunnskólanna. Þeir síðarnefndu sjá engan annan möguleika en opinberan rekstur og telja að stuðningur við einkaskóla sé á kostnað hinna opinberu. Hvern- ig hefði farið um þá stefnu Sjálfstæðisflokks að „foreldrar hafi aukið val um grunnskóla“ í félagsskap við vinstri græna? Hvað skal gera með 45 prósent hlut borgarinnar í Lands- virkjun er annað mál sem framsóknar- og sjálfstæðismenn eru meira samstíga um en hinir flokkarnir tveir. Af hálfu beggja flokka í nýjum meirihluta liggur fyrir að þann hlut skuli selja fáist fyrir hann rétt verð. Og er þar enginn fyrir- vari um að orkufyrirtæki skuli vera í opinberri eigu eins og hjá vinstri grænum og frjálslyndum. Reykvíkingar mega sem sagt búast við að nokkuð góð sátt ríki á nýja stjórnarheimilinu. Vissulega verður spennandi að sjá hversu vel framsóknarmanninum Birni Inga Hrafnssyni lukkast að gera sig gildandi í samstarfinu. Hann vann visst afrek með því að ná kosningu og það var aðdáunarvert að sjá hann vaxa með hverju skrefi í öllu því mótlæti sem hann varð fyrir í aðdraganda kosninganna. Hér með er sett sú ósk honum til handa að vonandi verði ekki of einmanalegt hjá honum í selskap sjálfstæðismannanna sjö. Hitt er svo allt annað mál hversu skynsamleg ráðstöfun það er fyrir Framsóknarflokkinn, þegar litið er til framtíðar, að leiða sjálfstæðismenn til valda í tveimur stærstu sveitarfé- lögum landsins, Reykjavík og Kópavogi, með minnsta mögu- lega tilstyrk á hvorum stað, eða einum fulltrúa. Framsóknarflokkurinn tapaði nánast um land allt í kosn- ingunum um helgina, hvort sem flokkurinn var í vinstra eða hægra samstarfi. Erfitt er að álykta annað en að kjósendur hafi þar verið að refsa honum fyrir langvarandi og heldur vanmáttuga sambúð við sjálfstæðismenn í ríkisstjórn, eða nokkuð svipaðan búskap og Framsóknarflokkurinn er nú að hefja í Reykjavík og Kópavogi. SJÓNARMIÐ JÓN KALDAL Friðsamlegt er yfir nýjum meirihluta í Reykjavík: Skásti kosturinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.