Fréttablaðið - 30.05.2006, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 30. maí 2006 5
Lítill hópur lækna greinir frá
því að konur sem fengu botox
hafi í kjölfarið sýnt bata í bar-
áttunni við þunglyndi.
Rannsóknin var ekki stór en við-
fangsefnin voru einungis tíu tals-
ins. Rannsóknin fór þannig fram
að tíu þunglyndum konum var
gefið botox, sem er vinsælt fegr-
unarlyf sem slakar á vöðvum og
vinnur þannig gegn hrukkum.
Líðan þeirra var könnuð fyrir og
eftir meðferðina.
Lund kvennanna léttist tölu-
vert eftir meðferðina. Hvort sem
það er vegna þess að þær voru
óánægðar með útlit sitt fyrir með-
ferðina eða hvort lyfið hafi ófyrir-
séðar og heppilegar aukaverkanir
í för með sér skal ósagt látið. - tg
Bætir botox
geðheilsuna?
Botox er gríðarlega mikið notað í hinum
vestræna heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
Íslensk fyrirtæki og stofnanir
geta fengið styrk úr Tækni-
þróunarsjóði til þess að vinna
rannsóknarverkefni á sviði
matvælarannsókna í samstarfi
við aðila frá öðrum löndum.
Rannsóknarráð Íslands er að aug-
lýsa eftir umsóknum um styrki til
matvælarannsókna. Íslensk fyrir-
tæki og stofnanir geta sótt um
styrki en skilyrði fyrir styrkveit-
ingu er að verkefnið sé unnið í sam-
starfi við fyrirtæki eða stofnanir
frá Noregi, Finnlandi, Frakklandi,
Spáni eða flæmska hluta Belgíu.
Þorsteinn Brynjar Björnsson hjá
Rannsóknarráði Íslands segir að
þrír aðilar frá þessum ríkjum verði
að koma að hverju verkefni. „Gert
er ráð fyrir að hvert verkefni sé
unnið af að minnsta kosti tveimur
fyrirtækjum frá tveimur löndum,
til dæmis frá Íslandi og Spáni og
síðan einni rannsóknarstofnun sem
getur þá verið frá öðru af þessum
tveimur löndum,“ segir Þorsteinn.
Verkefnin verða unnin á næstu
tveimur árum og og allt að fimm
milljónum evra verður veitt til
þeuirra en áætlaður kostnaður við
hvert þeirra er allt að ein milljón
evra. „Við erum að gera tilraun
með alþjóðlegt samstarf og fáum
styrk frá Evrópusambandinu til
þess að prófa okkur áfram með
þessa sameiginlegu fjármögnun,“
segir Þorsteinn.
Umsóknarfrestur er til 15. sept-
ember næstkomandi en for-
umsóknir má senda inn til 1.
júní. Þorsteinn segir að ef
íslensk fyrirtæki skila inn
góðum hugmyndum geti
Rannsóknarráð komið þeim í
samband við erlend fyrir-
tæki til þess að taka þátt í
verkefnunum með þeim.
„Við erum með ákveðið
kerfi til þess að leiða saman
fyrirtæki í þessum löndum
og erum með sérfræðinga
til þess að aðstoða við
það.“
Styrkir til alþjóðlegra matvælarannsókna
Fæst í heilsubúðum, apótekum,
og heilsuhornum verslana
Einnig hárnæring, hárlitir, o.fl.
DREIFING: JÓN KARLSSON • SÍMI: 5610570
• Með náttúrulegu PH
• Með virkum jurtaextröktum
• Fyrir dökkt og ljóst hár
Naturtint
Íslensk fyrirtæki og stofn-
anir geta sótt um styrki til
matvælarannsókna hjá
Rannsóknarráði Íslands.
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is