Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 38
10 Að sögn Bergsveins býr Kjarnaskógur yfir ómældum möguleikum sem útivistarsvæði. Þar má finna góða göngustíga, grillaðstöðu og leiksvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/KK ■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Í hugum margra er eitt helsta úti- vistarsvæði landsins að finna norð- an heiða, nánar tiltekið í Kjarna- skógi á Akureyri, en talið er að um 120.000 manns leggi leið sína þangað á ári hverju. Bergsveinn Þórsson, umhverfisfræðingur hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga, segir skóginn fyrirmynd annarra útivistarsvæða á landinu. „Bærinn keypti landið árið 1910 en Skógræktarfélag Eyfirðinga fékk það til afnota í nokkrum hlut- um á tímabilinu 1946-53,“ segir Bergsveinn. „Í dag er svæðið sex hundruð hektarar að stærð, en gamla Kjarnaskógarsvæðið er um hundrað hektarar. Á áttunda ára- tugnum samþykktu Akureyrarbær og Skógræktarfélagið síðan að breyta svæðinu í útivistarsvæði,“ bætir hann við. „Fyrirhyggjan var mikil því þarna var strax farið að leggja upplýsta göngustíga,“ útskýrir Bergsveinn. „Í dag eru göngustíg- ar nærri sex kílómetrar að lengd. Auk þess er ógrynni mjórri stíga, sem telja margfalt fleiri kílómetra. Í fyrsta lagi eru 3-4 metra breiðir upplýstir aðalstígar. Svo eru óupp- lýstir malbikaðir stígar, um það bil 1,5 metrar að breidd. Loks eru innan við metra breiðir skógarstíg- ar, eða kurlstígar, sem hlykkjast eftir skóginum,“ segir hann enn fremur. Að sögn Bergsveins hóf félag- ið snemma niðursetningu trjáa í Kjarnaskógi, svo að nú er þar mikil gróðursæld. „Búið er að planta 170 trjá- og runnategundum í skóginn, þar á meðal fjölda skrauttrjáa,“ segir hann. „Síðan eru leiksvæði í skóginum frá níunda áratugn- um. Ekki má heldur gleyma góðri grillaðstöðu og á vetrartímanum eru hérna troðnar skíðabrautir sem njóta töluverðra vinsælda. Á þessu opna útivistarsvæði ætti því að vera eitthvað við allra hæfi,“ segir Bergsveinn að lokum. Náttúruperla norðan heiða Bergsveinn Þórsson segir Akureyrarbæ og Skógræktar- félag Eyfirðinga hafa unnið gott starf í Kjarnaskógi. Í júlí 2002 fór Vignir í stutt ferða- lag í Fjörður með vinkonu sinni. „Við gistum í tvær nætur í tjaldi í Hvalvatnsfirði og gengum um svæðið á daginn,“ segir hann. Ekki er hægt að komast á bíl í Þorgeirsfjörð en vegur liggur niður í Hvalvatnsfjörð. „Við tjölduðum alveg niðri við strönd í Hvalvatns- firði og fyrsta kvöldið sóttum við rekavið í fjöruna og kveiktum bál og vorum aðallega við tjaldið. Daginn eftir gengum við svo yfir í Þorgeirsfjörð. Í Þorgeirsfirði er slysavarnarskýli og gamlar rúst- ir sem við skoðuðum. Við röltum síðan aftur yfir í Hvalvatnsfjörð eftir að hafa skoðað okkur vel um.“ Seinna kvöldið kveiktu Vign- ir og vinkona hans aftur bál og drógu fram bókin Huldulandið. „Bókin fjallar um Fjörður og sögu svæðisins. Í bókinni er sagt frá rústum sem er að finna þarna og í henni er mikið af þjóðsögum og draugasögum um fólk sem varð úti á leiðinni milli Þorgeirsfjarðar og Hvalvatnsfjarðar.“ Vignir og vinkona hans voru mjög heppin með veður þann tíma sem þau voru í Hvalvatnsfirði. „Það var snilldarveður allan tím- ann, fimmtán til tuttugu stiga hiti eða meira og sól og logn.“ Vignir segir að Fjörður séu frá- bært útivistarsvæði og ýmislegt sé hægt að gera þar. „Í Hvalvatnsfirði eru tjaldstæði og veiðiá og hægt er að kaupa veiðileyfi hjá veiði- verði sem er þarna. Það er ekkert svo langur gangur á milli Þor- geirsfjarðar og Hvalvatnsfjarðar, kannski klukkutími og stígurinn er vel merktur.“ Vignir var mjög ánægður með ferðina í Fjörður og mælir hiklaust með svæðinu fyrir þá sem hafa gaman af útivist. „Það var líka mjög gott að hafa Hulduland með og ef fólk ætlar eitthvað að stoppa þarna og skoða sig um er fínt að lesa þessa bók til þess að fá svona innsýn inn í svæðið.“ Alveg einstök náttúrufegurð Fjörður eru tveir firðir, Hvalvatnsfjörður og Þorgeirsfjörður, sem hafa ekki verið í byggð síðan í kringum 1944. Margir leggja þó leið sína þangað þar sem Fjörðurnar þykja einstaklega fallegt svæði. Vignir Stefánsson fór í ferðalag í Fjörður árið 2002 og varð mjög hrifinn. Vignir Stefánsson var ánægður með ferðalag sitt í Fjörður. Umhverfið er einstaklega fallegt og ýmislegt hægt er að gera. Vignir og vinkona hans kveiktu bál bæði kvöldin sem þau voru í Hvalvatnsfirði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.