Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 36
8
Við Ráðhústorgið í miðbæ Akur-
eyrar, nánar tiltekið við Brekku-
götu 3, er falleg antíkbúð kennd við
Frúna í Hamborg. Þetta er þó engin
venjuleg fornmunaverslun þar sem
yngstu hlutirnir eru 25 ára, auk
þess sem þar eru einnig seld notuð
föt. Eigendur búðarinnar eru þær
Þorbjörg Halldórsdóttir og Guðrún
Jónsdóttir, sem var svo vinsamleg
að segja aðeins frá Frúnni.
„Við erum náttúrlega ekki bara
með antíkmuni, þar sem hlutur þarf
að vera yfir hundrað ára gamall til
að geta borið það heiti með réttu,“
byrjar Guðrún á að segja. „Við selj-
um allt frá saumnálum, gömlum
plötum, annarri smávöru og upp úr.
Svo seljum við gamlan fatnað og
erum með umboðssölu fyrir fata-
verslunina Spútník.“
Samkvæmt Guðrúnu er alltaf
nóg að gera í antíkbransanum. „Það
eru ekki miklar sveiflur í bransan-
um, þó að notaðir hlutir séu meira
í tísku á sumum tímum en öðrum,“
segir hún. „Fólki finnst núna flott
að blanda því nýja saman við það
gamla. Varan sem við seljum er
aðallega innflutt frá Belgíu, Hol-
landi og Þýskalandi og eitthvað
smávegis frá Danmörku. Svo kaup-
um við hluti af fólkinu í kring.“
Frúin í Hamborg er uppfull ger-
sema og að sögn Guðrúnar er elsta
húsgagnið í búðinni 120 ára gam-
all ruggustóll. „Það kemur stund-
um fyrir að hingað ratar einhver
ofboðslega flottur munur,“ segir
hún. „Þá setjum við kannski gott
verð á hann, stundum í því skyni
að halda honum lengur þar sem
hann setur flottan svip á búðina.
Það eru allir velkomnir að heim-
sækja okkur og kíkja á úrvalið,“
segir hún loks.
Hingað rata alls
kyns gersemar
Frúin í Hamborg er öðruvísi antíkbúð, þar sem selt er allt
frá saumnálum upp í notuð föt.
Guðrún Jónsdóttir rekur Frúna í Hamborg í samstarfi við Þorbjörgu Haraldsdóttur. Hún býður þeim sem vilja að kíkja í heimsókn og skoða
úrvalið. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Í versluninni eru fallegir hlutir í miklu úrvali, eins og þessar tvær
hillur sýna glögglega. Auk húsgagna eru þar seldir ýmsir smámunir
og notuð föt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Skartgripir, skrautlegir speglar, hattar og hirslur. Allt saman fæst þetta í Frúnni í Hamborg,
en hlutirnir eru meðal annars innfluttir frá Belgíu, Hollandi og Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Það væri vafalaust þægilegt að halla sér út af í þessu fallega gamla rúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
Föt á alla fjölskylduna. Í Frúnni í Hamborg fást notuð föt á konur og
karla á öllum aldri. Hér sést fallegur skírnarkjóll á stelpur í bleikum
lit. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS
■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■