Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 34
6
Í Freyjulundi stendur skemmtilegt
einnar hæðar hús með kjallara,
sem hefur gegnt nokkuð marg-
þættu hlutverki í gegnum tíðina.
Hjónin og listamennirnir Aðal-
heiður S. Eysteinsdóttir og Jón
Laxdal festu kaup á húsinu fyrir
nokkrum árum og gerðu á því rót-
tækar breytingar, sem áætlað er að
ljúki á þessu ári.
Aðalheiður segir þau hjónin hafa
verið að leita sér að húsnæði til að
sameina heimili og vinnuaðstöðu.
„Eftir árangurslitla leit á Akur-
eyri fréttum við af þessu húsi. Við
ákváðum að taka það að okkur til
að gera upp, eftir að við komumst
að því að það væri dæmt ónýtt og
bærinn vildi losna við það.“
Aðalheiður segir húsið hafa verið
byggt í þremur áföngum, áður en
þau Jón keyptu það. „Elsti hlutinn er
frá byrjun 20. aldar, einhvern tím-
ann á milli 1910 og 1920,“ útskýr-
ir hún. „Síðan var tvisvar sinnum
bætt við húsið fram til ársins 1960,
þar sem þurfti að laga það að nokk-
uð ólíkri starfsemi. Fyrst voru hér
hreppstjórnarskrifstofur, síðan var
húsnæðinu breytt í skóla og loks
starfaði félagsheimili í húsinu áður
en við tókum við því.“
„Húsið gekk síðan í gegnum
fjórða breytingaskeiðið þegar það
kom í okkar eigu,“ segir Aðalheið-
ur. „Helstu breytingarnar voru að
sameina kvenna- og karlaklósett
í stærra baðherbergi og breyta
fataherbergi í svefnherbergi. Eld-
hús, borðstofa og salur og svið frá
tímum félagsheimilisins voru látin
óhreyfð. Kjallarinn, þar sem leik-
ararnir höfðu búningaaðstöðu, var
lagfærður og hýsir nú geymslur
og gestaaðstöðu. Við lögðum hins
vegar nýjar lagnir, einangruðum og
múruðum upp á nýtt. Svo var skipt
um alla glugga og hurðir. Þakið er
það eina sem var látið halda sér
með litlum lagfæringum,“ útskýrir
hún.
Aðalheiður, Jón og sonur þeirra
stóðu að miklu leyti sjálf í lagfær-
ingunum á húsinu, Iðnaðarmenn
voru fengnir þegar þurfti og vinir
og vandamenn kallaðir í vinnutarn-
ir. Hún segir þau ekki hafa fengið
neina styrki til framkvæmda, bæði
þar sem húsið hafi verið byggt af
vanefnum og í þrennu lagi. „Við
eigum hins vegar eftir að athuga
hvort einhverjir sjóðir séu tilbúnir
til að styrkja þá starfsemi sem við
ætlum að reka í húsinu, það er tón-
leika, sýningar og fyrirlestrahald,“
segir hún loks.
Líflegt heimilishald
Félagsheimili breytt í íverustað listamanna með áhugaverðri útkomu.
Hjónin og listamennirnir Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Jón Laxdal og börn þeirra ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Þau tóku
Freyjulund að sér þrátt fyrir að búið væri að dæma húsið ónýtt og hafa staðið í ströngu við að lagfæra það. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Eldhús ásamt borðstofu, kjallara, svið og sal var leyft að vera áfram sem næst upprunalegri
mynd sinni. Engu að síður krafðist húsið mikilla viðgerða sem staðið hafa í tæp tvö ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Með bjór og sígó. Það mætti halda að þessi skemmtilegi karl, sem kallaður er Hannes,
sé að taka sér pásu frá allri erfiðisvinnunni sem farið hefur í húsið. Hannes er eitt margra
sköpunarverka Aðalheiðar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Vinnuborð í stofunni. Á því eru svokölluð „collage“-verk, eða klippimyndir eins og þær
heita í lauslegri þýðingu, sem Jón er að vinna að. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Anna og Jón vildu finna húsnæði þar sem þau gætu bæði unnið og búið í. Reyndist Freyju-
lundur tilvalinn staður og var ákveðið að stofan skyldi jafnframt vera vinnustofa.
Aðalheiður er önnum kafin við listsköpun
en hún opnar sýningu á verkum sínum
laugardaginn 3. júní í J.V. galleríi við Kaup-
vangsstræti á Akureyri.
Aquis handklæði
Létt, fyrirferðalítil og frábær
í ferðalög og íþróttir. Góð við húðina,
þurrka vel og alltaf mjúk.
Daggir ehf.
Strandgötu 25 Akureyri • s: 462-6640 • www.daggir.is
Útsölustaðir: Daggir, Tékk kristall Kringlunni • Hárgr.stofan Scala Lámúla 5 • Everest Skeifunni 6
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Í Freyjulundi er gott pláss fyrir listamennina til að athafna sig auk þess sem birtuskilyrði eru
kjörin til listsköpunar.